Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 26.04.1981, Blaðsíða 6
38 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981 ÆVINTÝRAPRINSESSAN KROSSFESTING — Tveir Filipseyingar með höfuð- búnað, sem á að heita eftirlíking af hjálmum rómverskra hermanna, búa sig undir að negla fætur Luciönu Rovez við pallinn sm hún stendur á í Bulacan-héraði á Filipseyjum. Hin tuttugu og fjögra ára gamla iðnverkakona lét krossfesta sig á föstudaginn langa til þess að freista þess að létta syndafarginu af veröldinni eins og það var orðað. Mesti fjöldi af vísindamönnum, sérfræðinKum í sýklahernaði or gömlum generálum hefur borið vitni fyrir héraðsdómi þar sem málið er rakið og segja má, að málflutningi þeirra verði best lýst með orðum eins vitnis stjórnar- innar, sem sagði, að San Fran- cisco-búar hefðu enga ástæðu til að vera óánægðir, miklu fremur mættu þeir vera hreyknir af framlagi sínu til þessara leyni- legu tilrauna, sem hefðu veitt ómetanlegar upplýsingar um það hvernig brugðist,skyldi við sov- éskri sýklaárás. Nevin-fjölskyldan, sem á sér langa og merka sögu fyrir afskipti sín af löggjafarmálum í Kali- forníu, er hér á öðru máli og heldur því fram, að afi þeirra hafi verið fórnarlamb kalda stríðsins og þeirrar vitfirringar, sem kennd er við McCarthy. - WILLIAM SCOBIE í 43 athugunarstöðvum í landi varð vart við mikið af sýklum og allt að 35 km inn í landi. Þegar athugunartíminn var lengdur úr tveimur stundum í fjórar jókst magnið svo, að það var tvítugfalt það, sem fyrr mældist. Bandaríski herinn dró þessar ályktanir af tilraununum: „Það gæti verið ákaflega árangursríkt að ráðast á hafnarborg með sýkla- vopnum ... ef skilyrðin eru hag- stæð.“ Talsmenn hersins halda því fram, að sýklarnir, sem notaðir voru við tilraunirnar, BaciIIi gol- bigii og Serratia marcescens, hafi verið hættulausir, en Nevin held- ur því fram á móti, að opinber gögn sýni, að Serratia valdi sjúk- dómum þegar um „mikið magn“ er að ræða. Fjórum dögum eftir síðustu tilraunina fékk Nevin gamli lungnabólgu, sem dró hann til dauða fimm vikum seinna. Oak- land-flóa- hrúin. sem er yfir átta mílna lónu. rins ok gnæfir hér yfir San Francisco. Það var út af flóanum scm tundur- duflasla,ðar- inn da ldi sýklun- um inn yfir borgina. Merkisdagur í Mónakó Einu sinni var myndarlegur prins, sem kom auga á fallega leikkonu í kastalanum sínum. Ari síðar voru þau gift og þannig varð að veruleika eitt stærsta ástarævintýri aldarinnar. Grace Kelly, sem áður var þekkt bandarísk leikkona, og Rainer III, íursti af Mónakó, héldu nýverið hátíðlegt silfur- hrúðkaup sitt. og hafa þar með sannað, að öil falleg ævintýri enda vel, því að engan skugga kvað hafa borið á hamingjusól þeirra. Ymislegt hefur þó breytzt frá því þau voru gefin saman í borgaralegt hjónaband, 18. apríl 1956, og hlutu kirkjulega hjóna- vígslu degi síðar. Grace hefur gildnað dálítið um mjaðmirnar og furstinn gránað í vöngum. Eigi að síður hefur ástarævintýrið, sem á sínum tíma gerði það að verkum, að 1.600 blaðamenn flykktust til dvergríkisins Mónakó, orðið harla lífseigt. Nadia Lacoste, sem hefur verið talsmaður Grace prinsessu frá því á fyrsta hjónabandsári hennar, segir, að þau hjónin beri enn mikla ást í brjósti hvors til annars, en það sé annars konar ást en fyrir aldarfjórðungi. „Ástríð- urnar eru horfnar. Það er al- kunna, að ástríður endast ekki alla ævi. Ástríður furstahjónanna hafa vikið fyrir hlýjum og varan- legum kærleika." Þau hjónin hafa eignazt þ. mannvænleg börn, sem öll eru úi grasi vaxin. Karólína prinsessa er nú 24 ára að aldri og hefur verið mikill blaðamatur frá því að hún skildi við mann sinn, glaumgosann Philippe Junot. Albert krónprins er 23ja ára að aldri og Stefanía prinsessa varð nýlega 16 ára. Furstahjónin hafa játið sér mjög annt um börn sín. Samband þeirra hefur einkennzt af virðingu