Morgunblaðið - 08.02.1981, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. FEBRÚAR 1981
Frá helgarstefnu i Skálholti.
Helgarnám í Skálholti
NÁMSSTEFNUR standa nú yfir i
Skálholti á vejfum skálholtsskóla
ok /Eskulýðsstarfs kirkjunnar.
Fer þar fram menntun leiðtoKa i
frjálsu félaKsstarfi. ekki sist með-
al barna ok unKlinKa ok einnÍK
aldraðra.
Námsstefnurnar fara fram um
hel^ar í vetur ok er þátttakendum
frjálst að velja um þær helKarstefn-
ur sem henta best. Farið er austur
síðdeKÍs á föstudaK, byrjað með
kvöldverði í Skálholtsskóla en kom-
ið heim á sunnudaKskvöldi.
Heimir Steinsson rektor Skál-
holtsskóla og Oddur Albertsson
æskulýðsfulltrúi eru aðalleiðbein-
endur en auk þeirra kenna sérfræð-
ingar í þeirri grein sem tekin er
fyrir hverja helgi. T.d. mun sr.
Bernharður Guðmundsson fjalla
um þriðja heiminn og boðmiðlum
Kópavogur:
Miðsvetrargleði
til styrktar
hjúkrunarheimili
KIRKJUFÉLAG Digranespresta-
kalls hcldur miðsvetrargleði I
Félagsheimili Kópavogs i dag,
sunnudag. kl. 15:30. Er miðsvetr-
argleði þessi haldin til ágóða
fyrir Hjúkrunarheimili aldraðra
i Kópavogi.
Meðal þeirra sem koma fram
eru Guðmundur Guðjónsson og
Sigfús Halldórsson, Sigríður
Hannesdóttir og Aage Lorange,
Grettir Björnsson, Stefanía Páls-
dóttir, Sigríður Magnúsdóttir,
barnakór, unglingakór og kvart-
ett. Kynnir er Sigurður Grétar
Guðmundsson.
Tindastóll
listamanna-
launa
NÚ HEFUR árleg úthlutun lista-
mannalauna farið fram. Nokkur
eftirvænting er jafnan hundin
athöfn þeirri og ákvörðun. Við.
sem annars bindum vonir okkar
við DASIÐ og ESSÍBÉESSIÐ,
leggjum þó eyrað við þá er
tilkynnt er um ákvörðun virðu-
iegrar nefndar.
Ekki skal deilt við dómarann
um að réttlæti sé fullnægt. En eitt
vekur óneitanlega furðu margra.
Hvað veldur þvi, að Stefán íslandi
er ekki löngu hafinn til þeirrar
sjálfsögðu viðurkenningar, að
sitja á Tindastóli listamanna-
launa? Með allri virðingu fyrir
orðlistarmönnum þeim, er skipa
heiðurssæti og hljóta makleg laun
og umbun, verður ljóst að Stefán
íslandi hefur fundið hinn hreina
tón. Er ekki kominn tími til þess,
að hann njóti þess og Alþingi geri
bragarbót án tafar? Um það ættu
Skagfirðingar beggja vegna Hér-
aðsvatna að vera sammála svo
þeir geti lyft söngvatni sínu á
næstu sæluviku á Króknum og
hyllt frægðarmann og söngva-
manna á milli um næstu helgi.
Þær helgarstefnur sem framund-
an eru verða sem hér segir: 13.—15.
febrúar: Kirkjan og heimurinn.
Boðmiðlun. 20.—22. febrúar. Safn-
aðarstarf. 6.-8. mars: Skapandi
starf með fermingarfólki. 13.—15.
mars: Aldraðra starf.
Á laugardagskvöldum annast
þátttakendurnir kvöldvökur í Skál-
holtsskóla svo og guðsþjónustur í
kirkjunni á sunnudögum sem oft
eru með óvenjulegum hætti. Þátt-
taka er öllum opin.
Leiklistaríélag MH:
Frumsýna
leikrit
eftir Kurt
Vonnegut
LEIKLISTARFÉLAG Menntaskól
ans við Ilamrahlíð frumsýnir
þriðjudaginn 10. febr. leikrit Kurt
Vonneguts jr. „Til hamingju með
afmælið Wanda June“ i þýðingu
Ástráðs Haraldssonar. Leikstjóri
er Gunnar Gunnarsson.
Leikrit þetta er eina leikverk
höfundar, sem helst hefur getið sér
frægð fyrir mjög sérstök efnistök og
stíl. í verkinu tekur höfundur fyrir
Odyseifsminnið um týndu hetjuna
sem snýr aftur. Það gerist ýmist á
bandarísku hástéttarheimili, eða í
himnaríki, og er í þremur þáttum.
Er það vonandi að hinn gáskafulli
húmor höfundar komist vel til skila,
en hann er nú á íslensku leiksviði í
fyrsta sinn.
Sýnt er á Miklagarði, hátíðarsal
skólans, og sýningarnar sem allar
hefjast kl. 20.00 verða sem hér segir.
1. Frumsýning þriðjudaginn 10/2. 2.
sýning föstudaginn 13/2. 3. sýning
sunnudaginn 15/2. 4. sýning þriðju-
daginn 17/2. Miðasala er í skólanum
sýningardaga.
Atriði í leikritinu „Til hamingju með afmælið Wanda June“.
„Ferð með Útsýn indæl er
ekkert betra kýs ég mér“
Verðskrá sumarsins er komin út
Nú er aðeins
fáum sætum
óráðstafað
í páskaferðina
15. apríl.
Vinsamlega
staðfestið
pantanir
Si
Costa del Sol
Fyrsta brottför: 15. april.
Torremolinos — Verð frá kr. 4730.-.
Gististaðir: E1 Remo — Aloha Puerto — Timor Sol
Santa Clara — La Nagolera — Hotel Alay
Marbella — Verð frá kr. 1680.-
Gististaðir: Jardines del Mar — Puente Romano —
Hotel Andalucia Plaza.
ITALIA
Lignano Sabbiadoro
Fyrsta brottför: 22. maí.
Verð írá kr. 4760.-
Gististaðir: Luna Residence
International
Hotell
Ferðaskrifstofan
OTSÝN
Mallorca — Palma Nova
Fyrsta brottför: 6. maí.
Verð frá kr. 5170.-, í 3 vikur.
Gististaðir: Portonova — Hotel
Valparaiso
JÚGÓSLAVÍA
Portoroz
Fyrsta brottför: 29. maí.
Verð frá kr. 5880.- með lk fæði.
Gististaðir: Grand Hotel Metropol —
Hotel Roza — Hotel
Barbara — Hotel Slovenija
Austurstræti 17, sími 26611
Pétur Pétursson þulur.