Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 29

Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 29 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 0100KL 10— 1t FRÁ MANUOEGI Bókmennta- kvöld í Listasaini dögum áður en „áfengishamingj- an“ fékk útrás í skemmdarstarfi á blómum og gróðri við Austurvöll, en að því stóðu m.a. gestir vínveit- ingahúsa að sögn lögreglunnar. Kannski hefir einhver skemmd- arvarganna farið að ráðum lista- mannsins í leit að hamingjunni? Að menn geti sokkið svo djúpt í sjálfsblekkingunni gagnvart áfenginu að líkja því við ham- ingjulind, er öllum þarft umhugs- unarefni. Hvaða alkóhólisti myndi t.d. vilja taka undir orð listamanns- ins? Hafa þeir ekki einmitt sagt hið gagnstæða, að þá fyrst hafi þeir fundið það bezta á sjálfum sér og öðlast hamingjuríkt líf, þegar þeir losnuðu úr viðjum áfengisins? Hvaða hamingja er og fólgin í því að stuðla beint eða óbeint að annarra ógæfu? Og hvað sagði einn mesti and- ans jöfur allra tíma, stórskáldið Goethe, um áfengið? Hann sagði: „Ef ég gæti rekið áfengið burt úr heiminum, þá væri ég sæll. Ég drekk sem stendur ekkert af víni, og fer daglega fram í skarp- skyggni og vinnuþreki." Þeir, sem standa að áfengis- áróðri, baka sér þunga ábyrgð. Þeir gefa því sjálfum sér og öðrum vart betri jólagjöf en að láta af slíkri iðju. Á enga samleið með boðskap jólanna „Jólaglöggið" og barnasöngur í vínveitingahúsi varð kveikjan að þessum hugleiðingum. Er til of mikils ætlast, að þeir, sem hagn- ast á sölu áfengis, hlífi blessuðum börnunum við því að vera notuð sem tálbeita á sjálfri aðventunni í þjónustu Bakkusar. Málstaður hans á enga samleið með boðskap jólanna. En umfram allt ætti það þó að vera metnaðarmál allra kristinna manna að leggja sig fram um að reyna að læra að lifa lífinu án áfengis. Það er heilbrigt og því fylgir mikil hamingja. Verum ávallt minnug orða mannvinarins mikla, Albert Schweitzers, en hann sagði áfeng- ið vera „okkar versta óvin, trúar- lega og siðferðilega séð“. fyrir 50 árum „Kappakstur — foraraust- ur. Undanfarna stórrign- ingardaga hefir borið óþarf- lega mikið á því, að bifreiða- stjórar bæjarins hafa ekið um göturnar — gegnum forar- pollana. líkt og um væri að ræða kappakstur. en ekki venjulega götuumferð. Ber slík umferð þann árangur, að fótgangandi fólk, sem verður á vegi bílanna, fær yfir föt sín gusur — sem likjast einskon- ar holskeflum af aurvatni. Mjög er það mismunandi. hvc bilstjórar taka mikið eða lítið tillit til fólks, sem varnarlaust er fyrir foraraustri þessum. En ætlandi er það forstjórum bifreiðastöðvanna, að þeir brýni það fyrir starfsmönnum sinum, að þeir ausi ekki veg- farendur auri að óþörfu — rjett eins og að gamni sínu. Vegfarandi.“ „Beriin 5. des. United Press. FB. Hindenburg hefir tekið til greina lausnarbeiðni Johann Bredt dómsmálaráðherra. Baðst hann lausnar eftir að „ökonomi“-flokkurinn hafði gengið í lið með stjórnarand- stæðingum. Hindenburg hefir útnefnt Joel dómara eftir- mann Bredts.