Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 1

Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 1
32 SÍÐUR 276. tbl. 68. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Flytja Sovétmenn her- lið þvert yfir Pólland? Varsjá, WashinKton, BrUssel. Róm, 9. desember. — AP. SOVETSTJÓRNIN hefur flutt herflutninKavagna að pólsku landa- mærunum og hert eftirlit með fjarskiptum á svæðinu, að því er bandariskir embættismenn sögðu í dag. Jafnframt hafa varaliðar verið kvaddir i herinn í Sovétríkjunum, Austur-býzkalandi og Tékkóslóvakíu. Fréttir hafa borizt frá Varsjá þess efnis, að Sovétríkin hafi beðið pólsku stjórnina um heimild til að flytja fjögur herfylki þvert yfir landið til Austur-Þýzkalands. Enn er þó litið á fréttir þessar sem sögusagnir og Muskie utanríkisráð- herra Bandaríkjanna sagðist í dag ekkert hafa heyrt þessu til stuðn- ings. Muskie sagði ennfremur, að ráðist Sovétríkin á Pólland verði slökunarstefnan að engu. Dagblað póiska hersins sagði í dag, að ekki væri svigrúm í landinu fyrir verkalýðsfélög, sem andvíg væru ríkinu né heldur aðra hópa í andstöðu við ríkisvaldið. Hin opin- bera pólska fréttastofa skýrði frá því, að tilraun hefði verið gerð til að fremja skemmdarverk í kolanámu nærri Katowice. Pólska stjórnin hefur undirritað samkomulag við háskólastúdenta, sem krafizt hafa eigin stéttarfélags, en um 200 stúdentar voru eftir sem áður í setuverkfalli og kröfðust meira sjálfstæðis til handa pólsku kvikmyndaakademíunni. ítalski kommúnistaflokkurinn gaf í dag út harðorða yfirlýsingu, þar sem Sovétstjórnin er vöruð við íhlutun í málefni Póllands og sagt að innrás í landið kunni að hafa „mjög alvarlegar afleiðingar". Því hefur verið spáð að innrás í Pólland kunni að leiða til þess að slitið verði formlegum samskiptum milli sov- ézka kommúnistaflokksins og hins ítalska, en hann er stærsti kommún- istaflokkur í Vestur-Evrópu. Pólverjar hafa farið fram á að fá keypt við vægu verði nokkuð af umframbirgðum Efnahagsbanda- lags Evrópu af matvælum, m.a. 100 þúsund tonn af kjöti, 40 þúsund tonn af smjöri og 1,5 milljón tonn af skepnufóðri. Máliö verður tekið fyrir á fundi utanríkisráðherra EBE-landanna í næstu viku. Leið- togar sömu landa hétu því í síðustu viku að taka þessari beiðni vel. Yoko Ono. ekkja bítilsins John Lennons. kemur yfir- huguð af harmi frá Roose- velt-sjúkrahúsinu í New York eftir að maður hennar hafði verið myrtur í fyrrakvöld. í fylgd með henni eru lögreglu- menn. (Símamynd AP.) Útgöngubann í Bethlehem — mikil spenna á Vesturbakkanum Bethlehem, Kairó, 9. des. — AP. MIKIL spenna ríkir nú í Bethle- hem á Vesturbakka Jórdanár, eftir að ísraelska herstjórnin tilkynnti síðdegis útgöngubann í borginni til að hægt væri að loka háskóla borgarinnar, en þar urðu í gær átök sem stóðu í átta klukkustundir miili ísraelskra hermanna og arabískra náms- manna. Hermennirnir gripu til þess að nota táragas til að dreifa hópnum sem grýtti lögrcgluhíla og hermennina og lokaði leiðinni til Ramallah sem er fimm km norður af Jerúsalem. Þessi mót- mæli fylgja í kjölfar þeirrar umdeildu ákvörðunar Israels- stjórnar að vísa tveimur borgar- stjórum á Vesturbakkanum úr landi, vegna hollustu þeirra við PLO. Nokkrir erlendir blaðamenn voru teknir fastir skamma stund í Ramallah og skipað að fara úr bænum, en störf erlendra frétta- manna í bæjum á Vesturbakkan- um, hafa verið torvelduð síðustu daga, eða síðan ólgan tók að magnast fyrir alvöru. „Segið að það sé ekki satt, segið að hann sé lifandi!