Morgunblaðið - 25.04.1981, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981
23
Var Saddam
Hussein sýnt
banatilræði?
Damaskus. 24. apríl. AP.
AL BAATH, málgagn sýr-
lenzku stjórnarinnar, saííði í
dag að Saddam Hussein, forseti
íraks, hefði særzt er honum
hefði verið sýnt banatilræði í
fyrra mánuði.
Engar fréttir hafa verið
sendar út um þetta efni í írak
Saddam Ilussein
ISTUTTU MÁLI
Átta blaðamenn
gripnir
i Buenos Aires
^ Buenos Aires, 24. aprll. AP.
ÁTTA blaðamenn, þar af sex
erlendir, voru handteknir af lög-
reglu meðan þeir voru að fyljíjast
með mótmælafundi i Buenos Air-
es i gær. Voru þeir látnir lausir
eftir klukkutíma yfirheyrslu.
Meðal þeirra, sem voru gripnir
þarna, var fréttaritari New York
Times og Ijósmyndari hans, einn-
ig fréttamenn Life og ljósmynd-
arar þeirra. Þá hafði einn hrasil-
ískur blaðamaður verið tekinn.
Það var fréttamaður New York
Times, Edward Schumacker, sem
skýrði frá þessu í dag. Hefði þetta
gerzt þegar lögreglan skipaði hóp
um eitt hundrað kvenna að dreifa
sér. Þær höfðu farið fram á að fá
viðtal við Viola, forseta landsins.
Konurnar tóku skipun lögreglunn-
ar óstinnt upp og höfðu uppi mikil
óhljóð og fór þá allt í bál og brand.
Mafioso myrtur
á Sikiley
Palermo. Slkiley, 24. apríl. AP.
ÞEKKTUR og að sögn alræmdur
Mafíuforingi var drepinn
skammt frá Palermo á föstu-
dagsmorgun. Segir lögreglan að
sýnilega sé þarna um enn eitt
fjölskyldusamkeppnismorðið að
ræða og hafi maðurinn, Stefani
Bontate, 43 ára, verið skotinn
mörgum skotum.
Var hann að koma akandi heim
til sín þegar tilræðismennirnir
komu brunandi og létu byssukúl-
um rigna yfir Bontate. Bontate
hafði tekið við stjórn glæpafjöl-
skyldu sinnar eftir að faðir hans
þekktur Mafíumaður, Francesco
Paolo Bontate, dó fyrir sjö árum.
25 létust í járn-
brautarslysi
Bombay, 24. apríl. AP.
TUTTUGU OG fimm manns létu
lífið og fimmtíu slösuðust, sumir
alvarlega, þegar tvær troðfullar
farþegalestir rákust á í Bombay í
morgun. Um orsakir slyssins var
ekki vitað og talsmaður lögregl-
unnar sagði það eitt að árekstur-
inn hefði orðið rétt við endastöð-
ina í Bombay og að vera kynni að
fleiri hefðu dáið.
og er þetta hið fyrsta sem af
því spyrst. Benda stjórnmála-
sérfræðingar á að ekki sé þar
með sagt að fréttin sé á rökum
reist og kunni að vera til þess
gerð að veikja stöðu íraksfor-
seta.
A1 Baath sagði að árásin
hefði verið gerð í bænum Zahle,
skammt frá landamærum Tyrk-
lands og Sýrlands. Zahle er í
Kúrdahéruðum íraks. Sagði í
fréttinni að fjórir tilræðismenn
hefðu hafið skothríðina og hent
handsprengju í áttina að forset-
anum, þar sem hann var að
flytja ræðu.
A1 Baath sagði að Hussein
hefði ekki komið fram opinber-
lega fyrstu tvær vikurnar í apríl
og hafi hann þá verið að láta
sár sín gróa.
Enn gift-
ist Cary
Beverly Hills, 24. aprll. AP.
Kvikmyndaleikarinn Cary
Grant, sem er nú 77 ára
gamall, hefur nýverið gcngið i
fimmta sinn i hjónaband. Ilin
nýja eiginkona heitir Barbara
Ilarris og er þritug að aldri.
Segir AP að fréttin komi út af
fyrir sig ekki á óvart, þvi að
miklir dáleikar hafi verið með
þeim síðustu árin.
Fyrri eiginkonur Grants voru
Virgina Cherril, sem hann gift-
ist 1934, milljónamæringurinn
Barbara Hutton, 1942, leikkon-
an Betsy Drake, 1949, og Dyan
Cannon, 1965. Grant eignaðist
barn með fjórðu konu sinni. Öll
fjögur hjónaböndin enduðu með
skilnaði.
Á GÖTU í SÍDON — íbúi i hafnarborginni Sídon kemur vini sínum. sem orðið hefur fyrir
sprengjubroti, til hjálpar. Myndin var tekin á páskadag eftir að sveitir Haddads majórs gerðu
sprengjuárásir á borgina. Í dag var tilkynnt í Beirut, að líbanska stjórnin hefði komið á samkomulagi
um vopnahlé milli friðargæzlusveita Sýrlendinga og kristinna hægri manna.
Shostakovich-feðg-
ar munu sækja um
bandarískt ríkisfang
Washington, 24. aprll. AP.
SOVÉZKI hljómsveitarstjórinn
Maxim Shostakovich hcfur lýst
því yfir, að hann afsali sér
sovézkum ríkisborgararétti sin-
um og muni sækja um að verða
bandariskur rikisborgari, i þeim
tilgangi að geta þjónað listsköp-
un sinni að vild. en hann hefði
ekki verið frjáls að þvi i föður-
landi sínu.
