Morgunblaðið - 12.06.1981, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1981
Læknadeilan:
Nýr samningafundur
um samkomulagsdrög
Samningafundur full-
trúa lækna og ríkisins og
Reykjavíkurborgar hefst í
dag kl. 14, en í gær kynntu
Norrænir jarðskjálftafræðingar þinga hér
„ÞAÐ VAR rætt um þróun tækni
varðandi sjálfvirka úrvinnslu
jarðskjálftagagna á þinginu í
dag,“ sagði Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur í samtali
við Morgunblaðið í gær, en nú
stendur yfir i Reykjavík þing
jarðskjálftafræðinga frá Norður-
löndum og eru hingað komnir 26
þátttakendur frá Norðurlöndum.
„Þá var einnig rætt um upp-
byggingu jarðskorpunnar víðsveg-
ar í Norður-Evrópu og þá sérstak-
lega i Skandinavíu," sagði Ragnar.
I fréttatilkynningu frá Veður-
stofunni þar sem fjallað er um
þingið kemur fram að íslendingar
séu nú meðal þátttakenda í fyrsta
sinn og sjái jarðeðlisfræðideild
Veðurstofunnar um ráðstefnuna.
Þá segir að samstarf norrænna
jarðskjálftafræðinga hafi hafist
árið 1969 og hafi í fyrstu aðallega
beinst að því að þróa aðferðir til
að greina á milli kjarnorkuspreng-
inga og jarðskjálfta, en síðan
hefði samstarfið þróast yfir í það
að vera um jarðskjálftafræði al-
mennt.
A þinginu verður sérstaklega
fjallað um ísland og undirstöðu
þess, en þingi þessu lýkur í dag.
„Pólitísk veiting,
en þó alveg lögleg"
- segir Friðjón Þórðarson dómsmála-
ráðherra um skipan forstjóra
Brunabótafélags íslands
„Já, en það er ekki hægt að loka augunum fyrir því að hún er alveg
lögleg,“ sagði Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra og aðalfulltrúi i
framkvæmdastjórn Brunabótafélags íslands, er hann var spurður
hvort hann teldi ákvörðun Svavars Gestssonar heilbrigðis- og
tryggingaráðherra um að skipa Inga R. Helgason hæstaréttarlög-
mann forstjóra Brunab<'»tafélagsins frá l.Júlí nk., þrátt fyrir beiðni
stjórnarinnar um að núverandi forstjóri, Ásgeir Ólafsson, sæti áfram
til ársloka 1982. af pólitískum toga spunna.
um fyrir löngu, því í raun og veru
ætti framkvæmdastjórnin ásamt
fulltrúaráðinu að ráða þennan
mann og ráðherra ekki að koma
nærri, nema þá kannske til að
staðfesta ráðninguna. „Að ég tala
nú ekki um,“ sagði Friðjón „að
mér finnst sjálfsagt af ráðherra
að leita umsagnar. — Það er
algjört lágmark."
Ráðgefandi
fyrir
ríkisvaldið
MORGUNBLAÐIÐ innti
Steingrím Hermannsson sam-
gönguráðherra eftir því í gær
hvort hann hefði skipað nefnd
til að kanna innihald hinnar
erlendu skýrslu um rekstur
flugs á Atlantshafsleiðinni á
vegum Flugleiða. Steingrimur
kvað varla hægt að tala um
nefnd. en sagðist hafa falið
flugmálastjóra. Agnari Ko-
foed-Hansen, fulltrúum ríkis-
ins í stjórn Flugleiða, Kára
Einarssyni og Rúnari B. Jó-
hannssyni, Birgi Guðjónssyni í
samgönguráðuneytinu og
Martin Petersen starfsmanni
Iscargo að kanna skýrsluna
fyrir islensk stjórnvöld og
veita umsögn um hana.
Blaðamaður spurði Stein-
grím hvort það væri eðlilegt að
rekstrarstjóri Iscargo væri á
vegum opinberra aðila að
kanna rekstur hjá Flugleiðum,
en Steingrímur kvaðst ekki
telja Martin starfsmann Is-
cargo, en hins vegar væri hann
þaulkunnugur þessum rekstri.
