Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 5
Sjónvarp mánudagskvöld kl. 21.15 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 5 Einn af hverjum fjórum Á dagskrá sjónvarps á mánudaRskvöId kl. 21.15 Sveitaaðall kl. 22.10 Linda kynnist Christian Talbot er breskt sjónvarpsleikrit, Einn af hverjum fjórum. eftir Paul Angelis. Leik- stjóri er Peter Ellis. Aðal- hlutverk Diane Mercer og David Rintoul. Þýðandi er Jón 0. Edwald. Trulla og Dimitri eru ung hjón af grískum ættum, fædd og uppalin á Eng- landi. Trulla er með barni og þau komast að því, að það hefur sennilega tekið ættgengan sjúkdóm. Diane Mercer og David Rintoul i hlutverkum sinum i breska sjónvarpsleikritinu „Einn af hverjum fjórum“, sem sýnt verður á mánudagskvöld. Á dagskrá sjónvarps kl. 22.10 er fimmti þáttur breska framhaldsmynda- flokksins Sveitaaðall. Þýð- andi er Sonja Diego. Linda kynnist kommún- istanum Christian Talbot, verður ástfangin af honum og þau hefja sambúð. Þau ætla að giftast, strax og hún hefur fengið skilnað frá Tony. Polly og Boy Dougdale snúa heim frá Sikiley. Hún er þunguð, en tekur strax að daðra við hertogann af Paddington. Ólympíukeppend- ur í dýraríkinu Á dagskrá sjónvarps kl. 20.45 er bresk heimilda- mynd, Ólympíukeppendur í dýraríkinu. Þýðandi og þulur er Óskar Ingimars- son. Myndin fjallar um ókrýnda ólympíumeistara dýraríkisins og sýnir fram á, að fjölmargt í leikjum og lífsbaráttu dýranna svipar ótrúlega mikið til íþrótta manna. ÞÚ AUGLÝSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU Látió okkur finna lægstu veróin og dragid sídan afsláttinn frá Sumaráætlun Samvinnuferða-Landsýnar hefur ekki einungis vakið athygli fyrir fjölbreytni og glæsileik - heldur einnig fyrir hagstætt verð og verulegan aðildar- og barnaafslátt. ,,SL-kjörin“ auðvelda síðan greiðsluna enn frekar og veita í senn örugga vörn gegn gengisbreytingum og eldsneytishækkunum. Starfsfólk Samvinnuferða-Landsýnar er ávallt reiðubúið til aðstoðar við leitina að lægsta verðinu og heppilegustu skipulagningu ferðar- innar, hvort sem ferðast er á eigin vegum í áætlunarflugi, eða í hópferðum með leiguflugi til Rimini, Portoroz, Danmerkur, Möltu, Toronto, írlands, Norðurlandanna og víðar. it Lítið því við á skrifstofunni í Reykjavík eða hjá umboðsmönnum um land allt. Fáið nýju sumar- bæklingana og ræðið málin við afgreiðslufólkið - sérfróða ferðamálamenn sem áreiðanlega eiga mörg hollræði í pokahorninu. Hjá því fólki færðu trausta og örugga þjónustu. Geriö verösamanburð —nú komum við enn á óvart Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.