Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Gestur Sturluson: Að byggja Nýlega sá ég þau ummæli í blaði nokkru, að við Islendingar kynn- um hvorki að byggja borg né búa í borg. Um það hvort við kunnum að búa í borg ætla ég ekki að ræða hér, en þó vil ég varpa fram einni spurningu til umþenkingar. Bera uppákomur góðveðursnátta liðins síðsumars ekki vott um að eitt- hvað sé að? Eða hvernig haldið þið að útgangurinn yrði í milljóna- borgum nágrannalandanna ef slík ósköp dyndu þar yfir í jafnríkum mæli, helgi eftir helgi? En ekki meir um það. En það sem ég vildi fjalla um hér í fáum orðum er hvort við kunnum eða höfum kunnað að byggja borg. Miðað við það að þjóðin lifði öll í dreifbýli og við harðrétti fram á 19. öld, meðan nágrannaþjóðir okkar áttu margar borgir, sem höfðu verið að þróast siðan á miðöldum, er ekki að undra þótt margt hafi farið úrskeiðis hjá okkur Islendingum. Reykjavík er eina raunverulega borgin, sem við eigum með 100.000 íbúa, að Kópa- vogi og Seltjarnarnesi meðtöldu. Hvernig hefur tiltekist að byggja þessa borg? Hvað er fram- undan? Hvert ber að stefna með framtíðaruppbyggingu borgarinn- ar? Mér finnst að byrjunin hafi verið góð. Við vorum á réttri leið. Borgin byggðist í allar áttir út frá sínum fæðingar- og bernskustað, Tjarnarkvosinni. Eldri hverfin bera að vísu vott um fátækt og umkomuleysi og fjölskrúðugur er arkitektúrinn, því hvert hús er byggt eftir smekk og efnum og ástæðum. En eitt virðist þó ljóst: Forráðamenn borgarinnar virtust gera sér ljóst hvað borg er. Þeir höfðu tilfinningu fyrir að borg á að vera ein samfelld lifandi heild. Þannig byggðist Reykjavík upp allt fram til 1960, en eftir það fer allt einhvernveginn að losna úr höndunum. Þróunin fór að líkjast óskapnaði himingeimsins, þar sem sólkerfin fjarlægjast hvert annað með sívaxandi hraða: farið er að byggja svefnhverfi upp um holt og ása, með geysistórum eyðum á milli án raunverulegra tengsla við borgina. A ég þar við Árbæjar- og Breiðholtshverfi. Ekki má þó skilja orð mín svo að ég hafi eitthvað á móti þeim hverfum í sjálfu sér, og margt er þar vel gert, en annað sem miður hefur farið, sérstaklega í skipulag- inu. Hvað Breiðholtið varðar finnst mér að byggja hefði átt í beinu framhaldi af sjálfri borg- inni. Öðru máli gegnir um Árbæinn. Þar skilur Eiliðaárdalurinn á milli, en nú er komin fram tillaga í borgarráði, sem gæti bætt þar nokkuð úr, en hún er sú að byggt verði á auða svæðinu frá Árbæ að Vesturlandsvegi. Þetta er upplagt byggingarsvæði, sem án byggðar er engum til gagns. Þessi tillaga hefur þó ekki fengið almennt fylgi í borgar- stjórn. Einn fulltrúinn þar, Davíð Oddsson, hefur mótmælt henni harðlega á þeirri forsendu að þarna hafi verið fyrirhugað úti- vistarsvæði, í tengslum við úti- vistarsvæðið í Elliðaárdalnum, og að fyrir nokkrum árum hefðu börn úr borginni plantað þarna 9000 trjáplöntum. Mér þykja rök Dav- íðs gegn byggð þarna mjög hald- lítil. Fyrst er þá til að taka útivist- arsvæðið. Við hér í borg höfum fjögur stór útivistarsvæði, þ.e. Hljómskálagarðinn, Klambratún- ið, Laugardalsgarðinn og Elliðaár- dalinn, að ógleymdum fallega trjáreitnum rétt austan við Ár- bæjarhverfið. Fleiri staði mætti Kór LariKholtskirkju: Miðnæturtónleikar í kirkjubyggin^unni KÓR Langholtskirkju heldur tvenna tónleika í kvöld, föstu- dagskvöld. Verða hinir fyrri haldnir í Bústaðakirkju og hefj- ast kl. 20:30 og þeir siðari kl. 23 og fara þeir fram i hinni nýju kirkjubyggingu Langholtssafn- aðar við Sólheima. Stjórnandi kórsins er Jón Stefánsson. Kirkjubyggingin nýja er um það bil að verða fokheld og