Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 3 Flýtum okkur hægt — segir forseti SÍ um afstöðu til tillögunnar um stuðning við fjölskyldu Viktor Korchnois „Við flýtum okkur hægt í þessu máli, en stefnum að því að móta afstöðu fyrir þing Skáksam- bands Norðurlanda, sem haldið verður hérlendis siðari hluta júlimánaðar14 sagði dr. Ingimar Jónsson forseti Skáksambands íslands, er Mbl. spurði hann, hver yrðu viðbrögð Skáksam- bandsins við vísun tillögu um stuðning við fjölskyidu Korchn- ois til aðildarsambanda land- anna. Ingimar sagði aðspurður, að stjórn Skáksambands íslands hefði ekki enn fjallað um mál þetta að öðru leyti en því, að fulltrúi þess, sem setið hefði fundinn, sem ákvað að vísa tillögunni til aðildarsamband- anna, hefði gert grein fyrir þessu máli og öðrum, er fyrir voru tekin á norræna fundinum. Sagði Ingimar að sú ákvörðun yrði mjög líklega tekin að af- greiða málið fyrir þingið í júlí. — En telur þú ekki að nokkuð seint sé að afgreiða málið þá, þar sem fyrirhugað einvígi Korchn- ois og Karpovs fer væntanlega fram í byrjun júlímánaðar? „Eins og ég sagði tel ég að stefnt verði að því að móta afstöðu fyrir þing Skáksam- bands Norðurlanda, en það er ekkert ákveðið í málinu enn þá. — Hver er þín persónulega skoðun? Telur þú að aðskilnaður Korchnois og fjölskyldu hans orsaki misjafna keppnisaðstöðu hans og Karpovs í einvíginu, eins og kemur fram í yfirlýsingu þýzku nefndarinnar? „Eg vil ekkert tjá mig um það á þessu stigi. Skáksambandið á eftir að fjalla um málið og mín afstaða kemur þá í ljós.“ Hlé á samninga- viðræðum um Blönduvirkjun SAMNINGAVIÐRÆÐUM milli Rafmagnsveitna ríkisins og norðanmanna vegna Blöndu- virkjunar lauk að sinni í Reykjavík á föstudag. Viðræðunum verður fram haldið síðar í þessum mánuði og þá á Blönduósi. Þá hafa einnig farið fram undanfarið viðræður milli Rafmagnsveitna ríkisins og manna af Fljótsdalshéraði vegna Fljótsdalsvirkjunar. Stefnt er að því, að niðurstöður þessara við- ræðna liggji fyrir fljótlega. Nú komast ÚTSÝNARFARÞEGAR í beinu dagflugi til — á vinsælustu baðstrendurnar, þar sem glaöværöin ríkir og andrúmsloftiö er alþjóölegt og óþvingaö Gott úrval verzlana og veitingahúsa — næturlífiö fjörugt og fjölbreytt og skemmtilegar kynnisferöir. Beztu gististaöirnir: PORTO NOVA, HOTEL VALPARAISO og HOTEL GUADALUPE. Pantanir streyma inn Vegna mikils annríkis veröur hópferðadeild Útsýnar opin til kl. 19.00 nk. þriðjudag 17. marz. Austurstræti 17 — Símar 26611 og 20100. Verö frá kr. 5.170.00 í 3 vikur PORTONOVA.... Beint dagflug Engar millilendingar Glæsilegt, vel búiö íbúðahótel í Palma Nova, með öllum þægindum. Bjartar, rúmgóðar íbúðir með 1—2 svefnherbergjum, setustofu, eldhúsi, baðherbergi og svölum. Fyrsta flokks kaffitería, matvöruverzlun og eitt bezta (fimm Stjörnu) veitingahús á Mallorka er í Portonova. Inni- og útisundlaug, góð sólbaðsaöstaða og steinsnar á ströndina. Tvímælalaust einn sá bezti fyrir barnafjölskyldur, sem Útsýn býöur upp á. Hotel ***** VALPARAISO Þetta frábæra lúxushótel stendur í 22.500 fer- metra garöi í íbúöar- hverfinu „La Bonanova" fjarri öilum skarkala, en aöeins fárra mínútu fjar- lægö frá miöborg Palma. Rúmgóö, fagurlega búin svefnherbergi, meö einkabaði, síma, sjónvarpi, mini-bar og svölum. Matsallr, barir og næturklúbbar. Sundlaugar — úti og inni — góö sólbaðsaöstaöa, íþróttasalur, gufubaó, nuddstofa o.m.fl. Eitt glæsilegasta hótel Evrópu, sem uppfyllir kröfur þeirra allra vandlátustu. Hótel GUDALUPE★★★ Vistlegt þriggja stjörnu hótel um 300 m frá ströndinni í Magaluf. Öll herbergi meö einka- baöi og svölum. Rúmgóöar setustofur, barir og matsalur. Inni- og útisundlaug ásamt barnalaug. Viö sundlaugina eru framreiddir smáréttir í hádeginu. Hálft eöa fullt fæöi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.