Morgunblaðið - 10.12.1980, Síða 31

Morgunblaðið - 10.12.1980, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 31 Vonir KR-inga eru nú sára litlar — eftir tap gegn Valsmönnum í gærkvöldi Vonir KR-inga að halda í við Njarðvík í baráttunni um úrvals- deildartitilinn urðu æði veikar í gærkvöldi. er liðið tapaði fyrir Valsmönnum. Lokatölur leiksins urðu 75—71 Val í vil, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 40—39 fyrir Val. Þar með tapaði KR þriðja leik sínum á mótinu, hafði áður tapað tvívegis fyrir Njarðvík. UMFN hefur hins veg- ar unnið 10 leiki í röð og ekkert virðist geta stöðvað sigurgöngu liðsins. Leikurinn í gærkvöldi var ann- ars ákaflega þófkenndur og lítt fyrir augað, KR-ingar reyndu að halda í veika von, en náðu sér ekki á strik. Valsmenn léku hins vegar ekki undir hinni minnstu pressu og sigur þeirra var verð- skuldaður þó ekki hafi hann verið stór. Um fyrri hálfleik er skemmst að segja, að hann var Fortuna Köln, liðið sem Janus Guðlaugsson leikur með, vann góðan sigur á heimavelli sinum um helgina. Lagði liðið Kiel að velli og urðu lokatölur 3—2. Fortuna er nú i niunda sæti norðurdeildarinnar með 21 stig. Efsta liðið er Werder Bremen sem hefur 30 stig. Homburg lék ekki um heigina vegna vetrar- kulda, en liðið er um miðja deild i suðurdeildinni. Stuttgart Kick- ers, liðið sem var að eltast við Trausta Haraldsson, tapaði á útivelii fyrir Ulm í suðurdeild- Valur 71:75 sérlega jafn og segja má að aldrei hafi munað meiru en 2—4 stig- um. ef frá eru taldar nokkrar sekúndur snemma i hálfleiknum er Valsmenn náðu 6 stiga for- ystu. Liðin skiptust á um foryst- una, en Valsmenn höfðu hana bæði oftar og lengur. Aðeins dró i sundur i síðari hálfleik og komst Valur um tima 9 stigum yfir, þá stóð 62—53. En KR-ingar minnkuðu muninn inni, en er samt í öðru sæti með 22 stig. bar hefur Darmstadt nokkra yfirburði í efsta sætinu. hefur 29 stig. Munster, sem vaf að eltast við ýmsa íslendinga án árangurs, nældi í stig á útivelli og er um miðbik norðurdeildar- innar. Þá má geta þess, að franska liðið Lens, sem allt bendir til að verði næsta félag Teits Þórðarson- ar, vann góðan sigur, 3—0, gegn Tours. Er Lens um miðja deild í Frakklandi, nánar tiltekið í tíunda sæti með 20 stig að 21 leik loknum. niður í þrjú stig undir lok leiksins og gat þá sannarlega ailt gerst. En allt fór í handaskolum hjá KR og þrátt fyrir hinn litla mun, var spennan litil. Og loks stóð Valur uppi öruggur sigur- vegari. Bæði liðin léku langt undir getu að þessu sinni, sérstaklega þó lið KR. Má þar íyrst geta Jóns Sigurðssonar, sem var ekki skugginn af sjálfum sér þrátt fyrir góðan endasprett. Gerði hann á köflum tóma vitleysu. Þá var Ágúst Líndal einnig langt frá sínu besta og Keith Yow hitti afar illa. Það má þvf segja að sterkustu menn liðsins hafi allir brugðist. Enginn stóð upp úr nema Garðar Jóhannsson, sem átti frábæran fyrri hálfleik, en tiðindasnauðan siðari hálfleik. Liðsheildin var sterkari hjá Val þrátt fyrir að ýmsir sýndu ekki sínar bestu hliðar. Bandarikja- maðurinn Brad Miley átti mjög þokkalegan leik, einnig Kristján Ágústsson. Ríkharður átti góða spretti og Jón Steingrimsson var traustur. Stig KR: Keith Yow, Garðar Jóhannsson og Jón Sigurðsson 18 hver, Ágúst Lindal 8, Bjarni Jóhannesson 4, Geir Þorsteinsson 3 og Eiríkur Jóhannesson 2 stig. Stig Vals: Brad Miley 24. Kristján Ágústsson 18, Rikharð- ur Hrafnkelsson 12, Jón Stein- grimsson 8, Torfi Magnússon, Jóhannes Magnússon og Þórir Magnússon 4 hver og Gylfi Þor- kelsson 2 stig. — gg „íslensku“ liöunum gekk vel Brad Miley gnæfir yfir varnarmenn KR og skorar eina af körfum sinum í leiknum. Ljósm. Emilía. Vikingar farnir utan VÍKINGAR og Haukar leika sið- ari leiki sina á Evrópumótunum i handknattleik á laugardaginn næstkomandi. Vikingarnir fóru utan i morgun áleiðis til Búda- pest i Ungverjalandi. þar sem liðið mætir Tatabania. Vikingar unnu fyrri leikinn 21 — 20 og eiga þvi vissulega möguleika á að komast áfram. Haukarnir fara hins vegar ekki út fyrr en á föstudaginn, enda ferð þeirra ekki alveg eins löng. Þeir fara þá til Lubeck í Vestur-Þýska- landi og mæta Nettlestedt. Þýska liðið vann hér heima með þriggja marka mun og verður róðurinn því þungur hjá Haukum. Úrvaliö hefur aldrei í sögu búdarinnar verid meira. <j£jp KARNABÆR Laugavegi 66. Sími 85055.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.