Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 29 hafa öll erft góðvild og mannkosti foreldra sinna. Minnisstæð verður dagsstund er ég dvaldi á heimili þeirra hjóna á liðnu sumri er við rifjuðum upp löngu liðna atburði, frá fyrri tíð. Að síðustu skal flutt kveðja frá skóla- og fermingarsystur Elínar, Nellý systur minni. Saman sátu þær öll skólaárin. Vinátta þeirra stóð alla tíð og fyrnist eigi. Slíkt hið sama segja mér þær aðrar, Eyrarbakkastúlkur, er nú kveðja ævivin og traustan félaga. Þótt lífsfley Elínar sigldi á lognsævi, innan skerja, frá sjón- hring samferðarmanna, þá kvað sú hin djúpa undiralda henni stef sitt úr harmljóði því, er hún þylur jarðarbörnum „í sviptingum lífs- ins og tímanna straumi". Pétur Pétursson þulur í dag fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík útför Sigríðar Elínar Þorkelsdóttur. Hún andaðist að heimili sínu, Freyjugötu 46 hér í borg, að morgni dags laugardag- inn 13. desember síðastliðinn, rúmlega 77 ára að aldri. Hún fæddist á Eyrarbakka 13. ágúst 1903. Foreldrar hennar voru hjónin Sigríður Grímsdóttir, er fæddist í Oseyrarnesi í Árnessýslu 8. febrúar 1872 og Þorkell Þor- kelsson, er einnig fæddist í Óseyr- arnesi 21. maí 1863. Sigríður andaðist 24. september 1917 en Þorkell 21. janúar 1931. Þau stofnsettu heimili ung að árum, fyrst í Óseyrarnesi, síðan í Gerðiskoti en bjuggu lengst á Eyrarbakka. Þar var Þorkell út- vegsbóndi og formaður i fjörutíu vertíðir. Þau eignuðust sex börn, Grím, Þuríði, Þorkel, Guðmund, Sigríði Elínu og Sigríði. Þau eru nú öll látin nema Sigríður, sem var yngsta barnið í fjölskyldunni. Elín hóf ung að árum, aðeins 16 ára, verzlunarstörf í Andrésarbúð á Eyrarbakka en fluttist síðar til Reykjavíkur og starfaði árum saman hjá Marteini Einarssyni, sem rak lengi eina af stærstu vefnaðarvöruverzlunum í Reykja- vík, við Laugaveg. Þann 24. maí 1930 giftist Elín, Valdimar Þórðarsyni kaupmanni í Reykjavík. Hann fæddist í Reykjavík 28. janúar 1905. Hann var sonur Ónnu Helgadóttur Hanssonar bónda á Glamma- stöðum í Svínadal í Borgarfjarð- arsýslu og Þórðar bónda á Höfða í Hnappadalssýslu Þórðarsonar, er var alþingismaður Snæfellinga 1875 til 1879. Hann var Danne- brogsmaður og mikill fram- kvæmdamaður í héraði. Bjó í Hítardal, Söðulholti og síðast á Rauðkollsstöðum í Eyjahreppi í Hnappadalssýslu. Þau Elín og Valdimar bjuggu í farsælu hjónabandi rúma hálfa öld og áttu gullbrúðkaup 24. maí síðastliðinn. Heimili þeirra var fagurt og aðlaðandi. Þau voru samhent og tóku opnum örmum gestum, er að garði bar. Gleðin og góðsemin