Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 25.04.1981, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 27 „Munum kæra Olís fyrir brot á lögum um samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti“ — segir Jósteinn Kristjánsson, annar eigandi verslunarinnar við Kópavogsbraut 115 „Onundur Ásgeirsson forstjóri Olíuverslunar Islands hringdi í mig í morgun, og sagði að næsta skref yrði að teknir yrðu af okkur bensíntankarnir, nema því aðeins að við breyttum afstöðu okkar og hættum að selja gegn greiðslu á kreditkortum," sagði Jósteinn Kristjánsson í samtali við Morgunblaðið í gær. En eins og Morgunblaðið hefur áður skýrt frá hafa staðið ^fir deilur milli Olíuverslunar Islands og verslunarinnar við Kópavogs- braut 115 í Kópavogi, um hvort eigendum hennar skuli heimilt að selja. bensín gegn greiðslum með kreditkortum. Jósteinn Kristjánsson sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að hann hefði sent Önundi Ás- geirssyni svohljóðandi skeyti á miðvikudaginn: 22. apríl 1981 Hr. Önundur Ásgeirsson f.h. Olíuverslunar íslands, Kleifarvegi 12, Reykjavík. Undirritaður, eigandi Bið- skýlisins Kópavogsbraut 115, Kópavogi, mótmæli lögmæti afgreiðslubanns sem þér, auk Páls Bergssonar, tilkynntuð mér í dag á bensíni til fyrir- tækis míns. Ástæðu af- greiðslubannsins sögðuð þér aðild okkar að Eurocard-kred- itkortaþjónustunni á íslandi. Undirritaður telur afgreiðslu- bannið brjóta í bága við lög nr. 56 frá 1978 um verðlag og samkeppnishömlur og órétt- mæta viðskiptahætti, auk grundvallarreglna í þjóðfélagi okkar um frjálsa verslun. Þess er krafist, að þegar í stað verði afgreiðslubanninu aflétt. Hafi það ekki verið gert fyrir klukkan 12 á hádegi föstudag- inn 24. apríl nk. mun mál þetta kært í samræmi við lög og reglur í þessu landi. Sér- stök athygli er vakin á refsi- ákvæðum laga nr. 56/1978. Jafnframt áskilur undirritað- ur sér allan rétt til krafna úr hendi Olíuverslunar Islands hf. um skaðabætur vegna tekjutaps og fleira vegna ákvörðunarinnar. Athygli skal vakin á því að einungis er farið fram á stað- greiðsluviðskipti á benzíni við Olíuverslun Islands. Virðingarfyllst, Jósteinn Kristjánsson. Samhljóða skeyti sent stjórn- arformanni Olíuverslunar ís- lands. í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Jósteinn, að í símtali þeirra Önundar í gær, hafi Önundur haldið því fram, að ef verslunin héldi áfram að selja gegn greiðslu með kreditkortum, væri það Olís en ekki verslunin, sem lánaði viðskiptavinunum vöruna. „Mér gekk satt að segja illa að skilja þessa röksemda- færslu," sagði Jósteinn. „Við höfum boðist til að staðgreiða Olís allt bensín er við seljum frá þeim. Það yrðum því við sem lánuðum viðskiptavinunum bensínið, dráttur á greiðslum yrði okkar mál og kæmi til þess að eitthvað af þessum greiðslum skilaði sér ekki inn, þá væri tapið okkar en Olís bæri- enga áhættu. Því er röksemdafærsla af þessu tagi út í hött.“ Að öðru leyti kvað Jósteinn lítið um málið að segja að sinni, en kvaðst þó vilja þakka þeim fjölda fólks er haft hefði sam- bandi við sig vegna þessa máls og vottaði stuðning sinn. „Það er eins og margir hafi skyndilega vaknað upp við þann vonda draum, að hér á Islandi sé alls ekki viðskiptafrelsi og frjáls verslun, heldur búum við ennþá við einokun á ýmsum sviðum," sagði Jósteinn að lokum. Verslunin við Kópavogsbraut 115 i Kópavogi, sem Olis heimilar ekki að selja bensin með kreditkortagreiðslum, jafnvel þótt verslunin staðgreiði Olís bensinið. Bensintankur frá Olís er í forgrunni, en nú hefur Önundur Ásgeirsson tilkynnt eigendum verslunarinnar að hann verði f jarlægður. Jósteinn