Morgunblaðið - 27.02.1981, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
Þórshafnarmálið:
Tel að með þessu séu
málin endanlega leyst
— segir Stefán Valgeirsson, alþm.
„ÉG TEL, aö með þessari sam-
þykkt rfkisstjórnarinnar, séu toK-
arakaupin til Þórshafnar endan-
le^a leyst og é« fa«na þvi að þar
með sé leystur verulegur atvinnu-
vandi tveKKja byKKÓarlaKa," saKði
Stefán VaÍKeirsson, alþinKÍsmað-
ur, er MorKunblaðiö leitaði áiits
hans á samþykki ríkisstjórnarinn-
ar.
„Það er mikill misskilninKur að
aimenninKur á Þórshöfn sé and-
vÍKur toKarakaupunum. Þegar
sjónvarpið hafði viðtöl við kirkju-
Kesti þar i hse. fundu þeir engan
andmælanda kaupanna, fyrr en
haft var samband við fréttaritar-
ann á staðnum. Mér er einnÍK
kunnuKt um það. að þeifar Vísis-
menn voru þar á ferð. höfðu þeir
enKan áhuKa á öðrum en þeim.
sem voru á móti kaupunum.
Tillögur um þessi kaup eru kom-
in, bæði frá heimamönnum og
Framkvæmdastofnun ríkisins.
Framkvæmdastofnun hefur sam-
þykkt þau á þeim forsendum að þau
geti leyst atvinnuvanda byggðar-
lagsins og þegar jafnhæfur aðili og
Framkvæmdastofnun hefur fjallað
um málið og komizt að sameigin-
legri niðurstöðu með heimamönn-
um eru það einfaldlega eðlileg og
sjáifsögð vinnubrögð þingmanna
kjördæmisins að fylgja þeirri sam-
þykkt eftir.“
Nú hefur verið gerð rekstrar-
áætlun fyrir skipið, sem ekki getur
talizt jákvæð. Hvert er þitt álit á
henni?
„Sú rekstraráætlun er algerlega
út í hött og sýnir aðeins, að þeir
sem hana hafa unnið vita alls ekki
hvað málið snýst um. I þessu tilfelli
er alls ekki hægt að gera rekstrar-
áætlun fyrir eitt skip. Hér er um að
ræða tvo staði, Raufarhöfn og
Þórshöfn og rekstur annars togara.
Með því að fá nýjan togara verður
hægt að miðla afla þeirra beggja
þannig á milli byggðarlaganna að
þau fái hráefni jafnt og þétt,
þannig að möguleikar verði á stöð-
ugri vinnu og komizt verði hjá
yfirvinnu í stuttan tíma og dauðum
tíma á milli eins og nú er á
Raufarhöfn. Þannig verður launa-
kostnaður á hverja framleiðsluein-
ingu minni og atvinnuleysi verður
að öllum líkindum hverfandi.
Á þeim grundvelli verður að gera
rekstraráætlun beggja togaranna
og frystihúsanna og þegar málið er
skoðað í þessu ljósi, tel ég að
talsvert beint rekstrartap megi
verða á útgerð togarans sjálfs. Það
fæst hagnaður, ýmiss konar, af
vinnunni í landi og það verður að
meta að verðleikum.
Það, sem nú er verið að gera, er
einfaldlega það, að verið er að
halda áfram þeirri stefnu, sem
mörkuð var með byggingu frysti-
hússins á Þórshöfn. Afkastageta
þess er um 6.000 tonn á ári, en
þegar byggingu þess var lokið 1977,
var afli Þórshafnarbáta aðeins um
1.000 tonn á ári og því hefur alltaf
verið augljóst að hverju skyldi
stefna, aðrar leiðir hafa reynzt
ófærar,“ sagði Stefán.
Framkvæmdastofmin
leiði málið til lykta
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi ályktun, sem gerð
var á fundi ríkisstjórnarinnar í
gær:
„Þann 4. júlí 1980 samþykkti
stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins, að atvinnumál Þórshafn-
ar verði leyst með því að keyptur
verði togari og rekinn sameigin-
lega frá Raufarhöfn. Með þeirri
samþykkt bauð stjórn Fram-
kvæmdastofnunar jafnframt að-
stoð við að skipuleggja rekstur
slíks togara.
