Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 32
Síminn á afgreiöslunni er
83033
2M*rgunbIflbi)>
fjf dL ^ HUbvaOtiN II. næo Q
#tffl1$npmpi|p Nýborg^
yÁrmúla 23 - Sími 86755
BARNA- og UNGLINGA-
HÚSGÖGN II. hæð
FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
Vanskilaskuldum við Fiskveiðasjóð og olíufélög:
18 milljörðum króna
breytt í lengri lán
AKVEÐIÐ hefiir vcrið að breyta
um 18 milljörðuu. króna af van-
skila- og lausasku! !um útgerðar-
innar við olíuféiou ug Fiskveiða-
sjóð í 5 ára lán. I viðskiptabonk-
um sjávarútvegsins hefur verið
unnið að ýmsum lanabreytingum
og vcgna sérstaklcga erfiðrar
stöðu Útvcgsbankans í Vest-
mannaeyjum og stóðu sjávarút-
vegs þar hefur Seðlabankinn
lánað Útvegshankanum þar 1500
milljónir króna, en i haust voru
vanskilaskuldir útgerðar þar 2.1
milljarður.
Um aðgerðir Byggðasjóðs í
skuldabreytingarmálum er ekki
vitað, en vanskilaskuldir útgerðar
við sjóðinn nema 3,2 milljörðum
króna. Gert er ráð fyrir breyting-
um á vanskilum í 5 ára lán og
nýrri fyrirgreiðslu vegna sér-
stakra vandamála. Vanskilaskuld-
ir útgerðarinnar voru í haust yfir
30 milljarðar króna að mati út-
vegsmanna.
Steingrímur Hermannsson,
sjávarútvegsráðherra, gerði grein
fyrir þessum skuldbreytingum á
fundi með fréttamönnum í gær.
Þar kom fram, að 7,6 milljörðum
af vanskilum fyrirtækja í sjávar-1
útvegi við olíufélögin verður
breytt í 5 ára lán. Þessar skuldir
námu 12,5—13 milljörðum í haust,
en eftir breytinguna yrðu úti-
standandi skuldir við olíufélögin
komnar niður í sem svaraði til
þess, að meðaltímalengd skulda
væri 60 dagar í stað 145 daga eins
og var í lok september. Fram-
kvæmd skuldabreytinganna er í
höndum viðskiptabanka olíufélag-
anna og félaganna sjálfra, en
Seðlabankinn endurkaupir helm-
ing upphæðarinnar.
Stjórn Fiskveiðasjóðs sam-
þykkti á fundi sínum á mánudag
að breyta vanskilaskuldum í 5 ára
lán sem aðalreglu, en með nánari
skilyrðum. Er áætlað að heildar-
upphæð skuldbreytingalána geti
numið 10,5 milljörðum króna og
skiptist það þannig, að 7,6 millj-
arðar eru vegna skipalána, en 2,9
milljarðar til fiskvinnslufyrir-
tækja. Reglugerð verður gefin út
um sérstakan lánaflokk vegna
þessara skuldabreytinga og gildir
hún frá 1. júní sl. Þá verður
Fiskveiðasjóði heimilt að inn-
heimta allt að 20% í stað 10%
áður.
Stefnt er að því að skuldabreyt-
ingum við Fiskveiðasjóð verði
lokið 1. apríl næstkomandi, en
samkvæmt þessari ákvörðun verð-
ur allt að 70% af öllum vanskilum
við sjóðinn breytt í lengri lán.
Gúmmíbátur kemur með farþcga af Fagranesinu upp að lóðsbátnum, sem hélt sjó rétt utan við
Arnarnes, þar sem Fagranesið hafði strandað á þriðjudagskvöld. Sjá nánar á bls. 12. Ljósm. úifar.
Edwin A. Weibel, aðstoðarforstjóri Alusuisse:
Mimum sanna ráðherranum að
við höfum staðið við samning
Siírálsviðskipti fara fram sem afurðaskipti, segir ritstjóri Metal Bulletin
„VIÐ HÖFUM sagt Hjörleifi Guttormssyni iðnaðarráðherra, að við
höfum haldið okkur í einu og öllu við ákvæði aðalsamningsins um
viöskipti milli óskyldra aðila. Þetta munum við sanna honum.“ sagði
Edwin A. Weibel, aðstoðarforstjóri Alusuisse í samtali við Morgun-
blaðið í gær, en Weibel var maðurinn, sem kom til íslands hinn 13.
desember síðastliðinn til viðræðna við iönaðarráðherra um súrálsmál-
ið svokallaða. Weibel kvað ráðherrann haldinn misskilningi í málinu.
sem hann kvað leiðréttan, er Alusuisse gæfi fullnaðarskýrslu um
málið, sem berast myndi fyrir miðjan febrúar. Þá ræddi Morgunblaðið
í gær einnig við Tarring, ritstjóra Metal Bulletin, sem er fagrit um
málmverzlun og kvað hann ekkert ákveðið heimsmarkaðsverð á súráli
vera til, heldur væri um afurðaskiptaverzlun að ræða og viðskiptin á
höndum fárra aðila.
