Morgunblaðið - 26.04.1981, Síða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. APRÍL 1981
Pottarím
Umsjón: SIGRÚN
DAVÍDSDÓTTIR
UM daginn var ég með smá
hugleiðingu um osta, og talaði
um að það væri býsna áríðandi
að þeir fengju að þroskast um
stund áður en þeir væru seldir.
Og einnig að það væri sjálfsagt
að kaupa osta í stórum bitum og
velja ost með því að fá að bragða
á honum í búðinni, eins og hægt
er í búðum Osta- og smjörsöl-
unnar.
Erlendis eru víða sérstök
ostaborð eða ostadeildir í búð-
um, þar sem fólk getur fengið að
bragða á ostum og þegið leið-
beiningar hjá afgreiðslufólkinu.
Það þarf víst ekki að taka fram,
að slíkt er ekki til í einni einustu
kjörbúð hér. Ástæðurnar eru
sennilega einkum tvær. Annars
vegar er lág álagning á ostum,
þannig að það þykir ekki borga
sig að hafa svona mikið við þá.
Hinsvegar hefur löngum verið
talið, að ostamenning væri á svo
lágu stigi hér, að svona nokkuð
myndi vart borga sig, eða vekja
neina sérstaka athygli. Varð-
andi fyrri liðinn veit ég ekki
betur en stanzlaust sé verið að
tala um meiri, betri, bættari og
fjölbreyttari þjónustu við allt og
alla, og þetta væri vissulega
þjónusta við viðskiptavini. Það
er erfitt að meta svona nokkuð
til hagnaðar, en ég er viss um að
ýmsir sæktust eftir að verzla í
búð, sem hefði ostaborð. Þetta
með ostamenninguna er kannski
að einhverju leyti satt. Þó virð-
ist þeim ostum, sem settir hafa
verið á markað, hafa verið vel
tekið. Það er oft nefnt til að
sterkir ostar eigi ekki upp á
pallborðið hjá okkur. En þá má
minna á, að það er svo ljómandi
þægilegt að eiga við osta. Suma
má selja nýja, ensuma má láta
liggja og fá bragoSsem bragð er
að.
Þannig er hægt að gera öllum
til hæfis. Vísast kostar eitthvað
að geyma osta. En það er
hugsanlegt að selja slíka osta
dýrara verði, eða að finna ein-
hverja jöfnunarleið. Ef farið
væri að bjóða þroskaða osta á
sérstökum ostaborðum stór-
verzlana, seldist kannski ekki
allt upp á fyrsta degi, en ég er
ekki í nokkrum vafa um að slíkt
yrði vinsælt, svona smám sam-
an.
Nú er hafður uppi áróður bæði
í Svíþjóð og Danmörku fyrir því,
að fólk kaupi og eigi bæði
sterkan og mildan ost. Einnig
þar hefur hlut mildra osta lengi
verið haldið fram, en nú er verið
að vekja athygli á öðrum ostum.
Ég sá í blaði auglýsingu frá
sænskum ostabúum um bækling,
sem eru vaktar 20 gildar ástæð-
ur fyrir því að hafa tvær tegund-
ir osta við hendina. Helzta
röksemdin var auðvitað sú, að
smekkur manna er misjafn.
Ekki væri hægt að gera öllum til
hæfis með einni tegund af
bragðdaufum osti, því sumir
kysu hann bragðsterkan. Ef til
væru tveir mismunandi ostar,
væri alltaf hægt að bjóða upp á
góða ostarétti og ostasnarl.
Mórallinn er, að það ætti að
hampa ostunum meira, og
ostabúin ættu að sjá til þess að
eitthvað af þeirra ágætu ostum
fengi að liggja og þroskast,
ostaunnendum til yndis og án-
ægju...
Góða skemmtun!
Kotasæla
Þessi tegund af osti, þ.e.
hleypt mjólk en ófergð, er þekkt
mjög víða. Osturinn flokkast
sem nýostur, það er ostur, sem
er ekki geymdur og látinn þrosk-
ast. Hann hefur sennilega fyrr-
um þótt hálfgerð fátækrafæða,
því hann er víða kenndur við kot
Kotasæla er nýlega komin á
markaðinn, framleidd fyrir
norðan hjá KEA á Akureyri.
