Morgunblaðið - 27.02.1981, Qupperneq 1
40 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
48. tbl. 69. árg. FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Margrét Danadrottning, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, og Henrik prins voru
viðstödd hátíðarsýningu í Kongunglega leikhúsinu í gærkvöldi, og var þessi mynd tekin
við upphaf sýningarinnar. — Sjá myndir og fréttir af heimsókn Vigdisar Finnbogadóttur,
forseta Isiands til Danmerkur á bls. 3,10,11 og 14. simamynd Nordfoto.
Armada settur
í stofufangelsi
Varnarmálaráðherra Spánar
vikið úr stjórn Sotelos
Madrid. 26. febrúar. AP.
HEIMILDIR í Madrid segja, að
Alonso Armada. næst æðsti yfir-
maður herráðsins, hafi verið sett-
ur i stofufanticlsi i dag eftir
misheppnaða byltingartilraun
þjóðvarðliða fyrr i vikunni. I>á
var ofursti i hernum settur i
fangelsi. Leopoldo Calvo Sotelo
sór i dag embættiseið sem forsæt-
isráðherra. Hann tilkynnti skip-
an stjórnar sinnar.
Juan Jose Roson hélt embætti
innanrikisráðherra en lögreglan
undir stjórn hans hélt tryggð við
konung i hinni misheppnuðu
valdaránstilraun.
Hins vegar var Agustin Rod-
riguez Sahagun, varnarmála-
ráðherra og einum helsta leiðtoga
„Bretar og Bandaríkjamenn
munu ávallt standa saman“
Frá önnu Bjarnadóttur. fréttaritara Mbl. i WashinKton. j Hvita húsinu. 26. fehrúar.
RONALD Reagan. forseti Bandarikjanna. bauð Margréti Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, velkomna i þriggja daga heimsókn til
Bandarikjanna við hátiðlega athöfn i Hvita húsinu i dag. Reagan
sagði, að vináttubönd tengdu þau saman siðan hann heimsótti
Thatcher fyrir tveimur árum en þá voru hvorugt i þvi embætti sem
þau gegna nú. Reagan lagði áherzlu á sameiginlegar varnir
vestrænna lýðræðisrikja og að Atlantshafsbandalagið yrði áfram
kjarni sameiginlegra varna þjóða Bandarikjamanna og Bretlands.
Margrét Thatcher lýsti ánægju
sinni með að vera fyrsti þjóðar-
leiðtogi V-Evrópu til að heim-
sækja Reagan eftir valdatöku
hans. Thatcher og Reagan áttu
tveggja klukkustunda langan fund
ásamt utanríkisráðherrum sínum.
Eftir fundinn lýstu þau nauðsyn
þess, að standa vörð um frelsi
eigin þegna og jafnframt lýstu
þau vilja til að fleiri íbúar heims-
ins gætu notið sama frelsis. Þau
ræddu málefni S-Afríku, Mið-
Austurlanda og Latnesku-Amer-
íku.
Þá sagði Reagan, að tilboð
Leonid Brezhnevs, forseta Sov-
étríkjanna, um fund þeirra þyrfti
Forseti ríki
í sex ár
öldungadeildarþingmaður-
inn Lloyd Bentsen frá Texas
lagði i dag fram tillögu í
öldungadeild Bandarikja-
þings um breytingu á stiórn-
arskrá Bandarikjanna. I til-
lögu sinni leggur Bentsen til,
að forseti Bandaríkjanna
verði kosinn til sex ára og að
hann megi ekki bjóða sig
fram i annað sinn.
Tillagan þarf að hljóta
stuðning % hluta þingmanna
öldungadeildarinnar og full-
trúadeildarinnar. Ef hún yrði
samþykkt með slíkum meiri-
hluta yrði hún send til ein-
stakra- fylkja og ef 38 þeirra
samþykktu breytinguna, þá
yrði ákvæðið um sex ára kjör-
tímabil forseta sett í stjórn-
arskrána.
„vandlegrar íhugunar við“. Hann
var því heldur jákvæðari gagnvart
tilboði Brezhnevs en áður þegar
hann lýsti það áhugavert. Þá lýsti
Thatcher því, að þau myndu bera
saman bækur sínar og hafa sam-
ráð um stefnumótun í framtíðinni
áður en þau funduðu með öðrum
þjóðaleiðtogum. „Bretar og
Bandaríkjamenn munu ávallt
standa saman," sagði Reagan í
ræðu. Það hefur skapazt sú hefð,
að forsætisráðherra Breta hefur
fyrstur vestrænna ríkja heimsótt
nýjan forseta í Hvíta húsi.iu.
Móttökur voru allar mjög hlýlegar
og fór vel á með leiðtogunum.
Síðdegis fór Thatcher til þing-
hússins og átti viðræður við þing-
menn beggja deilda. Howard Bak-
er, leiðtogi repúblikana í öldunga-
deildinni, lagði áherzlu á það í
viðræðum við Thatcher, að Banda-'
ríkjamenn myndu hafa náið sam-
ráð við bandamenn sína um af-
stöðuna til Sovétmanna.
