Morgunblaðið - 25.04.1981, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
5
Edda sýnir í
Gallerí Langbrók
UM HELGINA opnar Edda
Jónsdóttir litla sýninnu i Gall-
erí Langbrók við Amtmanns-
stíg i Reykjavik. Sýningin sam-
anstendur af collage-myndum
og klipptri og fiéttaðri grafik.
Edda stundaði nám við báða
myndlistaskólana í Reykjavík og
við Ríkisakademíuna í Amster-
dam. Hún hefur haldið tvær
einkasýningar og tekið þátt í
fjölmörgum myndlistasýningum
víða um heim. Sýningin verður
opin virka daga frá kl. 12—18 og
um helgar frá kl. 14—18. Sýning-
unni lýkur 11. maí.
Mælti með samþykkt nýrra
náttúruverndarlaga
FJÓRÐA Náttúruverndarþingi
lauk á sumardaginn fyrsta. Á
þinginu var sérstaklega fjallað um
náttúruverndarlögin. og stöðu
náttúruverndarmála. Þingið mælti
með samþykkt frumvarpsins til
nýrra náttúruverndarlaga sem
lagt var fyrir það. Þá var rætt um
æskilega heildarstjórn umhverfis-
mála. náttúruvernd í þéttbýli,
Prestskosning
í Reykhólum
SUNNUDAGINN 3. maí verður
prestskosning í Austur-Barða-
strandarsýslu. Einn frambjóð-
andi sótti um prestakallið, séra
Valdimar Hreiðarsson úr Reykja-
vik. Hann hefur verið settur
prestur á Reykhólum.
Séra Valdimar er búinn að vera
starfandi prestur vestur hér í tvö
ár og hefur hann einnig kennt við
Grunnskólann á Reykhólum.
Séra Valdimar er kvæntur
Eygló Bjarnadóttur frá Stykkis-
hólmi og eiga þau hjón þrjú börn.
Það er almenn skoðun vestur hér
að mikill akkur sé í því að fá
ungan prest til þess að setjast að
hjá okkur, því að hvergi mun
meiri nauðsyn en í fámenninu að
hafa góðan prest.
Sveinn
Séra Valdimar Ilreiðarsson
verndun viiltra dýrategunda og
umhverfisáhrif mannvirkjagerðar.
Lágu um 30 tillögur fyrir þinginu.
Á síðasta degi þingsins var kosið
nýtt Náttúruverndarráð til þriggja
ára. En áður hafði menntamálaráð-
herra skipað Eyþór Einarsson
grasafræðing formann og Jónas
Jónsson búnaðarmálastjóra vara-
formann til sama tíma. Þessir voru
kjörnir: Bjarni E. Guðleifsson,
Hjálmar R. Bárðarson, Lára
Oddsdóttir, Páll Líndal, Sigurður
Blöndal og Sigurður Þórarinsson.
Sem varamenn: Friðjón Guðröðar-
son, Jakob Jakobsson, Elín Pálma-
dóttir, Jóhann Már Maríusson, Ein-
ar E. Sæmundsen og Agnar Ingólfs-
son. En í Náttúruverndarráði starfa
varamenn mjög mikið ásamt aðal-
mönnum.
Árni Reynisson, framkvæmda-
stjóri, sem er að hætta störfum eftir
9 ár, voru í lok þingsins þökkuð
dyggileg störf, bæði af Láru
Oddsdóttur formanni Sambands ísl.
náttúrufélaga, svo og af Eyþóri
Einarssyni, sem sagði Árna hafa
unnið merkilegt starf við mjög erfið
starfsskilyrði.
Biskup biðst
lausnar frá
1. október
BISKUP fslands, hr. Sigurbjörn
Einarsson, hefur með bréfi til
forseta fslands beðist lausnar frá
embætti frá 1. október nk. Undir-
búningur biskupskjörs er hafinn
fyrir nokkru og er um þessar
mundir verið að ljúka kosningu
kjörmanna úr hópi leikmanna I
hverju prófastsdæmi landsins.
