Morgunblaðið - 27.02.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 1981
31
B-keppnin í Frakklandi:
Daprir Islendingar
Pólverjum í Dion í
mæta
kvöld
— Pólverjar eru geysisterkir um þessar mundir
— íslendingar á hinn bóginn niðurbrotnir
ÞAÐ var þungt hljóðið í islensku
leikmónnunum »k fararstjórun-
um eftir hina háðulegu útreið
sem íslenska landsliðið i hand-
knattleik fékk gegn Frökkum í
Bersancon í fyrrakvöld. En til
setunnar var ekki boðið, rétt einu
sinni var land laj?t undir fót og
haldið til Dion, þar sem liðið
mætir Pólverjum í kvöld. Sá
leikur skiptir engu máli fyrir
islenska liðið, nema þá til þess að
bjarga andlitinu eftir ófarirnar
sem á undan eru genKnar. Það
breytir engu jafnvel þó að ísland
sigri Pólverja. Þá væru bæði
Frakkland og ísland með 6 stig,
en innbirðisviðureign jöfnu lið-
anna myndi þá telja og ekki
verður hér minnt á úrslit i leik
Frakka og fslendinga. En Pól-
verjar eru geysilega sterkir um
Þórarinn
Ragnarsson
símar frá Dion
þessar mundir, þeir léku sér að
Svium eins og köttur að mús og
möguleikar fslands verða að telj-
ast litlir.
Menn hafa skrafað og skeggrætt
mikið um frammistöðuna gegn
Frökkum hér í Frakklandi. Er
skemmst frá að segja, að leik-
mennirnir kunna engar skýringar.
Franska landsliðið sem burstaði
Island var skipað til siðasta
manns sama liði og lék hér þrjá
landsleiki fyrr í vetur. Þá máttu
allir íslendingar sjá, að ekkert
ofurlið var á ferðinni, síður en svo,
BIKARMÓT SKf i Alpagrein-
um i flokki fullorðinna fer fram
á Húsavík um helgina. Keppt
verður i stórsvigi á morgun.
laugardag. en i svigi á sunnu-
dag. Flestir helstu keppnis-
menn landsins munu taka þátt i
mótinu.
í Hlíðarfjalli á Akureyri verða
göngubrautir, svigbrautir og
stökkpallur opinn fyrir almenn-
ing, bæði á laugardag og sunnu-
dag og klukkan 14.00 á morgun
mæta galvaskir skíðastökkvarar
frá Ólafsvík og sýna stökk i
öllum flokkum, allt frá átta ára
og upp úr.
Loks má geta þess, að Reykja-
víkurmeistaramótið í skíða-
göngu verður haldið í Hveradöl-
um laugardaginn 28. febrúar,
eða á morgun. Hefst keppnin
klukkan 13.00. Keppt verður í 15
km göngu karla 20 ára og eldri
og í flokkum unglinga.
Myndina hér að ofan tók
Agúst Baldursson á Húsavík um
síðustu helgi.
og undir eðlilegum kringumstæð-
um ætti íslenskt landslið að sigra
það franska. Þegar ísland tapar
síðan með átta mörkum liggur því
ljóst fyrir að eitthvað er alvarlega
gengið úr skorðum hjá liðinu. Lítil
hvíld hefur án nokkurs vafa haft
sitt að segja og bæta má við, að
þjónusta hefur verið með lakara
móti. Þannig urðu landsliðsmenn-
irnir að bíða í 2 klukkustundir
fram yfir áætlun með að fá að
borða síðustu máltíðina fyrir leik-
inn. En svona hlutum er ekki
einum um að kenna og landsliðs-
mennirnir þvertaka sjálfir fyrir
slíkt. En geta þó engu bætt við.
Það hefur verið athyglisvert í
leikjum íslenska liðsins, einkum
þeim mikilvægari, að hraðaupp-
hlaup hafa varla sést. Og línu- og
hornamönnum hefur lítið sem
ekkert verið hjálpað. Þegar mót-
herjarnir leika vörn sína jafn
framarlega og Svíar og Frakkar
gerðu, eiga skyttur erfitt upp-
dráttar og þá verður að leika
meira upp á línu, horn og skyndi-
sóknir. Þetta var ekki hirt um að
gera og á sinn þátt í ósköpunum.
