Morgunblaðið - 25.04.1981, Page 44

Morgunblaðið - 25.04.1981, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1981 HÖGNI HREKKVÍSI »-'* © 1981 Mr.Nau|ht Syud.. Ik. £KM KOMINN T'lMI TH AÐ Þú TAKlR NIÐUfí JÓLAÍERTUNA ?" ást er... . að kenna þeim stutta eitthvad nýtt. TMHeg US Paf Of» - aN righfs res«rv»<l ® 1978 Los Angetes Tlmes Syndicafe Sekkjapípu? — Hvaða sekkja- pípu ertu að tala um? Var nóttin erfið, vesalingur — Var nóttin erfið, vesalinKur — Var nóttin erfið, vesaiinKur — COSPER COSPER Við skulum fá okkur sæti á bekknum ok horfa á pahha stökkva! Það verður nýr him inn - og ný jörð Baldur B. BraKason, Ólafs- vík, skrifar: „Kæri Velvakandi. Mikið hefur verið rætt um trúarkenningar í dálkum þínum að undanförnu. Mig langar til að leggja nokkur orð í belg um efni, sem deilur stóðu um fyrir skömmu, en það voru heims- endaspádómar. Nauðsynlegt að nota líkingamál Það sem hefur valdið því, að fólk hefur löngum talið, að trú og vísindi væru ósættanlegar andstæður, er sú staðreynd, að þegar fjallað er um hugræn og andleg sannindi, er nauðsynlegt að nota líkingamál og taka dæmi úr efnisheiminum eða hinum áþreifanlega heimi til að gera sig skiljanlegan. Jafnvel þegar talað er um jafn hversdagslega hluti og skólanám, er talað um „framfarir", þótt engin hreyfing nemandans frá einum stað til annars eigi sér stað. Það er talað um „fall“ á prófi, þótt engin líkamleg bylta eigi sér stað. í þessum tilfellum vita allir að um líkingamál er að ræða. Þetta hefur valdið því, að hvers konar hjátrú og hindurvitni, sem vísindi og skynsemi geta ekki meðtekið, hafa komist inn í trúarbrögðin. Sannindi, sem trú- arbragðahöfundar opinbera, og sannindi, sem menn komast að með beitingu skynsemi sinnar og ályktunargáfu, eru í samræmi. Trúarkenningar sem stríða á móti vísindum og skynsemi, stafa af því að menn hafa misskilið orð spámannanna. Hvernig gætu þær komist fyrir þar? Heimsendir, eins og lýst er víða í Biblíunni, getur aldrei orðið í bókstaflegri merkingu. Eitt af því sem á að gerast er að stjörnur falla af himni niður á jörðina. Stjörnurnar ná yfir tak- markalausar víðáttur og eru óteljandi. Sólarhnötturinn er um það bil ein og hálf milljón sinnum stærri en jörðin, og fastastjörnur geta verið þúsund sinnum stærri en sólin. Ef allar þessar stjörnur dyttu niður á jörðina, hvernig gætu þær kom- ist fyrir þar? skýrir þessa spádóma í bókinni Kitáb-i-Iqán (Bók fullvissunn- ar). AbduT-Bahá, sonur hans, skýrir sama efni í bókinni Some Answered Questions (Svör við nokkrum spurningum). Ein út- leggingin er sú, að himinn tákni trúarbrögð og jörð tákni hjörtu fylgjendanna. Sól og tungl tákni mikilvæg lög og kenningar. Stjörnur tákni boðorð og dygðir. Þegar sól og tungl missa skin sitt, táknar það, að lög og fyrirmæli fyrri úthlutunar hafa misst gildi sitt vegna breyttra aðstæðna. Jesús nam úr gildi lög og fyrirmæli úr úthlutun Móse og setti ný lög og boðorð. Þegar stjörnur falla af himnum táknar það, að guðdómlegar dyggðir hafa fallið í gleymsku í daglegu lífi fylgjendanna, en þeir leggja aðaláhersluna á formið og helgi- siðina. Þegar svona er komið fyrir trúarbrögðunum, er orðið tímabært að endurnýja þau. Þá sendir Guð nýjan sendiboða. Það verður nýr himinn og ný jörð. Andinn stÍRur niður Þegar talað er um endurkomu Krists, er átt við endurkomu eiginleika hans í öðrum líkama og annarri persónu. Andinn stíg- ur niður af himni, en líkaminn fæðist af mennskri konu. Það var andi Krists, sem steig upp til himna eftir andlát hans, á sama hátt og hann steig niður af himni við fæðingu hans. (Sjá 6. kafla Jóhannesarguðspjalls, vers 38).“ Menn hafa misskil- ið orð spámannanna En þegar trúarbragðahöfund- ar eins og Jesús Kristur og fleiri hafa talað um andleg sannindi og notað líkingamál, hefur fólkið orðið það á að taka líkingamálið bókstaflega og haldið að verið væri að fjalla um efnislega hluti. Stjörnur tákna boðorð og dygðir Heimsendaspádómana, sem talað er um í Biblíunni og öðrum opinberum ritningum ber ekki að taka bókstaflega. Táknmálið hefur margar útleggingar, sem allar eru jafnsannar. Bahá’u’ll- áh, höfundur Bahá’i-trúarinnar, ílr uppfærslu Menntaskólans í Kópavogi á Lofti Odds Björnssonar. Þessir hringdu . . . Frábær sýning hjá menntaskólanum í Kópavogi Kópavogsbúi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Ég fór nýlega á sýningu leikklúbbs Menntaskólans í Kópavogi á leikriti Odds Björnssonar, Lofti, og nú langar mig að koma á framfæri þakklæti mínu til allra þeirra sem stóðu að þessari sýningu. Leikstjór- anum, Sólveigu Halldórsdóttur, hef- ur tekist alveg einstaklega vel upp með hópinn, því að ég segi fyrir mig, að mér finnst þetta með allra bestu skólasýningum sem ég hef séð. Mikil hljómlist er í ieikritinu og stjórnar einn nemendanna, Gunnsteinn Ólafsson, kór og hljómsveit, en lögin eru öll eftir hann og aðra nemendur skólans. Ég er reglulega stolt af þessu framtaki menntaskólanem- anna hér. Fyrirspurn um lands- málafélaRÍð Stefni Velvakandi hefur verið beðinn um að koma á framfæri fyrirspurn varðandi landsmálafélagið Stefni, sem starfaði af miklum krafti hér á 3. áratug aldarinnar. í því voru margir nafnkunnir menn, svo sem Jón Þorláksson, Klemens Jónsson landritari, Ólafur Thors o.fl. Vel- vakandi biður þá að hafa samband við sig sem geta gefið upplýsingar um starfsemi félagsins, fundargerð- arbækur o.s.frv. Um brunavarnir á sumardvalarheimilum Ein sem vill hyrgja brunninn áður en barnið er dottið ofan i hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mig langar til að beina þeirri fyrirspurn til þeirra félaga- samtaka sem reka sumardvalar- heimili fyrir börn hvernig háttað sé brunavörnum á viðkomandi heimil- um. Mér er kunnugt um að sums staðar hefur þessum málum verið áfátt á ýmsum sviðum, en þarna megum við ekki taka neina áhættu. Ég vonast eftir svari forsvarsmanna helstu félagasamtakanna við fyrir- spurn minni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.