Morgunblaðið - 09.12.1980, Side 18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1980
Nýliðarnir Friða Gylfadóttir, scm leikur Steinu, og Jóhann Tómasson, sem leikur
Jóa. Þau voru að sjálfsogðu á frumsýningunni. Hér eru þau með Jóni Þórarinssyni,
sem samdi tónlistina.
Austur Skaftafellssýslan skartar í kvikmyndinni. Bœrinn Hiiðar undir Steinahlið-
um var reistur næstum i túnfætinum i Hvalnesi. Þaðan voru komin til frumsýningar
Valgerður húsfreyja Sigurðardóttir og Benedikt bóndi Stefánsson, sem hlóð
túngarðinn fræga. Hér eru þau og með þeim Arnhildur Jónsdóttir, sem leikur
húsfreyju i Hliðum.
íslendingum, sem eiga eftir að
sjá myndina og vonandi njóta.
Hann er sjálfur sögumaður í
þýzkri útgáfu kvikmyndarinnar
og samdi handritið.
Um kvikmyndina sagði Hall-
dór Laxness að sýningu aflok-
inni: — Ég á erfitt með að hugsa
mér að sagan komi betur fram í
kvikmynd en þetta. Og er undr-
andi yfir því hvað myndin er
gerð af mikilli smekkvísi, skiln-
ingi og þrautseigju. Ekki á allt
það, sem búið er til í skáldsögu,
að vísu jafn vel við í kvikmynda-
formi, og þarf stundum að
skrölta yfir kafla og kafla, en
mér var unun að horfa á sum
atriði myndarinnar. Hann lofaði
leikarana, sagði að það skipti
máli fyrir „identitet" verksins að
leikstjóri hefði valið íslenzkt
fólk í hlutverkin. En gat þess
jafnframt að það hefði verið góð
hugmynd hjá Hádrich að hafa
þýzkan leikara sem danskan
kóng.
Til skýringar skaut Rolf Hád-
rich því inn í, að leikarinn þýzki
Dietmar Schönherr væri kvænt-
ur dönsku leikkonunni Vivi Bach
og því gæti hann talað nokkra
dönsku.
Hádrich sagði að 24% sjón-
varpsáhorfenda hefðu kosið að
horfa á kvikmyndina í Þýska-
landi, sem þætti mjög gott. Og
henni verið mjög vel tekið. Og
hefur borist fjöldi blaðaum-
sagna. Paradísarheimt hefði nú
náð til um 6 milljóna sjónvarps-
áhorfenda í Þýzkalandi og Sviss.
Og áhugi væri á að selja hana til
Ameríku. Um kostnað sagði
hann að hann hefði ekki verið
upp gerður, en 2‘/é millj. þýzkra
marka eða um 750 milljón ísl.
króna væru komnar í hana og þá
ótalin vinna hjá þýzka sjónvarp-
inu við klippingu o.fi. En þetta
teldist ekki dýrt fyrirtæki á
mælikvarða Þjóðverja. Og Hin-
rik Bjarnason bætti við, að
íslenzki kostnaðurinn væri um
35 milljónir króna, sem vafa-
laust væru bestu kaup, sem
íslenzka sjónvarpið hefði gert.
Báðir sögðu þeir að áhugi væri á
að kvikmynda enn eina af
skáldsögum Laxness, en vildu
ekki segja neitt meira um það að
svo stöddu.
Sagði Hádrich að fyrir þýzka
áhorfendur væri ákaflega
áhugavert þetta sérkennilega
landslag. Öll heimsbyggðin væri
að leita eftir hinni hreinu nátt-
úru og óbrotnu fólki — fólki
einföldu í sniðum, svo sem Stein-
ar bóndi, sem gæti hugsað og
það svo stórbrotið. Verk Hall-
dórs og kvikmyndun hér væri því
stórkostleg fyrir þýzka áhorf-
endur. Hann gat þess að Björn
Björnsson leikmyndasmiður,
sem væri kunnugur öllum að-
stæðum, hefði verið ómetanlegur
til að ná hinum rétta blæ á
verkið. Þannig hefur Rolf Hád-
rich skynjað hinn íslenska veru-
leika og myndin hefur hægan
episkan og íslenzkan sögustíl
— E.Pá
ir hefur aldrei leikið fyrr. Hún
er í Kvennaskólanum og var 14
ára er hún var valin úr hópi
umsækjenda. Hún segir að þetta
hafi verið erfitt, en skemmtileg-
asta erfiði sem hún geti ímyndað
sér. Henni fannst dálítið furðu-
legt að sjá sig svona á kvikmynd
og spurningunni um það hvort
þetta hefði kveikt svo í henni að
hún hyggðist gerast leikari,
svaraði hún: Hver veit! En ég lýk
alla vegana stúdentsprófi fyrst.
Piltinn Jóa eða Jóhann Gylfason
fundu kvikmyndamenn á Kefla-
víkurflugvelli, eftir mikla leit að
slíkum strák. Hann hefur heldur
aldrei borið við að leika, en er
aftur á móti mikið á hestum. Við
hittum hann í hléi ásamt konu
sinni Helgu Möller, söngkonu.
Kvaðst hann hafa haft ákaflega
gaman af þessu æfintýri.