var þeim báðum í barn- æsku gefin í veganesti og það pund ávöxtuðu þau ríkulega. Þau eignuðust þrjú börn, sem öll eru á lífi: Þorkell viðskiptafræð- ingur, Sigurður Bjarni forstöðu- maður víxla- og verðbréfadeildar Útvegsbanka íslands og Sigríður Anna stúdent. Sigurður er kvænt- ur Bryndísi Friðþjófsdóttur. Barnabörnin eru fimm. Elín starfaði mikið að félags- málum. Einkum skal minnast á að hún var virkur félagi í Sjálfstæð- iskvennafélaginu Hvöt um árarað- ir og í Kvenfélagi Fríkirkjunnar var hún gjaldkeri í 29 ár, en eiginmaður hennar var lengi formaður safnaðarstjórnar kirkj- unnar. Henni voru þökkuð fórnfús og óeigingjörn störf í þágu kirkjunn- ar þegar hún að verðleikum var kjörin heiðursfélagi í Kvenféiagi Fríkirkjusafnaðarins 27. mars 1979. Nú hafa leiðir skilið. Á miðri jólaaðventu hefir Elín Þorkels- dóttir kvatt ástvini, ættingja og vini sem sakna hinnar ástsælu eiginkonu, móður og ömmu, auk allra sem nutu hlýju og gleði- stunda í nærveru hennar. Megi þeir, sem um sárast eiga að binda njóta guðs huggunar. Ádolf Björnsson. CANON METSÖLUVÉLAR CANON A-1 AT-1, AV-1, AE-1 og F-1 VERÐ FRA KR 302.000 — 3.020 NÝKR. r.apojl POLAROID og KODAK INSTANT AUGNABLIKSMYNDAVÉLAR — TILVALIÐ FYRIR HÁTlOARMYNDATÖKURNAR 8 GERÐIR VERÐ FRÁ KR 26.250,- 262,50 NÝKR. GJAFAKORT FYRIR MYNDATÖKUR (STUDIOI VERSLUNARÚTTEKT ÁHUGALJÖSMYNDARANS EÐA OKKAR VINSÆLU LJÓSMYNDANAMSKEIÐ. ALdUM 20 GERÐIR VERÐ FRÁ KR 1.250 — 12.50 NÝKR TIL KR 14.850 — 148.50 NÝKR NIKON MERKI FAGMANNSINS NIKON EM, FM OG FE MYNDAVÉLAR VERÐFRA KR 275.100 —2.751 NÝKR ÚR ÁLI, LEÐRI OG LEÐURLlKI YFIR 20 GERÐIR VERÐ FRÁKR 14.900 — 149 NÝKR. MYNDAVELA TÖSKUR HOYA og COKIN HAMA FYLGIHLUTIR ÁVALLT VINSÆLIR FILTERAR GERA GÖÐA MYND BETRI ÆÐISLEGT ÚRVAL! DURST * STÆKKARAR 9 GERÐIR VERÐ FRÁ KR 105.785 — 1.057.90 NÝKR. MIKIÐ ÚRVAL MYRKRAHERBERGISÁHALDA OG EFNI FYRIR S/H OG LIT. SUNPAK LEIFTURLJÓS 6GERÐIR VERÐ FRÁ KR 19.800- 198 NÝKR RAMMAR r I FJÖLBREYTTU ÚRVALI LÁTIÐ okkur setja myndirnar ( A MEÐAN BEÐIÐ ERI, LINSUR YFIR 30 GERÐIR A FLEST ALLAR MYNDAVÉLAR INNRÖMMUN RAMMAGERÐ OKKAR BÝÐUR FLJÓTA OG VANPAÐA ÞJÓNUSTU NÁLÆGT 100 GERÐIR FALLEGRA RAMMALISTA FYRIRLIGGJANDI. 35 mm „COMPACT” MYNDAVÉLAR VERÐ FRÁ KR 127.500 — 1.275 NÝKR SLÆR i GEGNI PENTAX MV, ME OG ME SUPER MYNDAVÉLAR FRAMTlÐAREIGN A HOFLEGU VERÐI — VERÐ FRA KR 238.000 — 2.380 NÝKR. GOÐ GRCIÐSLUKJOR! Verslið hjá fagmanninum MYNDARLEGAR JÓLAGJAFIR LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F LAUGAVEGI 178 REYKJAVIK SIMI 85811

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.