Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 14

Morgunblaðið - 09.12.1980, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980 Matthías Bjarnason alþm.: Sjálfstæðismenn leggja höfuðáherzlu á afgreiðslu kjördæmamáls á næsta ári Hér fer á eftir í heild ræða sú. sem Matthias Bjarnason. alþm. flutti um kjörda'mamálið á flokksráðsfundi Sjálfstæðis- flokksins um síðustu helgi: Endurskoðun stjórnarskrárinn- ar hefur staðið yfir nú í rúmlega 8'A ár. Þann 8. maí 1972 samþykkti Alþingi þingsályktunartillögu um skipan 7 manna nefndar til að endurskoða stjórnarskrána og var sú nefnd kjörin daginn eftir. Hún kom saman til fyrsta fundar 12. september það sama ár, en form- lega skilaði þessi'nefnd ekki af sér störfum fyrr en 26. júlí 1978. En þá hafði skömmu áður, eða nánar tiltekið 6. maí 1978, verið sam- þykkt á Alþingi tillaga til þings- ályktunar um skipan stjórnar- skrárnefndar, sem sérstaklega skyldi taka til meðferðar kjör- dæmaskipan, kosningaákvæði stjórnskipunarlaga, skipulag og starfshætti Alþingis og kosninga- lög. Þessi nefnd átti að ljúka störfum innan tveggja ára, eða nú um næstkomandi áramót. Snemma á síðastliðnu hausti sendi þessi nefnd frá sér til þingflokkanna skýrslu. I fyrsta lagi yfirlit um ýmis atriði, sem koma til athugunar við endurskoð- un stjórnarskrárinnar, og í öðru lagi hugmyndir um breytingar á kjördæmaskipan og kosningafyr- irkomulagi. Þessi skýrsla hefur verið til meðferðar hjá þingflokk- unum síðan. Þingflokkur Sjálf- stæðisflokksins ræddi efni þessar- ar skýrslu strax í haust og öðru hvoru síðan og hefur varið alllöng- um tíma til þess að ræða þetta mikilvæga mál. Okkur í þingflokki Sjálfstæðisflokksins er ljóst, að alit verður að gera til þess að afgreiða þetta mál sem allra fyrst. Þingflokkurinn ætlar að starfa áfram að því að koma sér saman um samræmdar tillögur og að því loknu að ræða, fyrst óformlega við forustumenn annarra flokka, og síðan ganga til formlegs sam- komulags um lausn á þessu máli, sem því miður er búið að vera til meðferðar í allt of langan tíma, án þess að árangur hafi orðið á meiri en ég hefi þegar lýst. Okkur er að sjálfsögðu ljóst, að til þess að þetta mál geti komið til afgreiðslu á Alþingi þarf að nást víðtækt samstarf á milli stjórn- máiaflokkanna í landinu. Ég ætla nú að leitast við að skýra í sem stystu máli, hvað þessar athugan- ir fela í sér. Skal þá byrjað á því að ræða um hin ýmsu atriði, sem koma til athugunar við endurskoð- un stjórnarskrárinnar og þá helst þau, sem þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins telur að frekast komi til álita að breyta. Ein málstofa Þá er fyrst til að taka, að æskiiegt er talið af flestum að gera þá breytingu á 32. gr. stjórn- arskrárinnar, að þingið starfi að- eins í einni málstofu. Þeir sem eru fylgjandi þeirri breytingu telja, að mál fengju skjótari afgreiðslu en nú er á Alþingi og þá er gjarnan stuðst við reynslu Dana og Svía af einni málstofu, sem að mati þing- forseta þessara þinga eru talin jákvæð. Jafnframt er talið, að með þeirri breytingu að gera Alþingi að einni máistofu, þá kalli það á verulega breytingu á starfsháttum þingsins og þar þarf að huga að ýmsum þáttum áður en ákvörðun er endanlega tekin. Nefndir þings- ins mundu fá við þessa breytingu viðameira hlutverk en nú er og umræður færast meira inn í nefndirnar, en þó verður að gæta þess vel að takmarka ekki um of málfrelsi einstakra þingmanna í þinginu sjálfu frá því sem nú er, þó að sumum kannske, finnist að það megi gera. Skilyrðum kosningaréttar og kjörgengis