Morgunblaðið - 10.12.1980, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980
1»
Fyrirlestur fyr-
ir hagfræðinga
og lögfræðinga
EINN af yfirmönnum skipulags-
mála Strathciyde-héraðs, eða
Stór-Glasgow svæðisins í Skot-
landi. Ian S. McFarlane mun
halda fyrirlestur í kvöld, miðviku-
dagskvöld um héraðsskipulag og
samvinnu sveitarfélaga. Mun
hann leggja sérstaka áherslu á
lögfræðiieg og hagfræðileg atriði i
þessu sambandi. Fyrirlesturinn
verður haldinn í Lögbergi, húsi
Lagadeildar Háskólans og hefst
klukkan 8.30.
McFarlane er lögfræðingur að
mennt og hefur starfað um 20 ára
skeið að skipulagsmálum Glasgow
og nágrannabyggða. Hann kemur
hingað á vegum Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins, en fyrirlest-
urinn í kvöld er haldinn í samvinnu
við Lögmannafélag Islands og Fé-
lag viðskiptafræðinga og hagfræð-
inga.
Jólatréð frá ösló er komið á
sinn stað á Austurvelli i
Reykjavik. Jólaljósin á því
verða hins vegar ekki kveikt
fyrr en síðar með tilheyr-
andi hátíðahöldum.
(Ljóxm. ÓI.K.Mag.)
Rikisstjórnin:
24% vörugjald til
ársloka næsta árs
RÍKISSTJÓRNIN hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp til laga,
er miðar að því að framlengja lög
um „sérstakt timabundið vöru-
gjald“ til ársloka 1981, en gjaldið
er 24% af ákveðnum vörutegund-
um. Lögin um vörugjaldið eru frá
því í desember 1978, en í athuga-
semdum með stjórnarfrumvarp-
inu er nú miðar að þvi að
framlengja gjaldið, segir svo
meðal annars:
Frumvarp þetta til breytinga á
lögum nr. 107/1978 um sérstakt
tímabundið vörugjald með síðari
breytingum er lagt fram til fram-
lengingar á innheimtu sérstaks
vörugjalds sem samkvæmt bein-
um ákvæðum laganna falla úr
gildi frá og með næstkomandi
áramótum. í forsendum frum-
varps til fjárlaga fyrir árið 1981 er
gert ráð fyrir að lögin verði
framlengd óbreytt. Samkvæmt
tekjuáætlun fjárlagafrumvarpsins
er gert ráð fyrir að sérstakt
vörugjald skili í ríkissjóð um
37.000 m.kr., þar af 4.600 m.kr. af
innlendri framleiðslu en 32.400
m.kr. af innflutningi. Til saman-
burðar má geta þess að tekjur af
gjaldi þessu fyrir árið 1980 eru
áætlaðar um 25.800 m.kr. Jafn-
framt framlengingu á gildistíma
laganna er lagt til að nokkrar
breytingar verði gerðar á einstök-
um greinum laganna og er gerð
grein fyrir þeim hér á eftir í
athugasemdum við einstakar
greinar.
INNLEN-T
„Gífurleg spenna í
síðustu umferðinni“
SKÁK okkar Sax var ein
af úrslitaskákum móts-
ins og það voru miklar
sviptingar í henni, sagði
Margeir Pétursson al-
þjóðlegur skákmeistari
þegar Mbl. ræddi við
hann í gærkvöldi en þá
var íslenzka sveitin ný-
komin til landsins frá
Möltu.
