Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 31 Framleiðir ýmsa leirmuni úr hollenskum jarðleir Hveraiíerði 10. marz. í HVERAGERÐI er starfrækt keramikverkstæði ok er það til húsa í björtu og gódu húsnæði að Austurmörk 4, fyrsta húsinu, sem verður á vegi manns, þegar ekið er inn i Hveragerði. Eigandi leirkeragerðarinnar er Aldís Bára Einarsdóttir. Ég lagði leið mína til hennar á verkstæðið og bað hana segja mér svolítið frá sjálfri sér og starfinu. Hún tók því vinsamlega og sagði: — Ég er Reykvíkingur að ætt og uppruna, en fluttist 2 ára til ísafjarðar og ólst þar upp. Ég byrjaði að vinna við leirkeragerð 1971 undir handleiðslu Þjóðverj- ans Gerhard Schwarz, sem nú er fluttur til Danmerkur og hef ég tvívegis unnið hjá honum um tíma á verkstæði hans þar. Eigið fyrirtæki stofnaði ég í Ár fatlaðra: Kvöldfundur hjá Hvítabandskonum HVÍTABANDSKONUR halda fund næstkomandi þriðjudag kl. 19.30 að Hallveigarstöðum í Reykjavík. Sjávarréttir verða á borðum, en fundurinn er tileink- aður „Ari fatlaðra". Mun Hervör Jónasdóttir flytja þar erindi um málefni fatlaðra. Kosið í Líf og land Á AÐALFUNDI Lífs og lands sem haldinn var fimmtudaginn 26. febrúar sl. í Lögbergi voru kosningar. Voru kosnir tveir stjórnarmenn svo og félagar i allar stjórnarnefndir. Úr stjórn gengu Bjarki Jóhann- esson, arkitekt og Tómas Ingi Olrich, konrektor og í þeirra stað voru kosnar Þóra Kristjánsdóttir, listráðunautur og Magdalena Schram. Formaður framkvæmdanefndar Lífs og lands var kosinn Þórður Sverrisson, viðskiptafræðingur, formaður fjölmiðlanefndar Helga Torberg, leikari og formaður fjár- öflunarnefndar Valgerður Bjarna- dóttir, viðskiptafræðingur. Á að- alfundinum voru samþykktar margvíslegar breytingar á félags- lögum; m.a. var samþykkt að koma á fót sérstöku trúnaðar- mannaráði er verði framvegis tengiliður samtakanna við lands- byggðina. Aðalfundur Hvítabandsins AÐALFUNDUR Hvitabandsins var haldinn nýlega að Hallveig- arstöðum í Reykjavík. Formaður félagsins gerði þá grein fyrir störfum þess á liðnu starfstíma- bili og kom þar m.a. fram. að félagið hélt sjö félagsfundi á síðastliðnu ári, auk stjórnar- funda og vinnustaðafunda. I tilefni 85 ára afmælis félags- ins, 17. febrúar á síðasta ári, gaf félagið Heyrnar- og talmeinastöð íslands smásjá til nákvæmrar sjúkdómsgreiningar á heyrnar- sjúkdómum og sjúkdómum í radd- böndum. Félagskonur Hvítabandsins eru nú rúmlega 80 að tölu og stjórnina skipa: Arndís M. Þórðardóttir, formaður, Ruth Fjeldsted, vara- formaður, Unnur F. Jóhannesdótt- ir, gjaldkeri, Kristín M. Gísladótt- ir, ritari og meðstjórnendur: Sig- ríður Sumarliðadóttir, Sigrún A. Sigurðardóttir og Steinunn Þórð- ardóttir. Reykjavík fyrir um 5 til 6 árum, var síðan í Kópavogi um tíma, en flutti hingað í Hveragerði í októ- ber 1979 og uni mér vel, rólegheit- in hér eiga vel við mig. Ég vinn úr hollenskum jarðleir og glerungum, sem ég blanda sjálf. Framleiðsl- una sel ég í Blómastofu Friðfinns, Blómahöllina í Kópavogi og í blómabúðina Dögg í Hafnarfirði. Mér hefur boðist markaður í Glasgow og mun kanna þá mögu- leika betur í vor. Ég framleiði margs konar leirvörur, t.d. spari- grísi í 3 stærðum, margar gerðir af blómavösum og pottum, alls kyns borðbúnað, svo sem tesett.. vínsett, súpuskálar og desertsett og afmælisdiska með árituðum nöfnum. Til gamans má nefna að ég gerði alla leirmuni í veitinga- staðinn „Hver-inn“ í Hveragerði, ljósakrónur, borðljósker, blóma- potta og öskubakka. Þetta er skemmtilegt starf, sagði Aldís Bára að lokum, en meðan ég spjallaði við hana sat hún við rennibekkinn og blóma- pottarnir komu eins og fyrir hreinasta galdur hver öðrum fal- legri úr höndunum á henni. Aldís Bára er gift Páli Rúnari Elíssyni og eiga þau eina dóttur. Sigrún Aldís Bára Einarsdóttir við vinnu sína á leirmunaverkstæði sinu. Skemmti- og kynningarkvöld lífeyrisþega SAMBAND lífeyrisþega ríkis og bæja heldur fyrsta skemmtifund sinn í Súlnasal Hótel Sögu klukk- an 15—18 þriðjudaginn 17. marz. Þarna verða kaffiveitingar og skemmtiatriði. Það er von stjórn- arinnar að félagar fjölmenni og taki með sér maka. Húsið verður opnað klukkan 14.15. AHa.VSISOASIMINN Klt: 22480 03 Blorjjunhlnhih L)ó«ni. Sigrrún HRBKT - o^ófærið núna, að eignast „^mrbvsWg ? Bræðraborgarstig ^ ^ betur . ^ sun w*.'=.kaT á Bræorauoi6—o * betiir. RenndU 1 og^u þér þetta emstaka boð, Bræðraborgarstíg 1 -Simi 20080- (Gengió inn frá Vesturgötu)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.