Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 19.12.1980, Qupperneq 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 iltagtiitMftfrffr Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 7.000 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 350 kr. eintakiö. SÍS-valdið og Helguvík Ohætt er að slá j)ví föstu, að ekki sé allt með felldu, þegar kommúnistar og SÍS-valdið fallast í faðma. Þegar umræðurnar um nauðsyn þess að draga úr olíuinnflutningi frá Sovétríkjunum stóðu sem hæst, var greinilegt, að olíufurstum SÍS var meinilla við slíkan samdrátt. Þar var fremstur í flokki Vilhjálmur Jónsson, forstjóri ESSO. Mátti hann ekki heyra á það minnst, að hróflað yrði við viðskiptunum við Sovétríkin og gaf stóryrtar yfirlýsingar máli sínu til stuðnings. Sem betur fer var ekki farið að vilja hans. Nú hefur Vilhjálmur Jónsson kvatt sér hljóðs um fyrirhugaðar framkvæmdir í Helguvík, þar sem ráðgert er að reisa eldsneytisgeyma fyrir varnarliðið. Finnur ESSO-forstjórinn þessum framkvæmdum allt til foráttu og hótar Keflvíkingum með því, að á þá verði gerð sprengjuárás verði geymarnir reistir. Fagnaðarbylgja fer um Þjóðviljann af þessu tilefni, enda virðist vera innangengt milli kommúnistaflokksins og auðhringsins ESSO, en báðir þessir aðilar ganga undir íslenskum nöfnum, eins og kunnugt er, og heita nú Alþýðubandalag og Olíufélagið. Kjarninn í málflutningi Vilhjálms Jónssonar er sá, að alls ekki þurfi að reisa geyma fyrir varabirgðir af olíu í landinu, geymslurýmið sé þegar nægilegt. Slíkar fullyrðingar fá ekki staðist og koma því ekkert við, hvort byggðir verða geymar í Helguvík eða ekki. Allt frá því Tómas Árnason kom í sæti viðskiptaráðherra hefur legið í hans höndum skýrsla, þar sem fram kemur, að íslendingar þurfa að auka birgðarými undir olíu, ef landið gerist aðili að Alþjóðaorkumálastofnuninni. Ráðherrann hefur skotið sér undan umræðum um þessa skýrslu og er aðgerðarleysi hans til háborinnar skammar miðað við alla framvindu í alþjóðlegum olíumálum. Ummæli Vilhjálms Jónssonar skýra þó þetta sinnuleysi, því að SÍS-valdið hefur löngum sagt Framsóknarflokknum fyrir verkum. Svo virðist sem hagsmunir þess og kommúnista falli saman í afstöðunni til olíumála varnarliðsins eins og í afstöðunni til olíuviðskiptanna við Sovétríkin. í viðtali Tímans við Vilhjálm Jónsson um þessi mál kemur fram, að til 1976 annaðist ESSO sölu á olíu til varnarliðsins. Síðan hefur Bandaríkjastjórn sjálf flutt til íslands olíuvörur til varnarliðsins. ESSO sér hins vegar um að taka við olíuvörunum frá skipunum, sem flytja þær til landsins, geymslu og afgreiðslu. Greinilegt er, að SIS telur sig missa spón úr aski sínum, ef hin nýja stöð í Helguvík verður reist. Þá hafi félagið ekki lengur tekjur af flutningi flugvélaeldsneytis með bílum eða öðrum hætti frá Reykjavík eða Hafnarfirði til Keflavíkurflugvallar. Leggur Vilhjálmur Jónsson mikla áherslu á hagkvæmni slíkra flutninga í viðtalinu og hafnar öllum yfirlýsingum um, að af þeim stafi nokkur hætta. Þá er þess að geta, að með tilkomu Helguvíkurstöðvarinnar myndi ESSO missa leigugjald fyrir olíugeyma í Hvalfirði. Nú er að sjá, hvort hagsmunir SÍS koma til með að vega þyngra en ákvarðanir sveitarstjórna í Njarðvíkum og Keflavík, sem