Morgunblaðið - 27.02.1981, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
19
Pólland:
Ihlutun
yfirvofandi
VínarborK. 26. febrúar. AP.
EINN helsti hernaðarfræðingur
Austurríkis, Wilhem Kiintner,
fyrrum hershöfðinKÍ. lét þau orð
falla i dag, að hann teidi hernað-
arihiutun Sovétmanna i Póllandi
fyrirsjáanlega.
„Ef Sovétmenn telja þetta
óhjákvæmilegt má búast við slík-
um atburði einhverntíma eftir
páska, en fram að þeim tíma verða
of margar hindranir í vegi.“
Seldu The
Observer
London, 26. febrúar. AP.
BANDARÍSKA fyrirtækið At-
lantic Richfield hefur selt al-
þjóðlega viðskiptafyrirtækinu
Lonrho Lundúnablaðið The
Observer, að þvi er tilkynnt
var i gær. Blaðið hefur verið
rekið með halla siðan árið 1976
og hafa nýju eigendurnir lýst
þvi yfir að þeir muni hætta að
gefa blaðið út ef það beri sig
ekki í framtiðinni.
Samið var um að The Observ-
er sameinaðist útgáfufyrirtæki
Lonrho, George Outram sem
staðsett er i Skotlandi. í staðinn
fær Atlantic Richfield 40%
hlutabréfa útgáfufyrirtækisins
sem staðið hefur sig mjög vel
fjárhagslega.
Yfirmaður Lonrho sagði að
hann hefði uppi áætlanir um að
hefja útgáfu á síðdegisblaði í
Lundúnum og prenta það í
prentsmiðju The Observer.
Sagði hann að The Observer
yrði þá líklega prentað í Skot-
landi. Þar gefur Lonrho m.a. út
blöðin Glasgow Herald og The
Glasgow Evening Herald.
Ávarp Spánarkonungs til þjóðarinnar
ÞEGAR Juan Carlos konungur Spánar hafði með
eftirminnilegum hætti gert herforingjum þeim er
settust að honum í konungshöllinni þegar byltingar-
tilraunin var gerð sl. mánudagskvöld grein fyrir því
að ekkert yrði af valdaráni fyrr en hann lægi í
valnum, lét hann þau boð út ganga að kl. 22 mundi
hann flytja þjóðinni ávarp í sjónvarpi. Ávarpinu var
frestað og það var ekki fyrr en kl. 1.15 um nóttina,
sem konungur birtist loks þegnum sínum. Töfin
orsakaðist af samtölum sem konungur átti við
fjölmarga herforingja á þessum þremur klukku-
stundum, en þegar hann talaði til þjóðarinnar var
boðskapurinn stuttur og gagnorður: Hann kvaðst
hafa fyrirskipað hernum að hrinda árás, sem gerð
hefði verið á lýðræðið á Spáni, og væri hann
staðráðinn í að sjá til þess að þeim fyrirmælum væri
framfylgt.
Thailand:
Tangarsókn gegn
uppreisnarmönnum
Páfinn held-
ur heim
Anchormice, Alaslu. 26. fcbrúar. AP.
JÓHANNES Páll páfi II hélt i
dag til Rómar eftir 12 daga
ferðalag um Asíulönd. Á leiðinni
heim hafði páfinn 3'á tima við-
dvöl í borginni Anchorage i
Alaska. Meðan á dvölinni stóð
skoðaði páfinn borgina og mess-
aði undir berum himni i 1V4 tíma.
Síðasti viðkomustaður páfa í
Asíuförinni var borgin Nagasaki í
Japan. Þar heimsótti hann m.a.
heimili fyrir fórnarlömb kjarn-
orkusprengjunnar sem kastað var
á borgina 9. ágúst 1945.
Banxkok. 26. febrúar. AP.
YFIR 12 hundruð stjórnarher-
menn voru þegar siðast fréttist
að komast að vigi kommúnista i
fjalllendi i miðju Thailandi. í
viginu eru nokkur hundruð upp-
reisnarmanna, að þvi er talsmað-
ur Thailandsstjórnar sagði i dag.
Þessi hernaðarleiðangur stjórn-
arinnar er einhver hinn um-
fangsmesti sem fram hefur farið
i þessum landshluta.