hafnaði samskonar samningi og aðrir hafa — segir Önundur Ásgeirsson forstjóri Olís hf. „Eg hef raunverulega ekkert um málið að segja, annað en það að umræddur aðili í Kópavogi hefur engan samning við okkur um sölu á bensíni. Honum var hins vegar gefinn kostur á að gera við okkur samskonar samning og allar aðrar bensínsölur í Reykjavík hafa,“ sagði Önundur Ásgeirsson forstjóri Olís í samtali við Morgunblaðið. Að öðru leyti kvaðst Önundur ekki vilja tjá sig um þetta mál, en sagði þó að Olíuverslunin hf. væri ekki til viðræðu um að breyta þeim samningi er gerður væri við útsöluaðila. Olíufélögin væru hætt að nota kreditkort sem þau hefðu notað þar til fyrir nokkrum árum, og samkomulag væri um að nota þau ekki í viðskiptum af þessu tagi. UM ÁRABIL hafa ísraelar haldið alþjóðlega keppni, annað hvert ár, í ýmsum ritum Gamla Testament- isins og hefur þátttökuþjóðum fjölgað ár frá ári. Sendiherra ísraels á tslandi. Hava Hareli, hefur haft mikinn áhuga á að koma slíkri keppni á laggirnar hér og hefur nú verið skipuð undirhúningsncfnd og er ætlunin að forkeppnin verði haldin 30. maí nk. Keppcndur þurfa þá að svara skriflegum spurningum og geta gert það á heimaslóðum undir forsjá ábyrgðarmanns, sem nefnd- in fengi til starfa. Þeir sem hafa hug á að taka þátt i keppninni Sr. Bernharður Guðmundsson Keppni í ýmsirni ritum Gamla testamentis tilkynni það til sr. Bernharðs Guðmundssonar hjá Biskupsstofu fyrir 15. mai og geta fengið að vita nánar um tilhögun keppninn- ar o.fl. Það skal tekið fram að allir sem eru 18 ára og eldri geta verið með og í keppninni er lögð áhersla á ákveðin efni, frið, félagslegt rétt- læti og jafnrétti og einingu meðal mannanna. Bækurnar sem spurt er úr eru Mósebækurnar fimm, Jósúa bók, Spámennirnir, Dómarabókin, Fyrsta og önnur Konungabók, Sálmarnir og Rutarbók. Sá sem ber sigur af hólmi í keppninni í hverju landi heldur síðan til ísraels í byrjun september og bera Israelar allan kostnað af ferð viðkomandi og uppihaldi. Einnig verður keppendum boðið í ferðir um landið og fleira. Það skal ítrekað að tilkynn- ingafrestur er til 15. maí. Sr. Bernharður Guðmundsson er for- maður nefndarinnar og með honum eru Gunnlaugur Jónasson, blaða- maður, Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður og Jónas Jónasson, dagskrárfulltrúi. Dr. Þórir Kr. Þórðarson prófessor verður dómari spurningakeppninnar. Bæjarstjórn Njarðvikur: Mælir með takmörkuðum dragnótaveiðum í Faxaflóa Á FUNDI bajarstjórnar Njarð- víkur 7. apríl 1981, var eftirfar- andi tillaga samþykkt: „Bæjarstjórn Njarðvíkur skorar á hið háa Alþingi að samþykkja framkomið frumvarp til laga, um að takmarkaðar veiðar með dragnót í Faxaflóa skuli leyfðar. Bæjarstjórnin bendir á að þess- ar veiðar hafa mikla þýðingu fyrir bæjarfélagið, þar sem þær hafa síðustu 2 ár veitt um 60 manns atvinnu í allt að 4 mánuði á ári, á þeim tíma sem flest fólk er á vinnumarkaðnum. Varðandi skaðsemi dragnóta- veiða, vísar bæjarstjórnin til álits þeirra fiskifræðinga sem fylgst hafa með tilraunum síðustu ár og hafnar með öllu þeirri skoðun, að þessar takmörkuðu veiðar með dragnót spilli lífríki flóans. Að lokum leggur bæjarstjórnin áherslu á að þau hús sem þegar hafa búnað til þess að fullvinna kolann, fái þau leyfi sem veitt verða til dragnótaveiða í Faxaflóa, enda munu þau fullfær um að nýta það magn sem væntanlega yrði leyft að veiða.“ Fundur Félags Sjálfstæðismanna í Árbæjar- og Seláshverfi: Athugasemdir við skipu- lagstillögur borgar- stjórnarmeirihlutans Félaj; sjálfstæðismanna í Árbæjar- og Seláshverfi efndi til almenns fundar um skipulagstillöRur meirihlutans í borgar- stjórn og fór hann fram í safnaðarheimili Árbæjar- sóknar hinn 15. apríl síð- astliðinn. 