Mér fannst nafnið hálf hallæris-
legt fyrst, og hélt að þetta væri
einhver uppátekt, en svo er ekki,
því þetta er gamalt nafn á rétti
úr ystri mjólk, blandaðri smjöri,
og er ættað úr Kjósinni. Annars
hefur svona ostur verið þekktur
undir nafninu mjólkurdrafli,
sem mér finnst skemmtilegt.
eða kotunga. Hann er m.a.
þekktur í nágrannalöndunum,
Englandi og svo í Austur-
Evrópu og áfram austur eftir.
Auk þess sem hann á sér fastan
Sess í hefðbundinni matargerð
þessara svæða, hefur hann verið
•vinsæll undanfarin ár, því hann
er nærandi. en þó mjög magur,
og það ketniir sér víst vel fyrir
flesta. Það er ekki erfitt að
"oenda á nokkrar leiðir til að
nýta sér kotasæluna á góðan og
ljúffengan hátt...
Mér þótti kotasælan ekki ýkja
merkileg þegar ég smakkaði
hana fyrst, en ég er komin á aðra
skoðun núna. Bragðið er milt og
frískandi og hún er býsna ljúf-
feng ein sér. Eintóm er hún
alveg tilvalin sem létt máltíð,
t.d. í hádeginu. Hún er ágæt
handa smábörnum, eintóm, eða
með nýjum ávöxtum eða græn-
meti.
Hún er góð ofan á brauð,
eintóm, og ekki sízt á hrökk-
brauð. Stökkt brauðið og mjúkur
osturinn ... Hrökkbrauð, kota-
sæla, ný gúrka og ofurlítill
pipar ... eða paprika í sað
gúrku...
Alls kyns ídýfur eru vinsælt
snarl og þar er kotasæla kjörið
hráefni. Kryddið hana með
hvítlauk og kryddjurtum, eða
kryddjurtum eingöngu, og svo
má ekki gleyma piparnum.
Krydduð kotasæla sómir sér
auðvitað ljómandi vel á brauð.
Og í stað þess að bera fram kex
með svona ídýfum, er grænmeti
ljómandi gott. Kotasæla er ein-
mitt góð með grænmeti, og því
er ekki úr vegi að nota hana með
grænmetissalati í stað sósu.
Ágætur og einfaldur forréttur er
grænmeti á diski, nýtt og fallega
skorið, og svo kotasæla í haug á
miðjum diskinum, e.t.v. krydd-
uð. Slíkt getur einnig verið
léttur málsverður, e.t.v. með
köldu kjöti eða fiski og svo góðu
brauði. Salat úr nýjum ávöxtum
og kotasælu er fyrirtaks eftir-
réttur.
En ekki má gleyma kotasæl-
unni í heita rétti. Látið t.d.
renna aðeins af henni í papp-
irskaffipoka, blandið rifnuð osti
í hana og setjið á mat, sem á að
baka í ofni. Þannig fáið þið
bragðgott ostaþak á matinn.
Kotasæla er góð í fiskgratin og
fiskfars, því hún gefur fyllingu
og skemmtilega áferð. í stað
þess að stappa hana í gegnum
sigti, er tilvalið að setja hana í
kvörn með fiski og eggjum. Svo
er tilvalið að nota kotasælu í
brauð og kökur, svo ekki sé
minnzt á pæa, eins og gert er t.d.
í Austur-Evrópu, þar sem þeir
kunna eitthvað fyrir sér í mat-
seldinni...
En kotasælu í kökur og bakst-
ur á ég væntanlega eftir að
nefna síðar.
Litmyndir
m
eru okkar
sérgrein!
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
HANS PETERSEN HF
BANKASTRÆTI GLÆSIBÆ AUSTURVERI
S: 20313 S: 82590 S: 36.161
Heilshugar þakkir færum við þeim félags-
samtökum, ættingjum og vinum sem styrkt
hafa okkur á einn eða annan hátt er við
misstum heimili okkar í bruna hinn 28.
desember sl. ,
Oskar Karelsson,
Gréta Guðjónsdóttir,
Miðtúni, Hvolshreppi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 102., 106. og 110. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1980, á Stórahjalla 15, þing-
lýstri eign Guönýjar Sverrisdóttur, fer fram á
eigninni sjálfri mánudaginn 4. maí 1981 kl. 10.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Erum fluttir
á jaröhæö í suövesturenda gengiö inn um sömu dyr og til Reykjavíkur. Símar: 26988 og Hafnarhússins Rafmagnsveitu 15821.
Jón Jóhannesson & Co. sf.