Morgunblaðið - 12.06.1981, Page 1
40SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
129. tbl. 68. árg.
FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Njósna um
nýjan kafbát
Waxhington, 11. júni. AP.
SOVÉZKT njósnaskip he£-
ur tekið sér stöðu út af
austurströnd Bandaríkj-
anna til að fylgjast með
ferðum fyrsta bandariska
kjarnorkukafbátsins af
Trident-gerð, sem hefur
reynslusiglingar í næstu
viku samkvæmt leyniþjón-
ustuheimildum í dag.
Trident-kafbátarnir eru
þeir stærstu, sem Banda-
ríkjamenn hafa byggt. Æf-
ingar með sovézka kjarn-
orkukafbáta, sem kallaðir
eru Typhoon, hófust á
norðurslóðum fyrr í vik-
unni.
1500
fórust í jarðskjálfta
Boirut. 11. júni. AP.
MIKILL jarðskjálfti varð í
Suður-íran í gær. Milli
1500 og 3000 manns létu lífið
og miklar skemmdir urðu.
Jarðskjálftinn mældist 6,9 á
Richter-kvarða
Björgunarstarf er hafið
og í kvöld unnu hjálpar-
sveitir að því að draga
fórnarlömb úr rústum
bygginga.
Manna-
skipti í
Tekkó-
slóvakíu
Pr»K. 11. júni. AP.
JOSEF Kempny var rekinn
úr stöðu ritara miðstjórnar
tékkneska kommúnista-
flokksins í dag að sögn
tékknesku fréttastofunnar.
Hann missti einnig sæti sitt
í framkvæmdastjórn flokks-
ins, en heldur sæti i flokks-
stjórninni.
Kempny var kjörinn ritari
miðstjórnar 16. nóvember
1968 tæpum þremur mánuð-
um eftir að Rússar réðust
inn í Tékkóslóvakíu. Franti-
sek Pitra tekur við stöðu
Kempnys og mun sjá um
landbúnaðarmál. Búast má
við frekari mannaskiptum í
stjórn landsins á næstunni.
Fundur miðstjórnarinnar
var kallaður saman til að
ræða niðurstöður þingkosn-
inga, sem haldnar voru um
síðustu helgi.
Anwar Sadat Egyptalandsforseti hlýðir á sendiherra ísraels i Kaíró, Moshe Sasson, sem afhenti forsetanum orðsendingu frá Begin
forsætisráðherra um árásina á kjarnorkustöðina i Bagdad.
Refsiadgerða Araba
gegn Israel krafizt
BaKdad. NicoKÍa. London. Jcrúsalrm. 4. júni. AP.
FULLTRÚAR allra Arabalandanna nema Egyptalands fóru fram á
efnahagslegar refsiaðgerðir gegn ísrael á fundi í Bagdad í dag vegna
árásar ísraclsmanna á kjarnorkuverið í írak. Khadafi, leiðtogi Líbýu,
skoraði á Arabalöndin í ræðu á útifundi i Tripoli, að eyðileggja
kjarnorkuver ísraela i Dimona i hefndarskyni.
Ronald Reagan Bandarikjaforseti hitti fimm sendiherra Araba-
landa í Washington og sagði að Philip Habib sáttamaður hans í
Miðausturlöndum myndi hefja sáttaviðræður að nýju innan skamms.
Dagblöð í Arabalöndunum hafa
gagnrýnt árás ísraelsmanna harð-
lega og ráðist á Bandaríkjamenn
fyrir að hafa selt ísraelsmönnum
þotur til árásarinnar. Jórdanska
blaðið Ad-Dastour skoraði á
Arabaríkin að slíta sambandi við
stjórn Reagans og setja á olíuút-
flutningsbann.
Sex sendiherrar Arabalanda í
London skoruðu á stjórnvöld þar
að styðja tillögur hjá Sameinuðu
þjóðunum og annars staðar sem
stefnt er gegn ísrael. En ýmislegt
bendir til, að árás ísraelsmanna
hafi ekki valdið öllum Vestrænum
þjóðum og Arabaþjóðum von-
brigðum.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra Israel, sagði að hann væri
ekki mjög áhyggjufullur vegna
ákvörðunar Bandaríkjastjórnar
um að hætta við sölu fjögurra
stríðsþota til ísraels vegna árás-
arinnar. Hann lét ófögur orð falla
um Caspar Weinberger varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna og
sagði hann hafa viljað hætta allri
aðstoð við ísrael. Hann kvaðst viss
um að ísraelsmenn fengju vélarn-
ar á endanum.
Begin kvað jafnvel sterkar að
orði í kosningaræðu og spurði
hvers konar siðgæði Weinberger
aðhylltist. „írakar ætluðu að kasta
atómsprengjum á börn ísraels,"
hrópaði Begin. „Vissirðu ekki að
einni og hálfri milljón Gyðinga-
barna var fleygt í gasofnana?
Hverjum ertu að reyna að refsa
herra ráðherra?"
Spennan í Líbanon jókst í dag
eftir árás ísraelsmanna á þorp á
gæzlusvæði SÞ. Tvennt féll í
árásinni og fimm biðu bana og 40
særðust af völdum bílasprengju í
Tyros.
Assad Sýrlandsforseti hótaði
jafnframt að granda ísraelskum
flugvélum, ef þær réðust á sýr-
lenzkar loftvarnaflaugar, en hélt
opnum möguleika á lausn deilunn-
ar fyrir milligöngu Bandaríkja-
manna.
Vandasöm jafnvaegislist
bíður Kania í Póllandi
Varsjú. Muskvu. 11. júni. AP.
PÓLSKI kommúnistaleiðtoginn Stanislaw Kania virðist hafa
unnið mikinn sigur i valdabaráttunni í kommúnistaflokknum í
Póllandi en stendur nú frammi fyrir því að efna loforð um
frekari umbætur i landinu og koma á lögum og reglu eins og
hann hefur lofað Sovétmönnum.
Rússar birtu í dag bréfið sem
varð til þess að miðstjórn
pólska kommúnistaflokksins
var kölluð saman til fundar og
hefur að geyma viðvaranir
vegna þróunarinnar í Póllandi
er ógni öllum kommúnistaríkj-
um.
Langar biðraðir mynduðust
við blaðsöluturna í dag í Pól-
landi vegna áhuga fólks á að
kynna sér efni bréfsins í blöð-
um.
Verkalýðshreyfingin Sam-
staða sagði í dag að hún myndi
halda áfram að vinna með
pólsku stjórninni en myndi ekki
láta utanaðkomandi afskipti af
innanríkismálum Póllands við-
gangast.
í Búlgaríu var tilkynnt að
ferðamönnum frá Póllandi yrði
ekki leyft að koma til landsins.
Kania sagði í ræðu sem var
birt í dag að tími væri kominn
til að hefjast handa. Síðdegis
höfðu engar tilkynningar verið
birtar um niðurstöður fundar-
ins eða ályktanir sem voru
samþykktar á honum.
Kania sagði að ástæða væri
til að gagnrýna fjölmiðla sem
Rússar sögðu í bréfinu að væru
í höndum óvina þjóðarinnar.
Hann hvatti til varkárni í vali
fulltrúa á flokksþingið og lagði
áherzlu á þörf á hörðum við-
brögðum við brotum á al-
mannalögum og reglum. Nýjar
efnahagstillögur verða lagðar
fyrir þingið á morgun, föstudag,
að sögn Kania.