mæla með framkvæmdunum í Helguvík vegna mengunarhættu og þeirrar röskunar á eðlilegu skipulagi, sem geymar varnarliðsins hafa valdið. Víst er, að SIS á hér stuðning kommúnista vísan og var tími til þess kominn, að bandalag myndaðist milli Þjóðviljans og þess aðila, sem það hefur sakað mest um hermang. Hins vegar hafa þeir Olafur Jóhannesson, utanríkisráðherra, og Jóhann Einvarðsson þingmaður Framsóknar- flokksins frá Keflavík lýst stuðningi sínum við flutning geymanna til Helguvíkur, og hafa augsýnilega ekki enn ánetjast ríkiskapítalistunum í Kreml og íslensku kapítalistunum í ESSO; a.m.k. ekki með sama hætti og sumir aðrir framsóknarmenn. Bretar í okkar sporum T' / ilraunir Efnahagsbandalags Evrópu til að ná samkomulagi um fiskveiðistefnu hafa enn einu sinni reynst árangurslausar. Þjóðirnar geta ekki komið sér saman um skiptingu afla sin á milli. Sérstaklega þykir Bretum sér misboðið, þar sem þeim sé alls ekki boðinn afli í samræmi við jjjöful fiskimið þeirra. Af þessu tilefni komst hið virta stuðningsblað Ihaldsflokksins breska, Yorkshire Post, svo að orði í forystugrein í gær, að nú hlytu að vera einhverjir Islendingar, sem segðu við Breta: Nú ættuð þið að skilja, hvernig okkur leið, þegar við áttum í landhelgisstríði við ykkur. Og blaðið bætir við, að slík ummæli af íslendinga hálfu eigi fullan rétt á sér. Miðað við reynslu okkar af skilningsleysi Breta í landhelgisdeilunum, hljótum við að vona, að deilurnar innan Efnahagsbandalagsins leiði ekki til jafn harðra átaka og urðu á íslandsmiðum eða eins mikillar spennu í sambúð þessara vinaþjóða og varð milli okkar og Breta. Hins vegar er brýnt fyrir okkur að fylgjast náið með framvindu fiskveiðimála innan Efnahagsbandalagsins, því að enn höfum við ekki gert fiskverndarsamn- ing við bandalagið og þar eru mikilvægir markaðir fyrir sjávarafurðir okkar. MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 17 Edwin A. Weibel, aðstoðarforstjóri Alusuisse: „Við höfum farið eftir samn- ingunum um ISAL bókstaflega“ Fullnaðarskýrsla um súrálsmálið mun liggja fyrir um miðjan febrúar „VIÐ MUNUM sanna það fyrir iðnaðarráðherra fslands að hann hefur rangt fyrir sér. Fullkomin skýrsla okkar um þetta mál mun liggja fyrir um miðjan febrúar- mánuð,“ sagði Edwin A. Weibel, aðstoðarforstjóri Alusuisse i sam- tali við Morgunblaðið i gær. „Enn höfum við aðeins gefið bráðabirgðaskýringar á þessum mismun útflutningsverðs frá Ástraliu og innflutningsverðs á íslandi. en þegar endanleg skýrsla okkar liggur fyrir verður öllum misskilningi eytt.“ I yfirlýsingu Alusuisse, sem birt var í Morgunblaðinu í gær, segir, að samanburður á hagskýrslu- verðum ástralsks súrálsútflutn- ings til íslands og innflutnings- verðum ÍSALs sé villandi, þar sem ástralskar hagskýrslur tækju ekki tillit til afturvirkra verðleiðrétt- inga, sem taka tillit til kostnaðar- hækkana. Auk þess þyrfti Alu- suisse að greiða fjármagnskostnað af lánum, sem tekin voru utan Ástralíu og einnig afskriftir, sem ekki eru að fullu bornar upp af hinu ástralska dótturfyrirtæki Alusuisse. í framhaldi af þessu spurði Morgunblaðið Weibel að- stoðarforstjóra, hvers vegna þessi mismunur hafi ekki komið fram í verðum frá árinu 1972 og 1973. Hann svaraði: „Það er vegna þess, að súráls- verksmiðjan í Ástralíu hóf ekki starfrækslu fyrr en um mitt ár 1972 og þessi mismunur kemur því ekki fram í verðunum fyrr en eftir 1973.