Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 32

Morgunblaðið - 10.12.1980, Side 32
^Síminn á afgreiðslunni er 83033 JJWreunblflfctb Síminn á afgreiðslunni er 83033 JH*r0unblfltiib MIÐVIKUDAGUR 10. DESEMBER 1980 10-15% hækk- un á bensíni? OLÍUFÉLÖGIN hafa sent verð- laKsyfirvoldum beiðni um hækk- un á bensíni. Hækkunarbeiðnin er á bilinu 10—15% en Mbl. tókst ekki í gær að fá uppgefna nákvæma pró- sentutölu. Hver lítri bensíns kost- ar nú 515 krónur og ef verðlagsyf- irvöld fallast á beiðni olíufélag- anna mun bensínverðið verða á bilinu 566 til 592 krónur. Samkvæmt þeim upplýsingum sem Mbl. aflaði sér í gær er helsta ástæða hækkunarbeiðninnar hið hraða gengissig á undanförnum vikum og mánuðum. Einnig mun hafa orðið einhver hækkun á Rotterdam-markaðnum. „Mun gefa um- bjóðerujum mínum og ASI skýrslu44 - segir lögfræðingur Gervasonis ÉG HEF ekki gefið umbjóðendum mínum og ASÍ skýrslu um ferðina og því má ég ekkert segja við fjölmiðla. sagði Ragnar Aðalsteinsson hrl., umboðsmaður Patrick Gervas- onis við Mbl. í gærkvöldi, þá nýkominn til landsins frá Kaupmannahöfn. Eins og fram kom í Mbl. í gær fór Ragnar þessa för til að kanna mál Gervasonis og athuga möguleika á því að hann fengi sérstakt vegabréf, svokallaðan „fremmed pas“. — Ég get staðfest það að ég fór þessa ferð að tilhlutan Alþýðu- sambands íslands, sem borgaði beinan kostnað við ferðina, sagði Ragnar. — Ég get líka staðfest að ég fór þessa för í fullu samráði við dómsmálaráðuneytið og það hlutaðist til um að ég fengi viðtal við danska útlendingaeftirlitið. Eftir að ég hafði rætt ítarlega við útlendingaeftirlitið var ljóst að ég yrði að ganga á fund dóms- málaráðuneytisins og hafði út- lendingaeftirlitið meðalgöngu um það. Þar fékk ég samband við Ljósm Mbi. Ól. K. M. rétta aðila og átti með þeim tvo fundi. Þegar Ragnar var að lokum spurður hvort förin hefði verið jákvæð eða neikvæð svaraði hann: „Um það get ég ekkert sagt fyrr en ég hef gefið umbjóðend- um mínum og ASÍ skýrslu um förina." Óvíst um samkomu- lag, þó lítið beri í milli dagar til jóla Steingrimur og Bartels ræða mál Flugleiða Samgönguráðherrar ís- lands og Luxemborgar ræða málefni Flugleiða á óformleg- um fundi í Luxemborg í dag. Steingrímur Ilermannsson var á fundi samgönguráð- herra Norðurlanda í Kaup- mannahöfn. en hélt þaðan til Luxemborgar. Mun hann hitta Josef Bartels, sam- gönguráðherra Luxemborg- ar, í dag. Steingrímur er væntanlegur heim á morgun. SAMNINGANEFND bankanna og samninganefnd hankamanna voru í gærkveldi að búa sig undir viðræður um önnur atriði kjara- samnings SÍB en launaliðinn. í þessari samningslotu hafa allar viðræður til þessa staðið um launaliðinn. en bankarnir hafa nú boðið 3% hækkun á sáttatil- iögunni frá 1. ágúst. Eftir að samningarnir frá í október voru felldir, lagði SÍB fram kröfur í 10 liðum og er þar með talinn launaliður samninganna og var sáttatillagan, sem felld var, á þeim byggð. Er rætt var um hin atriðin 9, kom i Ijós, að þau þóttu óskýr og ætlaði samninganefnd hankamanna að leggja fram nán- ara orðalag þeirra. Það var yfirlýst af hálfu banka- manna, að þeir myndu ekki ræða þessi 9 atriði, fyrr en launaliður- inn væri frá, en þar sem hugsan- lega væri unnt að kaupa aftur- virkni 3ja prósentanna, sem bankamenn hafa hingað til krafizt að greidd yrðu frá 1. júlí 1979, þarf að útvíkka viðræðurnar, þar sem launaliðurinn er nú kominn