Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 Var og er með Blönduvirkjun - segir Ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra „ÉG TÓK á sínum tíma afstöðu, það var þe^ar é« samþykkti tillöKU Gunnars Thoroddsen þessa efnis. Ék var sem saKt meö Blönduvirkjun ok ég er meö Blönduvirkjun," saKÖi Ólafur Jóhannesson utanríkisráö- herra, en hann er nú þinKmaöur ReykvikinKa en var áður þinKmað- ur NorðlendinKa. „En éK vil að náð verði samstöðu um þetta mál,“ sagði Ólafur einnig. Blönduvirkjun hlýtur að verða næsta virkjun landsmanna, það stendur skýrum stöfum í stjórnarsáttmálan- um, að næst skuli virkjað utan eldvirknisvæðis.“ Verð á loðskinnum hefur lækkað um 25% TEKIZT hefur að selja meginfram- leiðslu flestra loðskinnategunda. en verðið hefur verið um 25% lægra að meðaltali en það var síðastliðinn vetur. bessar upplýsingar fékk MorKunblaðið hjá Skúla Skúlasyni ok sagði hann ennfremur. að miðað við efnahagsástandið i heiminum. tizku ok veðuríar yrði þó að telja þessa útkomu allgóða. íslendingar sendu skinn af bláref á markað erlendis í ár, en víða hérlend- is er verið að byrja að rækta bláref, samtals um 20 þúsund skinn. Svellalög á túnum ískyggilega mikil Menn frá Björgun hf. vinna nú af fullum krafti við björgun Sigurbáru VE af strandstað á Sóiheimasandi, en búið er að festa skipið í fjörunni skammt vestan við markstein Rangárvalla- og Skaftafellssýslu sem sést fjær á myndinni. Myndina tók ljósmyndari Morgunblaðsins, Kristján Einarsson, í fyrradag þegar björgunarmenn voru að þétta skipið á strandstað, en einnig var verið að undirbúa gangsetningu véla. SVELLALÖG eru nú á túnum viðast hvar um landið og sums staðar eru þau ískyggilega mikil. eins og Jónas Jónsson. búnaðar- málastjóri. sagði i samtali við Morgunblaðið. Hann sagði. að ef tiðin færi ekki að batna og verulega að hlýna úr þessu gæti kal í túnum vofað yfir alls staðar. Jónas sagði, að þessi vetur hefði verið bændum mjög erfiður, tíðin hefði verið með eindæmum um- hleypingasöm, oft hefði orðið raf- magnslaust og loks væri að nefna þau miklu áföll, sem garðyrkju- bændur og aðrir hefðu orðið fyrir í óveðrinu mikla í febrúar. „Það er því ýmislegt, sem verið hefur til ömunar í vetur og þreytt fólk um allt land,“ sagði búnaðarmálastjóri. Miklar greiðslur skreiðar- verkenda í Verðjöfnunarsjóð VIÐMIÐUNARVERÐ var ákveð- ið fyrir skreið á fundi í stjórn Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðar- ins á fimmtudag. Samkvæmt þeim verðgrunni má reikna með. markaður að verulegar greiðslur komi i skreiðardeild sjóðsins i ár og ekki er fjarri lagi að áætla að þær verði 33 milljónir króna i ár eða 3,3 milljarðar gkróna. Sam- kvæmt þvi yrðu um 50 milljónir króna eða um 5 milljarðar gkróna í sjóðnum i árslok. Viðmiðunarverð á skreið var ákveðið 5.200 dollarar á hvert tonn af a-skreið, en fyrir b-skreiðina var verðið ákveðið 4300 dollarar á tonn. í samningum um sölu á skreið hafa hins vegar fengizt 6.130 dollarar fob fyrir hvert tonn af a-skreið. Með því að reikna með 15 þúsund tonna framleiðslu af skreið á aðra markaði en Ítalíu, og þá langsamlega mest til Nígeríu, má reikna með, að 33 milljónir króna komi í þessa deild Verðjöfn- unarsjóðsins miðað við núgengi krónunnar og skiptinguna 80-20 milli a- og b-skreiðar. í a-flokk fara þorskur, keila, langa og blálanga, en ufsi og ýsa í b-flokk. Verðgrunnur var fyrir nokkru ákveðinn fyrir óverkaðan saltfisk í stjórn Verðjöfnunarsjóðsins og er verðinu stillt þannig upp, að ekki er reiknað með greiðslum úr eða í saltfiskdeildina. Viðmiðunarverð var ákveðið það sama og fyrir verðtímabilið október-desember á síðasta ári, en samningar hafa ekki verið gerðir um saltfisksölu héðan á helztu markaði í ár. Fyrir stórfisk nr. 1 var viðmiðunarverð- ið á hvert tonn ákveðið 2.900 dollarar fob, fyrir millifisk nr. 1 var verðið ákveðið 2.700 dollarar, fyrir smáfisk 40/60 nr. 1 2.300 dollarar á hvert tonn og fyrir smáfisk 60/100 nr. 1 var viðmiðun- arverðið ákveðið 2.200 dollarar fob á hvert tonn. Verðbil var ákveðið 3 Vi% og miðast það jafnt við verðhækkun og verðlækkun. Um aðrar deildir Verðjöfnun- arsjóðsins er það að segja, að greitt er í skelfiskdeildina, en útlit er fyrir að á næstunni verði farið að greiða úr rækjudeildinni. Við- miðunarverð var nýlega ákveðið fyrir mjöl og lýsi á vetrarvertíð- inni. Ekki er útlit fyrir greiðslur í eða úr mjöldeildum, en hins vegar bendir allt til útgreiðslna úr lýsisdeild, en þess má geta að lítið hefur verið framleitt af lýsi í vetur vegna samdráttar í loðnu- veiðum. Nú er mikið um að vera í Blómaval við Sigtún. Skoðið hið fjölbreytta úrval okkar af allskonar ungplöntum á mjög hagstæðu verði. Veitið ungplöntunum áframhaldandi ræktun heimafyrirog látið þærvaxa í höndum ykkar. Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjufræðingur, leiðbeinir viðskiptavinum þessa helgi um pottaplöntur, meðferð þeirra, umpottun og staðsetningu. Það er margt að sjá í Blómaval. Opið frá kl. 9—21 bléfnciucilíQa Gróðurhúsinu vió Sigtún: Símar36770-86340 Bolungarvík og ísafjörður: Stjórnmálafundir ALÞINGISMENNIRNIR Matthl as Bjarnason og Matthías Á. Mathiesen verða á almennum stjórnmálafundum I Bolungarvik og á ísafirði á mánudag og þriðjudag. Fundurinn í Bolungarvík verður í Sjómannastofunni í Félagsheim- ilinu og hefst klukkan 20:30 og fundurinn á ísafirði verður í Sjálfstæðishúsinu, uppi, og hefst klukkan 20:30. Fundarefni eru stjórnmálavið- horfið og kjördæmamálin. Matthias Bjarnason Matthias Á. Mathiesen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.