Morgunblaðið - 27.02.1981, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
Hvað segja fulltrúar sjómanna og útgerðarmanna?
Morgunblaðið sneri sér til þeirra Ingólfs Falssonar, forseta Farmanna-
og fiskimannasambandsins, Kristjáns Ragnarssonar, formanns Land-
sambands íslenzkra útvegsmanna og óskars Vigfússonar, forseta
Sjómannasambands íslands, og innti þá álits á nýgerðum kjarasamn-
ingi báta- og togarasjómanna og útgerðarmanna. Fara ummæli þeirra
hér á eftir.
Óskar Vigfússon, forseti SÍ:
Töldum rétt að ganga
frá málunum án átaka
„Það verður að segjast eins
ok það er, að ekki hafi náðst
allt sem við hefðum kosið. bað
var hins vegar sameiginlegt
álit samninganefndar sjó-
manna. að rétt væri að reyna
að ganga frá þessum málum
án átaka.“ sagði Óskar Vigfús-
son, forseti Sjómannasam-
bands íslands, í samtali við
Mhl„ er hann var inntur álits
á nýgerðum samningum sjó-
manna og út>?erðarmanna.
„Árangurinn er kannski ekki
sem skyldi, en það verða all-
verulegar brfeytingar til batn-
aðar á réttindamálum sjó-
manna í þessum kjarasamn-
ingi. Þeir hlutir, sem helzt eru
peningavirði, eru þær breyt-
ingar, sem gerðar voru á ið-
gjaldagreiðslum sjómanna.
Iðgjaldapósturinn hækkar þar
verulega, er um og yfir 20%
umfram lágmarkskauptrygg-
inguna, en náði henni varla
áður. Iðgjaldagreiðslan var
ákveðin einu sinni á ári og ázt
því verulega upp í verðhólg-
unni, en í þessum nýja samn-
ingi er gert ráð fyrir breyting-
um með verðlagi.
Viðmiðunartalan hjá mínum
umbjóðendum verður frá og
með 1. marz 6.785 krónur. Við
metum þetta um það bil 30%
hækkun á grunninn.
Við fáum síðan hækkun á
grunnkaupi eins og meðaltals-
hækkunin varð í samningum
Alþýðusambandsins, eða
10,2%. Þá má nefna atriði eins
og hafnar- og helgarfrí manna.
Þar skal fyrst nefna, að nú
tekst okkur í fyrsta skipti að fá
tveggja sólarhringa frí fyrir
loðnusjómenn í heimahöfn
skipsins, einu sinni á vertíð,
þeim að kostnaðarlausu. Þá
fengum við samning fyrir nýjar
veiðigreinar eins og djúprækju-
veiðar og réttindi manna þar til
frítöku. Þá var eitt mál, sem
okkur var mikið í mun að fá
fram, en það eru helgarfrí á
netabátunum mánuðina jan-
úar, febrúar og marz, en fyrir
hendi var ekkert frí til þessara
manna. í samningnum fékkst
fram eitt helgarfrí og eitt 24
stunda frí í mánuði.
Þá fengum við bætur í sam-
bandi við togaramenn, bæði í
sambandi við siglingar skipa og
siglingartímann, auk ýmissa
breytinga til batnaðar víða í
samningnum.
Þá teljum við okkur hafa
fengið nokkuð góða tryggingu
fyrir því, að við gætum farið út
í breytingar í sambandi við
lífeyrisaldur manna úr 67 árum
í 60 ár, en ríkisstjórnin hefur
lofað að bakka okkur þar upp,“
sagði Óskar Vigfússpn, forseti
Sjómannasambands Islands að
síðustu.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ:
Utgjaldaauki útgerðar er mest
ur vegna nýs iðgjaldagreiðslu
fyrirkomulags í lífeyrissjóð
„Meginbreytingin í þessum
samningum er, að við semjum
um nýtt fyrirkomulag á ið-
gjaldagreiðslum fyrir sjómenn
í Lífeyrissjóð sjómanna. Það
breytist á þann veg, að þær
viðmiðunarfjárha“ðir. sem
greitt hefur verið af, þær
hækka verulega. en þó þannig,
að það er hægt að segja. að þær
hækki til samræmis við það
sem gerist á almennum vinnu-
markaði,“ sagði Kristján
Ragnarsson, formaður I.ands-
sambands islenzkra útvegs-
manna um nýgerða samninga
sjómanna og útgerðarmanna.