“ John Lennon syrgður um allan heim New York, 9. desember. — AP. MORÐIÐ á brezka bítlin- um John Lennon hefur vakið óhug og vandlæt- ingu um allan heim. en Lennon var myrtur í gær- kvöldi er hann var að koma heim til sín í fylgd með konu sinni, Yoko Ono. Fyrrverandi félagar hans í hljómsveitinni The Beatles voru harmi lostnir í dag og sama er að segja um milljónir aðdáenda þeirra víða um lönd. Lög Lennons voru leikin nær stanzlaust í fjölda útvarpsstöðva austan hafs og vestan í dag. 25 ára gamall maður, Mark Varnarmálaráðherrar NATO: Óska eftir AWACS-vélum vegna atburða í Póllandi BrUssel, 9. desembcr. — AP. Varnarmálaráðherrar aðildar- rikja Atlantshafsbandalagsins hafa ákveðið að óska eftir þvi við Bandarikin að fjórar AWACS- radarflugvélar verði sendar til V-Evrópu vegna athurðanna í Póllandi. að þvi er heimildir i Brússel herma. Liklegt er talið að Bandarikin verði við þessari beiðni og vélarnar verði sendar af stað mjög hráðlega. Robért H. Falls flotaforingi og formaður hermálanefndar Atl- antshafsbandalagsins sagði í dag, að Rússar gætu ráðist inn í Pólland með nokkurra stunda fyrirvara og að svo kynni að fara, að Vesturveldin „vissu ekkert af því fyrr en allt væri um garð gengið“. Falls sagði ennfremur, að ef til innrásar kæmi yrði herafli líklega sendur frá bækistöðvum í Rússlandi eða herstöðvum í Pól- landi en ekki frá Austur-Þýzka- landi. Falls sagði, að flota Atlants- hafsbandalagsins yrði haldið úti um jólin og engin leyfi veitt. „Að hætta öllum viðbúnaði yfir hátíð- irnar kynni að vera það sama og að segja Rússum, að það skipti ekki miklu máli hvað þeir hafast að á austurlandamærum Pól- lands," sagði hann. David Chapman, hefur verið handtekinn og sakaður um morðið á John Lennon. Hann hafði beðið við húsið, sem Lennon og Yoko Ono bjuggu í, frá því um fimm leytið, en þá hitti hann þau hjón og fékk eiginhandaráritun hjá Lennon. Þegar þau komu heim að nýju, rétt fyrir kl. 23, gekk hann að þeim og kallaði til þeirra: „Mr. Lennon". Síðan tæmdi hann úr skammbyssu sinni. Fékk John fjórar kúlur í sig og fóru tvær þeirra í gegnum hann. „Eg hef verið skotinn", æpti John og tók á rás upp sex þrep inn á skrifstofu, Nýleg myndaf John Lennon. sem er í húsinu, en þar féll hann niður og var látinn. Yoko Ono slapp ómeidd. Chapman kastaði frá sér vopn- inu, þegar þessu var lokið og beið rólegur þar til lögreglan kom á vettvang. Farið var með Lennon í sjúkrahús í miklum flýti, en læknar sögðu að engin leið hefði verið að bjarga lífi hans. Yoko Ono varð gjörsamlega miður sín, þegar henni var sagt að maður hennar væri látinn. „Segið mér að það sé ekki satt, segið mér að hann sé lifandi," hrópaði hún þegar henni voru færðar fréttirn- ar. Mark David Chapman hefur undanfarið verið búsettur í Hono- lulu á Hawaii, en er fæddur í Georgíuríki. Hann kom til New York fyrir viku og hafði sést á ferli við bústað Lennons og Ono nokkrum sinnum undanfarna daga. Chapman starfaði í nokkur ár í prentsmiðju í Honolulu og var síðan öryggisvörður um tíma, en hefur ekkert starfað undanfarið. Hann var vel látinn starfsmaður og ekki talinn eiga við erfiðleika að stríða. Chapman hafði hreint sakavottorð er hann festi kaup á skammbyssu á Hawaii sl. haust. Sjá nánar um John Lennon og viðbrögðin við morði hans á bls. 12,14 og 15 í Mbl. i dag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.