Þarna mátti í hópi þeirra, sem
komu við sögu kvikmyndunar sjá
fólk langt að komið, m.a. sýslu-
mann Austur-Skaftfellinga,
Friðjón Guðvarðarson, sem
sagði: — Best leikur Skafta-
fellssýslan sitt hlutverk, og má
það til sanns vegar færa, svo
fagurt sem landslag er í mynd-
inni. Og hann bætti við að ekki
væri hann eins ánægður með
Hornafjarðarmánann. Og þarna
var kominn Benedikt bóndi Stef-
ánsson í Hvalnesi og Valgerður
Sigurðardóttir kona hans, en
Hlíðarbærinn var gerður rétt í
túnfætinum hjá þeim og Bene-
dikt hlóð túnvegginn, sem skipt-
ir svo miklu í sögunni.
Um jólin fá íslendingar að
sjá i þremur köflum sjón-
varpskvikmyndina Paradísar-
heimt. Kvikmyndaða sögu Hail-
dórs Laxness af Steinari í Hlíð-
um undir Steinahlíðum, sem
uppi var á dögum Kristjáns
Vilhjálmssonar, bóndanum sem
hélt út í heim, lenti hjá morm-
ónum i Saltsjólandi, en er i
sögulok aftur kominn heim að
ieggja stein við stein f hina
fornu veggi i Hliðum undir
Steinahliðum. Þessi kvikmynd,
sem hinn þýzki leikstjóri Rolf
Hádrich gerði í fyrra var nú
frumsýnd hér á laugardag. eftir
að hafa komið fyrir augu 6
milljóna sjónvarpsáhorfenda í
Þýzkalandi og Sviss og er á leið
á skjáinn á Norðurlöndum.
Myndin hefst með frásögn
sögumanns, Halldórs Laxness
sjálfs, um tilurð hests lofts og
lagar, Krapa í Hlíðum, og lýkur
330 mínútum síðar er Steinar
tekur til við vegghleðsluna aftur.
Hefur sögusviðið og kvikmynda-
lið þá borist vítt um lönd, til
Norður-Þýzkalands, vestur til
Utah í Bandaríkjunum og um
sunnanvert ísland, allt austur í
Austur-Skaftafellssýslu og mik-
ið lið leikara og tæknimanna
komið við sögu. Þar í flokki
okkar traustustu leikarar, sem
Islendingar þekkja af sviði, en
sjá nú á kvikmyndatjaldinu í
litum, svo sem Róbert Arnfinns-
son í hlutverki mormónabiskups,
Nokkrir leikarar í hléi. Margrét Ólafsdóttir, Steindór Hjörleifsson og Róbert Arnfinnson, sem öll
leika i kvikmyndinni eru hér ásamt Stellu konu Róberts.
Gunnar Eyjólfsson sem skáld-
sýslumaðurinn, Helgi Skúlason
presturinn, Valur Gíslason
bóndinn, allir óborganlegir í
sínum alíslenzku gervum, Helga
Bachman og Árósa sem Borgý og
María og Rúrik sem Runólfur
vestur -í Mormónabyggð og
margir fleiri. Leikarar og tækni-
fólk var viðstatt frumsýninguna,
enda ótrúlega margir sem leggja
hönd að svo stóru verki. Jón
Laxdal, sem leikur höfuðpaur-
inn, Steinar bónda, var þó ekki
staddur hér á landi.
En í kvikmyndinni fáum við
líka að sjá ný andlit. Þórður
Sigurðsson sem Björn á Leirum
hefur að vísu sést fyrr á tjaldi.
En Fríða Gylfadóttir, sem leikur
Steinu í Hlíðum, Arnhildur
Jónsdóttir sem leikur húsfreyju
og Jóhann Tómasson sem leikur
Jóa, biðil Steinu, koma í fyrsta
sinn þar áhorfendum. Arnhildur
hefur áður leikið á sviði eftir að
hún lauk leiklistarnámi, bæði í
Kópavogi og hjá Leikfélagi
Reykjavíkur, auk þess sem hún
hefur sett upp úti á landi og
haldið leiklistarnámskeið þar.
Hún er hestakona og sést ríða í
söðli. En hestar sjást eðlilega
margir á skjánum og má glögg-
lega greina hvar snillingar fara,
sem kunna að halda hestum til,
svo sem Gunnar Eyjólfsson.
Unga stúlkan Fríða Gylfadótt-
Jón Þórarinsson tónskáld á
þar sinn hlut, samdi tónlistina,
sem svo vel fer við ríðandi fólk
og landslag. Hann kvaðst hafa
fengið að sjá myndina gróf-
klippta. Fór til Þýzkalands til
þess í vor og fékk þá tímasetn-
ingu á hvern lið, samdi tónlist-
ina svo frá apríl til júní, og fór
út aftur, þegar hún var flutt af
hljómsveit Norðurþýzka sjón-
varpsins. — Þetta var eftir
skeiðklukku og allt önnur vinnu-
brögð en maður á að venjast,
sagði hann.
I lok sýningarinnar þakkaði
kvikmyndastjórinn þýzki Rolf
Hádrich öllum sem að þessu
mikla verki stóðu og öllum
Allir leita að hreinni náttúru og óbrotnu fólki, sem getur hugsað stórt, sagði leikstjórinn Rolf Hádrich
á blaðamannafundinum með honum og Halldóri Laxness að aflokinni sýningu. Hinrik Bjarnason,
fulltrúi Sjónvarps lengst til hægri. Ljósm. ól.K. Mag.
Gerð af smekk- _
vísi og' skilningi
- segir Halldór Laxness um Paradísarheimt