Morgunblaðið - 26.04.1981, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981
37
■■■■■■■■■■■■■■
in§**
Mynd þessa tók Vigfús Sigurgeirsson fyrir meira en 20 árum, en þá var Árni Kristjánsson kvaddur sem skólastjóri Tónlistarskólans. Fremsta röð
frá vinstri: Fjölnir Stefánsson, Hermína S. Kristjánsson, Páll ísólfsson, Árni Kristjánsson, Anna Steingrímsdóttir, Rögnvaldur Sigurjónsson, Jón
Nordal og Helga Jónsdóttir. Miðröð f.v.: Ásgeir Beinteinsson, Jakobína Axelsdóttir, Björn Ólafsson, Kolbrún Jónasdóttir, Jón Þórarinsson, Helga
Egilsson, Hólmfríður Sigurjónsdóttir, Björn Jónsson, Þorgerður Þorgeirsdóttir, Gísli Magnússon, Kristín Pálsdóttir, Þorsteinn Hannesson og
Guðmundur Matthíasson. Aftasta röð f.v.: Þórdís Guðmundsdóttir, Egill Jónsson, Ingvar Jónasson, Stella Margrét Sigurjónsdóttir, Einar
Vigfússon, Guðmundur Jónsson, Hulda Kristinsdóttir, Karl Ottó Runólfsson og Helga Kristjánsdóttir.
Tónlistarskólinn siðmenntar
nemendur sína með tónlistinni
Hér er Árni Kristjánsson (lengst til vinstri) með þeim Askenasy og
Gunnari heitnum Guðmundssyni.
- segir Árni
Kristjánsson
fyrrum skóla-
stjóri skólans
SKÓLASTJÓRI Tónlistarskólans
í Reykjavík í mörg ár var Árni
Kristjánsson pianóieikari, en
hann kom að skólanum árið 1933.
Var skólinn þá í þann veginn að
hefja fjórða starfsár sitt, segir
Árni, en hann fylgdi skólanum
allt til ársins 1959. Hann er
spurður um aðstöðuna fyrstu
árin og hvar skólinn hafi verið til
húsa:
— Skólinn fékk inni í Hljóm-
skálanum við Tjörnina, húsi
Lúðrasveitar Reykjavíkur. Það
húsnæði var engan veginn til þess
fallið að hýsa slíkan skóla, en varð
samt að duga okkur í mörg ár. Það
er lakur skúti, sem ekki er betri en
úti, segir máltækið og ríkulegar
var ekki hægt að búa að þessum
nýja skóla.
Það var út af fyrir sig mesta
ágætisverk, að koma skólanum á
fót og sjá honum farborða og eiga
stofnendur hans, Tónlistarfélagið,
eða „postularnir tólf“, ævarandi
þakkir skildar fyrir það framtak
sitt. En ekki þvertek ég fyrir að
veður og vindar hafi nætt um
kennara og nemendur í þes9um
turni við Tjörnina. Þó var þarna
vorfagurt, vonin 9Ígræn og trú á
að turn stefndi til hæða. Unnu þvi
allir vel undir stjórn fyrsta skóla-
stjórans, forgangsmannsins Páls
ísólfssonar, og með góðum árangri
að ég hygg. En ef bera á saman
aðbúnað skólans þá og nú, afdrep
frumbýlingsáranna við núverandi
húsakost og bjargálna rekstur, er
hætt við að eitthvað hallaðist á.
En hvað um menntunina, — í
hvaða skyni sóttu nemendur um
skólavist, til að auka almenna
menntun sína eða til að búa sig
undir störf sem kennarar eða
hljóðfæraleikarar?
— Svona hvorttveggja og bæði!