Shostakovich og Dmitri sonur
hans sem struku i Vestur-Þýzka-
landi, þar sem þeir voru á ferð
með sovézku útvarpshljómsveit-
inni, eru nýlcga komnir til
Bandarikjanna. Þeir komu i
fyrsta skipti fram á blaðamanna-
fundi i dag.
Maxim Shostakovich sagði að þó
svo að það hefði kostað hann mikil
heilabrot og sálarstríð að brenna
allar brýr að baki sér, hefði það
útheimt enn meira sálarstríð og
erfiði að vera kyrr. Shostakovich
hefur um langa hríð verið einn
dáðasti hljómsveitarstjóri Sovét-
ríkjanna og er sonur tónskáldsins
fræga sem lézt 1975.
Maxim Shostakovich sagðist
vilja ítreka það að ákvörðun
þeirra feðganna hefði verið tekin
að vel yfirveguðu máli, hún væri
merki um óánægju og ágreining
sem hefði verið orðinn óþolandi.
Hann sagði að hann afneitaði
vitanlega ekki þjóð sinni, heldur
því kerfi sem kúgaði fólkið og þar
af leiðandi einnig þá menn sem
létu þetta kerfi viðgangast.
Shostakovich sagðist hafa rætt
við fulltrúa frá sovézka utanríkis-
ráðuneytinu, skipzt hefði verið á
skoðunum og hefði það farið
friðsamlega fram, en þeir teldu að
hann hefði rangt fyrir sér en hann
áliti að hann hefði rétt fyrir sér.
Shostakovich kvaðst búast við
að stjórna National Symphony í
maí og sömu hljómsveit í sept-
ember, þegar minnzt verður að 75
ár verða þá liðin frá fæðingu föður
hans. Sonur hans mun leika ein-
leik og sellóistinn frægi, Rostro-
povich, mun einnig koma fram á
þeim tónleikum. Hann mun einnig
stjórna Lundúnasinfóníuhljóm-
sveitinni með sama prógrammi í
október nk.
Reagan er vinsæll
með löndum sínum
New York. 24. apríl. AP.
MEIRA en tvcim af hverjum
fimm Bandarikjamönnum
finnst að Ronald Reagan hafi
tekizt meira á fyrstu mánuðum
sinum í embætti en fyrirrennur-
um hans, að því er segir i
niðurstöðum skoðanakönnunar
sem AP- og NBC-sjónvarpsstöð-
in gerðu í sameining. Svo virð-
ist sem almenningur telji að
Reagan hafi sýnt styrka og
afgcrandi stjórn og sjálfur virð-
ist forsetinn mjög sterkur per-
sónuleiki.
Morðtilræðið sem honum var
sýnt hinn 30. marz sl. hefur og
orðið til að auka á góðvild í garð
forsetans. Samtals eru 42 pró-
sent sem segja að Reagan hafi
afkastað meiru fyrstu mánuðina
en fyrirrennarar hans, 46%
segja afköst hans svona ámóta
og 7 prósent segja að honum hafi
orðið minna ágengt.
Tveir þriðju aðspurðra sögðu
að Reagan hefði staðið sig
áþekkt og þeir höfðu búizt við,
27% sögðu að hann hefði gert
betur en þeir höfðu búizt við og
5% sögðu að hann hefði staðið
sig verr.
Milljónir manna sultu í
hel í stjórnartíð Maos
IVkinK. 24. april. AP.
ÞEKKTUR kínverskur
hagfræðingur. Sun Yang
Fang, hefur gefið í skyn
að vegna hinnar skelfi-
legu efnahagsstefnu sem
Mao formaður hafi fylgt,
hafi yfir tíu milljónir
manna orðið hungur-
morða upp úr 1960 og
miklu blóði hafi verið út-
hellt. Erlendir sérfræð-
ingar og hagfræðingar
hafa haldið því fram að
allt að 20 milljónir hafi
soltið í hel á árunum
1959-1962.
Prófessor Sun sagði, að Kín-
verjar yrðu að draga lærdóm af
þessari voðalegu reynslu sem
þeir hafi orðið að þola, svo að
slíkt gæti aldrei gerzt aftur.
Það var í febrúarhefti virts
kínversks fagrits sem prófessor-
inn fjallaði um þetta. Skuldinni
er að vísu ekki skellt á Mao
berum orðum, en fjálglega talað
um hina röngu og afdrifaríku
efnahagsstefnu sem hafi verið
fylgt á þessum árum.
Sun prófessor segir, að árið
1957, áður en hungursneyðin
varð í landinu, hafi dánartíðni í
Kína verið 10,8 á hverja eitt
þúsund íbúa. En þremur árum
síðar á versta og mannskæðasta
ári hungursins hafi dánartiðnin
meira en tvöfaldazt og orðið þá
25,1 á hverja þúsund.
í fréttum AP segir, að milljón-
ir hafi einnig dáið úr hörgulsjúk-
dómum og hafi vitanlega fleira
komið til en röng efnahags-
stefna, því að uppskerubrestur
hafi orðið víða og náttúruham-
farir hafi síðan valdið enn meira
manntjóni. Sun prófessor segir,
að mesta sök sé að finna í
byltingarkenndum aðferðum í
landbúnaði en vitað er að Mao
formaður hafði mikla trú á þeim
og kallaði þær iðulega „stóra
stökkið fram á við“.
Mao