Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 4
4
Peninga-
markaðurinn
— ' \
GENGISSKRANING
Nr. 240 — 18. desember 1980
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 594,00 595,60
1 Stnrlingtpund 1379,00 1382,70
1 Kanadadollar 492,35 493,65
100 Danskar krónur 9707,30 9733,50
100 Nortkar krónur 11416,50 11447,20
| M 1 I 8 13381,70 13417,45
100 Finnak mörk 15219,05 15260,05
100 Franskir frankar 12878,05 12912,75
100 Balg. frankar 1853,05 1858,05
100 Sviasn. frankar 32799,60 32887,90
100 Qyllini 27474,55 27548,55
100 V.-þýzk mörk 29849,25 29929,65
100 Lfrur 62,83 63,00
100 Austurr. Sch. 4209,80 4221,10
100 Escudoi 1105,65 1108,65
100 Pasatar 742,70 744,70
100 Yan 283,70 284,47
1 írskt pund 1109,00 1112,00
SDR (sérstök
dráttarr.) 16/12 746,92 748,93
\ /
/
GENGISSKRÁNING
FERDAMANNAGJALDEYRIS
18. desember 1980.
Eining Kl. 12.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 653,40 655,16
1 Starlingapund 1516,90 1520,97
1 Kanadadollar 541,59 543,02
100 Danskar krónur 10680,23 10706,85
100 Norskar krónur 12538,15 12591,92
100 Sasnskar krónur 14719,87 14759,20
100 Finnsk mörk 16740,96 16786,06
100 Franskir frankar 14165,86 14204,03
100 Balg. frankar 2038,36 2043,86
100 Svissn. frankar 36079,56 36176,69
100 Gyllini 30222,01 30303,41
100 V.-þýzk mörk 32834,18 32922,62
100 Lírur 69,11 69,30
100 Austurr. Sch. 4630,78 4643,21
100 Escudo* 1216^22 1219,12
100 PUMtar 816,97 819,17
100 Yan 312,09 312,92
1 irskt pund 1219,90 1223,20
v V
Vextir:
INNLÁNSVEXTIR:.
(ársvextir)
1. Almennar sparisjóðsbækur.......35,0%
2. 6 mán. sparisjóösbækur.......36,0%
3.12 mán. og 10 ára sparisjóðsb.37,5%
4. Vaxtaaukareikningar, 3 mán..40,5%
5. Vaxtaaukareikningar, 12 mán.46,0%
6. Ávísana- og hlaupareikningur.19,0%
7. Vísitölubundnir sparifjárreikn. 1,0%
ÚTLÁNSVEXTIR:
(ársvextir)
1. Víxlar, forvextir ...........34,0%
2. Hlaupareikningar.............36,0%
3. Lán vegna útflutningsafuröa. 8,5%
4. Önnur endurseljanleg afuröalán ... 29,0%
5. Lán meö ríkisábyrgð..........37,0%
6. Almenn skuldabréf............38,0%
7. Vaxtaaukalán.................45,0%
8. Vísitölubundin skuldabréf .... 2^%
9. Vanskilavextir á mán.........4,75%
Þess ber aö geta, aö lán vegna
útflutningsafurða eru verðtryggð
miðaö við gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkis-
ins: Lánsupphæö er nú 6,5 milljónir
króna og er lánið vísitölubundið meö
lánskjaravísitölu, en ársvextir eu 2%.
Lánstími er allt að 25 ár, en getur
veriö skemmri, óski lántakandi þess,
og eins ef eign sú, sem veð er í er
lítilfjörleg, þá getur sjóðurinn stytt
lánstímann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæð er nú eftir 3ja ára aöild
aö lífeyrissjóðnum 4.320.000 krónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast við lánið 360 þúsund
krónur, unz sjóösfélagi hefur náð 5
ára aöild aö sjóönum. Á tímabilinu
frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö
höfuöstól leyfilegrar lánsupphæðar
180 þúsund krónur á hverjum árs-
fjórðungi, en eftir 10 ára sjóösaðild
er lánsupphæöin orðin 10.800.000
krónur. Eftir 10 ára aöild bætast við
90 þúsund krónur fyrir hvern árs-
fjórðung sem líöur. Því er í raun
ekkert hámarkslán í sjóðnum.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur með
byggingavísitölu, en lánsupphæðin
ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til
25 ár að vali lántakanda.
Lántkjaravíaifala var hinn 1. nó-
vember síðastliðinn 191 stig og er þá
miöað við 100 1. júní '79.
Byggingavíaitala var hinn 1.
október síðastliðinn 539 stig og er þá
miöaö við 100 í október 1975.