lang- leiðina í samkomulag — eins og einn samningamanna orðaði það. Samninganefnd bankanna telur sig á engan hátt geta teygt sig lengra í afturvirkni, en til 1. ágúst síðastliðins. Það var mat manna, er Morgun- blaðið ræddi við í gær, að ekki bæri í raun mikið í milli deiluað- ila, en engu að síður væri um erfiðan hnút að ræða. Þó voru menn hæfilega bjartsýnir og var talið að næðist ekki samkomulag í nótt, yrði það ef til vill hina næstu. Það er einkum orlofspró- senta, sem bankamenn hafa hug á að fá hækkaða, þar sem sá liður myndi gefa þeim varanlegar kjarabætur í framtíðinni og reyn- ast þannig þyngstur á metunum, ef eftirgjöf á afturvirkni yrði óhjákvæmileg. Mikill ágreiningur Islands og EBE í VIÐRÆÐUM íslondintra og fulltrúa Efnahags- handalagsins í Briissel á tveimur fundum í nóvem- ber bar mjög mikið á milli. Flugleiðir kaupa Gæslu-Fokk- erinn TF-SYR á 675 millj. kr. Leiguflug í Líbýu strandar á samningum við flugmenn FLUGLEIÐIR hafa samið um kaup á annarri Fokker-flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYR, og er kaupverðið 675 milljón- ir króna sem greiðast upp innan árs. Gengið var frá samningunum í gærkvöldi er samningamenn ríkisvaldsins féllust á síðasta tilboð Flugleiða. Miðað er við að vélin verði afhent í þessum mánuði. Samkvæmt upplýsingum Ólafs W. Stefánssonar skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu er vélin seld Flugleiðum án kvaða um leigu til Landhelgisgæslunnar, en um tíma var sá möguleiki inni í myndinni. Kvað Ólafur vélina afhenta þegar greiðslutrygging hefði farið fram, en vera kynni að hún yrði leigð Flugleiðum í nokkra daga til þess að afhending þyrfti ekki að dragast i sambandi við verkfall bankamanna. Vélin er seld án sérbúnaðar og varahluta. Leifur Magnússon fram- kvæmdastjóri flugrekstrardeildar Flugleiða sagði í samtali við Mbl. að reiknað væri með að vélin færi í innanlandsflug og leysti af hólmi Fokker sem færi í leiguflug til Libýu ef af þeim samningum verður, en þar strandar nú einung- is á samningum við flugmenn. (Sjá bls. 2). TF-SYR, sem Flugleiðir kaupa af Landhelgisgæslunni. Þá sagði Leifur að verið væri að kanna leigu á einni Fokker-vél, einnig til Líbýuflugs, og er um tvær vélar að ræða, vél sem Flugleiðir seldu til Bandaríkjanna sl. ár og vél sem er á leið frá Ástralíu til Frakklands og mun fáanleg tii leigu. Meðal þess, sem rætt var á fundum má nefna loðnu og rækju, en einnig aðrar fisktegundir í hafinu milli íslands og Grænlands. Stjórnmálamenn hafa nú fengið skýrslu um þessar viðræður, en ekki er lík- legt að nýr fundur íslands og EBE verði haldinn á næstu vikum. Jón Arnalds, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, sagði í samtali við Mbl. í gær, að í framhaldi af viðræðum embætt- ismanna hefði verið fyrirhugað að stjórnmálamenn hittust til að ræða þessi mál. Á þessu stigi málsins sagði hann að alls óvíst væri hvenær sá fundur yrði hald- inn. „Það er mikill ágreiningur milli okkar og Efnahagsbanda- lagsins," sagði Jón Arnalds. Auk þessa ágreinings má nefna að þjóðir EBE eru mjög ósammála um fiskveiðistefnu og þessa dag- ana standa yfir viðræður Norð- manna og EBE um rækjuveiðar á Grænlandshafi, en hvort tveggja hefur þetta áhrif á mögulega samninga við íslendinga. Þess má geta, að í haust veiddu íslendingar um 75 þúsund lestir af loðnu Grænlandsmegin miðlínu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.