Stjórnarherinn hefur skipulagt
tangarsókn, en með henni er
ætlunin að umkringja um 300
uppreisnarmenn og mörg hundruð
stuðningsmenn þeirra í fjöllunum
í Petchabun-héraði, um 320 kíló-
metra norður af Bangkok. Að sögn
Buncha nokkurs höfuðmanns hafa
nokkrir uppreisnarmenn fallið í
hörðum bardögum á þessum slóð-
um að undanförnu, en stjórnar-
herinn hefur náð á sitt vald einum
búðum, hátt í fjöllunum. Þar um
liggur hernaðarlega mikilvægur
vegur, sem m.a. er leiðin að
bækistöðvum uppreisnarmanna í
norður- og norðvesturhluta lands-
Andstæðingar stjórnarinnar í
Thailandi hafa mjög sótt í sig
veðrið á undanförnum fimm ár-
um, en umfangsmiklar skipulags-
breytingar hafa nýlega farið fram
innan hersins, í því skyni að létta
róðurinn gegn þeim.
Bretland:
Lundúnum. 26. frbrúar. — AP.
BREZKA stjórnin hefur lagt á
hilluna áform um að verja 300
Svíar draga enn
úr velferðinni
Stokkhólmi, 26. febr., frá Guðfinnu
RagnarHdóttur, fréttaritara Mbl.
ERFIÐLEIKARNIR i sænskum
efnahagsmálum og sparnaðar-
aðgerðir ríkisstjórnarinnar
teygja sig nú æ lengra inn i
sænsku velferðina. Frá áramót-
um skertist að mun kaupuppbót
þeirra, sem fara á hálf eftirlaun
og vinna hálfa vinnu, þ.e.a.s.
þeirra, sem eru frá 60— 65 ára
að aldri, og nú er röðin komin
að sjúkradagpeningum.
í fyrradag var lögð fram
tillaga um lægri sjúkradagpen-
inga við stutt veikindi. Fyrstu 14
veikindadagana á launþegi að fá
sjúkrakaup frá vinnuveitanda
samkv. tillögunni. En allra
fyrstu sjúkradagana er annað-
hvort gert ráð fyrir því, að
launþegi borgi úr eigin vasa eða
að tekinn verði upp að nýju
ákveðinn, takmarkaður sjúkra-
dagafjöldi á ári.
Harðar umræður urðu um
sjúkradagpeningana í nefndinni,
sem fjallaði um þetta mál, og
voru öll launþegasamtökin, LO,
TBO og SACO/SR, ásamt jafn-
aðarmönnum á móti þessum
nýju tillögum, en borgaraflokk-
arnir studdu þær. Jafnaðarmenn
og hagsmunasamtökin bentu
m.a. á rannsókn, sem atvinnu-
rekendasamtökin hafa látið
gera, sem sýnir, að það er mun
dýrara að láta vinnuveitendur
taka að sér hlutverk sjúkrasam-
lagsins þar sem sjúkrasamlagið
hefur yfir að ráða fullkomnum
spjaldskrám og tölvum. Auk
þess er mikil hætta á að fyrir-
tæki ráði eingöngu unga og
fríska starfskrafta ef þetta nýja
skipulag gengur í gildi, sagði
fulltrúi LO, sænska alþýðusam-
bandsins.
Aukins sparnaðar er einnig að
vænta í rekstri skóla. Sænsk
skólabörn munu á næstu árum
verða sjálf að borga megnið af
skólabókum sínu, skólamatur
verður bæði lélegri og minni og
færri börn fá ókeypis keyrslu i
og úr skóla. Allt bendir til, að
þetta verði þróun skólamála í
Svíþjóð, a.m.k. næstu árin, segja
forráðamenn bæjar- og sveitar-
félaga, en búist er nú við viðbót-
arsparnaðartillögum frá ríkis-
stjórninni, sem koma munu
mjög hart niður á rekstri
sænskra skóla. I byrjun febrúar
skar ríkisstjórnin niður styrki
til skólarekstrar um 600 millj.
sænskra kr. og búist er við
2—300 millj. kr. viðbótarsparn-
aði á næstu árum.
milljónum punda til að treysta
loftvarnir sinar. Ástæðan er
bágborinn fjárhagur rikisins.
