Morgunblaðið - 25.04.1981, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
15
Kosningaskjálfta
gætir í Noregi
Gro Harlem Brundtland og Káre Willoch — kosningabaráttan í
Norejji verður keppni um það, hvor þeirra verður næsti
forsætisráðherra.
John C. Ausland skrifar frá Osló
var ljóst, þegar hann flutti
setningarræðu sína á fundinum,
að ýmsar blikur voru á lofti. Við
blasti, að hann hlyti hina herfi-
legustu útreið, ef hann gæfi kost
á sér til formennsku. Hann valdi
því þá leið að bjóða sig ekki
fram.
Eftir að Gro Harlem Brundt-
land hafði verið sjálfkjörin til
formennsku, beindist athyglin
að varaformannsembættinu.
Meirihluti kjörnefndar undir
forsæti Tor Halvorsen, leiðtoga
Alþýðusambandsins, mælti með
Gunnar Berge, sem er formaður
fjárveitinganefndar Stórþings-
ins og á rætur að rekja til
verkalýðshreyfingarinnar.
Minnihlutinn studdi Einar
Förde (38 ára), sem er kirkju- og
menntamálaráðherra. Þótt
Förde teljist til menntamanna-
hópsins innan flokksins, var
hann kjörinn með 163 atkvæðum
gegn 138. Erfitt er um það að
dæma, hve mikinn þátt andstaða
Förde gegn Atlantshafsbanda-
laginu átti í sigri hans. Um það
mál var ekkert rætt í umræðum
um varaformennskuna.
Þá þögn má rekja til dreng-
skaparsamkomulags um að ekki
skyldi rætt um öryggismál á
- spenna á landsfundi Verkamannaflokksins
NORSKI Verkamannaflokkm
inni hélt landsfund sinn i Ham-
ar skammt fyrir norðan Osló 2.
til 5. apríl sl. Fundurinn er
haldinn á tveggja ára fresti og
að þessu sinni setti það svip á
hann, að þingkosningar fara
fram i Noregi 14. september
næstkomandi. Glöggur maður,
sem hefur um árabil haft að-
stöðu til að fylgjast með lands-
fundum Verkamannaflokksins,
sagði mér, að aldrei hefði hann
kynnst jafn mikilli spennu á
slikum samkomum og nú.
Þegar dró að landsfundinum,
beindist athygli allra að því,
hvernig baráttunni milli Gro
Harlem Brundtland (41 árs) og
Reiulf Steen (48 ára) um for-
mennskuna í flokknum myndi
lykta. Ekki var langt um liðið
frá því að Gro Harlem Brundt-
land tók við forsætisráðherra-
embættinu af Odvar Nordli (53
ára) í byrjun febrúar, þar til hún
lýsti því yfir, að hún ætlaði
einnig að verða formaður flokks-
ins. Hún gerði það með því að
ítreka þá skoðun, sem hún hefði
lengi haft, að sami maður ætti
að vera forsætisráðherra og
flokksformaður. Enginn mis-
skildi, hvað fyrir henni vakti,
Steen átti að víkja.
Um nokkurt skeið hafa menn
beint spjótum sínum að Steen og
talið hann lélegan leiðtoga.
Hann lét þó ekki orð forsætis-
ráðherrans raska sér um of,
sagði aðeins, að landsfundurinn
kysi flokksformann. Hins vegar
landsfundinum. Samkomulagið
var ekki gert vegna þess að
þingheimur væri einhuga í þeim
málum heldur hins, að umræður
um þau hefðu getað hleypt öllu í
bál og brand. Enn hefur ekki
gróið um heilt vegna rimmunnar
um birgðastöðvar fyrir banda-
ríska landgönguliða á síðasta
ári. Hefði það mál verið tekið til
umræðu, hefði það splundrað
landsfundinum.
Drengskaparsamkomulagið
fólst í því, að einróma skyldi
þingið staðfesta núverandi
stefnu um aðild Noregs að Atl-
antshafsbandalaginu. Hins veg-
ar skyldi það jafnframt styðja
tillögu vinstri armsins um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndunum. Með þeim
stuðningi gekk forysta flokksins
mjög langt til samkomulags og
gaf mikið eftir miðað við fyrri
yfirlýsingar. Rétt er að minnast
þess, að ýmsir bandamenn Nor-
egs líta þannig á, að tillaga um
kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum dragi úr stuðn-
ingi Norðmanna við varnar-
stefnu NATO, sem útilokar ekki
beitingu kjarnorkuvopna, ef allt
annað þrýtur.
Landsfundarályktunin hefur
einnig að geyma ýmis atriði um
innanlandsmál, sem um er deilt.
í henni er lýst yfir stuðningi við
sex stunda vinnudag, sem Per
Kleppe, áætlanaráðherra, taldi
flutta af hreinu ábyrgðarleysi.
Landsfundurinn samþykkti, að
lögð skyldi járnbraut norður til
Tromsö, þótt Ronald Bye, sam-
gönguráðherra, hefði lýst því
yfir, að þjóðin hefði ekki efni á
slíkri braut. Einnig var sam-
þykkt þak á vaxtafrádrátt hús-
byggjenda við álagningu tekju-
skatts. Stjórnmálaforingjar
fagna slíku ákvæði ekki sérstak-
lega, því að þeir eins og svo
margir aðrir hafa stofnað til
hárra skulda til að eignast þak
yfir höfuðið.
Nú þegar landsfundurinn er
að baki, munu foringjar Verka-
mannaflokksins skipa sér í fylk-
ingu vegna þingkosninganna.
