Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 7 Nýja línan frá HAFA nú einnig fáanleg í hvítu Nýtísku HAFA baöinnréttingar í baöherbergiö yöar. Mjög fjölbreytt úrval. Afgreiöum samdægurs. VALD. POULSEN Suöurlandsbraut 10. Sími 86499. Innréttingadeild 2. hæö. I F AIIT TII MÚRFESTINGAR B.B.BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331. Til félagsmanna Stangaveiöi- félags Reykjavíkur: Vakin er athygli á nýju veiöisvæði, sem félagiö hefur tekiö á leigu, Alviðru í Sogi en þar veröur veitt á 3 stangir samtímis í sumar. Félagsmenn eru hvattir til að senda umsóknir sínar hið allra fyrsta. Sérstaklega veröur reynt að sinna umsóknum frá þeim, sem fengu ekki úthlutun í samræmi við óskir um veiöidaga á öðrum vatna- svæöum. Upplýsingar veittar á skrifstofu félagsins í Austurveri, sími 86050. Barnamorð- in í Atlanta 22 börn, öll negrar, hafa horfiö i Atlanta i Bandarikjun- um siöan i júlímánuði 1979. 20 hafa fundizt myrt i skóglendi, en ekki hefur tekizt að rekja spor tveggja drengja. Myrtu börnin voru öli frá heimilum þar sem fé og upplýsing eru af skornum skammti. Mikill ótti hefur gripið um sig meðal þeirra borgarbúa, sem líkt er á komið með, en iögreglan stend- ur ráðþrota. Því er haldið fram, að hefðu börnin verið ljós á hörund. héldi lögreglan betur á spöðunum. Ástandið meðal ómenntaðra og efnaiítilla negra i Georgíu og nærliggjandi fylkj- um hefur i æ rikari mæli endurspeglað beizkju þeirra, óþolinmæði eftir umbótum og tortryggni i garð yfirvalda, en nú hefur keyrt um þverbak. Eftir þvi sem barnamorðunum fjólgar. eykst ólgan og þessa stundina beinist gagnrýnin fyrst og fremst að lögreglunni. En hvað hefur gerzt annað en það að 22 negrabörn hafa horfið og flest fundizt myrt í skóginum í útjaðri Atlanta? Margar kenn- ingar hafa verið settar fram. Sauðsvartur almúginn óttast, að hér sé á ferð nýr „Sonur Sáms“ eða „Yorkshire-morðingi", og hafi hann á samvizkunni líf allra þessara barna, morðinginn hafi aðeins annan „smekk" að því leyti að brjálsemi hans beinist að negrabörnum en ekki kven- fólki. Skoðanir eru ekki sízt skiptar meðal lögreglumanna. Sumir halda því fram, að sami maður — eða menn — séu ekki valdir að dauða nærri allra barnanna, og enn aðrir telja augljóst, að beint samband sé milli 11 þess- ara morða. „Lee Brown, sem er yfirmaður lögreglunnar í Atlanta, vill ekk- ert um málið segja annað en þetta: „Sjónarvottar eru engir. Sönnunargögn og áreiðanlegar upplýsingar skortir með öllu, en án þess að hafa eitthvað slíkt í höndunum, getum við ekkert gert.“ Kannski komust menn næst slóð morðingjans morgun einn í fyrri viku. Don Laken er einn hinna fjölmörgu, sem eru í leitarflokkum sjálfboðaliða. Daginn áður hafði horfið 13 ára drengur, Curtis Walker að nafni. Hann hafði farið að heiman síðdegis og sagt móður sinni að hann ætlaði að vita hvort hann gæti ekki unnið sér inn fáeina dali með því að fara í sendiferð. Þegar drengurinn var ókominn kl. sjö sama kvöld, fór móðir hans að leita að honum, og klukkustundu síðar tilkynnti hún hvarf hans til lögreglunnar. Árla næsta morgun kom Don Laken með tuttugu sjálfboðaliða og hundinn. Hundurinn rakti slóð drengsins að skotfæraverzl- un, sem er spölkorn frá heimili Walker-fjölskyldunnar. Þar hafði drengurinn komið og boð- izt til að sópa gólfið í búðinni. Þaðan hafði leið hans legið að bílastæði við barnaskólann í hverfinu. Lengra var ekki hægt að rekja slóðina og lá beinast við að ætla, að þarna hefði drengur- inn stigið upp í bíl. Lögregluyfirvöld telja sig hafa fundið ló í fötum sumra líkanna. Að því er virðist er þessi ló úr gólfteppi, sama gólfteppinu, og er ekki ólíklegt að það sé í bifreið. Dag hvern fær lögreglan um tvö hundruð ábendingar frá fólki, sem telur sig vita eitthvað um málið. Allar slíkar upplýs- ingar eru settar í tölvu. Gífur- legur fjöldi sjálfboðaliða leitar morðingaans, en morðinginn — eða morðingjarnir — hafa enga vísbendingu gefið. „Yorkshire- morðinginn" hafði iðulega sam- band við lögregluna og virtist hafa ánægju af að storka henni, en sá sem er að verki í Atlanta hefur valið þögnina. Negrabörn í borginni eru óttaslegin og foreldrarnir ekki síður. Svo alvarlegt er ástandið, að ekki er talið þorandi að láta börn vera ein á ferli, en í daglegu tali er morðinginn kallaður „maðurinn". Ymsir eru þeirrar skoðunar, að morðinginn sé lögreglumaður, en aðrir telja, að hann hljóti að vera unglingur, eða einhver á líkum aldri og fórnarlömbin. Ekkert liggur þó fyrir sem styð- ur þetta, annað en það, að ekki er ósennilegt, að morðinginn sé einhver sem börnin hafa ekki ástæðu til að vantreysta þegar hann gefur sig á tal við þau. Negrar um gjörvöll Bandarík- in fylgjast náið með þessu máli og margir óttast, að hér sé á ferðinni endurvakið kynþátta- hatur. Ku-Klux-Klan hefur jafn- vel verið bendlað við málið, án þess að nokkur vísbending sé um að þau samtök hafi komið ná- lægt því. Víst er, að þangað til morðing- inn finnst, þá verður þetta mál mjög á döfinni, en undanfarna mánuði hafa morðin orðið tíöari. Fyrst í stað liðu að jafnaði þrjár vikur á milli, en nú orðið líða vart svo tvær vikur án þess að ekki finnist nýtt lík. í einu tilviki hefur kynferðislega brenglaður maður verið að verki, en þá fannst lík 12 ára stúlku illa útleikið. Af fórnarlömbunum hafa aðeins tvö verið stúlkur, og voru báðar myrtar í byrjun þessarar morðöldu. — ÁR (Heimildir: Newsweek og AP)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.