„Þessar greiðslur höfðu dreg-
„Mér er óhætt að fullyrða, að
við séum sæmilega ánægðir
með þessa útkomu. Það náðist
mjög mikilsverður áfangi að
því er varðar lífeyrismálin,“
sagði Ingólfur Falsson. forseti
Farmanna- og fiskimannasam-
handsins, i samtali við Mhl„ er
hann var inntur álits á nýgerð-
ist mjög aftur úr, fyrst og
fremst vegna þess, að þær
miðuðust við sömu upphæð allt
árið, og vegna verðbólgu hafði
þetta rýrnað verulega, en nú
breytist þetta hér eftir með
breytingum á verðlagi á árinu.
Af þessari breytingu hefur út-
gerðin mestan útgjaldaauka.
Þá var endurskoðun samn-
ingsins mjög nákvæm og samn-
ingunum breytt með bliðsjón af
fenginni reynslu og þeim breyt-
ingum, sem átt hafa sér stað
undanfarin ár. í því efni má
nefna öll leyfamál sjómanna,
leyfi sjómanna við mismunandi
um samningum sjómanna og
útgerðarmanna.
„Við sjáum fram á efndir
loforðs, sem við fengum fyrir
tveimur árum frá stjórnvöldum,
um töku lífeyris sjómanna við
lægri aldursmörk, eða við 60 ár
í stað 67 og það er stóra málið í
þessu," sagði Ingólfur Falsson.
veiðar voru öll endurskoðuð og
yfirleitt lengd.
Kauptrygging og kaupliðir
hækkuðu miðað við samningana
í október á almennum vinnu-
markaði, eða um 10,2%. Ekki
var um að ræða hlutaskipt-
abreytingu.
Annars má segja, að upp-
hlaupið í gær hafi vakið tölu-
verða athygli. Sjómönnum
hafði verið lofað breytingum á
réttindum til lífeyristöku úr
Lífeyrissjóði sjómanna, þannig
að þeir gætu byrjað að fá úr
sjóðnum 60 ára í stað 67, vegna
styttri starfsævi sjómanna en
annarra. Þessu fylgdi óneitan-
lega útgjaldaauki fyrir lífeyr-
issjóðinn og þá gaf ríkisstjórnin
út yfirlýsingu, sem var á þá leið,
að leiði könnun í ljós, að
lífeyrissjóðurinn geti ekki stað-
ið straum af kostnaði af
óbreyttum tekjum, munu ríkis-
stjórnin og sjómenn beita sér
sameinlega fyrir ráðstöfunum,
sem duga til að tryggja fjár-
hagsstöðu sjóðsins.
Þetta vakti athygli, þar sem
sjómenn hafa yfirleitt ekki til
annarra að leita en viðsemjenda
sinna. Þeir staðfestu hins vegar
við útgerðarmenn, að þeir muni
ekki óska eftir því að útgerðin
hafi af þessu útgjaldaauka.
Þetta er því málefni ríkisstjórn-
arinnar," sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður Landssam-
bands íslenzkra útvegsmanna.
Ingólfur Falsson, forseti FFSÍ:
Sæmilega ánægð-
ir með útkomuna
Rússneskur matur á borðum. Alevtina lengst til vinstri, þá Magnús
Sveinbjörnsson matreiðslunemi, Kristinn Kjartansson yfirmatreiðslu-
maður og Lena Bergmann.
Rússneskur matur í Naust-
inu í kvöld og annað kvöld
í KVÖLD og annað kvöld býður
Naustið upp á rússneskan matseð-
il, sem tekinn er saman af Alev-
tinu Vilhjálmsson og Lenu Berg-
mann og hafa þær kennt mat-
reiðslusveinum Naustsins að
matreiða réttina á rússneska vísu.