Skólinn setti sér þegar í upphafi
____Árni Kristjánsson
vega það tvíþætta markmið, að í
fyrsta lagi „veita efnilegum nem-
endum staðgóða og alhliða tónlist-
armenntun og búa þá undir störf
tónlistarmanna og tónlistarkenn-
ara“ og í öðru lagi „að stuðla að
sem víðtækastri tónlistariðkun í
landinu". Þetta markmið réði að
sjálfsögðu starfi skólans og mót-
aði stefnuna. Að ferill skólans hafi
orðið farsæll og að honum hafi
tekizt eftir vonum að halda í
horfinu sést bezt af því, að varla
mun sá tónlistarmaður íslenzkur,
sem ekki á Tónlistarskólanum
vegarnesti sitt að þakka. Ekki
hvað sízt hljóðfæraleikarar í Sin-
fóníuhljómsveit Islands.
Hverjar telur þú vera helztu
breytingarnar, sem á skólanum
hafa orðið á 50 ára ferli hans?
— Breytingarnar eru miklar og
margar og allar til batnaðar.
Þannig á það að vera. Skóli, sem
stendur í stað, er dauður skóli.
Okkar skóli hefir tekið algerum
hamskiptum á þeim fimm áratug-
um, sem liðnir eru frá stofnun
hans. Mestum framförum hefir
skólinn tekið í tíð Jóns Nordals
síðustu tvo áratugina, eða frá því
að kennaradeildin kom til sögunn-
ar og ríkið tók að sér reksturinn
að hálfu leyti.
Örvar hvað annað, skólinn og sú
stétt uppfræðara og tónmennta-
kennara, sem hann hefir af sér
alið. Eins og vegir skapa vegfar-
endur, má segja, að skólar skapi
nemendur og nemendur náms-
greinar, en þær eru orðnar svo
margar, að engum er synjað um
það, sem hugur stendur til. Væri
óskandi að þetta júbilár skólans,
hið fimmtugasta, verði hvatning
til að ýta svo undir hann, að hann
lyftist á enn hærra stig og verði
það sem hann á að verða, Tónlist-
arháskóli íslands, æðsta mennta-
stofnun landsins í sinni grein,
tónlistarakademía, er móti tón-
listaruppeldi landsins barna og
veiti nemendum sínum menntun
sambærilega við það, sem þekkist
í tónlistarháskólum með öðrum
þjóðum.
Er þá námið ekki viðurkennt
eins og er eða líta menn á það sem
tómstundagaman?
— Tómstundagaman! Talaðu
ekki niðrandi um það. Jú, próf úr
kennaradeild skólans eru löggilt,
ef svo má segja, og önnur próf
hafa einnig sitt gildi, þó að þau
veiti engin sérstök réttindi. Þau
eru viðurkennd af starfandi tón-
listarmönnum sem vitnisburður
um að sá, er lokið hefir, sé fær í
sinni grein og fullnægi þeim
kröfum, sem skólinn telur nauð-
synlegar. Þess ber að minnast, að
skólinn er enn að hálfu leyti
einkaskóli og því ekki fullvalda.
En svo er það tómstundagaman-
ið?
— Já, ég tel að sá, sem tónlist
nemur, geri það ekki einungis í því
skyni, að hafa gaman eða unun af
því sjálfur, sem þó í mínum
augum er lofsvert í sjálfu sér,
heldur einnig til að geta notið með
öðrum þeirrar tónlistar, sem hann
lærir. En á þann hátt myndast
víxláhrif af þeim straumi andans,
sem við köllum menningu. „Al-
menn menntun," segir franskur
kúnstfílósóf, Élie Fauré, „leiðir *
ekki endilega til fegurðarskyns;
fegurðarnæmi (sem af listiðkun S
hlýzt) hins vegar óhjákvæmilega
til almennrar menntunar."
Þar með er ég kominn að því,
sem ég vildi að lokum segja um
Tónlistarskólann honum til verð-
ugs hróss: Tónlistarskólinn er
siðbetrandi stofnun og hefir sýnt
það. Hann elur nemendur sína upp
í góðum siðum, siðmenntar þá með
tónlist. Tómstundagaman getur
líka orðið til góðs. Það er enginn
dóni, sem getur leikið fúgu eftir
Bach!
