Morgunblaðið - 25.04.1981, Side 31
HVAÐ ER AO GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 3 1
TÓNLIST
Galdraland
GarðaleikhúsiA sýnir barna- »k
fjölskylduleikritið Galdraland eftir
Baldur GeorKs i KópavuKsbiói i
daK. lauKardaK. kl. 15 »k verður
það siðasta sýninK á leikritinu i
KópavoKÍ. Um næstu helid. 2. »k 3.
maí, verður leikritið sýnt i Breið-
holtsskóla.
í Kópavogi
Ein breyting hefur verið gerð á
hlutverkaskipaninni. Magnús
Ólafsson (Þorlákur þreytti) hefur
tekið við hlutverki Randvers Þor-
lákssonar en aðrir leikendur eru
Þórir Steingrímsson og Aðalsteinn
Bergdal.
Tónleikar Samkórs Tré-
smiðafélags Reykjavíkur
Staparokk
í Njarðvík
Á morgun. sunnudag. held-
ur starfsíólk samkomuhússins
Stapa í Njarðvík skemmtun
fyrir þroskahefta á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og Suð-
urnesjum. Hefst hún kl. 14 og
stendur til kl. 17.
Þetta er í fjórða sinn, sem
hjónin Guðjón Valdimarsson
og Ásdís Þorgilsdóttir og
starfsfólk Stapa standa fyrir
slíkri skemmtun fyrir þroska-
hefta, þar sem allir hlutaðeig-
andi gefa vinnu sína og veit-
ingar.
Skemmtanir þessar hafa
verið fjölsóttar og þótt takast
með miklum ágætum.
Að þessu sinni verður það
hljómsveitin Geimsteinn sem
leikur fyrir dansi, en það yrði
vel þegið ef fólk vildi gefa
kökur eða annað meðlæti fyrir
samkomuna.
Vortónleikar Selkórsins
Á morgun, sunnudag. heldur
Selkórinn á Seltjarnarnesi síð-
ari vortónleika sina á þessu
vori og hefjast þeir kl. 16.30 i
Félagsheimili Seltjarnarness.
Söngstjóri kórsins er frú Ragn-
heiður Guðmundsdóttir söng-
kona og einsöngvari með kórn-
um er Þórður Ó. Búason. Á
songskránni. sem er fjölbreytt,
eru bæði innlend og erlend lög.
Selkórinn hefur nú um nokk-
urra ára skeið haldið uppi öflugu
kórstarfi. Auk árlegra vortón-
leika hefur kórinn sungið við
ýmis tækifæri, komið fram á
skemmtunum, heimsótt sjúkra-
hús og elliheimili, haldið tón-
leika í nágrannabyggðarlögun-
um og sungið í sjónvarpinu.
Selkórinn á Seltjarnarnesi.
Samkór Trésmiðafélags Reykjavikur
Atli Ingólfsson
Burtfarartónleikar í
Ytri-Njarðvíkurkirkju
ANNAÐ KVÖLD heldur Atli Ing-
ólfsson gitartónleika i Ytri-
Njarðvíkurkirkju og hefjast þeir
kl. 21.00. Tónleikarnir eru hluti
af burtfararprófi hans frá Tón-
listarskóla Njarðvikur, en þar
hefur hann stundað nám írá
stofnun skólans eða siðastiiðin 5
ár.
Hann stundar einnig nám við
Fjölbrautaskóla Suðurnesja og
lýkur þaðan stúdentsnámi á tón-
listarbraut nú í vor.
Aðalkennarar hans í gítarleik
hafa verið Örn Óskarsson og
Snorri Snorrason.
Á tónleikunum verða m.a. flutt
verk eftir F. Sor, L. Brouwer, F.
Torroba og F. Tarrega, auk söng-
laga eftir J. Dowland og kantata
fyrir sópran, altflautu og gítar
eftir G.F. Hándel.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum er heimill að-
gangur.
Fyrstu vortónleikgr
Tónlistarskóla FIH
I dag verða haldnir fyrstu vor-
tónlcikar Tónlistarskóla FélaKs ís-
lenskra hljómlistarmanna <>k hefj-
ast þeir kl. 14 i Austurbæjarbiói.
Eins og kunnugt er, er Tónlistar-
skóli Félags íslenskra hljómlistar-
manna fyrsti tónlistarskólinn hér á
landi sem auk almennrar tónlistar-
fræðslu starfrækir jazzbraut, en þar
er boðið upp á kerfisbundið nám í
jazztónlist.
Fyrri hluti tónleikanna er helgað-
ur almennu deild skólans og koma
þar fram nemendur, ýmist í einleik
eða samleik. Á síðari hluta tónleik-
anna munu sex jazzhljómsveitir sem
kennarar skólans hafa æft, leika
þekkt jazzlög. Einnig mun hljóm-
sveit úr skólanum leika nokkrar
útsetningar sem nemendur skólans
hafa gert.