“ Bubbi Morthens — „... þúsund sinnum betri málsvari verkafólks en allaballarnir i ráðherrastólunum“. Þaö á enginn Bubba Þ.Sig., 17 ára, skrifar: „Kæri Velvakandi. Mig langar til að biðja þig um ofurlitla orðsendingu til kommanna sem eru alltaf að skamma Bubba Morthens í Þjóðviljanum og annars staðar þar sem þeir koma því að. Ég er á þeirri skoðun, að allaballarnir, eins og Bubbi kallar kommana í Alþýðubandalaginu, eigi ekkert í Bubba og ættu þess vegna að hætta að heimta að Bubbi syngi eins og þeir vilja. Bubbi er á móti allaböll- unum eins og plötur Utangarðs- manna sýna. Það á enginn Bubba og síst af öllum allaballar. Þeir verða að fara að skilja það þessir menn- ingarvitar að það eru fleiri sem bera hag verkafólks fyrir brjósti en atkvæðasmalar allaballanna. Það get ég líka látið þá vita, að Bubbi er þúsund sinnum betri málsvari verkafólks en allaballarnir í ráð- herrastólunum. Verðugir íull- trúar poppsins Á meistaraverkinu Gelslavirkir sést vel að Bubbi trúir á Guð og ætti það að vera nóg til að kommarnir í Alþýðubandalaginu skildu að þeir geta ekki gert neitt tilkall til hans. Mig langar til að biðja Bubba að halda áfram á sömu braut, gagn- rýna allaballana. Ég vil jafnframt þakka honum fyrir heiðarlega og málefnalega gagnrýni á okkur sem trúum á nauðsyn varnarliðs hér- lendis. Við höfum gott af því að hugleiða hættuna sem hugsanlega getur stafað af hernum og heyra rökin gegn veru hans. Bubbi og Utangarðsmenn eru verðugir full- trúar íslenskrar popptónlistar eins og hún gerist best, frá hvaða hlið sem litið er á rnálið." Margar umkvartanir af sama tilefni Reynir Ármannsson, formaður Neytendasamtakanna, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — I Velvakanda 5. þ.m. skrifar „Hús- móðir úti á landi". M.a. kvartar hún yfir því, að í auglýsingum dagblaðanna sé ekki getið um vöruverð. Neytendasamtökunum hafa borist margar umkvartanir utan af landsbyggðinni af sama tilefni. Uip þetta gilda að vísu engin lög enn sem komið er. Neytendasamtökin hafa því beint þeirri eindregnu ósk til auglýs- enda bæði hér í Reykjavík og úti á landi (með símupphringingum), að láta vöruverð fylgja auglýsingum. Er þessi ósk Neytendasamtakanna hér með ítrekuð. Bílstjórar láti vita Sigríður Kristjánsdóttir hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég vil að gefnu tilefni hvetja bílstjóra sem verða fyrir þeirri óheppni að aka yfir heimil- isdýr, ketti eða hunda, að hafa samband við eigendur dýranna og láta þá vita um hvað gerst hefur. Þetta ætti að vera auðvelt fyrir þá ef dýrin eru merkt, en mundi spara börnum og fullorðnum mik- ið erfiði í tilgangslausri leit. SlGeA V//QGA g Ái LVtftAM alþýðu Miðvikudaginn 10. desember efnir Trésmiðafélag Reykja- víkur í samvinnu við Menning- ar- og fræðslusamband alþýðu til bókmenntakvölds i Lista- safni alþýðu að Grensásvegi 16. bar munu þrír rithöfundar lesa úr verkum sinum. Stefán Júliusson, Auður Ilaralds og Guðlaugur Arason. Á eftir gefst ta'kifa'ri til að spjalla við höfundana. Gestir á bókmenntakvöldi fá einnig tækifæri til að líta á sýningu á verkum úr safninu, sem þar er nú. Veitingar verða á boðstólum í kaffistofu, en þar er nú sýning á ljósmyndum frá Patreksfirði frá því um alda- mót, úr safni Péturs A. Ólafs- sonar. Bókmenntakvöldið hefst kl. 20.30 og er öllum heimill ókeyp- is aðgangur. AlKíl.VSINOASIMINN ER: g 22480 jDargunbUbiti Sflyirllgiygjiuiir Vesturgötu 16, sími 13280. SAMSÆRIÐ Nýjasta skáldsagan eftir Desmond Bagley er komin í bókaverslanir. Suðri WV'öAN 'VO (tiNAwaYiföva&'/- V\iútv WAtwim \ OPP&Ktfoví AKv£^A/N, , 9 / \iON ‘hEáVbT (WKI Ví&N fmMUVt ^JAVA 0V/ W, '£>-/r Whva® \ft)N \ÍAl0I p® Vón uV

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.