Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981 Umsjón: Séra Jóv Dalbú Hróbjartsson Séra Karl Siyvrbjörnsson Sigvrövr Pdlsxon AUDROTTINSDEGI - FRÉTTAMOLAR - Ný Biblía í Kína I Noregi hefur sl. 3 ár verið starfandi nefnd, sem unnið hefur að fjársöfnun til útgáfu á nýrri Biblíu á kínversku. Þegar nefndin hætti störfum nú fyrir skömmu höfðu safnast um 1,3 millj. norskra króna. Nefndin hafði það sem markmið að aðstoða Sameinuðu Biblíufélögin við að prenta og dreifa Biblíum í Kína. Kínverska Biblíufélagið hefur nú fengið nýju Biblíuna til dreifingar. Deilt um fóstureyðingar íUSA Enn á ný hefur orðið tíðrætt um fóstureyðingar í Bandaríkj- um Norður-Ameríku. Nú virðast andstæðingar frjálsra fóstureyð- inga hafa fengið byr undir báða vængi, því margir ráðamenn landsins hafa fylgt flokk þeirra. Má þar nefna forsetann Ronald Reagan og heilbrigðisráðherr- ann Richard Schweiker. Mark- mið andstæðinga frjálsra fóstur- eyðinga er að nema úr gildi lögin frá 1973. Þeir sem vilja halda í núverandi fyrirkomulag hamra á því að hinir vilji jafnframt koma inn lögum um að banna p-pilluna og lykkjuna. Ekki alls fyrir löngu tókst andstæðingum frjálsra fóstur- eyðinga að safna 50 þús. manns í fjöldagöngu í Washington til stuðnings kröfum sínum. Ástæðan fyrir því að þörfin fyrir Biblíur er svo mikil í Kína er sú að meðan á menningarbyltingunni stóð voru allar Biblíur og allt kristilegt lesefni gert upptækt. Á allra síðustu misserum er sala á Biblíum orðin frjáls og er eftirspurnin gífurleg. Einnig má geta þess að nú eru kirkjur í Kína ákaflega vel sóttar, enda þorir fólk nú að kannast við trú sína. 2.700 milljónir manna hafa ekki heyrt fagnaðarerindið Enn er það svo að um 2.700 milljónir manna hafa ekki heyrt fagnaðarerindi kristinnar trúar. Þ.e. yfir % hiutar jarðarbúa. Stærsti hluti þessa fólks eru hindúar, múhameðstrúarfólk og Kínverjar, en það eru 75% þeirra sem ekki eru kristnir. Afur á móti eru 50—70 þúsundir manna sem bætast í hóp kristinna manna á hverjum einasta degi, sem þó er ekki meira en ’/s af fólksfjölguninni í heiminum. Kristilegur grunnskóli Fyrir 9 árum var stofnsettur kristilegur grunnskpli í Gautaborg. Fyrsta árið voru aðeins 25 nemendur í skólanum. Nú er svo komið að yfir 4000 nemendur standa í biðröðum til að láta innrita sig í skólann. Skóiinn hefur fengið svo góðan stuðning frá kristnu fólki sem vill að börnin fái kristilegt uppeldi, að næsta haust byrjar fyrsti bekkur á menntaskólastigi. Það er að segja börnin sem byrjuðu í skólanum fá nú að halda áfram í sama skóla og fá sína f ramhaldsmenntun. Ný hempa 1. apríl sl. fengu norskir prestar leyfi til að klæðast nýrri hempu, sem sumir prestar hafa reyndar þegar notað um nokkurt skeið til reynsiu. I nær 20 ár hafa verið uppi ráðagerðir um að breyta embættisklæðnaði presta. Þótt svo þessi breyting sé gengin yfir geta menn enn notað gömlu hempuna, ef þeir vilja. Nýi klæðnaðurinn er gerður úr þykku hvítu efni. Einnig fylgja tvær stólur, sem bera liti kirkjuársins sitt hvorum megin. Um mittið er bundið þar til gert belti. Nýja hempan er gerð í Belgíu, en fyrirtækið þar gerir svipaðar hempur fyrir flest lönd í Evrópu. Aðeins Danmörk og ísland nota ennþá „gömlu hempuna. Nýja norska hempan er helmingi ódýrari en sú gamla. Kristnir menn ofsóttir í Albaníu Flóttafólk sem komist hefur til Júgóslavíu frá Albaníu segir frá nýjum ofsóknum á hendur kristnum mönnum í landinu. Samkvæmt þessum upplýsingum er nú verið að reyna að útrýma síðustu leifum trúarbragða í landinu. Ofsóknirnar beinast jafnt gegn kristnum mönnum