“ Þá kvað Morgunblaðið staðhæft á íslandi, að Alusuisse hafi verið staðið að verki á árinu 1974 í að hækka súrálsverð til ÍSALs. Niðurstaða þess máls hafi orðið sú, að Alusuisse hafi samþykkt að hækka m.a. raforkuverð, sem það greiddi Landsvirkjun. Weibel var spurður að því, hvað hann vildi um þá staðhæfingu segja. „Þetta er ekki satt og þessu hefur aldrei verið haldið fram við okkur, það get ég fullyrt. Þetta er að sjálfsögðu ósatt. Aðalatriði þessa máls, er að ég tel að misskilningur hafi orðið innan ríkisstjórnar Islands eða hjá iðn- aðarráðherranum og fréttatil- kynning okkar er mjög ljós. Við höfum rætt þetta mál við ráðherr- ann og lofað honum viðbótarupp- lýsingum, sem við munum útvega og þar til þær liggja fyrir, er mál þetta í bið. Eg held að iðnaðarráð- herrann hafi misskilið málið, og þeim misskilningi munum við leytast við að eyða og því getum við nú ekki sagt meira." Morgunblaðið skýrði Weibel frá því að Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra hefði sagt á blaðamannafundi á þriðjudag, að skýringar Weibels, en það var hann, sem kom til íslands til viðræðna við ráðherrann út af þessu máli, hafi ekki verið trú- verðugar við fyrstu sýn. Morgun- blaðið spurði Weiber, hvað hann vildi um þau orð ráðherrans segja og vildi Weibel í fyrstu vart trúa því að ráðherrann hefði þetta sagt, en hann sagði: „Ég tel þetta mjög óheppileg ummæli, hafi ráðherrann sagt þetta. Eins og kunnugt er var tími okkar mjög naumur. Við fengum upplýsingar hans hinn 10. des- ember og sendimaður hans kom hinn 11. og hinn 12. fór ég frá Zúrich ásamt hinum sérlega sendimanni til Luxemburgar, þar sem við tepptumst vegna þoku. Hinn 13. desember kom ég til íslands og hitti ráðherrann þann sama dag. Ég sagði honum skýrt og skorinort, að okkur gæfist ekki nægur tími til þess að skýra málið til fullnustu, en ég veitti honum þær upplýsingar, sem lágu fyrir og að við myndum halda áfram að afla þeirra upplýsinga, sem gætu orðið honum að gagni. Ég skýrði honum frá því að hann hefði misskilið málið, en þegar hann hefði fengið endanleg gögn, yrði hann að ákveða, hvort þau væru fullnægjandi. En það er engin spurning um að hann geti sagt, að upplýsingar okkar séu ekki trú- verðugar. Þær byggjast aðeins á staðreyndum. Ráðherrann hefur jafnframt sagt, að við höfum ekki farið að aðalsamningnum um ÍSAL. Það er ósatt, við höfum farið eftir honum bókstaflega." Þá spurði Morgunblaðið, hvað Weibel vildi segja um þau ummæli Hjörleifs á blaðamannafundinum, að hann teldi ekki þessi viðskipti samrýmast viðskiptavenjum á þessu viðskiptasviði. Weibel sagði: „Ég er nú að velta því fyrir mér, hvaðan honum kemur sú vitn- eskja," sagði Weibei og hló við, og bætti við: „En mér þykir þetta mjög leitt. Það er í raun mjög erfitt fyrir mig, að gefa andsvör við yfirlýsingum ráðherrans, þeg- ar ég var ekki viðstaddur, þegar hann gaf þau og að sjálfsögðu vil ég ekki vera ókurteis í garð ráðherrans. Hann tók mér af mikilli kurteisi og ég veitti honum það sem ég tel vera ítarlegar upplýsingar og óski hann ekki að leggja trúnað á þær, þá er ekki við mig að sakast. En fréttatilkynning okkar er skýr. Við höfum sagt ráðherranum, að við höfum haldið okkur í einu og öllu við ákvæði aðalsamningsins um viðskipti milli óskyldra aðila. Þetta munum við sanna honum. Þessar töluupp- lýsingar frá Ástralíu koma málinu ekkert við. Ég tel einnig að það sé mjög óheppilegt, að ráðherrann skuli hafa opinberað málið á þessum tíma, því að ég veit, að hann getur engan veginn á grundvelli þessara upplýsinga, staðið á því, sem hann hefur sagt.