Weibel aðstoðarforstjóri Alu-
suisse taldi mjög óheppilegt, að
Hjörleifur Guttormsson skuli
hafa opnað málið áður en Alu-
suisse gæfist tími til þess að skýra
ástæður þess mismunar, sem hag-
skýrslur í Ástralíu sýndu á út-
flutningsverði þaðan og innflutn-
ingsverði til Islands. Þessi verð
kæmu þessu máli ekkert við, þar
sem þau endurspegluðu ekki virði
súrálsviðskipta milli óskyldra að-
ila. Kvað Weibel mjög óheppilegt,
að iðnaðarráðuneytið hefði bland-
að óskyldu fyrirtæki Alusuisse,
Gove Aluminium Ltd. inn í þetta
mál og sjálfur neitaði hann að
gefa upp verð á súráli, sem
Alusuisse keypti af þessu fyrir-
tæki. Hann kvaðst ekki ræða um
málefni annarra fyrirtækja opin-
berlega. Þá taldi hann þetta atriði
Skattalækkunartillögur sjálístæðismanna felldar:
Meirihlutinn ákveður fyrst
útgjöld en síðan tekjurnar
— sagði Davíð Oddsson í umræðum um f járhagsáætlun
„ÞAÐ VIRÐIST sem alla pólitiska leiðsögn og forystu hafi skort
hjá meirihluta borgarstjórnar við gerð þessarar fjárhagsáætlunar.
Embættismenn virðast hafa fariö með hina stefnumótandi
framkvæmd við gerð þessarar áætlunar,“ sagði Davíð Oddsson
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á fundi borgarstjórnar í
gærkveldi, en þar fór fram fyrri umræða um frumvarp til
fjárhagsáætlunar fyrir Reykjavíkurborg fyrir árið 1981.
Davíð sagði að nú ætlaði þeim hækkunum sem gerðar
meirihlutinn ekki að stíga nýtt
skref í því að ganga í vasa
skattborgaranna, enda væri lítið
svigrúm orðið til þess. Einungis
væri möguleiki á að hækka
álagningarstuðul til útsvars-
álagningar úr 11,88% í 12,1%, en
það myndi ekki gefa borgarsjóði
nema nokkur hundrúð milljónir
í tekjur. „Allt annað er fullnýtt,"
sagði Davíð.
„Við höfum andmælt öllum
hafa verið," sagði Davíð, „því
okkur sjálfstæðismönnum var
gerlegt að reka borgina án þess-
arar skattpíningar. Við höfum
þá reglu að ákveða fyrst tekjurn-
ar en síðan útgjöldin, en þessu er
öfugt farið hjá núverandi meiri-
hluta. Hann ákveður fyrst út-
gjöldin og reynir síðan að fá inn
tekjur fyrir þeim.“
Síöan kynnti Davíð breyt-
ingartillögur Sjálfstæðisflokks-
ins sem lúta að skattalækkun-
um. Þær eru á þá leið að leiga af
verslunar- og iðnaðarlóðum ætti
að vera 0,58% í stað 1,0% af
fasteignamatsverði eins og
meirihlutinn gerir ráð fyrir.
Hlutfall fasteignaskatta af íbúð-
arhúsnæði verði 0,421% af fast-
eignamati, en ekki 0,5% eins og
meirihlutinn gerir ráð fyrir og
hlutfall fasteignasaktta af at-
vinnuhúsnæði verði 0,842% en
ekki 1,25% eins og tillögur
meirihlutans ganga út á. Sam-
kvæmt þessum tillögum er gef-
inn 15,8% afsláttur af þessum
skattstofnum.
Davíð sagði að þetta væru
samsvarandi álagningarstuðlar
og sjálfstæðismenn notuðu þeg-
ar þeir voru í meirihluta í
borginni, en miðað við tillögur
meirihlutans í þessum efnum
væri um 49% aukningu á þessum
gjöldum að ræða.
Þá lagði Davíð fram tillögur
um lækkun aðstöðugjalds en í
þeim felst m.a. að álagning á
rekstur fiskiskipa verði 0,2%, á
rekstur flugvéla 0,33%, á kjöt-
iðnað, endurtryggingu, fiskiðnað
o.fl. 0,5%, á rekstur farmskipa
0,65%, á iðnað, landbúnað, vá-
tryggingu, útgáfustarfsemi o.fl.
1,0%. Þessar tölur eru lægri en
þær sem meirihlutinn hyggst
leggja til.
Þessar tillögur sjálfstæð-
ismanna voru allar felldar með 8
atkv. gegn 7, en tillögur meiri-
hlutans voru samþykktar með 8
samhljóða atkvæðum.
og ekki á sviði ráðuneytisins að
fjalla um.
í samtalinu við Weibel, en það
er birt á miðsíðu blaðsins, kemur
fram, að upplýsingar um þetta
mál hefði Alusuisse fyrst fregnað
10. desember og hinn 11. hefði
sérstakur sendimaður iðnaðarráð-
herra komið til Zúrich. 12. des-
ember hafi hann svo farið af stað
áleiðis til íslands ásamt sendi-
manni iðnaðarráðherra, þeir hafi
tafizt í Luxemburg í sólarhring
vegna þoku, en síðan komið til
Reykjavíkur 13. desember og hafi
hann þá átt viðræður við Hjörleif
þann sama dag. Sagði Weibel að
hann hafi veitt ráðherra ítarlegar
upplýsingar. Weibel sagði: „Ég tel
mjög óheppilegt, að ráðherrann
skuli hafa opinberað málið á
þessum tíma, því að ég veit, að
hann getur engan veginn, á
grundvelli þessara upplýsinga,
staðið á því, sem hann hefur sagt.“
Flugleiðir og
Arnarflug:
Margar auka-
ferðir í innan-
landsfluginu
INNANLANDSFLUG Flugleiða
og Arnarflugs gekk vel í gær og
voru flognar margar aukaferðir
þar sem lítið ihafði verið flogið á
miðvikudag. Alls voru farnar 27
áætlunarferðir frá Reykjavíkur-
flugvelli, 18 á vegum Flugleiða og
9 á vegum Arnarflugs. Á miðviku-
daginn hafði aðcins verið flogið til
Hornafjarðar, Vestmannaeyja og
Akureyrar, en í gær tókst að fara
á alla áætlunarstaði. Var með
þessum ferðum annað allri flutn-
ingaþörf á farþegum í gær.