Þá er alveg ljóst og haft eftir
sjálfum leikmönnunum, að ekki
hefur verið farið í einu og öllu
eftir fyrirmælum þjálfarans. Slíkt
kemur auðvitað losi á leik Iiðsins
og á ekki að eiga sér stað. Lengi
mætti telja og velta fyrir sér, en
látið þó nægja í bili, aðeins sagt,
• Þorbergur og félagar verða I
eldlinunni i kvöld.
að ljóst er að ísland leikur um
7.-8. sætið í keppninni og þá
væntanlega gegn Búlgörum.
Möguleikarnir eru roknir út í
veður og vind, ekkert getur lengur
fleytt íslandi í eitt af fimm efstu
sætunum í keppninni. Draumur-
inn er því sannarlega búinn.
Klempel sprakk
— en skoraði þó fyrst 12 mörk
PÓLVERJAR eru sannarlega
geysilega öflugir i handknatt-
leiknum um þessar mundir og
enginn er sprækari en gamla
brýnið Jerzy Klempel, sem ís-
lendingar kannast vel við. Pól-
verjar sýndu handknattleik á
heimsmælikvarða, er liðið ger-
sigraði Svía 24 — 17 i B-keppninni
i Frakklandi á dögunum. en ba>ði
liðin eru sem kunnugt er i sama
riðli og fsland.
Jerzy Klempel gekk algeran
berserksgang í leiknum, lék Svía
sundur og saman og skoraði þegar
honum bauð svo við að horfa. Réðu
Svíarnir ekkert við kappann, sem
lagði svo hart að sér, að hann
bugaðist gersamlega af þreytu
undir lok leiksins og var studdur
til búningsklefa.
Alls skoraði
Klempel 12 mörk í leiknum, aðeins
tvö úr vitaköstum! Panas, annar
mjög kunnur landsliðsmaður, kom
næstur með 4 mörk. Markhæstur
Svía var hins vegar Klingvall með
5 mörk.
ítalir stein-
lágu gegn
úrvalsliðinu
Evrópuúrvai í knattspyrnu.
valið aí vestur-þýska lands-
liðsþjálfaranum. gersigraði
landslið ítala í góðgerðarleik
fyrir hina hrjáðu ibúa
jarðskjálftasvæðanna á ftalíu
i fyrrakvöld. Margir kunnir
kappar léku með Evrópuúr-
valinu og átti ítalska liðið
ekkert svar við stórleik gest-
anna. Kom reyndar mjög á
óvart hversu vel úrvalsliðið
náði saman. þar sem samæf-
ing leikmanna var engin.
»
En áhorfendur voru aðeins
15000 og lék veðrið gógerðar-
semina grátt. Daninn litli,
Allan Simonsen, skoraði fyrsta
mark leiksins á 33. minútu og
bjargaði Dino Zoff, landsliði
ítala, nokkrum sinnum fyrir
horn áður en Tony Woodcock
bætti öðru marki við í síðari
hálfleik. Lokaorðið átti Vahid
Halihodzic frá Júgóslavíu og
hinir fáu áhorfendur bauluðu
á sína menn.
• *
Skotar nældu
í tvö stig
SKOTAR kræktu sér í tvö
dýrmæt stig i undankeppni
HM í knattspyrnu. er liðið
sigraði fsrael 1—0 i Tel Aviv.
fsraelsmenn sóttu á köflum
töluvert og fjórum sinnum
bjargaði Alan Rough i marki
Skota mjög vel. En ef á
heildina er litið, töldu
fréttaskeyti að Skotar hafi
verið sterkara liðið á vellin-
um. Sigurmarkið skoraði
Kenny Daiglish í siðari hálí-
leik. eftir hornspyrnu Johns
Robertsons. Andy Gray og
Graeme Souness fóru illa með
ákjósanleg tækifæri.
Breiöablik
AÐALFUNDUR Ungmenna
félagsins Brciðabliks verður
haldinn Iaugardaginn 7. mars
næstkomandi. Fer fundurinn
fram i félagsheimili Kópa-
vogs, 2. hæð, og hefst hann
klukkan 14.00.
• Finnið ykkur jafnsléttu sem endar við brekku, Rangið hornlínugang á jafnsléttunni. Því brattari sem brekkan er því erfiðara er að fá
rennsli á skiðin. Skreflengdin verður styttri.
• Reynið að halda skiðunum eins og hægt er undir búknum og þrýstið þeim vel niður. Því fastara því betra. Til þess að þetta sé mögulegt
verðið þið að rétta aðeins úr ykkur.