“ Að lokum spurði Morgunblaðið á hvaða verði Alusuisse keypti súrál frá ástralska fyrirtækinu, sem það ekki á, Gove Aluminium Ltd. Weibel kvaðst ekki geta gefið þær upplýsingar: „Menn verða að skilja það, að ég get alis ekki talað um þriðja aðila, fyrirtæki, sem er í viðskiptum við okkur. Það kemur þessu máli á engan hátt við og ég tel það einnig óheppilegt, að ráðu- neytið hafi minnst á slíkt. Við getum aðeins svarað ráðuneytinu til um hluti, sem við vitum. Við getum ekki talað um önnur fyrir- tæki, þau koma okkur ekki við og ég tel að það sé heldur ekki mál ráðuneytisins. Því ætti hann held- ur að leita fanga um slíkt í Ástralíu, en ekki hjá okkur. Við ræðum ekki málefni annarra fyrirtækja. Ég tel allt málið mjög óheppi- legt og við hörmum það og eins og við sögðum í íréttatilkynningu okkar, höfum við lofað ráðuneyt- inu öllum upplýsingum. Við mun- um útvega þær. Á þessari stundu getum við þó ekkert sagt, þar sem við viljum forðast að málið taki óheppilegri stefnu en þegar er orðið. Við höfum lofað fullnað- arskýrslu um miðjan febrúarmán- uð.“ Þorskveiðistefna næsta árs var kynnt á fundi með fréttamönnum í gær. á myndinni eru frá vinstri: Magnús ólafsson, fulltrúi. Borgi bórðarson, aðstoðarmaður ráðherra. Steingrímur Hermannsson. sjávarútvegsráð- herra, Jón Arnalds. ráðuneytisstjóri. og Jón B. Jónasson. deildarstjóri. (I.josm, Kristinn). Þorskafli fari ekki yfir 400 þúsund lestir á næsta ári: Bátar og togarar veiði jaf n mikið STEINGRÍMUR Hermannsson sjávarútvegsráðherra gerði ríkis- stjórninni grein íyrir reglum um stjórn þorskveiða á næsta ári á fundi í gærmorgun og þeirri ákvörðun sinni að miða við 400 þúsund tonna hámarksafla þorsks. Síðdegis í gær kynnti hann þessar reglur siðan á fundi með fréttamönnum og verður hér á eftir gerð nokkur grein fyrir þeim. Meginmarkmið eru þau, að heildarafli verði sem næst því er stjórnvöld hafa ákveðið. Að gæði aflans og þess, sem úr honum verður unnið, verði sem mest og í því skyni verður lögð áherzla á, að afli sá, sem á land berst, sé nýlegur, vel með farinn og hafi gott geymsluþol. Að samræma veiðar og vinnslu þannig, að ekki berizt á land á hverjum tíma meiri afli en svo, að vinnslan geti nýtt hann á eðlilegan hátt í hvaða framleiðslu sem er. Hagkvæmni í veiðum og vinnslu verði sem mest. Gert er ráð fyrir jöfnum ársafla báta og togara, 200 þúsund lestum á hvorn hóp. Fái loðnuflotinn hlutdeild í þorskveiðinni, gæti þetta hlutfall raskast. Árið 1977 var afli báta og togara hinn sami, togararnir veiddu heldur meira 1978, en bátarnir hins vegar árið 1979. í ár er útlit fyrir, að afli togaranna verði heldur meiri en bátaaflinn. Næsta ári verður skipt í þrjú fjögurra mánaða tímabil. Hjá bátaflotanum verða allar þorskveiðar bannaðar frá 11.