Handhafaakuldabréf í fasteigna-
viöskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18—20%.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
„Ég man það onnk‘ kl. 11.00:
Eftirminni-
leg sjóferð
Á dagskrá hljóðvarps kl. 11.00
er þátturinn „Ég man það enn“ í
umsjá Skeggja Ásbjarnarsonar.
M.a. les Ragnar Þorsteinsson rit-
höfundur frá Höfðabrekku frá-
sögu sína um eftirminnilega sjó-
ferð.
— Ragnar Þorsteinsson er
fæddur árið 1908 og átti heima á
æsku-og unglingsárum hjá for-
eldrum sínum á Isafirði, sagði
Skeggi Ásbjarnarson. — Ragnar
er 13 ára gamall, þegar sá atburð-
ur gerist sem hann lýsir í frásögu
sinni. Hann hafði verið svolítið á
sjó á sumrum áður og langaði nú
til að nota jólafríið sitt til þess að
róa til fiskjar á litlum mótorbát.
Hann þurfti að sækja það fast að
fá að fara, því að faðir hans var
tregur til að veita samþykki sitt.
Foreldraheimili Ragnars var
barnmargt og efnalítið, og það
sem vakti fyrir dregnum var að
vinna sér inn hundrað krónur til
þess að geta gefið móður sinni
saumavél, en hún drýgði tekjur
heimilisins með saumaskap.
Einnig vildi hann létta undir með
foreldrum sínum við að greiða
húsaleigu. Þeir fara nokkra róðra
þrír eða fjórir saman á bátnum og
allt gengur vel. Á Þorláksmessu
er lagt í hann í fögru veðri og
blíða logni og sjómennirnir ungu
hugsa sér gott til glóðarinnar.
Þegar þeir eru komnir út, skellur
á þá ólguveður og þar að auki
bilar vélin í bátnum. Drengurinn
var trúaður og nú sneri hann sér
til Guðs og gerði við hann samn-
ing um að ef hánn kæmist úr
þessum háska, skyldi hann verða
betri drengur en nokkurn tSmann.
Nema hvað þeir komast norður
yfir djúpið og lenda þar. Komast
þeir í hús á sveitabæ og gista þar.
Um morguninn þegar þeir líta út,
Ragnar Þorsteinsson
er víkin framundan eitt brimlöður
og báturinn kominn í spón. Seint
um kvöldið komust þeir svo heim
til Isafjarðar, en áður höfðu
borist þangað boð um að þeir
hefðu komist af. Þegar Ragnar
kom heim til sín seint á aðfanga-
dagskvöld, var búið að kveikja á
kertum sem stóðu á kössum milli
rúmanna og byrjað að syngja
jólalög, og þótti fólkinu sem það
hefði heimt hann úr helju.
I þættinum verður m.a. leikið
lag Ingibjargar Þorbergs, Hin
fyrstu jól, ljóð Kristjáns frá
Djúpalæk. Ingibjörg syngur þetta
lag sjálf.
Sjónvarp 22.40:
Ótrúlegt
verkefni
Á dagskrá sjónvarps kl. 22.40 er
bandarísk bíómynd frá árinu
1966, Furðuferðin (Fantastic
Voyage), byggð á vísindaskáld-
sögu eftir Otto Klement og Jay
Lewis Bixby. Leikstjóri Richard
Fleischer. Aðalhlutverk: Stephen
Boyd, Raquel Welch, Edmund
O’Brien og Donald Pleasence.
Þýðandi er Björn Baldursson.
Grant leyniþjónustumaður
hjálpar tékkneskum vísinda-
manni, Jan Benes, að flýja gegn-
um járntjaldið og síðan alla leið
til Bandaríkjanna. Á leiðinni frá
flugvellinum inn í borgina, þar
sem bandariska leyniþjónustan
bíður spennt eftir að heyra frá-
sögn tékkneska vísindamannsins,
er gerð árás á bíl þeirra og
Tékkinn verður fyrir alvarlegum
heilaskemmdum. Þótt Grant hafi
lítið vit á læknisfræði er hann
boðaður til sjúkrahússins og þar
bíður hans ótrúlegt verkefni, sem
vísindaskáldsagan ein getur búið
til.
Innan stokks og utan kl. 15.00:
Val og meðferð á
jólatrjám og greni
Á dagskrá hljóðvarps kl. 15.00
er þátturinn Innan stokks og
utan í umsjá Sigurveigar Jóns-
dóttur.