fyrir hinu hefðbundna hlutverki karls og konu í hjónabandi. Grace fórnaði glæsilegum ferli sem kvik- myndastjarna til þess að geta helgað sig eiginmanni og fjöl- skyldu. Rainer sagði skilið við litríka fortíð og gerðist sómakær fjölskyldufaðir. Nánir vinir fjölskyldunnar segja, að Rainer fursti hafi lagt sig allan fram um að hjónaband hans gæti orðið endingargott vegna þess að skilnaður foreldra hans á sínum tíma hafi orðið honum mjög þungbær. Að sjálfsögðu hafa ýmis vanda- mál skyggt á tilveruna hjá þeim hjónum. Meðal annars hafa þau alla tíð orðið fyrir mikilli ágengni af hálfu blaðamanna. Blaðamenn hafa haft óseðjandi áhuga á þeim allt frá því að fundum þeirra bar fyrst saman. Það var árið 1955, er Grace Kelly, þá 25 ára að aldri, var aðalstjarn- an á kvikmyndahátíðinni í Cann- es. Hún hafði unnið til verðlauna fyrir túlkun sína í kvikmyndinni „The Country Girl“ sem gerð var árið 1954, en þar lék hún á móti Bing Crosby. Hún hafði einnig farið með aðalhlutverk í ýmsum kvikmyndum Alfred Hitchcocks, svo sem „Dial M for Murder", „Rear Window" og „To Catch a Thief“. Á meðan Grace dvaldist í Cann- es þótti einum ljósmyndaranum ekki við hæfi að taka af henni venjulega mynd í baðfötum á ströndinni, heldur bað hann um leyfi til að fá að ljósmynda hana í Mónakókastala. Leyfið var fúslega veitt. Og þarna í kastalanum, sem gnæfir við blátt Miðjarðarhafið, bar saman fundum þeirra Rainers fursta og Grace Kellys. Eftir að hún fór aftur til Hollywood höfðu þau bréfasamband sín í milli. Síðan fór Rainer fursti til Banda- ríkjanna og í janúar 1956 opinber- uðu þau trúlofun sína á heimili föður Grace, sem var írskur bygg- ingaverkamaður, er gerðist millj- ónamæringur. Hjónavígslan vakti svo mikla athygli, að Grace prinsessa orðaði þetta einu sinni þannig við vin- konu sína, að myndavélalinsur hefðu verið á bak við hvert einasta blóm við athöfnina. - CAROLYN LESII GRACE — Fórnaði frægðinni RAINER — Sárar endurminningar SYKLAHERNAÐUR Þegar Kaninn réðist á San Francisco Á dögum kalda striðsins, um miðja þessa öld, lést maður nokkur í San Francisco i Banda- rikjunum. Það væri svo sem ekki i frásögur færandi nema vegna þess að nú, 31 ári síðar, hefur verið krafist 12 milljóna dollara i skaðabætur fyrir lát þessa manns og mál höfðað á hendur Pentagon fyrir að hafa látið hlása skýjum mettuðum sýklagróðri yfir San Francisco, þessa „perlu bandariskra borga“, þegar gerðar voru til- raunir mcð notkun sýkla i hern- aði. Fyrir Nevin-fjölskylduna í San Francisco er málshöfðunin árang- ur fjögurra ára langrar baráttu fyrir því að sanna, að banamein afa þeirra, sem lést 1951, megi rekja beint til sýklahernaðartil- rauna Bandaríkjahers. Talsmenn hersins viðurkenna að vísu, að um 800.000 manns hafi andað að sér ósýnilegum sýklagróðrinum en halda því þó fram, að þessi sýklar hafi ekki getað valdið sjúkdómum og að tilraunin hafi auk þess verið „ákaflega mikilvæg vörnum Bandaríkjanna". Allt frá 1977 hafa skjöl og skýrslur um SH (eins og sýkla- hernaður kallast í Pentagon) ver- ið að safnast saman á lögfræði- skrifstofu Edward Nevins III, sem er virtur lögfræðingur í San Francisco. Og í öllu þessu skjala- flóði er engin frásögn undarlegri en sú, þar sem sagt er frá tilraunum hersins úti fyrir San Francisco-flóa. Þar kemur fram, að sex sinnum á einni viku, frá 20.—27. september 1950, hafi grandalausir borgarbúar orðið fyrir SH-árás. Frá tundurduflaslæðara, sem látinn var sigla fimm mílur sjáv- ar skammt undan ströndinni, var sýklum dælt upp í loftið og hafgolan síðan látin um að bera þá inn yfir borgina. Notuð vpr frumstæð „sýklabyssa" og s* j hver tilraun yfir í 30 mínútu. 'n við síðustu tilraunina olli lag- skipting loftsins yfir San Fran- cisco því, að sýklarnir héldust yfir borginni klukkustundum saman.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.