Morgunblaðið - 25.04.1981, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
3
Góður afli
Reykja-
víkurbáta
ÞEIR VORU að tínast inn
netabátarnir reykvísku um
kvöldmatarleytið í gær, flestir
með mjög góðan afla, þó hann
jafnaðist ekki á við landburð-
inn sunnanlands undanfarið.
Sjóararnir voru þó margir á
því, að þetta væri óvenjulegt
svona dag eftir dag, þetta
mikill fiskur, og þökkuðu það
snurvoðarbanninu í Flóanum.
Engilbert Eggertsson á Óla
kom inn, annan daginn í röð,
með sex tonn, og sagði það væri
mesta glapræði að leyfa snur-
voðina aftur. Það er allt í lagi
með að veiða kolann, sagði
Birgir á Val.
hann, en snurvoðin eyðileggur
botninn. Það er klárt mál.
Fiskifræðingarnir virðast ekki
gera sér grein fyrir því. Það
yrði kolfellt af sjómönnum
hérna, ef þeir hefðu eitthvað
um það að segja, hvort það ætti
að leyfa snurvoðina aftur. Nei,
við erum mjög grunnt undan,
kannski tíu mílum. Ég hef
aldrei orðið var við svona
mikinn fisk þar, að vísu var
nokkuð gott um svipað leyti í
fyrra, en mér finnst þetta
óvenjulegt núna, sagði Engil-
bert á Óla.
Það var gott hljóðið í sjóur-
unum og þeir voru þokkalega
ánægðir með afkomuna, en
óánægðir með stoppið áttunda
maí. Maður getur orðið ekki
unnið hálft árið fyrir alls konar
boðum og bönnum, sagði Birgir
Ingólfsson á Val.
Jú, þetta hefur gengið sæmi-
lega síðustu daga, við erum með
15—16 tonn á dag, en það koma
skot um þetta leyti árs. Það
hefur verið svo undanfarin ár.
Annars getur maður ekkert
orðið hreyft sig fyrir þessum
eilífu boðum og bönnum, en
maður verður að sætta sig við
það, eins og annað. Þeir stoppa
mann þegar helst er vonin að fá
eitthvað. Nei, blessaður vertu,
dragnótin, hún skemmir ekk-
ert. Það er bara þjóðsaga. Ég er
sammála fiskifræðingunum
þar, sagði Birgir Ingólfsson á
Val.
óli kemur inn með sex tonn.
Þarna vantaði bil...
Ásgrímur afhendir skipstjóra þessa litla báts, sem bar ekkert nafn, ýmis
plögg varðandi tilkynningaskylduna. Skipstjórinn kvaðst alsaklaus af
því, að hafa ekki tilkynnt sig reglulega. Ljósm. Ól.K.M.
Tilkynningaskyldan:
50 skip vantaði í gærdag
ÞAÐ VILL brenna við i góðu
veðri og góðum afla, að fiski-
menn gleymi öllu öðru en fiskirí-
inu. og meira að segja líka að
gefa sig fram við Tilkynninga-
skylduna. í gær vantaði 50 báta,
þegar tilskilinn tilkynningartimi
var liðinn. Á íerð sinni um
Reykjavikurhöfn í gærdag.
gengu Morgunblaðsmenn á Ás-
grím Björnsson, erindreka Slysa-
varnafélags fslands, þar sem
hann talaði við skipstjóra nokk-
urn, sem hafði æ ofan i æ trassað
að tilkynna sig.
Ásgrímur sagði Slysavarnafé-
lagið eiga svo gott samstarf við
sjómenn að félagið vildi ekki sekta
þá fyrir smá gleymsku, þó hún
gæti haft alvarlegar afleiðingar í
för með sér, en samkvæmt lögum
er heimilt að beita slíkum sektum.
Þegar skip tilkynna sig ekki á
réttum tíma, bakar það starfs-
mönnum Tilkynningaskyldunnar
mikið erfiði og skiljanlega getur
það komið sér afar illa þegar 50
skip tilkynna sig ekki og eitthvert
þeirra á kannski í vandræðum. Og
slysin verða nú stundum einnig í
lygnum sjó. — Þess vegna væri
gott, sagði Ásgrímur, að því væri
komið á framfæri til sjómanna, að
gleyma sér nú ekki í góða veðrinu
og aflahrotunni, og tilkynna sig á
réttum tíma. Það er lítið verk
fyrir sjómanninn, en skiptir öllu
fyrir Tilkynningaskylduna.
Vestmannaeyjar:
Konumar þurftu ekki
að kvarta yfir afla-
leysi f yrsta sumardag
Vestmannaeyjum. 24. apríl.
AFLI ER enn mjög jafn og
drjúgur þó svo að ekki sé sami
landburður af fiski og var fyrir
páska. Netabátarnir voru margir
hverjir með 20—30 tonn í dag og
Þórunn Sveinsdóttir var með tæp
50 tonn. Afli minnkaði aðeins i
troll fyrr i vikunni, en virðist
vera að hressast á ný i dag. Minni
trollbátarnir komu inn i dag með
20 — 30 tonn margir hverjir og
upp i 45 tonn hjá Björgu.
I gær var jafngóður afli hjá
bátunum og frúrnar þurfa ekki að
kvarta yfir aflanum þann daginn
eins og svo oft á sumardaginn
fyrsta undanfarin ár. Hér er enn
við lýði sá forni siður hjá vel
flestum sjómönnum að gefa kon-
unum aflahlutinn fyrsta sumar-
dag. í landi eru margir, sem halda
þessum sið einnig, laun fyrsta
sumardags renna beint til eigin-
kvenna eða unnustanna.
