Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
VERKSMIÐJU
SALA
IÓLAFATAMARKAÐUR
Úrvalsfatnaður úr
fyrsta flokks efn-
um á verksmiöju-
verði.
frá g.kr. nýkr.
Dömukápur 46.000 460
Drengjaföt 17.900 179
Herrafrakkar 56.000 560
Barnabuxur 8.900 89
Dömupils 12.000 120
Barnaúlpur 17.900 179
Herrabuxur 14.900 149
Dömubuxur 14.900 149
Opiö á venjulegum
verslunartímum.
Elgurhf
Skipholti 7
Simi28720
Ein þeirra mynda sem Ólafur K. M hefur tekið og birt er i bókinni.
Magnus on the Movie
— bók um Magnús Magnússon
sjónvarpsmann
ÚT ER komin bókin Magnus on
the Movie og er hún gefin út af
Macdonald Publishers í Edinborg.
í bókinni er greint frá ferðum
og viðfangsefnum Magnúsar
Magnússonar, en hann er sem
kunnugt er þekktur í Bretlandi
fyrir störf á vegum sjónvarps.
Margar myndir eru í bókinni og
eru nokkrar þeirra teknar af Ólafi
K. Magnússyni ljósmyndara. Bók-
in er tæpar 170 blaðsíður að stærð.
Um uppátektir unglinga í „fínu hverfi4’
Þorsteinn Antonsson: Fína hverf-
ið, frásögn. Útg. Ljóðhús 1980.
Það er að verða töluvert út-
breidd þörf hjá höfundum á bezta
aldri að fara að skrá endurminn-
ingar sínar og víst hefur það sína
kosti, þeir muna væntanlega at-
burðina skýrar og fjarlægðin hef-
ur ekki vafið þá inn í rósrauða
bjarmann sem oft vill leika um
þess konar bækur. Þorsteinn Ant-
onsson er sennilega maður ekki
fertugur og hefur skrifað tölu-
verðan fjölda bóka að því er ég
bezt veit, skáldsögur, smásögur.
En hér tekur hann til við að segja
frá uppvaxtarárum sínum í fína
hverfinu. Það virðist spanna yfir
hverfið frá Egilsgötu að Hring-
braut; reyndar færist sögusviðið
Munið
betri
fötin
Jakkar
Stredsbuxur
Kjólar
Blússur
Skyrtur
Bindi
Peysur
Þorsteinn Antonsson.
til alla leið út í prófessorahverfi
og til Bessastaða, fyrir nú utan að
hann og félagar hans bregða sér í
Laugarvatnsskóla og fara til út-
landa öðru hverju. í fyrstu hélt ég
að hér væri um dulnefni að ræða,
en það var ekki lengi. Hér eru í
mesta lagi notuð gælunöfn, en
oftar full nöfn og það verður ekki
annað sagt en forsætisráðherra
okkar sé vinsæl sögupersóna fyrir
þessi jól. Lýsingar á heimilislífi
hans eru töluvert fyrirferðarmikl-
ar í bókinni og ekki síður er vikið
Bókmenntlr
eftir Jóhönnu
Kristjónsdóttur
að því þegar hann er að vísu
farinn til útlanda að vera sendi-
herra: þá fá synir hans og vinir
þeirra meira og minna inni á
Bessastöðum hjá afa sínum for-
setanum og hefur þar sýnilega
einnig verið glatt á hjalla.
Þorsteinn Antonsson segir
skýrt frá og stíll hans er þægilegri
og ekki eins tyrfinn og stundum
fyrr. Hann dregur upp hressilegar
og hreinskilnislegar sögur af
prakkarastrikum og uppátækjum
sínum, nema öðru hverju og að
þessu er fengur að sumu leyti. Mér
finnst að vísu sums staðar farið
fulllangt en vegna þess að Þor-
steinn er í mesta lagi kaldhæðinn,
nánast aldrei illskeyttur, verður
þetta allt viðsættanlegt. Börn
„fína fólksins í fína hverfinu" eru
sannarlega engin englabörn á
yngri árum þótt allt eða flest það
fólk sem sagt er frá í bókinni sé nú
meira og minna ráðsettir og penir
borgarar.
Vel sótt endur-
menntunarnámskeið
grunnskólakennara
YFIR tvö þúsund
grunnskólakennarar sóttu
fræðslufundi, sem haldnir
voru á vegum Kennara-
háskóla íslands, en sl.
sumar voru 89 fræðslu-
fundir haldnir um ýmis
efni, sem grunnskólakenn-
urum stóð til boða að
sækja.
Auk þessara 2.259 kenn-
ara, sem fræðslufundina
sóttu, sátu 639 kennarar ým-
is námskeið, sem KHÍ stóð
fyrir og miða að endur-
menntun grunnskólakenn-
ara. Voru í júní ogjúlí haldin
15 námskeið, sem flest stóðu
í viku. Var á þeim einkum
fjallað um starfshætti og
námsefni í grunnskóla og
viðhorf í kennslumálum.
Ekki var unnt að sinna öllum
umsóknum segir í frétt frá
KFÍ og segir að fastráðnir
kennarar við grunnskólana
séu 2.513 og 570 stundakenn-
arar og sé því augljóst að
grunnskólakennarar sýni
endurmenntun sinni mikinn
áhuga.