Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 13 Ekkert minna en gereyðing Alistair MacLean: Vítisveiran. Guðný Ella SÍKurðardóttir ok Örnólfur Thorlacius þýddu. Iðunn 1980. Djöfull ætlar þetta að vera leiðinleg bók, hugsar maður í fyrstu þegar Alistair Maclean leiðir mann inn í Einkarann- sóknastofnun Cavells í London. En því er ekki að leyna að eftirvætningin vaknar þegar meira er lesið. Hinn slyngi æsisagnahöfundur á sér fáa líka í því að halda lesandanum í spennu og láta fara um hann Alistair MacLean þægilegan hroll. Alla vega eru bækur hans ekki svo afleit dægrastytting þótt þær skilji ekki mikið eftir. í Vítisveirunni kynnumst við „heilsugæslustöð" Breta í Mor- don, en þar er unnið að ræktun sýkla til hernaðarnota. Einn daginn eru mikilvægustu sýkl- anir horfnir. Hið „fullkomna" vopn sem tekist hefur að rækta er „gereyðandi". Til þess að bjarga málum er fenginn til liðveislu kappinn Cavell sem að sjálfsögðu er engum líkur að hugviti. Þeir tímar sem bókin lýsir eru okkar tímar „þegar tug- milljónir manna á heimilum og vinnustöðum lifa í sífelldri ang- ist um gereyðingu kjarnorku- stríðsins, sem menn óttast að sé yfirvofandi — og það fyrr en síðar. Milljónir geta ekki sofið á nóttunni fyrir draumum þar sem börnin þeirra liggja dauð í okkar grænu og vistlegu ver- öld“. Þetta orðalag er að vísu ekki alveg nýtt, en þess ber að geta Bókmenntlr eltir JÓHANN HJÁLMARSSON að Vítisveiran, á frummálinu The Satan Bug, er samin 1962. Mig minnir að ég hafi ein- hverntíma skilgreint bækur Alistair MacLeans sem ungl- ingabækur handa fullorðnum, lesefni fyrir þá sem sakna gömlu drengjabókanna sinna. Þetta get ég enn skrifað undir. En það er að mörgu leyti aðdáundarvert hve Alistair MacLean byggir sögur sínar vel og um hve mikla þekkingu þær vitna. Höfundurinn hefur þaulkannað sögustaði áður en hann hefst handa og kynnt sér rækilega það efni sem hann velur hverju sinni. Annars þýddi að sjálfsögðu ekki að bjóða lesendum upp á þessar sögur, að minnsta kosti ekki nema einu sinni. Alistair MacLean verður að vísu ekki talinn með hinum vandaðri æsisagnahöfundum (mönnum eins og Forsyth til dæmis), en hann stendur vel fyrir sínu og hans er greinilega þörf. „Ég les það sem ég vil“ Ég vil líka fara i skóla Ilöfundur lesmáls: Astrid Lind- gren Myndir: Ilon Wikland Þýðing: Ásthildur Egilson Setning og filmuvinna: Prent- stofa G. Benediktssonar Útgefandi: Mál og menning Þetta er ein af þessum bráð- snjöllu barnabókum, bókum sem ylja um hjartarætur. Lítil fimm ára hnáta er orðin ósköp leið á því, hve langan tíma það tekur að verða alvöru-manneskja. Það er eins og enginn taki eftir því, hve stór hún er orðin, og líka bráð- snjöll, hún er alls staðar fyrir vinnandi fólki — á að dunda í einhverjum þykjustuheimi. Já hún er orðin þreytt á þessu, og í huga hennar er ekki lengur það eftir- sóknarverðast að vera fimm ára, heldur það að komast í alvöru- skóla, eiga tösku, hafa borð t.þ.a. sitja við og kennara, alvöru- kennara. Svo er það einn dag að stóri bróðir, Pétur sjö ára, býður henni mér sér í skólann. Á list- rænan hátt lýsir höfundur þeim ævintýrastundum er Lena fær að skyggnast um í þeim heimi, er hún telur alvöru-heim. „Og svo er komið kvöld. Pétur er að lesa skemmtilega bók. Lena sest beint á mótí honum með bók sem amma hefur látið hana fá. Hún bendir inn í bókina og les: „Amma er góð.“ „0, hvað þú ert vitlaus," segir Pétur. Það stendur ekki eitt orð um ömmu í þessari bók. Hún er um íkorna." „Það er alveg sama,“ segir Lena. Bókmenntlr eftir SIGURÐ HAUK GUÐJÓNSSON „Ég les það sem ég vil. Og nú veit ég að minnasta kosti alveg hvern- ig er í skólanum þínum.“ Myndir bókarinnar eru frábær- ar, langt, langt fyrir ofan og framan það krot sem í sumum barnabóka er kynnt sem myndir. Þýðing Ásthildar er mjög vel unnin, leikandi létt og lipur. Það verður gaman að rétta barni þessa bók. Ég þekki litla hnátu, sem Lena er eins og spegilmynd af. Hafi Mál og menning kæra þökk fyrir frábært verk.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.