Suðurey er aflahæst Vest-
mannaeyjabáta og á nú eftir 10
tonn í 1200 og mun hafa dregið
saman með Suðurey og Friðriki
Sigurðssyni frá Þorlákshöfn síð-
ustu daga, en Friðrik Sigurðsson
er aflahæstur vertíðarbáta yfir
landið.
— Fréttaritari
15 útlendingar að
veiðum við landið
HÉR VIÐ land voru á fimmtudag
15 erlend veiðiskip og voru þau
flest út af Suðausturlandi, frá
Ilvalbak að Ingólfshöfða. 5
norskir linubátar voru við land-
ið, 8 færeyskir iinuveiðarar, 4
færeyskir togarar og 3 belgiskir
togarar. Þessi skip eru hér að
veiðum samkvæmt samningum
íslendinga við þessar þjóðir og
tilkynna skipin sig til Landhelg-
isgæzlunnar.
Um 30 mílur vestan miðlínu
milli íslands og Grænlands norð-
an Dhornbanka hafa undanfarið
verið um 25 rækjuskip að veiðum
og hafa aflað ágætlega. Þarna
hafa verið Grænlendingar, Danir,
Norðmenn og einn franskur
rækjutogari. Svo hefur virzt, sem
nánast enginn afli hafi verið við
miðlinuna til þessa.
1280 tonn til
Grindavíkur á
„konudagdnn“
(■rindavík. 24. apríl.
IIÉR komu á land 1280 tonn i
gær, sumardaginn fyrsta, og eins
og svo viða annars staðar á
landinu fá konurnar aflahlutinn
þennan dag.
í dag er útlit fyrir gott Fiskirí,
þeir sem hafa „meldað" sig eru
hressir, en margir komu inn án
þess að draga allt og ætla snemma
út til að geta dregið aftur áður en
helgarfríið byrjar.
— Guðfinnur
*
Agætur afli
togara og báta
frá Akranesi
Akrancsi. 24. apríl.
Akranestogararnir þrír hafa
komið úr veiðiferðum nú síðustu
dagana með góðan afla, mest-
megnis þorsk, að öðru leyti
karfa.
Óskar Magnússon með 175 lest-
ir, Haraldur Böðvarsson með 160
lestir og Krossvíkin í dag með 140
lestir. Afli í þorskanet hefur verið
frá 8—20 lestir á bát í veiðiferð að
undanförnu. Einn báturinn kom
með 53 lestir frá Selvogsbanka.
Einn bátur er enn á veiöum með
línu, hann fékk 21 lest af fallegum
og stórum þorski í síðustu veiði-
ferð. Handfæraafli er nú góður
hjá trillubátum úti á Hraunum og
þar er nú logn og ládauður sjór.
— Júlíus
Sandgerði:
Reytingur hjá
línubátum, en
tregt í netin
Sandnerói. 24. april.
EKKI ER hægt að segja, að nein
sérstök aflahrota hafi komið
hingað enn á yfirstandandi ver-
tíð, ef frá er talinn afli stærstu
nctabátanna úti i hinu svokallaða
Villta vestri fyrr í vetur. Nú er
svo komið að sjómenn á netabát-
um hér eru farnir að kalla hafið
vestan og norðan Reykjaness
„Dauðahafið“. Aftur á móti eru
sjómenn á þeim fáu bátum. sem
veiða með línu á annarri skoðun
enda hafa þeir oftast fengið
reytingsafla og t.d. nú siðustu
daga 6—10 lestir í róðri.
Um páskana voru komnar á
land hér á vertíðinni 12.775 lestir
af bolfiski, en var 12.651 lest á
sama tíma í fyrra. Skiptist aflinn
þannig á milli báta og togara, að
bátarnir höfðu aflað 10.329 lesta í
1846 róðrum, en á sama tíma í
fyrra 9.932 lesta í 1798 róðrum.
Togararnir höfðu landað nú 2.446
lestum í 20 löndunum, en 2.719
lestum í 20 löndunum í fyrra.
Athygli kann að vekja að sjóferða-
fjöldi bátanna er mun meiri nú en
í fyrra þrátt fyrir allar ógæftirnar
í vetur, en það stafar af því, að
fleiri bátar stunda veiðar héðan
nú. Einnig eru fleiri landanir
aðkomubáta. Fyrirsjáanlegt er að
hjá vel flestum bátanna verður
vertíðaraflinn mun lakari en í
fyrra nema eitthvað óvænt gerist.
Aflahæstu bátarnir um miðjan
mánuðinn voru Arney með 720
lestir, Mummi með 632 lestir og
Bergþór með 490 lestir. Eftir
páskastoppið fóru allmargir
stærri bátarnir með net sín austur
á Selvogsbanka og hafa landað í
Grindavík siðan. Þeir sem lögðu
netin á heimaslóðum fengu mjög
misjafnan afla, komust hæst í 33
lestir fyrri daginn og hæst í 22
lestir í gær. Fjórir togarar hafa
landað hér síðan um páska, Sveinn
Jónsson 141 lest, Ingólfur 112
lestum, Framtíðin 146 lestum og
Erlingur er að landa um 135
lestum.
— Jón