er talið æskilegt að breyta á þann veg, að fella niður það skilyrði um kosningarétt og kjörgengi til Alþingis um óflekkað mannorð, en það er ekki lengur skilyrði við sveitarstjórnarkosn- ingar né til embættisgengis hjá ríkinu. Þá kemur mjög til athugunar að lækka kosningaaldur úr 20 árum i 18 ár, og þar vitna ég til sam- þykktar sem gerð hefur verið á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og styð ákveðið að aldurstakmarkið fari niður í 18 ár. I sambandi við valdsvið forseta íslands, þá hefur það mál verið rætt ítarlega, hvort ástæða væri til að gera þá stjórnarskrárbreyt- ingu, að forseti yrði ætíð að vera kjörinn með hreinum meirihluta atkvæða. I sambandi við þingrofsréttinn þá kom það fram í stjórnarskrár- nefndinni, og einnig í umræðum í okkar þingflokki að þingrofsrétt- urinn ylli vissum óstöðugleika í stjórnarfari og óeðlilegt væri að ríkisstjórn, sem hlotið hefði van- traust Alþingis og væri því komin í minni hluta, gæti leyst upp þingið og svipt þingmenn með því umboði sínu. I þessu sambandi var mjög vitnað til reynslu Norð- manna, en þar tíðkast ekki þing- rof. Ég fyrir mitt leyti tel, að það sé nauðsynlegt að breyta frá því sem nú er, að færa þennan rétt frá ríkisstjórn og forseta yfir til Alþingis, eða þá að stíga skrefið til fulls og afnema þingrofsrétt- inn, eins og er í Noregi og ég áður vitnaði til. Þá hefur verið rætt um það að fella niður Landsdóm, en Lands- dómur er sérstakur dómstóll sem hefur það hlutverk eitt að dæma í málum, sem Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af emb- ættisrekstri þeirra. Þessi dómur var settur á laggirnar 1905, en hefur aldrei komið saman. Það er því engin ástæða til að láta þetta ákvæði vera lengur í gildi í stjórnarskránni, en eðlilegt að fela æðsta dómstól landsins, Hæstarétti að fjalla um embættis- afbrot ráðherra. Sjálfsstjórn sveitarfélaga Þá hefur mikið verið rætt um aukna sjálfsstjórn sveitarfélaga, en í stjórnarskránni segir aðeins þetta um sveitarfélögin í 76. grein: „Rétti sveitarfélaganna til að ráða sjálf málefnum sínum með umsjón stjórnarinnar skal skipað með lögum". Mikill áhugi er fyrir því í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að auka mjög sjálfsstjórn og verksvið sveitarfélaganna í landinu og gera gleggri skil á skiptingu verkefna þeirra og ríkisins, og höfum við orðið ásáttir um að leggja til að orðalag þessarar greinar verði þannig: „Skipting á verkefnum sveitar- félaga og ríkisins skal við það miðuð að stækka umráðasvið sveitarstjórna, draga úr mið- stýringu og að fjármálaábyrgð og ákvörðun um framkvæmdir sé á sömu hendi og svo greini- lega aðskilin sem kostur er. Skipting tekjustofna skal vera í samræmi við verkefni hvors aðila fyrir sig. Þeirri skiptingu, sem tilgreind er í fyrri máls- grein þessarar greinar, svo og rétti sveitarfélaganna til að ráða sjálf málefnum sínum með umsjón ríkisstjórnarinnar, skal skipað með lögum“. Með þessu orðalagi er valdsvið sveitarfélaganna stóraukið og sjálfstæði þeirra miklu betur tryggt í sjálfri stjórnarskránni en nú er. Ég gæti farið miklu víðtæk- ar út í þessar hugmyndir, en verð að sleppa því, en hins vegar er aftur rétt að ræða það frekar sem og önnur atriði í þeim starfshópi, sem fær þetta mál til umfjöllunar á þessum fundi. Þá hefur verið rætt mikið, bæði í stjórnarskrárnefndinni og í okkar þingflokki, um mannrétt- indaákvæði stjórnarskrárinnar, og teljum við flestir vera brýna nauðsyn þess að breyta þeim ákvæðum frá því sem nú eru með tilliti til þeirra breytinga, sem orðið hafa með