Sr. Bernharður Guðmundsson,
fréttafulltrúi kirkjunnar, tjáði Mbl.
að líklega yrði innsetning eða vígsla
nýs biskups fyrri hluta september-
mánaðar, en biskupskjörið er talið
geta orðið um miðjan júlí. Dóms- og
kirkjumálaráðuneytið sér um fram-
kvæmd kjörsins og er ráðuneytis-
stjóri þess, Baldur Möller, formaður
kjörstjórnar samkvæmt lögunum, en
ráðherra skipar einn fulltrúa og
Prestafélag íslands annan.
>fHNKW5T«|K-
"t>Ó ÁTTtElK, KORCtfNOl"
Einar Þorláksson við eitt verka sinna. Lió«in. KHstján.
Einar Þorláksson
í Norræna húsinu
Einar Þorláksson opnar I dag,
laugardag, málverkasýningu i
kjallara Norræna hússins klukk-
an 14. Einar vildi lítið um myndir
sínar tala við blm.. en flestar
væru þær frá síðustu tveimur til
þremur árum, og allt akrílmynd-
ir, 92 talsins.
Einar Þorláksson er fæddur
1933 og skólaðist í Hollandi og á
Norðurlöndum. Fyrsta einkasýn-
ing hans var í Listamannaskálan-
um 1962, og næst sýndi hann í
Unuhúsi ’69, þá í Casa Nova ’71 og
í Norræna húsinu 1975. Þá hélt
hann minni sýningar tvær á árinu
1977 í Gallerí Sólon íslandus og
bókasafni ísafjarðar.
Einar er starfsmaður Orku-
stofnunar og málar á kvöldum og
um helgar. Frá fimm og eins lengi
og strætó gengur, segir hann, en
hann á sér vinnustofu útí bæ.
Einar Þorláksson vill láta myndir
sínar tala og þær eru til sýnis í
Norræna húsinu dag hvern til
lOda maí, frá klukkan 16—22
virka daga og milli klukkan 14 og
22 á helgum.
UMDOÐSMENN
Umboð í Reykjavík
og nágrenni
Aðalumboð, Vesturveri,
símar 17757 og 24530
Verslunin Neskjör,
Nesvegi 33, sími 19832
Sjóbúðin við Grandagarð,
sími 16814.
Verslunin Roði,
Hverfisgötu 98.
Passamyndir hf.,
Hlemmtorgi, sími 11315.
Bókabúð Safamýrar,
Háaleitisbraut 58—60,
sími 35230.
Hreyfill,
Fellsmúla 24, sími 85521.
Paul Heide,
Glæsibæ, sími 83665.
Verslunin Rafvörur,
Lauganesvegi 52, sími 86411.
Hrafnista, skrifstofan,
sími 38440.
Verslunin Réttarholt,
Réttarholtsvegi 1,
sími 32818.
Bókaverslun
FJQLGUNOG
STORHÆKKUN
VINNINGA
Jónasar Eggertssonar,
Rofabæ 7, sími 83355.
Arnarval,
Arnarbakka 2, sími 71360.
Verslunin Straumnes,
Vesturbergi 76,
símar 72800 og 72813.
Litaskálinn, Kópavogi,
símar 40810, 41760 og 40980.
Bóka- og ritfangaverslunin
Veda, Hamraborg 5,
sími 40877.
Borgarbúðin
Hófgerði 30,
símar 40180 og 41861.
Bókaverslunin Gríma,
Garðaflöt 16—18,
sími 42720.
Hrafnista Hafnarfirði
sími 53811.
Kári og Sjómannafél.,
Strandgötu 11—13, Hafnar-
firði, símar 50248, 51674.
Sala á lausum miðum og
endurnýjun ársmiða og
flokksmiða stendur yfir.
Dregið í 1 flokki 5. maí.
ÐtlUM ÓLDRUÐUM ÁH YGGJULAUST ÆVIKVÖLD