— Við vorum mjög
óheppnir að dragast á móti
Ungverjum í síðustu um-
ferðinni því það var vitað
mál að þeir yrðu í miklum
bardagaham vegna hinnar
geysihörðu keppni við So-
vétmenn um ólympíutitil-
inn, sagði Margeir. — Skák-
irnar þróuðust þannig að
Helgi, Jón L. og Jóhann
fengu erfiðar stöður strax
um 20. leik og urðu að gefa
skákirnar. Eg lumaði á
heimabruggi gegn Sax og í
20. leik bauð hann mér
jafntefli. Ég hafnaði því,
taldi stöðu mína betri. En
fljótlega missti ég þráðinn
og var kominn með mun
verri stöðu og líklega tapað
tafl og bauð jafntefli, sem
hann hafnaði. Við lentum
báðir í æðislegu tímahraki
og þegar biðstaðan var
skoðuð kom í ljós að ég átti
þráskák og jafntefli var
fljótlega samið. Þetta
reyndist sá hálfi vinningur,
sem átti stóran þátt í að
færa Sovétmönnum titilinn
á stigum eins og síðar kom í
ljós, en þjóðirnar voru efst-
ar og jafnar með 39 vinn-
inga. Það var auðvitað gíf-
urleg spenna á meðan síð-
asta umferðin var tefld og
— sagði Margeir
Pétursson
lang mest var fylgst með
viðureign okkar við Ungv-
erja og viðureign Dana og
Sovétmanna, sem þeir síð-
arnefndu unnu einnig
3 ^^. Ekki var síður
Margeir Pétursson
spennandi að fylgjast með
biðskákunum í viðureign
Grikkja og Skota. Það var
Sovétmönnum í hag að
Grikkir ynnu en Ung-
verjum í hag að Skotar
ynnu. Báðar þjóðirnar
fengu góða hjálp, Ungverj-
ar hjálpuðu Skotum við
biðskákirnar og Sovétmenn
hjálpuðu Grikkjum og það
voru þeir sem reyndust
sterkari.
ísland hafnaði í 23.-28.
sæti með 30 vinninga, eftir
að hafa verið lengst af
meðal efstu þjóða. — Við
fengum mjög sterkar þjóðir
sem mótherja og þar lá
munurinn, sagði Margeir.
— En í heidina var þetta
skemmtilegt mót og andinn
í sveitinni einstaklega góð-
ur. Við vorum með yngstu
sveitina sem var í toppbar-
áttunni og það vakti veru-
lega athygli.
Árangur einstakra skák-
manna var sem hér segir:
Friðrik Ólafsson hlaut hálf-
an vinning í 3 skákum eða
16,7%, Helgi Ólafsson hlaut
5 vinninga í 12 skákum eða
41,7%, Jón L. Árnason
hlaut 7 vinninga í 14 skák-
um eða 50%, Margeir Pét-
ursson hlaut 8V2 vinning í
13 skákum eða 60% og Ingi
R. Jóhannsson hlaut 3 vinn-
inga í 4 skákum eða 75%.
Margeir náði 9. bezta ár-
angri 4. borðsmanna á mót-
inu. Ekki munaði miklu að
hann næði stórmeistaraár-
angri en samkvæmt gamla
kerfinu, sem var í gildi til
1978, hefði árangurinn á
Möltu fært Margeiri hálfan
stórmeistaraárangur. Eins
munaði litlu að Jóhann
Hjartarson næði áfanga í
alþjóðlegan meistaratitil.
Hins vegar náði hann áf-
anga í FIDE-titil.
íslenzka kvennasveitin
sýndi miklar framfarir frá
fyrra Ólympíumóti, hlaut
21V2 vinning og varð í 20.
sæti af 43 þátttökuþjóðum.
í karlaflokki voru þátttöku-
þjóðir 82 að tölu.
Ef starfsmaóur í 18. launaflokki VR
mætir daglegalO minútum of seint
til vinnu, tapar fyrirtæki hans
126.720 krónum á ári!
HEFUR ÞITT FYRIRTÆKI EFNI Á ÞVÍ?
Nú bjóöum við hjá SKRIFSTOFUVÉLUM
nýja línu í stimpilklukkum frá STROMBERG.
Stimpilklukkur þessar eru til í mismunandi
stæröum og gerðum sem henta öllum
stærðum fyrirtækja.
Stimpilklukka hvetur starfsmenn til stund-
vísi.
Hafðu samband við sölumann okkar um
hvaða klukka hentar fyrirtæki þínu.
I SKRIFSTOFUVÉLAR hTfTI
'ÍA + _ ,4? Hverfisgötu 33
Sími 20560
HVERFISGATA
FRÁDRÁTTUR:
ns -12 ^I2j05 812.95 -12.% SI8 08 — 18 06
«8.90 -12.06 -0.02 —18 08
£8.94 ^9.06 ^12 05 913.15 918.06
-12 oo 512.% 518.12
-9 j04 — 12.06 — 13-06 — 18 >06
”8.% SI2joi 512.90 —18 .04
29 00 «12.12 «13.82 «18.10
"'8.90 -'12 05 ''12.98 '-'18.06
4 OO •»I2d4 *I2.% -r|8 .05
-8.95 12.04 -13.04 -18.22
"8.91 oO 06 ■■■■ ' "12.90 Ulfl - IU -VT