Morgunblaðið - 25.04.1981, Síða 8
8 MOltGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
DÓMKIRKJAN: Kl. 11 og kl. 2
eru ferminKarmessur ok altaris-
göngur úr Fella- og Hólasókn.
Sr. Hreinn Hjartarson.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Barna- og fjölskyldusamkoma í
safnaðarheimili Arbæjarsóknar
kl. 10.30 árd. Altarisgönguathöfn
fyrir fermingarbörn og vanda-
menn þeirra í safnaðarheimili
sunnudagskvöld kl. hálf níu. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Messa að
Norðurbrún 1 kl. 2. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐIIOLTSPRESTAKALL:
Messa í Bústaðakirkju kl. 10.30
árd. Ferming og altarisganga.
Organisti Daníel Jónasson. Sr.
Lárus Halldórsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 2. Dr. Esra Pétursson
flytur stólræðu og leiðir umræð-
ur eftir messu. Organleikari
Guðni Þ. Guðmundsson. Sr.
Ólafur Skúlason.
DIGRANESPRESTAKALL:
Barnasamkoma kl. 11 safnaðarh.
v/Bjarnhólastíg. Fermingar-
guðsþjónustur kl. 11 árd. og kl. 2.
síðd. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND:
Guðsþjónusta kl. 10 í umsjá sr.
Árna Bergs Sigurbjörnssonar.
FELLA- OG HÖLAPRESTA-
KALL: Laugard.: Barnasam-
koma í Hólabrekkuskóla kl. 2.
Sunnud.: Barnasamkoma í Fella-
skóla kl. 11 árd. Ferming og
altarisganga í Dómkirkjunni kl.
11 f.h. og kl. 2 e.h. Sr. Hreinn
Hjartarson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón-
GUÐSPJALL DAGSINS:
Jóh. 20.:
Jesús kom að luktum dyrum.
usta kl. 2. Organleikari Jón G.
Þórarinsson. Almenn smkoma
nk. fimmtudagskvöld kl. 20.30.
Sr. Halldór. S. Gröndal.
IIALLGRÍMSKIRKJA: Messa
kl.ll. Ferming. Sóknarprestar.
Þriðjud. 28. apríl: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum. Kirkjuskóli barn-
anna er á laugardag kl. 2. í
gömlu kirkjunni.
LANDSPtTALINN: Messa kl.
10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
IIÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11 árd. Sr. Arngrím-
ur Jónsson. Guðsþjónusta kl. 2.
Sr. Tómas Sveinsson.
KÁRSNESPRESTAKALL:
Barnasamkoma í Kársnesskóla
kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson.
LANGIIOLTSKIRKJA: Barna-
samkoma kl. 11. Söngur, sögur,
myndir. Verið velkomin. Guðs-
þjónusta kl. 2. fellur niður.
Sóknarnefndin.
LAUGARNESPRESTAKALL:
Laugard. 25. apríl: Guðsþjónusta
að Hátúni lOb, níundu hæð kl. 11
árd. Sunnud. 26. apríl: Barna-
guðsþjónusta kl.ll. Messa kl. 14.
Þriðjud. 28. apríl. Bænaguðs-
þjónusta kl. 18. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Barnasamkoma
kl. 10.30. Guðsþjónusta kl. 2.
Gísli Helgason leikur á flautu.
Kirkjukaffi. Sr. Guðmundur
Óskar Ólafsson.
SELJASÓKN: Barnaguðsþjón-
usta að Seljabraut 54 kl. 10.30.
Barnaguðsþjónusta í Öldusels-
skóla kl. 10.30. Guðsþjónusta að
Seljabraut 54 kl. 2. Sóknarprest-
ur.
SELTJARNARNESSÓKN:
Barnasmkoma kl. 11 árd. í Fé-
lagsheimilinu. Sr. Frank M.
Halldórsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Messa kl. 2. Organleikari Sigurð-
ur ísólfsson. Prestur. Dr. Einar
Sigurbjörnsson, prófessor.
DÖMKIRKJA KRISTS Kon-
ungs Landakoti: Lágmessa kl.
8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd.
Lágmessa kl. 2 síðd. Alla rúm-
helga daga er lágmessa kl. 6
síðd. nema á laugardögum, þá kl.
2 síðd.
FELLAHELLIR: Kaþólsk
messa kl. 11 árd.
FÍLADELFtUKIRKJAN:
Sunnudagaskólarnir kl. 10.30
árd. Safnaðarguðsþjónusta kl.14.
Ræðumaður Einar J. Gíslason.
Almenn guðsþjónusta kl. 8 síðd.
Ræðumaður Sam Glad. — Fórn
fyrir skálann í Kirkjulækjarkoti.
IIJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skylduguðsþjónusta kl. 10.30 árd.
Vígsla yngri liðsmanna. Bæn kl.
20 og kl. 20.30 hjálpræðissam-
koma. Major Inger og Einar
Höyland og kafteinn Grethe
Olsen syngja og tala.
MOSFELLSKIRKJA: Messa kl.