Frétt þessi kemur frá The
Press Association Agency og
hefur varnarmálasérfræðingur
stofnunarinnar hana eftir
ónafngreindum en „fullkomlega
áreiðanlegum" heimilarmanni í
ríkisstjórninni.
Mikill skjálfti er nú í varnar-
málaráðuneytinu vegna þessa
leka, en á undanförnum tveimur
árum hefur höfundur fréttar-
innar hvað eftir annað skýrt frá
málefnum sem hafa átt að fara
leynt. Varnarmálaráðuneytið
hefur ekki fengizt til að tjá sig
um það hvort fregn þessi eigi við
rök að styðjast eða ekki.
Ástralía:
Stjórnarand-
staðan vill
ekki Karl
Canbcrra. Áatraliu. 26. frbrúar. — AP.
LEIÐTOGAR stjórnarandstöð-
unnar i Ástralíu vilja að næsti
rikisstjóri þar verði Ástrali. Sam-
kvæmt heimildum úr röðum
stjórnmálamanna og stjórnarer-
indreka getur þessi yfirlýsing
þeirra komi i veg fyrir að Karl
Bretaprins verði skipaður rikis-
stjóri i Ástraliu. Segja þeir að
EHsabet drottning muni ekki
skipa Karl rikisstjóra ef það
verði fyrirsjáanlegt að sú ráðstöf-
un ylli deilum.
Forsætisráðherra Ástralíu,
Malcolm Fraser kveðst alls ekki
vera á móti því að Karl verði
skipaður ríkistjóri en segir að
slíkt hafi ekki komið til umræðu
ennþá, svo ótímabært sé að gefa
nokkrar yfirlýsingar um málið.
St jórnin hættir við
að treysta loftvarnir
Veöur
víöa um heim
Akureyri 1 snjókoma
Amsterdam 3 heiðskírt
Aþena 15 skyjaó
Berlin 1 heiðskírt
BrUssel 3 heiðskirt
Chicago 7 heíðskirt
Feneyjar 8 heiðskírt
Frankfurt 3 þoka
Færeyjar 6 skýjað
Gent 3 skýjað
Helsmki 0 skýjað
Jerúsalem 11 heiðskfrt
Jóhannesarb. 24 heiðskírt
Kaupmannahöfn 2 heiðskírt
Las Palmas 21 alskýjad
Lissabon 16 skýjað
London 3 skýjað
Los Angeles 17 skýjað
Madrid 13 skýjað
14 alskýjað
Mallorca 13 skýjað
Miamí 24 heióskirt
Moskva -1 heiöskírt
New York 7 skýjað
Osló -2 skýjað
Paris 5 skýjað
Reykjavík 2 úrkoma
Rió de Janeiro 35 skýjað
Rómaborg 12 heiðskírt
Stokkhólmur 0 skýjað
Tel Aviv 18 heiðskirt
Tókýó 5 skýjað
Vancouver 7 rigning
Vínarborg 3 heiðskirt
*
Utvarpa til
Afganistan
London, 26. febrúar. AP.
BRESKA útvarpið BBC tilkynnti í
dag að það myndi hefja fréttaút-
sendingar til Afganistan. Einnig
hyggst fyrirtækið lengja útsend-
ingarnar til Sovétríkjanna og
Tyrklands. Yfirmenn fyrirtækis-
ins segja að þessar ákvarðanir
hafi verið teknar vegna innrásar-
innar í Afganistan og valdatöku
hersins í Tyrklandi. Þessir atburð-
ir kalli á frekari fréttaútsend-
ingar til þessara svæða.
Bandarísk herflugvél
fórst við Filipseyjar
FilippHcyjum, 26. fcbrúa - AP.
IIERKÚLES-flugvél i t.. M banda-
riska flughersins steyptist i hafið
skammt norður af Filippseyjum í
dag. Slysið varð skömmu eftir
flugtak. 24 hermenn voru um
borð i vélinni. 16 létust, 7 er enn
saknað en einn komst lifs af en er
hann alvarlega slasaður.
Hermennirnir, sem voru banda-
rískir, filipínskir, ástralskir og
ný-sjálenskir, voru á heræfingu.
Áætlað var að flugvélin færi í
yfirlitsferð en snéri svo aftur til
bandarísku flotastöðvarinnar á
Cubi.