—21. apríl. Frá 25. júlí til 3. ágúst eru þorskveiðar bátanna einnig bann- aðar, en þó með þeirri undantekn- ingu, að bann þetta tekur ekki til báta 12 lesta og minni og stunda línu- og handfæraveiðar. Frá 20. desember til áramóta eru allar þorskveiðar bannaðar. Þorskveið- ar togbáta eru bannaðar frá 1.—7. maí. Þá eru veiðar í þorskanet óheimilar frá 15. júlí — 15. ágúst. Viðmiðunarmörk á hinum þremur veiðitímabilum verða 130 þúsund á 1. veiðitímabili, 45 þús- und lestir á 2. tímabili og 25 þúsund lestir á 3. tímabili. Það er nýmæli, að slík ákveðin viðmiðun sé sett inn í reglugerðina, en ef afli fer t.d. fram úr viðmiðunarm- örkum á 1. tímabili, kemur það til frádráttar á því næsta. Á þessu ári veiddu bátarnir um 70% árs- aflans fyrstu 4 mánuði ársins, en á næsta ári er reiknað með, að þeir fái að veiða 65% þennan tíma. Á grundvelli þess afla bátaflot- ans, sem kominn verður á land í lok marzmánaðar, skal lengd netavertíðar ákveðin. Ef ætla má að aflinn fari yfir 130 þsund lestir á tímabilinu, skal gert ráð fyrir styttingu netavertíðar í apríl og maí, þannig að heildarafli tveggja fyrstu tímabila verði sem næst því sem viðmiðunarmörk ákveða. Við styttingu netavertíðar verður tek- Tarring, ritstjóri Metal Bulletin: Súrál er yfirleitt aldrei greitt með peningum „ÞAÐ ER ekkert heims- markaðsverð til á súráli eins og á áli,“ sagði ristjóri Metal Bulletin, Tarring að nafni í samtali við Morgunblaðið í gær. „Súrálsviðskipti eru ekki á margra höndum. Sér- hver samningur er sjálf- stæður og margir þeirra eru svokallaðir afurða- skiptasamningar, þar sem peningar koma ekki í spil- ið, en ákveðið magn af áli er notað sem endurgjald fyrir súrálið. Því er ekki unnt að svara spurning- unni með þessum hætti og svara því, hvert sé heims- markaðsverð súráls.“ Tarring ritstjóri kvað ástand þessara mála, þó ekki eins slæmt og það hefði áður verið. Menn gætu nú kannski fundið einhverja viðmiðun við ál, en þó varla með meiri nákvæmni en plús og mín- us 10%, sem myndi þá ná til flestallra viðskipta með súrál eða a.m.k. virði við- skiptanna. Hins vegar væri engin ein ákveðin tala til. Ritstjóri Metal Bulletin útvegaði Morgunblaðinu upplýsingar, sem birzt höfðu í blaði hans, sem leitt gætu til ákveðins verðs á súráli. Til þess að fram- leiða 1 tonn af áli þarf 5 þúsund Bandaríkjadali og er þá innifalinn í verðinu fjárfestingarkostnaður. Til þess að framleiða þetta eina tonn þyrfti 5 tonn af boxiti, sem gæfi aftur 2 tonn af súráli. Úr þessu magni súráls fæst síðan áltonnið. Til þess að fram- leiða eitt tonn af súráli, þarf fjárfestingakostnað sem er á bilinu 650 til 900 Bandaríkjadali. Samkvæmt þessum upplýsingum er unnt að reikna verðhlutfall súráls af verði áls og lætur nærri að það sé á bilinu 17,5% til 20,4%. Þessar upplýsingar úr Metal Bull- etin birtust í blaðinu eftir ráðstefnu álframleiðenda, sem haldin var í Madrid í septembermánuði síðast- liðnum, en verið getur að þær eigi við nýja fjárfest- ingu. Eins og fram hefur kom- ið, hefur Ragnar Halldórs- son skýrt frá því opinber- lega að verð á súráli sé á bilinu 16 til 19%, en ÍSAL hafi fengið það frá Alu- suisse á 12 til 13% af verði áls. Yfirlýsing frá Hjörleifi Guttormssyni: Engin fullyrðing um end- anlega niðurstöðu í um- sögn iðnaðarráðuneytisins