Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.03.1981, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. MARZ 1981 21 — Eftir að ég kom suður var ég átta ár meðhjálpari hjá séra Jóni Thorarensen í Neskirkju. Ég segist vera trúaður maður, en ég bið alltaf: Góður Guð, hjálpa þú mér í trúleysi mínu. Best man ég eftir orðum Jesú Krists: Hver sem kannast við mig fyrir mönnum, við hann mun ég kann- ast fyrir föður mínum á himnum. Þessi orð Krists festust með mér. Eg skal segja þér sögu af Jóni Vídalín. Það var sunnudagur og biskup var búinn að auglýsa að hann ætlaði að messa. Það safnaðist fjöldi fólks til kirkju. Öllum þótti nú gott að hlusta á hann, nóg var mælskan. Það er kominn hópur af fólki, klukkan að verða tólf og komið að messutíma. En ekki bólaði á biskupi. Þá sat hann að spilum með Arna Magnússyni. Drengur einn, aðstoðarsveinn biskups, gengur til Jóns og segir að það sé kominn fjöldi fólks. — Ætlarðu ekki að hætta maður, segir Árni. — Nei, einn hring ennþá Árni, ansar Jón, einn hring enn. Hann hefur verið orðinn dálítið kenndur, sagði að kirkju- presturinn gæti bara messað. Þá leist nú piltinum ekki á blikuna. Hann gekk út á stétt og þá hafði enn fjölgað. Hann gengur inn, labbar að biskupi, kippir spilunum úr höndum hans, leggur þau á borðið, og segir: Nú er meira en mál að ganga út, herra. — Oh, farðu í sjóðbullandi, og rekur honum á kjaftinn, svo hann fékk blóðnasir, drengurinn. Þá segir Jón: Jæja, nú komst blóðið á hreyfingu í okkur báðum. Og hann í hempuna og út í kirkju og heldur þennan nafnkunna reiðilestur. Að lokinni messu gaf hann engum kost á að taka í höndina á sér, eins og vani hans var, heldur gengur hann beina leið inn og mætir þá drengnum: Segir þá að hann þurfi að tala við hann. Og drengur býst við að hann ætli að skipa sér í burtu, en biskup dregur skúffu útúr borði sínu og tekur þaðan tólf spesíur og réttir drengnum. Skrif- ar síðan á blað og gefur honum tiu hundruða jörð. Segir svo við Árna Magnússon: — Ef drengurinn hefði ekki gert það sem hann gerði, sætum við enn að spilum, og fólkið hefði farið heim messu- laust. Þegar drengurinn byrjar að þakka honum og hneigja sig, segir hann: — Engar þakkir, engar hneigingar. Ég er breyskur maður. Ræktu þína skyldu eins vel hér eftir og þú hefur gert í dag, jafnvel þó ég eigi í hlut. Og þetta er nú líklega alveg satt, segir Sveinn. Segjandi svona sögur kann hann við sig. Hann fer með heilu kaflana uppúr fornum sögum, orðrétta. Það verður að kallast gott af hundrað ára göml- um heila. Svo heldur Sveinn Bjarnason áfram að segja sögur uppúr gömlum bókum. Eg var mikið fyrir búskap, en ég var lítið fyrir inni- vinnuna. Kvenfólkið reyndi nú að pína okkur krakkana til að rekja af snældum og kemba, en ég kom ekki nálægt því. Ég var allur fyrir útivinnu og mikið fyrir veiðiskap. Ég var netfiskinn líka, þó ég stundaði ekki mikið róðra. — Og sigmaður varstu góður? — Ja, ég seig nú ekki, ég notaði handvað og var laus. Það var einu sinni sem það var komið fram á fjórtándu viku sumars, búin að vera deyða lengi og við áttum orðið mikið hey undir. Þá er það einn daginn, að bræður mínir segja: — Nú hefði verið gott að fá nýjan fugl. Það