60 fundargestir sóttu fundinn. Frummæl- endur voru Davíð Oddsson og Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúar og Hilmar ólafsson arkitekt. Fundar- stjóri var Guttormur Ein- arsson en fundarritari Örn Baldvinsson. Fyrir fundinum lágu teikn- ingar af skipulagstillögum meiri- hlutans í borgarstjórn og til samanburðar teikningar af eldri skipulagstillögum fyrir Reykja- vík. Auk þess voru kynntar á fundinum skipulagstillögur Fáksmanna að athafnasvæði hestamanna í Víðidal og ná- grenni. Að loknum framsöguræð- um tóku 12 fundargestir til máls, — 9 töluðu gegn fyrirhuguðu skipulagi en 3 mæltu með því. Að loknum framsöguræðum voru samþykktar athugasemdir o INNLENT við skipulagstillögu meirihlutans í borgarstjórn með öllum greidd- um atkvæðum. Eru athugasemd- irnar í átta liðum sem eru í meginatriðum þannig. 1) Fundurinn mótmælir alfar- ið hugmyndum um byggingu iðnaðarhúsnæðis á auðu land- ræmunni meðfram Hraunbæ að norðanverðu og bendir á, að íbúum í Árbæjar- og Seláshverfi standi nú þegar til boða full- nægjandi atvinnutækifæri í næsta nágrenni, svo sem í Borg- armýri og á Ártúnshöfða. Skorar fundurinn á borgaryfirvöld að taka nú þegar upp viðræður við íbúa hverfisins um nýtingu þessa svæðis í þágu ibúanna sjálfra, bæði fyrir samfélagsleg og ein- staklingsafnot. 2) Fundurinn mótmælir þeirri fyrirætlun meirihluta borgar- stjórnar að leggja tengibraut frá væntanlegum ofanbyggðavegi eða Suðurlandsvegi framhjá Sel- ási í Suðurhóla með brúargerð yfir Elliðaárnar. Þessi vegagerð brýtur gefin loforð í samþykktu skipulagi fyrir Selás og Breið- holt. Umferð eftir þessum vegi yrði mikil og myndi valda miklu ónæði í báðum hverfunum. 3) Fundurinn lýsir eindregn- um stuðningi við skipulagstillög- ur Fáksmanna fyrir athafna- svæði hestamanna í Víðidal og nágrenni og skorar á borgaryfir- völd að draga nægilega saman fyrirhugaða byggð á nýjum svæðum í Selási, svo það nái fram að ganga. 4) Fundurinn vísar alfarið á bug hugmyndum um vegarlagn- ingu frá ofanbyggðavegi yfir Suðurhóla í Breiðholti, og af þeim sökum er ekki lengur fyrir hendi sá möguleiki væntanlegra íbúa við Rauðavatn að sækja þjónustu í Breiðholtshverfi. Fundurinn telur röksemdir meirihlutans í borgarstjórn um að 15.000 manna byggð við Rauðavatn gæti komist af með þær þjónustustofnanir sem fyrir eru í Árbæjar- og Seláshverfi, út í hött, enda ljóst að með viðbót- arbyggð í Selási og Ártúnsholti yrði álagið á þessar stofnanir of mikið og því stefnt í algert öngþveiti með fyrirhuguðu skipulagi. 5) Fundurinn mótmælir þeirri hugmynd meirihluta borgar- stjórnar að skerða golfvöllinn við Grafarholt með skipulagningu byggðar á því svæði. Með slíkum áformum heggur meirihlutinn í sama knérunn, hvað snertir vel nýtt útivistarsvæði Reykvíkinga, svo sem áður er getið um at- hafnasvæði hestamanna. 6) Fundurinn telur óráðlegt að skipuleggja byggðasvæði við Rauðavatn og Grafarholt vegna vatnsbóla við Bullaugu, sem nú eru nýtt fyrir vatnsveitu Árbæj- ar- og Seláshverfis. 7) Fundurinn leggur eindregið til að ekki verði skipulögð byggð svo nálægt Árbæjarsafni að þar verði eki unnt að koma fyrir landsbyggðarsafni í framtíðinni. 8) Fundurinn telur fyrirhug- aðar byggingaframkvæmdir fyrir norðan Stekkjabakka í Breiðholti I brot á þeim loforð- um, sem fólust í samþykktu skipulagi fyrir hverfið, og sem íbúar þess tóku góð og gild, er þeir byggðu þar. Þá eru bygg- ingaframkvæmdir norðan við Stekkjabakka bein ögrun við útivistarsvæðið í Elliðaárdal.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.