Svo virðist sem kosningabarátt-
an ætli að einskorðast við keppni
milli Gro Harlem Brundtland og
Káre Willoch, leiðtoga Hægri
flokksins, um forsætisráðherra-
stólinn.
Segja má, að ríkisstjórn borg-
araflokkanna hafi blasað við,
áður en Gro Harlem Brundtland
varð forsætisráðherra. Nú fer
fylgi þeirra heldur minnkandi
samkvæmt skoðanakönnunum.
Trú almennings á því, að unnt
verði að mynda meirihlutastjórn
borgaraflokkanna, hefur ekki
aukist við þá yfirlýsingu Kristi-
lega þjóðarflokksins, að hann
geti aðeins stutt ríkisstjórn, sem
hefur það á stefnuskrá sinni að
þrengja fóstureyðingalöggjöfina.
Hægri flokkinn og Miðflokkinn
greinir á um stefnuna í olíumál-
um, þar sem Miðflokkurinn vill
að hægt verði farið í að auka
olíuframleiðsluna og seglin dreg-
in nokkuð saman í því efni.
Á nýlegum landsfundi Hægri
flokksins lýsti formaður hans, Jo
Benkow, því yfir, að flokkurinn
ætlaði einn að mynda ríkis-
stjórn, ef nauðsyn krefði og
borgaraflokkarnir hefðu meiri-
hluta á Stórþinginu. Forsætis-
ráðherrann hefur svarað þessu
með því að segja, að hún útiloki
ekki stjórnarsamstarf við ein-
hvern borgaraflokkanna. I því
sambandi beinast augu manna
einkum að Vinstri flokknum
(frjálslynda flokknum), sem
gæti fengið lykilstöðu í Stór-
þinginu. Innan þess flokks ríkja
einnig sérsjónarmið um umfang
olíuvinnslunnar.
Þegar þetta er ritað eru aðeins
fimm mánuðir til kosninga. Eng-
um dyrum hefur verið lokað og
ógjörningur er að segja fyrir um
það, hverjir fari með stjórn
Noregs, fyrr en kjósendur hafa
kveðið upp dóm sinn.
Orlofsferð launafólks til Danmerkur
23. júnítil 2. júlí
Alþýðuorlof og Dansk Folkeferie í samstarfi við Samvinnuferðir — Landsýn hf.,
efna til gagnkvæmra orlofsferða fyrir launafólk á íslandi og í Danmörku.
Dvaliö verður í orlofsbúöum verkalýðssamtakanna í hvoru landi um sig og ferðast
meö sameiginlegu leiguflugi.
Ferðin hefst 23. júní nk. og stendur til 2. júlí.
íslenskir þátttakendur munu dvelja í orlofsbúðum DFF á Sjálandi (Gilleleje), Fjóni
(Middelfast) og Jótlandi (Röðhus) að jafnaði 3 nætur á hverjum stað.
Daglegar skoöunarferöir veröa skiþulagðar til merkra staöa í Danmörku og að
sjálfsögðu verður Kaupmannahöfn heimsótt og m.a. farið í Tivoli.
Rétt til þátttöku í þessari ferð eiga félagsmenn í verkalýðsfélögum, sem eiga
orlofshús í Ölfusborgum, Svignaskarði, Vatnsfirði, lllugastöðum eða Einarsstöðum
og á hvert orlofssvæði rétt til takmarkaös fjölda þátttakenda.
Bókun fer fram á eftirtöldum stööum og eru jafnframt veittar nánari upplýsingar:
Alþýöusamband íalandt, Grensásvegi 16, tími 84033.
Alþýóusamband Vestfjaróa,
Alþýóuhúsinu ísafirði, tími 94-3190.
Alþýóutamband Noróurlandt,
Brekkugötu 4, Akureyri, tími 96-21881.
Alþýóutamband Austurlands,
Egiltbraut 25, Netkauptttaó, tími 97-7610.
það styrk sinn að vera sem ótamd-
astar í myndtúlkun sinni svipað og
maður þekkir frá myndlist karla
fyrir margt löngu er þeir komu
fram með myndir er hneyksluðu
borgarana en eru löngu hættar að
gera það, og virka þá fremur sem
endurtekning og kækur.
Það er áhættufyrirtæki, að nefna
einstök nöfn á jafn stórri sýningu,
auk þess sem verk margra list-
kvennanna koma ekki nægilega vel
til skila að Kjarvalsstöðum jafn-
framt því, sem ég veit að sumar
þeirra hafa gert langtum betri
verk. En ég get fullvissað viðkom-
andi um að ég hafði ánægju af
verkum margra kvennanna á sýn-
ingunni og hefði viljað sjá meira
úrval af verkum sumra. Já, máski
eru konurnar of margar á sýning-
unni og með of fá verk.
Eitt vantar alveg á sýninguna og
það er sýnishorn af listrýni um
hana frá hinum Norðurlöndunum,
— slíkt er venjan um farandsýn-
ingar og þá einkum ef þær fá
lofsamlega dóma.
Sýningunni mun Ijúka um helg-
ina og hvet ég sem flesta að skoða
hana og taka afstöðu til þess er
norrænar konur hafa að segja
innan myndlistarinnar.
Bragi Ásgeirsson
Verð: kr. 2.990.-
InnifaliA í verðinu er:
Flug, Keflavík — Kaupmannahöfn — Kefla-
vík, flutningur til og frá flugvelli í Kaup-
mannahöfn, gisting og fullt fæði svo og
skoðunarferöir í Danmörku. (Flugvallar-
skattur ekki innifalinn). íslenskur fararstjóri.
ALÞÝDUORLOF