voru nú síðustu forvöð, en ég sagðist samt til með að reyna. Þeir náðu aldrei í fugl, þessir bræður mínir. Ég fór að hitta Sigurð Arason, vin minn sem var stundum félagi minn í Ingólfshöfða, en þá vildi pabbi hans, hreppstjórinn, ekki missa hann úr slættinum. Jæja, hugsa ég með mér, ég fer samt. Hann kemur til mín hann Stein- dór minn. Steindór var drengur sem var á Nesinu. Hann sér til mín og kemur þá, hugsa ég með mér. En það var maður, alveg voðalegt að vera einn í Höfðanum, það voru svo miklir reimleikar þar. Margir draugar og atgangur mikill. Nei, ég kann enga drauga- sögu. Ég forðast draugasögur. En ég læt allt vera með huldufólks- sögurnar. Það má vel vera að huldufólk sé til, ég skal ekkert segja um það. Þegar ég lagði af stað var svolítil austangola og lágur bakki í austrinu, en þegar ég var kominn miðja leið út að Höfða, slétt lygndi, sem var ekki gott uppá veiðiskapinn — best hann væri hægur austan. Mér fannst þó rétt að halda áfram, fyrst ég var kominn þetta langt. Svo þegar ég kom út í Höfða, sleppi ég hrossinu og fer að hita mér kaffi, geng svo fram á brúnina og þá var orðið áliðið dags: Þá sé ég það er alveg mökkur af fugli í Trévík, og hann flýgur í hringi. Ég rýk til og sæki mér handvað og fer ofan kambinn og vestur í Trévík, og gríp þar eina tíu tuttugu fugia í háfinn. Svo sé ég að þarna muni ekki vera mikil veiði áfram og fór vestast í Urriðana og uppá háan stein og þar er ég fram á ellefta tímann um kvöldið. Þá var ég búinn að fá' 80 fugla. Margur hefði nú verið orðinn hálf smeykur, því það var farið að skyggja. Þeir voru logandi hrædd- ir margir, að vera í Höfðanum eftir að tók að skyggja. Ég hélt til kofans og þegar þangað kom var kolniðamyrkur. Ég nennti ekki að hita mér kaffi, heldur lagðist fyrir og bað guð að geyma mig og steinsofnaði. Ég vaknaði ekki fyrr en um fjögur um morguninn. Þá var kominn mátulegur aust- an vindur og ég var fljótur á lappir, að hita mér kaffi og siðan oní kamb og þar sat ég þangað til undir hádegi. Þá kom Steindór litli til mín. Ég sagði honum hann skyldi fara strax hérna austur í Höfðanef og þar hafði hann á milli fjörutíu fimmtíu fugla. Svo fórum við nú að tygja okkur heim. Ég var kominn með á þriðja hundrað fugla og það var meira en full- byrði fyrir hrossið. Sveinn segist svo til hættur lestri. — Ég las mikið, segir hann. Ég gerði það, já. Las ísiendingasögurnar aftur á bak og áfram, þótti þær spenn- andi, og biskupasögur, já, biskupa- sögur, og margar bækur aðrar. En nú er ég hættur að lesa. Ég þoli það ekki. Nei, það eru ekki augun, þau eru í fínu lagi. Þá sjaldan sem ég nota gleraugu, brúka ég þessi sem ég fékk mér milli 1930 og ’40. Þau duga mér enn. Það er dýr- mætt að hafa sjónina svona lengi. Nei, það er höfuðið á mér, ég fæ svima ef ég les. Sveinn leggur sig ekki á daginn, heldur dottar af og til sitjandi í stólnum. Hann lifir i stólnum. Þar hugsar hann og rifjar upp sögur, hlær eða verður dapur eftir hugs- unum sínum. Hann smakkar það ennþá, og hefur gaman því að gefa mönnum í glas. Og það er ekki oft sem hann er einn. Hann á sér herbergi að horni Hringbrautar og Ljósvallagötu, og þar býr Jón Óskar og fjölskylda, Rafnar Kjartansson