verður hún upplýst með kyndlum og kertum meðan á tónleikunum stendur. í frétt frá kórnum er tónleikagest- um bent á að vera vel búnir og verði veður válynd mun kórinn leita skjóls í safnaðarheimilinu og halda tónleikana þar. Á efnisskrá beggja tónleikanna eru innlend og erlend lög. Þá er þess getið í frétt kórsins, að hljómburður í nýju kirkjunni sé mjög góður og það sé mikið tilhlökkunarefni söngstjór- ans og kórfélaga að geta haldið þar alla tónleika sína þegar bygg- ingin er fullgerð. borg nefna sem kalla má með réttu útivistarsvæði, t.d. Arnarhóll, Austurvöllur, Austurstræti, Lækj- artorg, gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu, umhverfi Tjarnarinn- ar og síðast en ekki síst Hallær- isplanið, sem er óumdeilanlega fjölsóttasta útivistarsvæðið. Hví það er svo vinsælt sem raun ber vitni er svo rannsóknarefni út af fyrir sig. Eins og sjá má af þessari upptalningu er ekki um að ræða skort á útivistarsvæðum miðað við nýtingu, því að slepptu Austur- stræti, Lækjartorgi og Hallæris- planinu er nýtingin afar lítil. Ég hef nokkrum sinnum lagt leið mína á Klambratún, Hljómskála- garðinn og Laugardalsgarðinn og alltaf í blíðasta sumarveðri, og alltaf er það sama sagan á öllum þessum stöðum, að ég sé aðeins eina og eina manneskju á stangti. Og hver skyldi nú vera ástæðan fyrir þessari litlu nýtingu hinna grónu útivistarsvæða? Jú, hún er sú, að veðráttan hér á landi býður vart upp á mikla útivist. Það er kannski á tíu ára fresti sem veðráttan leikur við okkur eins og hún gerði í sumar leið. Þetta veldur því að Islendingar hafa aldrei lært og vanist á að liggja úti í guðsgrænni náttúrunni sleikjandi sólskin og frostpinna. Þeir þurfa alltaf að vera að gera eitthvað, hafa enga eirð í sér. Komi gott veður vilja þeir heldur ganga á fjöll og þó miklu fleiri, sem fara í bílaleik í íslensku þjóðvegaryki. Eins og af þessu má sjá eru þau útivistarsvæði, sem ég hef hér upp talið feiki nógu stór. Því er alveg óhætt að taka eitthvað af hinum óbyggðu óræktarholtum og mýr- um vítt um borgina undir byggð og þá hef ég ekki síst í huga hina umdeildu spildu milli Árbæjar- hverfis og Vesturlandsvegar. Já, og svo voru það áðurnefndar trjáplöntur. Þó ég segi sjálfur frá, og það í hjartans einlægni, þá er ég alveg sérstaklega elskur að trjám og trjágróðri, og síðan ég flutti til Reykjavíkur fyrir um 15 árum og þá í eitt trjáprúðasta hverfi borgarinnar (Vesturbæinn) hef ég ekki unað til lengdar nema hafa trjágróður í kringum mig. En einmitt af því að ég er trjávinur er ég alveg mótfallinn því að trjám sé plantað á staði þar sem þeim líður illa, þar sem þau eru dæmd til að verða að óhrjálegum krækl- um. Ég er jafnmikið á móti því og að hestum sé beitt á gaddinn, án fóðurs og húsaskjóls, því ég er líka dýravinur. En það er einmitt þetta, sem hefur verið gert þarna austan Vesturlandsvegar. Þar er slíkur berangur og skjólleysi að ég hef enga trú að tré nái þar nokkrum þroska. En væri komin þarna mátulega há og þétt byggð væri annað uppi á teningnum. Þá yrði hægt að hafa fallegan trjágarð við hvert hús. Kjarni málsins er sá hvað trjá- rækt snertir, að tré þrífast ekki í því veðurfari sem hér ríkir nema þar sem byggð er þétt og mátulega há, ég segi mátulega há, því að við háhýsi þrífast heldur engin tré vegna hinna miklu vindst'rengja, sem þeim fylgja. Þetta er nokkuð sem skipuleggjendur verða að læra að taka tillit til, en mér finnst menn hér á landi gleyma því of oft hvar þeir eru staddir á jarðarkringlunni. Hér hef ég aðeins stiklað á stóru í sambandi við skipulag borgar- innar, en niðurstaðan er þessi: Haldið áfram