Kvað Steingrímur stefnt að því
að fá niðurstöðu í málinu fyrir
lok júlí.
fulltrúar lækna ályktun
fundar Læknafélags ís-
lands og Læknafélags
Reykjavíkur um að halda
beri áfram viðfæðum um
samningsdröR. Skiptar
skoðanir voru meðal
lækna um drögin, en þau
hafa í för með sér nokkuð
misjafnar kjarabætur
hinna ýmsu hópa.
Fulltrúar samninganefnda
lækna og ríkisvaldsins vildu sem
minnst segja um samkomulags-
drögin, en samkvæmt heimildum
Mbl. felst m.a. í þeim tilboð um
bílastyrk, sem iæknar hafa til
þessa ekki notið, breytingar á
námsfríum, breytingar á launa-
flokkum og að laun fastra starfs-
manna verði fyrirframgreidd. Þá
var einnig fjallað um lífeyris-
sjóðamál og hljóðaði tilboð til
lækna um 5% Hfeyrisgreiðslu á
fastavinnu og yfirvinnu, en hún er
nú 6% á föst laun og engin á
yfirvinnu. Meira er um yfirvinnu
hjá yngri læknum en þeim eldri og
munu hinir eldri telja réttindi sín
heldur lakari með hinu nýja til-
boði.
Sem fyrr segir hefur fundur
verið boðaður í dag kl. 14 og sagði
Þorsteinn Geirsson settur ráðu-
neytisstjóri að þar yrði áfram
fjallað um drögin, enda væri litið
á viðbrögð lækna sem stuðning við
þá sameiginlegu yfirlýsingu ráðu-
neytisins og lækna, sem viðræð-
urnar hafa grundvallast á.
Friðjón tók sérstaklega fram, að
vegna starfa sinna sem ráðherra
hefði varamaður hans í stjórninni
að mestu gegnt störfum hans þar,
en hann sagðist þó vera „aðili að
hinni hógværu tilkynningu", eins
og hann orðaði það, sem fram-
kvæmdastjórnin hefði sent frá sér
vegna þessa máls.
Þá sagði Friðjón: „Miðað við
það, að Ásgeir Ólafsson er búinn
að vinna þarna síðan 1944, eða allt
okkar lýðveldistímabil, og sem
forstjóri frá 1957 og er að mínum
dómi búinn að byggja þetta félag
upp og gera það að því stórveldi
sem það er, þá fannst mér nátt-
úrulega ekki nema sjálfsagt að
fara þess ákveðið á leit við hann
að hann gegndi starfinu til sex-
tugs, en hann verður ekki sextug-
ur fyrr en í desember 1982. Hann
hafði sjálfur hugann við það, að
hann væri kominn á 95 ára
regluna svokölluðu og ég fagnaði
því þegar hann sló til og féllst á að
vera til sextugs."
— Svavar Gestsson segir í við-
tali við Mbl., að hann hafi staðið
við öll loforð sem hann hefur gefið
stjórninni?
„Já, ég tala nú um það við
Svavar sjálfan, en auðvitað stóð
stjórnarformaður, Magnús H.
Magnússon, aðallega í þessu, eins
og komið hefur fram og það er
vitað hvað honum finnst um
þetta."
Þá sagði Friðjón einnig, að hann
teldi mjög óeðlilegt að ráðherra
hefði þetta skipunarvald, miðað
við uppbyggingu Brunabótafélags-
ins, og sagði furðulegt að ekki
skyldi vera búið að breyta lögun-
Magnús H. Magnússon stjórnarformaður BÍ:
Öll svör Svavars út
Hann er bara að reyna að klóra
í hött
bakkann
„MÉR FINNST þetta vera út i
hött á öllum sviðum. sem Svavar
svarar ykkur. Ilann st<»ð ckki við
nein þau vilyrði sem hann gaf
okkur og hafði alls ekkert sam-
hand við okkur,“ sagði Magnús
H. Magnússon formaður fram-
kvamdast jórnar Brunabótafé-
lagsins um ummæli Svavars
Gestssonar heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra í Mbl. í gær i tilefni
af skipun Inga R. Helgasonar
ha>staréttarlögmanns í starf for-
stjóra félagsins.
Bayern hefuj* gert
lokatilboð í Asgeir
í DAG fæst úr því skorið
hvort Ásgeir Sigurvinsson
gerist leikmaður þýzka meist-
araliðsins Bayern Múnchen
eða ckki.
Ásgeir fór til Múnchen í gær,
þar sem sérfræðingar litu á
meiðsli hans. Ásgeir kom aftur
til Liege í gærkvöldi og var þá
með lokatilboð Bayern til
Standard.