Á grundvelli ofangreindrar
samþykktar ályktaði ríkisstjórnin
1. ágúst sl., að heimila innflutning
á togara vegna Þórshafnar enda
ekki þá falur togari innanlands.
Jafnframt fól ríkisstjórnin Fram-
kvæmdastofnun að annast með-
ferð málsins, enda í samræmi við
fyrrgreint tilboð stjórnar stofnun-
arinnar. í framhaldi af því ákvað
ríkisstjórnin að tryggja 80% ríkis-
ábyrgð til kaupanna.
Þá er upplýst, að kaupendur hafa
verið á tíðum fundum með starfs-
mönnum Framkvæmdastofnunar-
innar um fyrirhuguð kaup.
Meðal annars er ljóst að kaup-
endur lögðu kaupsamning frá 19.
september og 25. september fyrir
forstjóra Framkvæmdastofnunar
ríkisins þar sem fram kemur, að
gera þarf allmiklar breytingar á
togaranum. Með tilvísun til þessa
kaupsamnings staðfestir Fram-
kvæmdastofnun 17. október sl.,
skriflega ábyrgð stofnunarinnar á
10% kaupverðs.
Þetta mál hefur þannig verið í
höndum kaupenda og
Framkvæmdastofnunar eins og
gert var ráð fyrir. Virðist eðlilegt
að Framkvæmdastofnun ríkisins
leiði þetta mál til lykta í samræmi
við ályktun stjórnar stofnunarinn-
ar frá 4. júlí sl.
Vegna fyrirsprunar frá stjórn
Framkvæmdastofnunarinnar
dags. 20. febrúar sl. vill ríkis-
stjórnin þó taka fram að hún
getur fallist á niðurstöður stofn-
unarinnar en telur eðlilegt að
staðið verði við fyrri samþykkt
stjórnar stofnunarinnar um 20%
lán úr byggðasjóði miðað við
kaupverð, 21 millj. norskar krón-
ur.
Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra:
Tel einsýnt að af
kaupunum verði
„EFTIR AÐ ríkisstjórnin hefur
einróma samþykkt siðustu af-
greiðslu stjórnar Framkvæmda-
stofnunar rikisins, tel ég einsýnt
að togarakaupin til Þórshafnar
verði gerð á þessum grundvelli,
en þó samþykkti ríkisstjórnin að
hún teldi eðlilegt að Fram-
kvæmdastofnun stæði við fyrri
loforð um að greiða 20% af 21
milljón norskra króna eins og
hún hafði áður lofað,“ sagði
fjármálaráðherra, Ragnar Arn-
alds, er Morgunblaðið spurði
hann um framvindu mála vegna
togarakaupanna til Þórshafnar.
Ragnar sagði einnig að hann
teldi, að þó skiptar skoðanir væru
um kaupin, og margt benti til þess
að hægt hefði verið að gera betri
skipakaup, yrðu menn að standa
við fyrri samþykktir. Hann sagði
einnig, að ríkið stæði að sjálfsögðu
við fyrri skuldbindingar um að
fjármagna 80% af kaupverði
skipsins, en ef Framkvæmdastofn-
un vildi ekki breyta framlagi sínu,
yrði mismunurinn greiddur af
1.500 milljóna framlaginu, sem
Framkvæmdastofnun hefði fengið
til umráða.
Hvað varðaði áhættu ríkissjóðs
varðandi togarakaupin, sagði
Ragnar, að hann teldi hana ekki
mikla. Ríkissjóði væru tryggð 20%
af afla skipsins og benti hann
ennfremur á að ef svo færi, að
reksturinn gengi ekki, stæði skipið
alltaf undir sínu.
Heimsókn forseta íslands til Danmerkur
Margrét Danadrottning, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands og Henrik prins þegar
þau komu fram á svalir hallar Kristjáns VII og veifuðu til mannfjöldans.
Margrét Danadrottning og Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, koma til veislunnar,
sem Margrét hélt Vigdísi til heiðurs í Kristjánsborgarhöll á miðvikudagskvöldið.