að byggja Reykjavík sem borg, sem samfellda heild en ekki í sneplum á æðingi upp um allar sveitir (síðasta hugmyndin var að byggja 50 þúsund manna hverfi upp í miðri Mosfellssveit, hvaðan átti þetta fólk að koma?). Gerið Reykjavík að aðlaðandi og manneskjulegri borg en ekki að sundurlausum óskapnaði. Jón Viðar Guð- laugsson höíund- ur Fjörulalla. enda skiptir það ekki öllu máli. Þegar ég er búinn að segja söguna oft, ýmist á KFUM-fundum eða í sumar- búðunum við Hólavatn, er ég farinn að trúa sjálfum mér að lokum. Þættirnir eru nokkuð sjálfstæðir, en þó er nokkur þráður í þeim, og aðalpersónan, Fjörulalli sjálfur, tengir þá saman. Fjörulalli - ný tmgl ingabók eftir Jón Viðar Guðlaugsson Stutt spjall við höf undinn JÓN VIÐAR Guðlaugsson lyfjatæknir fæddist og ólst upp í þeim gamla og virðu- lega bæjarhluta á Akureyri, sem heitir Fjaran, og af því mun heiti bókarinnar dreg- ið. í henni eru margar sögur, sem eflaust vekja hressandi hlátur og kátinu hjá lesendunum, hvort sem þeir eru á unglingsaldri eða eldri að árum. og Fjörulalli, aðalpersóna bókarinnar, lendir í ýmsum ævintýrum. Höfundurinn svaraði góð- fúslega nokkrum spurning- um um nýju bókina og efni hennar. — Ertu búinn að fást lengi við sagnagerð? — Ég hef verið að búa til sögur frá því er ég man eftir mér og hef lengi haft gaman af að skrifa. Svo hef ég starfað nokkuð fyrir KFUM, og þar hefur oft vantað hæfilegt skemmtiefni, stutt- ar, smellnar sögur, og þá hef ég reynt að búa þær til sjálfur. Þannig hafa flestar sögurnar í bókinni orðið til. Ég hef alltaf haft yndi af að semja og skrifa sögur, þó að ég hafj ekki haft útgáfu í huga. Ég hef reyndar alltaf haft yndi af að lesa líka, en það er nú önnur saga. — Er efnið að einhverju leyti endurminningar þínar eða orðið til í huga þínum? — Við getum kallað þetta skáldskap með sannsögulegu ívafi. Sögusviðið er að vísu Fjaran, þó að ekki séu miklar umhverfislýsingar, en í rauninni gætu þessar sögur gerst víðar. Ég er alinn upp í Fjörunni, og einhverjar stað- reyndir þaðan eða staðhátta- lýsingar hafa kannski lekið í gegnum pennann óvart. Ég veit satt að segja varla leng- ur, hvað er raunverulegt og hvað ættað úr höfðinu á mér, — Eru einhverjar fyrir- myndir að persónum? — Nei, engar fyrirmyndir, svo að ég viti, það væri þá óviljandi. Ekki ber heldur svo að skilja, að aðalpersón- an sé höfundurinn í þernsku eða spegli hann á nokkurn hátt. — En merkileg persóna samt. — Hún kemur fyrir í öll- um sögunum, og þær snúast að miklu leyti um hann. Ymis spaugileg atvik koma fyrir hann Fjörulalla, og frásögunum af þeim er eink- um ætlað að vekja bros og kátínu, ekki síst drengjum á unglingsaldri. — Er einhver kenning eða boðun í sögunum? — Nei, ekkert af því tagi. Ég held þó, að það skemmi engan að lesa bókina. Hún ætti heldur að teljast til hollrar lesningar, ef ég mætti segja svo. — Er að vænta framhalds síðar? — Ef framhald verður á þessum skrifum mínum, mun ég halda mig við sömu per- sónuna. Það er viss freisting fyrir höfund að fást við persónu, sem hann hefur þegar mótað — nú, og les- endur vilja líka heyra meira af þeim persónum, sem þeir þekkja, ef þeim fellur þær. — í bókinni eru nokkrar afbragðs-myndir. Hver hefur gert þær? — Ungur myndlistarmað- ur, Búi Kristjánsson, myndskreytti bókina, afar vel að mínum dómi, og þetta var frumraun hans. — Hefurðu ekki haft ánægju af þessari sagn- agerð? — Jú, ég hef Jiaft mikið yndi af þessu. Ég get nærri því sagt, að mig langi til að halda áfram, en við sjáum nú til, hvernig þessari bók verð- ur tekið. Sv.P.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.