Mori'unhlaóinu hefur borizt eftirfarandi yfirlýsinK frá Hjörleifi Guttormssyni. iðnað- arráðherra: Ég tel ástæðu til að fagna þeim jákvæðu undiretktum sem fram hafa komið frá tals- mönnum úr öllum stjórnmála- flokkum um athugun á verðlagn- ingu á súráli frá Alusuisse til íslenska álfélagsins og ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að taka upp viðræður við Alusuisse varð- andi það mál og endurskoðun á núverandi samningum um álver- ið í Straumsvík. Nokkrar aðfinnslur hafa hins vegar komið fram um það, hvernig að málinu hefur verið staðið af minni hálfu. Getsakir um pólitískar árásir í þessu sambandi eru ekki svaraverðar, en varðandi málsmeðferðina að því er varðar upplýsingar vil ég benda sérstaklega á þrjú atriði: 1) Ráðuneytið hafði aflað upp- lýsinga sem gáfu vísbendingu um, að mjög mikill hagnaður sé tekinn af móðurfélaginu Alu- suisse út úr súrálsviðskiptum þess við dótturfyrirtæki sín í Ástralíu og á íslandi, og þau rekin að mestu án hagnaðar, eða með reikningslegu tapi í þeim löndum þar sem þau eru skatt- lögð. Þessi hagnaður Alusuisse er m.a. tekinn með þeim hætti, að sú venja er sniðgengin, að innflytjandinn til íslands gefi upp rétt fob-verð upprunalands- ins í aðflutningsskjölum sínum. 2) Ráðuneytið hefur í höndum upplýsingar um, að súrálið til Isals er að hluta til keypt af óskyldum áströlskum aðiia með langtímasamningi til 20 ára, en samkvæmt ákvæðum álsamn- ingsins ber að miða við súráls- verð í viðskiptum óskyldra aðila í útreikningi á arði og sköttum ísal. Ofan á þetta súrálsverð hins óskylda aðila virðist Alu- suisse leggja að meðaltali um 40% í uppgjöri til ísals. Ráðu- neytið hefur í höndum tölur úr reikningum þessa óskylda aðila, Gove Alumina Ltd., sem sýna umtalsverðan gróða fyrirtækis- ins þau ár, sem hér éru til skoðunar. 3) Skýrsla Coopers & Lybrand um súrálsviðskipti Alusuisse og ísal reikningsárið 1974 sýnir, að ALusuisse seldi ísal árið 1974 súrál á verði sem var milli 30—40% yfir verðum óskyldra aðila á því ári, að mati endur- skoðunarskrifstofunnar. Niður- stöður þessarar skýrslu höfðu ekki verið birtar, og í skjóli þess héldu forráðamenn Alusuisse og ísal því fram, m.a. fram- kvæmdastjóri ísals ítrekað í fjölmiðlum, að reikningar hafi verið skoðaðir af erlendum aðil- um og ekkert fundist athugavert við þá, og að súrálsverð til ísals hafi ávallt verið í samræmi við verð milli óskyldra aðila. Með þessi þrjú efnisatriði sér- staklega í huga og þá staðreynd að ýmsir efnisþættir málsins voru þegar á allmargra vitorði, taldi ég mér skylt sem ráðherra að upplýsa þing og þjóð um stöðu málsins, nokkru eftir að um það hafði verið fjallað í ríkisstjórn og hlutaðeigandi fengið máls- gögn í hendur og gefist kostur á að koma á framfæri athuga- semdum. Auk þess sem ég tel, að rík upplýsingaskylda hvíli á stjórn- völdum í máli sem hér er á ferðinni, tel ég að þessi frá- skýrsla styrki samningsstöðu ís- lendinga nú þegar ákveðið hefur verið að hefja viðræður um endurskoðun samninga við Al- usuisse. ið tillit til aflabragða á einstökum svæðum. Eftirlit með netaveiðum, m.a. fjölda neta í sjó, og gæðum aflans verður stórlega hert m.a. með fjölgun fastra eftirlitsmanna. Þeir, sem gerast brotlegir eða koma ítrekað i.,eð lélegan afla i land, verða sviptir veiðileyfi skv. nánari reglum. Viðmiðunarmörk fyrir togaral'l- otann verða þannig, að 1. veiði- tímabil veiði jieir ekki yfir 70 þúsund lestir. 