mannréttindasátt- mála Evrópu og mannréttinda- sáttmála Sameinuðu þjóðanna og við jafnframt viðurkennum, að þessi kafli, eins og raunar stjórn- arskráin í heild, eigi að geyma tiltölulega fáorðar meginreglur. Mjög hefur verið rætt um fram- kvæmd stjórnarskrárbreytinga og eru menn almennt inni á því, að núverandi kerfi sé þungt í vöfum og flestir eru á því að afnema beri það ákvæði að rjúfa þing, þegar stjórnarskrárbreyting hefur verið samþykkt og nægilegt væri, að stjórnarskrárbreytingin væri samþykkt af tveimur þingum, hugsanlega með kosningum á milli. Þá hefur þingflokkurinn gert samþykkt um að hvorki megi setja íþyngjandi reglur um skatta á tekjur eða eignir liðins árs né afturvirkar og íþyngjandi reglur um breytta eða nýja skattstofna og hafa tveir þingmenn flokksins tvívegis flutt á Alþingi frumvarp um þetta efni um breyting á stjórnarskrá lýðveldisins Islands — Matthías A. Mathiesen og Geir Hallgrímsson. Fjölmörg atriði önnur hafa komið til umfjöllunar í stjórn- arskrárnefndinni og við jafnframt rætt ítarlega í þingflokki Sjálf- stæðisflokksins, sem flest okkar teljum ekki ástæðu til að breyta frá núverandi stjórnarskrá, og þar skal ég nefna ýmislegt í sambandi við starfshætti Alþingis, m.a. störf og valdsvið þingnefnda, um þingflokka og stjórnmálaflokka, fjárlög, ríkisútgjöld, þjóðarat- kvæði, stjórnarmyndanir, hand- höfn forsetavalds, umboðsmann Alþingis, dómaskipan, verkefni dómsvaldsins auðlindir og um- hverfisvernd. Flest þessi atriði teljum við að komi frekar til greina að skipa nánar með lögum en að gera breytingar frá gildandi stjórnarskrá eða taka ný inn í stjórnarskrána. Kjördæmaskipan og kosninga- fyrirkomulag Ég ætla þá að snúa mér að hinum þætti þessa máls, kjör- dæmaskipan og kosningafyrir- komulagi og hvaða breytingar eru þar helst til umræðu. í þingsályktunartillögu þeirri, sem fjallaði um skipan núverandi stjórnarskrárnefndar segir að nefndin skuli taka sérstaklega til meðferðar kjördæmaskipan, kosn- ingaákvæði stjórnskipunarlaga, skipulag og starfshætti Alþingis og kosningalög. I samræmi við þetta þá fjallaði stjórnarskrár- nefndin ítarlega um þá kjördæma- skipan og kosningafyrirkomulag, sem nú eru í stjórnlögum og ræddi um hugsanlegar breytingar í þess- um efnum. Nefndarmenn báru ekki fram formlegar tillögur um breytingar á kjördæmaskipan og kosningafyrirkomulagi, því að þeir töldu ráðlegast og nauðsyn- legt að ráðfæra sig við sína þingflokka um þær meginhug- myndir, sem uppi hafa verið innnan nefndarinnar í þessum efnum áður en lengra yrði haldið. Þess vegna liggur ekki fyrir, hvort meiri hluti er í nefndinni fyrir einhverri ákveðinni leið eða lausn í þessum efnum umfram aðrar. Ég ætla ekki að gera að um- ræðuefni þær breytingar sem orð- ið hafa á kjördæmaskipan og kosningalögum á liðnum áratug- um því það var gert af fyrri frummælanda í þessu máli á fundinum, en ég vil þó fara nokkrum orðum um þær breyt- ingar, sem urðu með samþykkt núgildandi kjördæmaskipunar, sem fest var í stjórnskipunarlög- um 1959, en með þeim var gerð sú grundvallarbreyting, að landinu var skipt í 8 stór kjördæmi, þar sem kosið er hlutfallskosningu. Þau rúm 20 ár sem liðin eru, frá því að þessi breyting var gerð, hafa sýnt okkur að þessi breyting hefur reynst nokkuð vel, hvað það snertir að tryggja jafnræði á milli flokkanna í landinu miðað við það sem áður var. Þessu til skýringar er rétt að vekja athygli á því, að tölur um atkvæðafjölda að baki hverjum þingmanni í nokkrum kosningum fyrir þessa breytingu og síðan sambærilegar tölur frá