„Mér sýnist þetta vera mjög
sanngjarnt tilboð og ég er
bjartsýnn á að Standard fallist
á það. Ef Petit framkvæmda-
stjóri Standard fellst hins veg-
ar ekki á tilboðið er Bayern þar
með úr myndinni. Þá er ekkert
annað fyrir mig að gera en
flytja heim til Islands og bíða
eftir öðru tilboði. Eg er búinn
að gera upp hug minn í þessu
máli og mun ekki undir neinum
kringumstæðum leika áfram
hjá Standard," sagði Ásgeir í
gærkvöldi.
Sérfræðingar Bayern skoð-
uðu Ásgeir í gær, en sem
kunnugt er meiddist hann á
hné í leik á sunnudaginn. Þeir
komust að þeirri niðurstöðu að
liðbönd höfðu tognað og slitnað
að hluta. Þeir ákváðu að taka
Ásgeir úr gifsi, sem hann var í
og vefja hnéð vel. Telja þeir að
hann muni ná sér á 5—6 vikum.
Ef samningar takast milli Bay-
ern og Standard fer Ásgeir til
Múnchen 19. júní og verður þar
undir eftirliti lækna. Hann
mun því ekki koma í frí heim
til íslands eins og hann hafði
áformað.
„Yfirleitt voru öll svör hans út í
hött og á það bæði við um að hann
hafi staðið við gefin vilyrði við
okkur og eins um samkomulag við
Ásgeir Ólafsson. Hann er bara að
reyna að klóra í bakkann."
— Telur þú að pólitík sé á bak
við þetta, eins og haldið er fram?
„Já, það er náttúrulega alveg
greinilegt að málið snýst um það.“
Magnús sagði í lokin: „Ég tel að
þrátt fyrir þetta verði bæði
stjórnin og nýr forstjóri að taka
höndum saman um að vinna vel
fyrir félagið og eigendur þess,
sveitarfélögin. Við verðum að leit-
ast við að halda áfram eftir beztu
getu að þjóna sveitarfélögunum
eins og félagið hefur gert. En ég sé
afskaplega mikið eftir Ásgeiri úr
starfi. Hann hefur verið afburða-
maður og þessar óskir okkar voru
fyrst og fremst um það að fá að
njóta starfskrafta hans lengur. Ég
satt að segja vonaðist til þess, að
þó talað væri um að hann yrði til
ársloka 1982 þá gæti það kannske
orðið eitthvað lengur, þegar að því
kæmi.“
„Ég vil ekki vera að tala um mál
sem snertir mann sem er ekki
heima við, mér -finnst að það sé
verið að vega aftan að fólki með
því að gera það,“ sagði Ásgeir
Ólafsson fráfarandi forstjóri
Brunabótafélagsins í samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann var
spurður álits á ummælum Svavars
Gestssonar heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra í Morgunblaðinu í
gær, en Svavar er staddur erlend-
is.
Að öðru leyti vildi Ásgeir ekki
tjá sig um málið að svo stöddu.
Ekki rannsókn
í blöðunum
„RANNSÓKNIN fer ekki fram I
blöðunum og ég svara engu um
þctta,“ sagði Benedikt Blöndal
hæstaréttarlögmaður i samtali við
Morgunblaðið í gær, en hann var
spurður úm gang rannsóknar sem
Ingólfur Guðbrandsson óskaði eftir
að fram færi, vegna fréttar frá
landlækni um svonefnda Spánar-
veiki.
Spurningu Morgunblaðsins um
hvort einhverrar niðurstöðu væri að
vænta á næstunni svaraði Benedikt
þannig: „Ég svara heldur engu um
það, ég er bara að skoða þetta
ákveðna mál og tala ekki um það á
meðan ég er að því.“
Fundir á Seyðisfirði
og Egilsstöðum
Sjálfstæðisflokkurinn efnir til
almennra stjórnmálafunda á
Seyðisfirði í kvöld og Egilsstöðum
eftir hádegi á morgun, iaugardag.
Ræðumenn á þessum fundum
verða Egill Jónsson, alþm. og
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri. A
Seyðisfirði hefst fundurinn kl.
20.30 en á Egilsstöðum kl. 14.00 á
laugardag. Fundirnir eru öllum
opnir.