64 þúsund lestir 2. veiðitímabil og 66 þúsund lestir 3. tímabil. Með þessum viðmiðunum er dregið úr afla togara á 1. tímabili, en í ár var hann um 85 þúsund fyrstu fjóra mánuði árs- ins. Er þetta gert til að koma í veg fyrir að birgðastaða frystihúsa verði eins erfið og varð á tímabili í ár. Gert er ráð fyrir, að þorskveiðar togara verði takmarkaðar við 15% afla, minnst 4 daga í senn, þannig að á 1. tímabili verði skrapdagarn- ir 45, þar af 20 í janúar og febrúar, 65 dagar á öðru tímabili, þar af 40 dagar í júlí og ágúst, 40 dagar á þriðja tímabili. Þó má afli togara vera allt að 259? þorskur í samtals 40 daga ofangreindra þorskveiði- banndaga. Verði þorskafli togara á hverju tímabili meiri en viðmiðunar- mörk, verður banndögum fjölgað á næsta tímabili. Nefnd, sem skipuð var til að fjalia um togveiðar, skilar væntanlega áliti á næstunni og á grundvelli tillagna hennar verða væntanlega settar ýmsar reglur, e.t.v. um útivist togara o.fl. Einnig kemur til greina, að tog- veiðar verði háðar leyfum eins og aðrar veiðar. Vandamál loðnuflotans verða tekin fyrir þegar fyrir liggja endanlegar niðurstöður um heild- arloðnukvótann um miðjan janúar nk. Komi ekki til verulegrar aukn- ingar loðnukvótans, kemur helzt til greina að veita hverju loðnu- skipi heimild til að veiða ákveðinn þorskkvóta. Verði um tiltölulega litla aukningu loðnukvóta að ræða, t.d. til frystingar eða hrognatöku, kemur til álita að veita ákveðnum skipum heimild til loðnuveiða, gegn því að þau afsali sér rétti til þorskveiða, líkt og gert var á þessu ári. Þorskkvóti loðnubáta yrði að takast jafnt af heildarkvóta báta og togara. Ýmis mál eru í deiglunni og nefndir starfandi, einkum til að tryggja bætt gæði. Reglur þar að lútandi kunna að vera settar síðar. Rétt er að benda á, að meðferð mála af þessu tagi getur tekið alllangan tíma, áður en niður- staða liggur fyrir og að mínu mati er óeðlilegt, að gerð sé tilraun til að leyna efnisatriðum og standa að samningum að tjaldabaki um jafn þýðingarmik- ið mál. Þvert á móti tel ég, að á stjórnvöldum hvíli rík skylda um upplýsingar gagnvart almenn- ingi í stórmáli af þessu tagi, þar sem um mikla hagsmuni getur verið að ræða og á reynir um mótun eðlilegra viðskiptahátta. Hér er um að ræða upphaf að víðtækri skoðun þessa máls og í umsögn iðnaðarráðuneytisins felst engin fullyrðing um endan- lega niðurstöðu. Rétt er að benda á, að fyrir utan könnun á súrálsviðskiptum hafði ráðuneytið til athugunar að óska eftir samningaviðræðum við Alusuisse um orkuverð til álbræðslunnar í Straumsvík með tilliti til gjörbreyttra viðhorfa í orkumálum í heiminum. Ég tel að raddir í þá átt, að samnings- staða íslendinga verðandi endur- skoðun á orkuverðinu sé veikari nú en áður vegna vitneskju almennings um vissa þætti í viðskiptum Alusuisse og Isal hafi við engin rök að styðjast. í því efni setjum við fram sann- girniskröfur, þrátt fyrir lítið svigrúm í gildandi samningum og niðurstaðan mun ekki síst ráðast af því, að góð samstaða takist meðal þjóðarinnar um málið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.