— Rætt verður við Elínu Guð-
jónsdóttur húsmóður, sagði Sig-
urveig, — um hennar starf innan
og utan heimilis. Síðan verður
rætt við Hafstein Hafliðason
garðyrkjumann. Hann veitir
gagnlegar upplýsingar um jólatré,
greni, hýjasintur, jólastjörnur og
annað það sem heyrir til jólunum
úr ríki náttúrunnar, í sambandi
við val og meðferð á þessum
vörum, og t.d. hvernig á að nota
greni. Svo er ætlunin að hafa í
þættinum viðtöl við fólk sem
verður að heiman við vinnu á
aðfangadagskvöld. Annars vegar
er verið að reyna að hafa uppi á
sjómanni sem má vera að því að
spjalla við okkur meðan hann
dokar við í landi, en það er hreint
ekki auðvelt að króa þá af í
stuttum stoppum, þeir eru svo
uppteknir. Verðum bara að vona
það besta. Svo er hins vegar verið
að leita að hjúkrunarfræðingi
sem verður á vakt þetta kvöld.
Frá upptöku þáttarins Innan stokks og utan.
Útvarp Reykjavfk
FÖSTUDKGUR
19. desember
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
7.10 Bæn.
7.15 Leikfimi.
7.25 Morgunpósturinn
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
dagbl. (útdr.). Dagskrá.
Tónleikar.
8.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Guðna Kol-
beinssonar frá kvöldinu áð-
ur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Valdis Oskarsdóttir les sögu
sína „Skápinn hans Georgs
frænda“ (5).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Tilkynningar. Tónleikar.
11.00 „Ég man það enn“.
Skeggi Ásbjarnarson sér um
þáttinn. M.a. les Ragnar
Þorsteinsson frásögu sina
um eftirminnilega sjóferð.
11.30 Á bókamarkaðinum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍODEGID
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Á frí-
vaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
15.00 Innan stokks og utan.
Sigurveig Jónsdóttir sér um
þáttinn.
15.30 Tónleikar. Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Placido Domingo syngur arí-
ur úr óperum eftir Puccini.
Biezet, Verdi og Gounod með
Nýju fílharmóniusveitinni i
Lundúnum; Nello Santi stj./
Vladimir Ashkenazý og Sin-
fóniuhljomsveit Lundúna
leika Pianókonsert nr. 2 í
g-moll op. 16 eftir Sergej
Prokofjeff; André Previn stj.
17.20 Lagið mitt.
Helga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar
18.45 Veðurfrcgnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLPID______________________
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.50 Á vettvangi.
20.15 Nýtt undir nálinni.
Gunnar Salvarsson kynnir
nýjustu popplögin.
20.45 Kvöldskammtur.
Endurtekin nokkur atriði úr
morgunpósti vikunnar.
21.10 Frá tónlistarhátíðinni í
Schwetzingen í maí i vor.
Kristin Mcrscher leikur á
pianó:
a. Prelúdiu og fúgu eftir
Bach,
b. Sónötu i D-dúr op. 10 nr. 3
eftir Beethoven,
c. Tilbrigði eftir Brahms um
stef eftir Paganini.
21.55 Ríkisgeiri, lifsstíll. bú-
mark og Kröflumynt.
Skammdegisþankar Skúla
Guðjónssonar á Ljótunnar-
stöðum. Pétur Sumarliðason
les.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins á jólaföstu.
22.35 Kvöldsagan:
Reisubók Jóns ólafssonar
Indíafara. Flosi Ólafsson
leikari les (20).
23.00 Djassþáttur
i umsjá Jóns Múla Árnason-
ar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
19. desember
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dag-
skrá
20.45 Á döfinni
21.00 Skonrok(k)
Þorgeir Ástvaldsson kynn-
ir dægurlög, sem hafa notið
vinsælda á þessu ári.
21.40 Þingsjá
Þáttur um störf Alþingis.
Um þessar mundir eru að
venju nokkur þáttaskil i
störfum þingsins, fjárlög
að fá fullnaðarafgreiðslu,
verið að gera ýmsar ráð-
staíanir fyrir áramótin og
þingmenn að fara i jóla-
leyfi.
Umsjónarmaður Ingvi
Hrafn Jónsson.
22.40 Furðuferðin
(Fantastic Voyage)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1966. byggð á visinda-
skáldsögu eftir Otto Klem-
ent og Jay Lewis Bíxby.
Leikstjóri Richard Fleisch-
er.
Aðalhlutverk Stephen
Boyd, Raquel Welch, Ed-
mund O'Brien og Donald
Pleasence.
Visindamaður verður fyrir
skotárás og skaddast á
heila. Með nýjustu tækni er
mögulegt að bjarga lifi
hans. en þá verður lika að
hafa hraðann á.
Þýðandi Björn Baldursson.
00.25 Dagskrárlok