Miðflokksins, vikið úr embætti.
Hann var yfirmaður þjóðvarðliðs-
ins og hersins.
Þá tilkynnti spánska frétta-
stofan EFE, að Juan Carlos, Spán-
arkonungur, hefði hætt við fyrir-
hugaða heimsókn sína til Noregs
vegna hins ótrygga ástands í
landinu.
Margrét Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, heldur ræðu i
Washington og að baki henni stendur Ronald Reagan, forseti
Bandaríkjanna. Simamynd ap.
Þrátt fyrir Gro:
Lítil fylgis-
aukning
Verkamanna-
flokksins
Osló, 26. febrúar. AP.
í skoðanakönnun sem
MMI-stofnunin gerði fyrir
norska Dagblaðið hefur fylgi
Verkamannaflokksins litið
breyst eftir valdatöku Gro
Harlem Brundtlands i emb-
ætti forsætisráðherra. Hins
vegar vekur athygli. að Hægri
flokkurinn hefur enn aukið
fylgi sitt. Við valdatöku Gro
var búist við, að Verkamanna-
fiokkurinn myndi verulega
rétta úr kútnum og voru
niðurstöður skoðanakönnun-
arinnar forráðamönnum hans
nokkur vonbrigði.
í skoðanakönnuninni sögðust
33,9% þeirra sem spurðir voru
styðja Verkamannaflokkinn,
miðað við 33,6% fyrir mánuði
síðan. Hægri flokkurinn fékk
stuðning 33,2%, miðað við
32,5% fyrir mánuði. Sósialistar
fengu stuðning 7,1%, miðað við
6,7% fyrir mánuði. Kristilegi
þjóðarflokkurinn fékk 9,7%,
miðað við 10,2% fyrir mánuði.
Þá hlaut Miðflokkurinn stuðn-
ing 6,0% þeirra sem spurðir
voru, miðað við 6,1% fyrir
mánuði og Vinstri flokkurinn
hlaut stuðning 6,3% þeirra sem
spurðir voru, miðað við 7,3%
fyrir mánuði síðan.
I þingkosningunum 1977 fékk
Verkamannaflokkurinn 42,3%
atkvæða, Hægri flokkurinn
24,8%, sósíalistar 4,2%, Kristi-
legi þjóðarflokkurinn 12,4%,
Miðflokkurinn 8,6% og Vinstri
flokkurinn fékk 8,6% atkvæða.
Þingkosningar í Noregi fara
fram 14. september.
Rússar neita mildari afstöðu
Moskvu. 26. febrúar. AP.
EINN helsti talsmaður sovéskra
stjórnvalda, Vadim Zagladin,
sagði við vestræna fréttamenn í
Moskvu i dag, að það væri alfarið
rangt, að Leonid Brezhnev, for-
seti Sovétrikjanna hefði tekið
upp mildari stefnu gagnvart
Bandaríkjunum. Hann sagði, að
tillögur sem Brezhncv flutti á 26.
þingi sovéska kommúnistaflokks-
ins væru ekki merki um uncan-
látssemi eða stefnubreytingu sov-
éskra stjórnvalda.
Zagladin vitnaði til ummæla
ýmissa bandarískra stjórnmála-
manna, sem hafa látið þá skoðun í
ljósi, að mildari afstaða Sovét-
manna nú væri vegna harðari
afstöðu stjórnar Ronalds Reagans
og taldi það af og frá. 26. þingi
sovéska kommúnistaflokksins var
framhaldið í dag. Leonid Brezhnev
átti í dag fund með Fidel Castro í
Moskvu. Þá hélt Alvaro Cunhal,
leiðtogi portúgalskra kommúnista
ræðu á flokksþinginu í gær. Hann
lýsti yfir hollustu sinni við sov-
éska kommúnistaflokkinn og
gagnrýndi ýmsa leiðtoga v-evr-
ópskra kommúnistaflokka fyrir að
vera ekki viðstaddir þingið í
Moskvu.
Málgagn pólska kommúnista-
flokksins, Trybuna Ludu sagði í
dag, að Pólverjar gætu vel leyst
vandamál sín innan þess ramma,
sem Leonid Brezhnev lýsti í ræðu
á flokksþinginu í Moskvu. Blaðið
sagði, að kommúnistaflokkurinn
ætti í erfiðleikum með að vinna
traust Pólverja en leitað væri
nýrra úrlausna. í ræðu fyrr í
vikunni lagði Stanislaw Kania,
leiðtogi pólska kommúnistaflokks-
ins áherzlu á, að kommúnista-
flokkurinn yrði að hlusta á „rödd
fólksins" og að flokkurinn yrði að
vera heill í stefnumótun sinni.
Hann lagði jafnframt áherzlu á,
að Pólverjar hefðu dug og þor til
að kveða gagnbyltingaröfl í kút-
inn.