Verzlunar-
nefnd verði
neytenda-
nefnd
BANDALAG kvenna í Reykjavík
gerði eftirfarandi samþykktir á
aðalfundi sínum nýlega:
Verðlags- og verslunarnefnd
BKR leggur til við aðalfund 1981,
að nefndinni verði breytt í neyt-
endanefnd, sem kosin verði á
sama hátt og aðrar nefndir
Bandalagsins á aðalfundi þess.
Einnig gerum við það að tillögu
okkar, að nefndarkonur verði 5.
Aðalfundur Bandalags kvenna í
Reykjavík, haldinn dagana 22. og
23. febrúar 1981, skorar á ráða-
menn Ríkisútvarpsins-sjónvarps
að hlutast til um, að tekin verði
tafarlaust til sýningar kvikmynd
frá Kvennaráðstefnunni í Kaup-
mannahöfn í júlí sl.
Frá lögreglunni:
Vitni vantar
að ákeyrslum
Slysarannsóknadeild lögregl-
unnar í Reykjavik hefur beðlð
Morgunblaðið að auglýsa eftir
vitnum að eftirtöldum ákeyrslum
i borginni að undanförnu. Þeir,
sem veitt geta lögreglunni upp-
lýsingar sem að gagni kunna að
koma eru beðnir að hringja sem
allra fyrst i sima 10200:
Sunnudaginn 12. apríl sl. var
ekið á bifreiðina R-57431 sem er
Cortina 1600, blá að lit, við
Tækniskólann á Höfðabakka 9,
Rvík. Átti sér stað frá kl. 14.30 tií
18.00. Hægri hurð er skemmd á
bifreiðinni.
Mánudaginn 13. apríl sl. var
ekið á bifreiðina R-72625 sem er
Moskwitch fólksbifreið, dökk-
græn, á bifreiðastæði austan við
hús nr. 5 í Skeifunni. Átti sér stað
frá kl. 18.05 til 18.24. Vinstra
framaurbretti er skemmt. Er
rautt í skemmdinni.
Fimmtudaginn 16. apríl sl. var
ekið á bifreiðina G-8096 sem er
Volvo fólksbifreið, orangelituð, við
Árberg í Ármúla. Átti sér stað frá
kl. 12.00 til 13.00. Skemmd er á
vinstra afturaurbretti.
Föstudaginn 17. apríl sl. var
ekið á bifreiðina R-56079 sem er
Volvu 1978, grænn að lit, á Ránar-
götu við hús nr. 32. Tjónvaldur
gæti verið rauð Volvo-bifreið, ár-
gerð 1971—1972. Skemmd á R-
56079 er á vinstri framhurð.
Skemmd á tjónvaldi er á hægra
framaurbretti og hurð.
Þriðjudaginn 21. apríl sl. var
ekið á bifreiðina R-60664 sem er
Ford Pinto fólksbifreið, blá að lit,
á bifreiðastæði við Austurstræti 3.
Átti sér stað frá kl. 09.00 til 10.10
og er bifreiðin skemmd á hægra
afturhöggvarahorni. Tjónvaldur
er drapplituð bifreið.
Þriðjudaginn 21. apríl var til-
kynnt að ekið hefði verið á bifreið-
ina X-3939, sem er Ford Capri
fólksbifreið, á Dyngjuvegi við
Langholtsveg. X-3939 stóð við
syðri götubrún Dyngjuvegar.
Skemmmd er á vinstra afturaur-
bretti og hurð. Bifreiðinni X-3939
var lagt á fyrrgreindum stað þann
16. apríl sl. en trúlega hefur
skemmdin komið á bifreiðina að-
faranótt þess 21. apríl. Tjónvaldur
gæti verið Lada-bifreið eða
Moskwitch.