Matseðillinn samanstendur af
Borsj, sem er vinsæl rússnesk
grænmetissúpa og Blíni sem eru
rússneskar pönnukökur, sem eru
ólíkar okkar að því leyti að þær eru
bakaðar úr pressugeri. Þær eru
bornar fram að sýrðum rjóma, síld,
reyktum laxi, kavíar og rækjum. I
eftirmat er Kompot, sem er rússn-
eskur eplaeftirréttur með hnetum,
súkkulaði og þeyttum rjóma.
Þær Alevtina og Lena verða á
staðnum bæði kvöldin og spjalla
við gesti um rússneskan mat og
matreiðslu. Rússnesk tónlist verð-
ur leikin undir borðhaldinu.
Búnaðarþing:
Mælt með samþykkt
bráðabi rgðalagan na
um fóðurbætisgjald
Á FUNDI Búnaðarþings á miðviku-
dag voru sex mál afgreidd. Þar var
afgreidd ályktun allsherjarnefndar
um fóðurbætisgjaldið en mjög mikl-
ar umræður hafa orðið um þá
ályktun og málinu oft frestað. f
ályktuninni mælir Búnaðarþing
með samþykkt bráðabirgðalaganna
frá í sumar um fóðurbætisgjaldið og
var ályktunin samþykkt með 18
atkvæðum gegn 4. Þeir sem voru
andvigir ályktuninni báru fram
breytingartillögu, þar sem lagt var
til að allt fóðurbætisgjaldið yrði
notað til að greiða niður tilbúinn
áburð en aðeins flutningsmenn til-
lögunnar greiddu atkvæði með
henni.
Þá var samþykkt ályktun um áð
Búnaðarfélag Islands og Stéttarsam-
band bænda ynnu að athugun á
félagsmálum bænda er lögð verður
fyrir Búnaðarþing að ári. Samþykkt
var ályktun búfjárræktarnefndar um
loðdýrarækt, ályktun um eflingu
tilraunastöðva og ályktun þess efnis
að kannaðir yrðu möguleikar á nýt-
ingu afrennslisvatns frá garðyrkju-
stöðvum til nota við fiskeldi og
einnig möguleikar á að aulca fjöl-
breytni í fiskeldi með því að hefja
eldi ála við þessar aðstæður.
Á fimmtudag voru fjögur mál
afgreidd á Búnaðarþingi. Ályktun frá
Stefáni Halldórssyni, þess efnis að
Búnaðarþing beini því til stjörnar
Búnaðarþings að það beiti áhrifum
sínum til aukinnar kornræktar með-
al bænda, þar sem veðurfar og
landshættir leyfa. Þá var samþykkt
ályktun frá allsherjarnefnd þar sem
Búnaðarþing beinir tilmælum til
Framleiðsluráðs Landbúnaðarins, að
bú á lögbýli, sem er 300 ærgildis
afurðir eða minna, verðir ekki fyrir
skerðingu á búvöruverði. Þá voru
gerðar samþykktir um raforkumál
þar sem farið er framá bætta við-
gerðarþjónustu. Tíu önnur mál voru
til fyrri umræðu á fundinum og öll
afgreidd til síðari umræðu er fram
fer í dag. Reiknað er með að
Búnaðarþingi ljúki á laugardag.
Kór Verzlunarskóla tslands i sönglciknum um Evitu.
Ljósm: Valgeir Guðbjartsson.
V erzlunarskólanemendur
sýna söngleikinn um Evitu
NEMENDUR Verzlunarskóla ís-
lands sýna söngleikinn Evita eítir
Andrew Lloyd Webber og Tim
Rice i Háskólabíói á laugardag, en
áður sýndu nemendur verkið á
nemendamóti skólans nýverið.
Það var i fyrsta skipti, sem
söngleikurinn var sýndur hér á
landi.
Kórstjóri og leiðbeinandi er Jón
Kristinn Cortes, höfundur dansa og
dansstjóri er Sóley Jóhannesdóttir.
Skúli Pálsson þýddi söngleikinn.