myndhöggvari, og Guðmundur, bróðir Sveins, og fleira fólk. Öll láta þau sér mjög annt um gamla manninn. Guð- mundur er ekki nema 92ja ára. — Fyrsti sýslumaður sem ég man eftir, var Sigurður Ólafsson bóndi í Hjálmholti. Mikið ljúf- menni, elskulegur maður öllum þeim sem honum kynntust. Hann fór seinna að Kaldaðarnesi og varð sýslumaður Árnesinga. Jú, hann var faðir Jóns kalda. Á undan Sigurði var Árni Gíslason sýslumaður. Hér verður eyða í sýslumannatal. Hann talar mjög hratt, kailinn, og svo fjörlega að maður hættir að skrifa og fer bara að hlusta. Það þykir honum líka vænst um. Svo hann fyrirgefur kannski þessa eyðu í sýslumanna- tal. Hann talar um laungu dauða menn, eins og þeir væru ljóslif- andi. — Hann Pétur minn, segir hann. Hann var nú skrítinn, kallinn sá. Svo hlær hann að endurminningunni um Pétur. Kannski ellin yngi menn í hugsun, suma menn. En semsagt Sveinn Bjarnason frá Hofi í Öræfum er ekki frásagnasár maður og gæti fyllt heilt Morgunblað, ef hann væri ekki alltaf að tönnlast á því: Já, heillin, það er nú lítið sem þú getur haft uppúr mér. Ætlarðu að koma aftur? Ekkert skil ég í þér, og hristir hundrað ára gamalt höfuð. J.F.Á. Svanhildur Kristjánsdóttic Ungmennafélag Bolungavíkur: Svanhildur Kristjánsdóttir valin íþrótta- maður árins 1980 BolunKavik, 9. marz. NÝLEGA útnefndi Ungmennafé- lag Bolungavíkur íþróttamann ársins 1980. Fyrir valinu varð ung og efnileg iþróttakona. Svan- hildur Kristjánsdóttir. Svanhild- ur vann mörg frábær afrek á sviði iþrótta á síðasta ári. Stærstu afrekin voru á sviði frjálsíþrótta en þar varð hún Vestfjarðameistari í þrem grein- um. Það vakti athygli í Vestfjarða- mótinu hversu mikill munur var á árangri Svanhildar og þeirra sem á eftir komu. Hún sigraði í hástökki, stökk 1,40 m en næsti 1,25 m, í langstökki stökk hún 4,50 m en næsti stökk 4,12, og í 100 m hlaupi hljóp Svanhildur vega- lengdina á 13,7 sek. þegar næsti hljóp á 14,7 sek. Bolvíkingar hafa því miður þurft að sjá af þessari efnilegu íþróttakonu til Reykjavíkur, en það sýndi sig á meðan hún var hér að hún á svo sannarlega framtíð fyrir sér á íþróttasviðinu. Gunnar Sjálfsbjörg: Ríkisstjórnin styrki bila- rekstur öryrkja Á AÐALFUNDI Sjálfsbjargar i Reykjavík og nágrenni, sem hald- inn var nýverið, var samþykkt svohljóðandi ályktun: „Aðalfundur Sjálfsbjargar, fé- lags fatlaðra í Reykjavík og ná- grenni, haldinn fimmtudaginn 26. febrúar 1981, fagnar framkomnu frumvarpi fjármálaráðherra til laga um bifreiðakaup öryrkja en minnir jafnframt á að kostnaður við rekstur bifreiðar eykst sífellt og hvetur því fundurinn ríkis- stjórnina að leita ráða til að lækka kostnaðinn í samráði við öryrkja- félögin i landinu." Á aðalfundinum var rakin fjöl- breytt starfsemi félagsins sl. ár, og kosið í stjórn. Guðríður Ólafs- dóttir, vararitari, gaf ekki kost á sér til endurkjörs, og skipa stjórn- ina nú: Rafn Benediktsson, for- maður, Sigurrós Sigurjónsdóttir, varaformaður, Ragnar Sigurðs- son, gjaldkeri, Jóhann P. Sveins- son, ritari og Sunneva Þrándar- dottir, vararitari. Einnig var kosið í varastjórn. MYNDAMÓTHF. PRENTMYNOAGERÐ ADALSTRETI • SÍMAR: 17192- 17355

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.