kosning- unum 1978 og 1979. í kosningunum 1949 var atkvæðafjöldi að baki hverjum þingmanni sem hér segir: atkvæði Sjálfstæðisflokkur 1502 Framsóknarflokkur 1038 Sósíalistaflokkur, sem nefnir sig nú Alþýðubandalag 1564 Alþýðuflokkur 1705 Árið 1953 voru þessar tölur: Sjálfstæðisflokkur atkvæði 1368 Framsóknarflokkur 1059 Sósíalistaflokkur 1774 Alþýðuflokkur 2015 Árið 1956: atkvæði Sjálfstæðisflokkur 1843 Framsóknarflokkur 760 Alþýðubandalag 1982 Alþýðuflokkur 1894 Ef halda hefði átt áfram að úthluta uppbótarþingsætum 1956 þangað til fenginn hefði verið sem mestur jöfnuður fyrir alla þing- flokka, þá hefði orðið að úthluta alls 60 uppbótarþingsætum. En 1978 voru þessar atkvæðatölur á bak við hvern þingmann þannig: atkvæði Sjálfstæðisflokkur 1999 Framsóknarflokkur 1721 Alþýðubandalag 1996 Alþýðuflokkur 1922 I síðustu kosningum, fyrir einu ári, í desember 1979 var þessi tala á bak við hvern þingmann: atkvæði Sjálfstæðisflokkur 2087 Framsóknarflokkur 1815 Alþýðubandalag 2218 Alþýðuflokkur 2087 Og til þess að jöfnuður fengist eftir kosningarnar 1978 þá hefði þurft að úthluta til flokkanna 6 viðbótarþingsætum þannig, að til þess að fullur jöfnuður hefði náðst, hefði þurft að úthluta alls 17 þingsætum í stað 11. I síðustu kosningum hefði einn- ig þurft að úthluta 6 þingsætum til viðbótar, þannig að það hefði einnig þurft að úthluta 17 þing- sætum til þess að ná fullkomnum jöfnuði á milli flokka. Miðað við síðustu kosningar, til þess að ná jöfnuði á milli flokka, hefði Alþýðuflokkur fengið einum þingmanni fleira og Sjálfstæðis- flokkurinn þremur þingmönnum fleira og Alþýðubandalagið tveim- ur þingmönnum fleira. Þannig að ef nú væri fullkominn jöfnuður á milli flokka, þyrftu þingmennirnir að vera 66, og mundi þá Alþýðu- flokkur vera með 11 þingmenn, Sjálfstæðisflokkur 25, Alþýðu- bandalagið 13 og Framsóknar- flokkur með óbreytta tölu, 17. Það má því segja, að jöfnuður hafi verið bærilegur á milli þingflokk- anna eftir kjördæmabreytinguna 1959, miðað við það sem var áður en þessi breyting var gerð á stjórnskipunarlögunum. Þrjú stefnumið í umræðum um kjördæmamálið eru þrjú grundvallarstefnumið. I fyrsta lagi, að kjördæmaskipanin tryggi jafnræði milli stjórnmála- flokkanna í landinu, eins og frek- ast er kostur. í öðru lagi hefur verið rætt að hvert atkvæði vegi sem jafnast í kjördæmunum, þannig að kjósendur hafi sem jafnasta möguleika á að hafa áhrif á, hvernig Alþingi er skipað á hverjum tíma, án tillits til búsetu. I þriðja lagi, hvort rétt sé að gefa kjósendum meira svigrúm til þess að kjósa persónulegri kosningu en verið hefur fram að þessu. Varðandi kjördæmaskipanina þá hygg ég, að í Sjálfstæðisflokkn- um eigi óbreytt kjördæmaskipan verulegu fylgi að fagna. Því er ekki að neita, að margir Sjálf- stæðismenn eru fylgjendur ein- menningskjördæma, en flestir telja ólíklegt að hægt sé að taka upp baráttu fyrir þeim. Þær breytingar, sem hafa verið nefndar í sambandi við kjördæma- skipanina hafa verið aðallega að skipta Reykjaneskjördæmi og gera Suðurnesin að sérstöku kjör- dæmi. Ennfremur hafa verið nefndar nokkrar aðrar breytingar, og má búast við því, ef farið verður í að breyta kjördæmaskip- an á annað borð, að þá verði uppi nokkrar tillögur um breytingar umfram það, sem hefur komið fram um skiptingu Reykjanes- kjördæmis. í þingflokki Sjálfstæðisflokks- ins hefur þetta verið rætt einmitt með þessum hætti, en endanlegar ákvarðanir ekki teknar. Annað atriði um að atkvæði vegi sem jafnast í kjördæmunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.