14. Hestamenn ætla að fjöl-
menna til kirkju. Sóknarprestur.
BESSASTAÐAKIRKJA: Messa
kl. 2 síðd. Ferming. Altaris-
ganga. Sr. Bragi Friðriksson.
KAPELLA St. Jósefssystra í
Garðabæ: Hámessa kl. 2 síðd.
IIAFNARFJARÐARKIRKJA:
Fermingarguðsþjónustur kl.
10.30 og kl. 14. Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði:
Vorferð barnastarfsins verður
farin á morgun, sunnudag, og
lagt af stað frá kirkjunni kl. 11
og komið aftur um kl. 16. Nánari
uppl. hjá Láru sími 50303.
KARMELKLAUSTUR: Há-
messa kl. 8.30 árd. Rúmhelga
daga messa kl. 8 árd.
KAPELLAN St. Jóseísspítala:
Messa kl. 10 árd.
GRINDAVÍKURKIRKJA:
Fermingarguðsþjónustur kl.
10.30 og kl. 14. Sóknarprestur.
ÚTSKALAKIRKJA: Ferming-
armessa kl. 2 síðd. Sóknarprest-
ur.
Gærdagurirm í dag
Erlendar hækur:
eftir Ingeborg Drewitz
Gestern war Heute heitir bók
Ingeborg Drewitz á frummálinu,
en þar sem ég er illa lesandi á
þýzka tungu kaus ég að lesa hana
á dönsku ojf sé ekki betur en
þýðandinn, Birte Svensson, hafi
unnið sitt verk vel og þekkilega.
Ingeborg Drewitz er fædd 1923 og
er doktor í heimspeki og móðir
þriggja dætra. Hún hefur skrifað
leikrit, skáldsögur, smásögur, rit-
gerðasögn og hún er varaformaður
Pen-klúbbsins í Vestur-Þýzka-
landi. Á dönsku heitir bók sú sem
hér um ræðir I gaar var i dag og
hún kom út í Þýzkalandi fyrir
tveimur árum og vakti þá mikla
eftirtekt og hefur síðan víða verið
gefin út, hún þótti hvorttveggja í
senn merk skáldsaga og heimild-
arsaga. Við lestur hennar fannst
mér skáldsagan fyrst og fremst
ríkjandi. Bókin hefst 1923, nýr
einstaklingur er að fæðast í heim-
inn, það er kannski höfundurinn
sjálfur. Að minnsta kosti ber
bókin sterk einkenni sjálfssögu.
Þetta er fjölskyldusaga, kynslóð-
irnar lifa saman og þegar litla
telpan, söguhetjan fer að muna
eftir sér er uppgangur Hitlers í
ÚT ER komin á vegum Iðunnar
bókin Ástarsaga aldarinnar eftir
finnsku skáldkonuna Martu Tikk-
anen. Kristín Bjarnadóttir þýddi.
Höfundur er sænskumælandi
Finni og kom bókin út á frummáli
1978 og hefur síðan verið gefin út
margsinnis _ og þýdd á nokkur
tungumál. Ástarsaga aldarinnar
hefur verið nefnd „diktroman"
sem ef til vill mætti kalla ljóðsögu
á íslensku, samfelldur flokkur
ljóða í lausu máli. Bókin fjallar
um hjúskap konu sem gift er
ofdrykkjumanni, og tileinkar höf-
undur hana Henrik eiginmanni
sínum sem einnig er kunnur rit-
höfundur.
Márta Tikkanen hlaut bók-
menntaverðlaun kvenna árið 1979
fyrir Ástarsögu aldarinnar. Áður
hafði hún gefið út nokkrar skáld-
sögur, og er þeirra kunnust Karl-
mönnum verður ekki nauðgað.
Eftir henni var gerð kvikmynd
sem nýlega var sýnd hérlendis.
Ingeborg Drewitz
Þýzkalandi að hefjast og óhjá-
kvæmilegt að það setji mark sitt á
uppvöxt hennar og þeirra sem
henni eru nánastir. Þó segir hér á
allt annan hátt frá Hitlers Þýzka-
landi en í þeim bókum sem að
verulegu leyti byggja á sögum af
gyðingaofsóknum, þótt vissulega
sé þeirra getið og það á
áhrifamikinn hátt.
En fyrst og fremst er þetta saga
Ástarsaga aldarinnar skiptist í
þrjá hluta og er 185 blaðsíður að
stærð. Þýðingin er gefin út með
styrk frá Norræna þýðingarsjóðn-
um. Prentrún prentaði.