Á síðari árum hefur kerfisbundin
jazzkennsla í síauknum mæli skapað
sér sess í æðri tónmenntastofnunum
hins siðmenntaða heims. Þannig
hefur jazztónlist verið skipað á bekk
með sígildri tónlist og nauðsyn
menntunarframboðs á þessu sviði
endanlega viðurkennd. Þessi nauð-
syn kemur nú skýrast fram í miklum
eldmóði nemenda tónlistarskóla FÍH
og þeim góða anda sem þar ríkir.
Tónlistarskóli FÍH hóf starfsemi
sína 6. október sl. I vetur stunduðu
rúmlega 100 nemendur nám í skól-
anum, þar af um 60 í almennri deild
en 40 í jazzdeild. Fullorðinsfræðslu-
námskeið var haldið fyrir áramót og
stóð það í 9 vikur. Á námskeiðinu
leiðbeindu 4 kennarar en nemendur
voru 13 talsins.
Alls leiðbeindu í almennri deild og
jazzdeild 17 kennarar. í kjölfar
tónleikanna fylgja vorpróf, en skól-
inn tekur aftur til starfa mánudag-
inn 14. september næstkomandi.
Skólinn starfar í húsnæði menn-
ingarsjóðs Félags íslenskra hljóm-
listarmanna að Brautarholti 4 hér í
borg.
í DAG heidur Samkór Tré-
smiðafélags Reykjavikur ár-
lega tónleika sina og hefjast
þeir kl. 14 i Félagsheimili stúd-
enta við Hringbraut.
Stjórnandi kórsins er ungur
tónlistarmaður, Guðmundur Óli
Gunnarsson, en gestur kórsins að
þessu sinni verður Árnesskórinn.
Á næsta ári er fyrirhuguð Finn-
landsferð á mót Norræna tónlist-
arsambandsins sem haldið verður
í Póre dagana 1,—4. júlí.
Leikendur i einþáttungunum „Vottorð" og „Mótmæli“ ásamt ieikstjór-
anum, Helgu Bachmann.
ÞJÓÐLEIKIIÚSIÐ
Haustið í Prag
í kvöld verður hin vinsæla ópera
Puccinis, La Bohéme, á fjölunum i
Þjóðleikhúsinu, en sýningum á
henni fer nú mjög fækkandi vegna
tónleikafarar Sinfóníuhljómsveit-
arinnar til Þýskalands. Annað
kvöld verður 25. sýning á Sölumað-
ur deyr eftir Arthur Miller og
hefur aðsókn verið mikil fram að
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ
Stjórnleys-
ingi ferst
afslgs/brum
t kvöld verður „Stjórnleysingi
ferst af slysförum“ á sviðinu hjá
Alþýðuleikhúsinu og aftur á
mánudagskvöld og hefjast sýn-
ingarnar bæði kvöldin kl. 20.30.
Höfund leiksins „Stjórnleysingi
ferst af slysförum", Dario Fo, er
óþarft að kynna, svo oft sem hann
hefur skemmt okkur íslendingum
með hláturleikjum sínum. Stjórn-
leysinginn er þar engin undantekn-
ing og hefur sýning Alþýðuleik-
hússins fengið góðar undirtektir
gagnrýnenda.
þessu. Á morgun verður svo ein af
siðustu sýningum á Oliver Twist og
annað kvöld verður „Haustið i
Prag“ á Litla sviðinu.
Tékknesku einþáttungarnir
„Vottorð" og „Mótmæli" sem bera
samheitið „Haustið í Prag“, hafa
fengið mjög góða dóma gagnrýn-
enda, enda eru hér á ferðinni vel
skrifaðir leikir sem höfða beint til
samvisku okkar sem tjáningarfrels-
ið höfum. Af fréttum undanfarinna
ára vitum við, að höfundarnir, Pavel
Kohout og Vaclav Havel, fjalla hér
um eigin reynslu, því Kohout er
útlægur og Havel hefur setið í
fangelsi við illan aðbúnað síðan
1979. Þó eru leikrit þeirra ekki
einhliða árásir á ástandið í heima-
landinu, heldur miklu fremur ljúf-
sárar og skoplegar lýsingar sem
geisla af mannlegri hlýju og skiln-
ingi.
I fyrri leikþættinum, sem heitir
Mótmæli, leika Rúrik Haraldsson og
Erlingur Gíslason, en í seinni þætt-
inum, sem heitir Vottorð, leika
Rúrik Haraldsson, Guðrún Þ.
Stephensen, Helga Bachmann, Val-
ur Gislason og Tinna Gunnlaugs-
dóttir. Leikstjóri er Helgi Skúlason,
leikmyndin er eftir Baltasar, en Jón
Gunnarsson lektor hefur þýtt leik-
ina úr tékknesku.