og öðrum sem hafa undir höndum trúarlegar bókmenntir. Öll trúariðkun hefur verið bönnuð í landinu frá árinu 1957 og frá 1976 hefur stjórn landsins staðhæft að Albanía sé fyrsta land veraldar sem hefur útrýmt trúarbrögðum. Næstum allar kirkjur og moskur landins hafa verið eyði- lagðar eða breytt i veitingahús eða vörugeymslur. Fáein kirkju- hús fá enn að standa sem listaverk. Flóttafólkið staðhæfir að þrátt fyrir ofsóknir og hótanir séu enn margir sem iðka trú sína á laun. Næstum 70 milljón- ir lútherskra manna í heiminum Árið 1980 voru rúmlega 69,6 milljónir lútherskra kristinna manna í heiminum samkvæmt tölum frá Lútherska heims- sambandinu. Heimssambandið hefur innan sinna samtaka 98 kirkjur með yfir 54 milljónir manna en utan sambandsins eru 15,6 milljónir. Heildartalan er svipuð því sem verið hefur und- anfarin ár. Þótt svo lútherskum fækki í Evrópu jafnast það upp með mikilli fjölgun í Afríku og Asíu. En í báðum þessum heims- álfum fer kristnum mönnum mjög ört fjölgandi. 1. sunnudagur eftir páska Jóh. 20, 19—31 „Drottinn minn og Guð minn!(( Þetta var játning Tómasar andspænis hinum upprisna Kristi. Þetta er jafnframt játning Nýja testamentisins og kirkjunnar, því aö hún er kölluð til að vitna um þessa trú og lifa i samfélagi við hinn upprisna Jesú, sem er Drottinn og Guð. Upprisa Jesú er forsenda þessarar játn- ingar. Hún leiðir það i Ijós, að Jesús hafði á réttu að standa, en ekki andstæðingar hans. Hann var dæmdur til dauða vegna þess að hann „gerði sjálfan sig að Guðs syni!“ Hann hafði sagt það oftar en einu sinni: „Ég og faðirinn erum eitt.“ „Sá sem hefur séð mig hefur séð föðurinn.“ Og þegar Jesús spurði lærisveina sína: „Hvern segið þér mig vera?“ þá svaraði Pétur: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs!“ Jesús hrósaði honumfyrir það svar, og sagði, að Guð sjálfur hefði gefið Pétri þá innsýn, sem það tjáði, og að á þessari játningu myndi hann byggja samfélag lærisveina sinna, kirkju sína. Þetta er líka samdóma vitnisburður Nýja testamentisins. Jóhannes lýkur guðspjalli sinu með orðunum: „... en þetta er ritað til þess að þér skuluð trúa, að Jesús sé Kristur, Guðs sonurinn, og til þess að þér með þvi að trúa, öðlist lífið i hans nafni.“ Hvernig sambandi Jesú og Föðurins er háttað er siðan lýst með myndum og táknum i Nýja testamentinu og játningum kirkjunnar. „Hann er imynd hins ósýnilega Guðs,“ segir Páll. Og elstu játningar kirkjunnar segja: Jesús er „Guð af Guði, Ijós af Ijósi, sannur Guð af Guði sönnum ... samur föðurnum.“ Allt eru þetta tilraunir til að fanga i mannlegri hugsun þann leyndardóm, sem er ofar öllum mannlegum skilningi og tjáningarmöguleikum reyndar. Ekkert af því er sett sem ófrávikjanleg skilyrði, sem þú verður að gangast undir. Jesús setti lærisveinum sínum engin slik skilyrði. Hann sagði einfaldlega við þá: „Fylg þú mér!44 og þeir fylgdu honum. Guðspjöllin sýna okkur siðan torsótta leið þeirra til þeirrar innsýnar, sem Tómas tjáir með játningu sinni i guðspjalli dagsins: „Drott- inn minn og Guð minn!“ Sú innsýn er dásamleg gjöf það að geta séð og reiknað með þvi, að i Jesú Kristi mætum við sjálfum Guði, og í orðum hans heyrum við likn, miskunnsemi og kærleika Guðs. Biblíulestur Vikuna 26. apríl — 2. maí Sunnudagur 26. apríl Mánudagur 27. apríl Þriðjudagur 28. apríl Miðvikudagur 29. apríl Fimmtudagur 30. april Föstudagur 1. mai Laugardagur 2. mai Jóh. 20. 19—31 II. Tim. 1:6—10 II. Tim. 2:1—5 I. Pét. 1: 22—25 I. Tím. 1:12—17 I. Pét. 1: 3—9 . Jónas. 2: 1—11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.