(Frúttatilkynninií).
konunnar Gabriele, litla barnsins
sem fæddist árið 1923. Fjölskyld-
an er komin af pólskum bændum,
sem leitaði til Berlínar í kringum
1870 og endaði í verkamanna-
hverfinu Moabit, þar búa þrjár
kynslóðir samanj einni og sömu
íbúð. Hún vex upp við atvinpuleysi
hinna eldri og kynnist ung því
óöryggi sem það veldur. Hitlers-
áhrifin eru eins og farg. Eftir
styrjöldina tekur hún þátt í upp-
byggingarstarfinu í Berlín, tekur
þátt í að koma á laggirnar tímariti
og hættir síðan námi vegna gift-
ingar. Hún einbeitir sér að læra að
vera hamingjusöm í hlutverkinu
„eiginkona/móðir" með mannin-
um og dætrunum tveimur, en það
gengur ekki rétt vel. Hún drífur
sig síðan í að ljúka námi og verður
fréttamaður við útvarpsstöð í
Frankfurt, þar sem hún gerir
hvern útvarpsþáttinn öðrum at-
hyglisverðari að því er lesanda
skilst. Eiginmaðurinn og hún fjar-
lægjast æ meira en samt eru
tengslin milli þeirra ótrúlega
sterk, þótt þau flytji sundur skrif-
ar hún honum bréf, reynir að
draga hann inn í daglegt líf þeirra
mæðgna en samt er alltaf eins og
hún haldi honum í senn armslengd
frá sér. Yngri dóttirin lætur lífið
af slysförum og Gabriele snýr
aftur til mannsins síns í Berlín og
þar fæðist enn ein dóttir.
Hlutverk konunnar Gabriele er
Ingeborg Drewitz mjög hugleikið.
Gabriele hefur séð móður sína
fórna framadraumum sínum sem
píanóleikari á altari fjölskyldunn-
ar. Sjálf upplifir hún að eldri
dóttirin Renate rýfur tengslin við
fjölskylduna og í reynd finnur hún
að Renate er að kljást við sömu
vandamál og hún sjálf, með því
fráviki að Renate tekur afleiðing-
um af þeim. Renate flytur að
heiman þegar stúdentaókyrrðin
fór eins og eldur í sinu yfir
heiminn og verður virkur baráttu-
maður, að eigin dómi fyrir betra
lífi, frelsi og réttlæti. Og hin
dóttirin Claudia gengur sína leið.
hún giftir sig kornung og eignast
barn og það er öldungis óvíst að
það verði henni fullnægjandi til
lengdar.
I Gaar var I dag er frábær bók,
sem lesandi verður snortinn af,
blæbrigðarík, ljóðræn og hefur þó
boð að flytja sem alla varða og alls
ekki bara kvenfólk.
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ástarsaga aldariraiar
Guðrún Gísladóttir I hlutverki sinu í „Konu
Kona bregður
sér bæjarleið
LEIKRITIÐ Kona sem er eftir
þau hjón Darip Fo og Franca
Ramc hefur nú verið sýnt í
Alþýðuleikhúsinu síðan i janúar-
lok við góðar undirtektir áhorf-
enda og éru sýningar orðnar yfir
30, þar af nokkrar utan Reykja-
víkur.
Kona segir frá þremur konum
sem búa við ólíkar aðstæður, en
þegar upp er staðið hafa þær e.t.v.
allar sömu sögu að segja. Dario Fo
tekst að fjalla um þessi mál eins
og honum einum er lagið, þ.e. að
láta áhorfendur í senn hlusta og
skellihlægja. Sýningum Alþýðu-
leikhússins í Hafnarbíói fer nú
óðum að fækka, og fer hver að
verða síðastur að sjá Konu hér í
bæ.
Eftir helgi ætlar Kona að
bregða sér austur fyrir fjall og
verða sýningar í Árnesi 28. apríl,
Hveragerði 29. apríl og á Hvols-
velli 30. apríl og hefjast þær allar
kl. 21.
Leikarar í Konu eru Sólveig
Hauksdóttir, Edda Hólm og Guð-
rún Gísladóttir. Leikstjóri er Guð-
rún Ásmundsdóttir, leikmynd
gerði Ivan Török, áhrifahljóð
Gunnar Reynir Sveinsson, lýsing
David Walters.
Nánar verður tilkynnt um síð-
ustu sýningar.
Fróttatilkynninx.
Skíðanámskeið
í Hveragerði
FORELDRAFÉLAG Hveragerðis
og Ölfusskólahverfis gekkst fyrir
skíðakennslu fyrir nokkru.
Kennslu annaðist Magnús Jóns-
son ásamt tveimur öðrum.
Sextíu börn tóku þátt í skíða-
náminu, sem tókst í alla staði
mjög vel þrátt fyrir óvenju erfið
veðurskilyrði. Að námskeiðinu
loknu komu nemendur saman í
barnaskólanum ásamt kennurum
og formanni foreldrafélagsins og
tóku þar við viðurkenningarskjöl-
um fyrir þátttökuna á námskeið-
inu.
Foreldrafélagið var endurvakið
1978 og hefur haldið uppi ágætu
starfi síðan. Það hefur gengist
fyrir námskynningum, leikhús-
ferðum, auk skíðaferðanna, sem
fyrr voru taldar og annast eftirlit
á skóladanssýningum.
Formaður Foreldrafélagsins er
Pamela Morrison, ritari Theodór
Kristjánsson og gjaldkeri Sigur-
björg Ólafsdóttir. _ Sigrún.