Morgunblaðið - 12.06.1981, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.06.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981 17 Þróunarsýning í málum heyrnarlausra í 114 ár OPNUÐ HEFUR verið sýninx á veKum FélaKs heyrnarlausra að SkólavörðustÍK 21 er nefnist „l'roun í málum heyrnarlausra i 114 ár“ «k er hún framiaK félaKs- ins til ALFA-árs. Verður sýnintfin opin til 9. júlí frá kl. 14-16.30 alla datja. FélaK heyrnarlausra rekur. i samstarfi við Foreldra- ok styrktarfélaK heyrnardaufra, skrifstofu í FélaKsmiðstöðinni að SkólavörðustÍK 21 «k er þar veitt þjónusta við heyrnarlausa eftir þvi sem ha'Kt er hverju sinni. Framkvæmdir félaKsins við endurbætur á húsnæðinu hafa verið kostnaðarsamar, en fjár- móKnun byKKÍst að veruleKu leyti á happdrætti. Er nýleKa hafin sala á happdrættismiðum til styrktar þessu verkcfni. Félag heyrnarlausra var stofnað 11. febrúar 1960 og hefur starfsemi þess vaxið stöðugt gegn um árin. Árið 1977 festi það kaup á húsnæði við Skólavörðustíg 21 á 2. hæð og er nú verið að standsetja það. Félagið er aðili að norrænu samstarfi. Gefin hefur verið út Táknmálsbók á vegum félagsins með tæplega 1500 táknum. Er verið að skrásetja fleiri tákn og miðað að því að standa jafnfætis hinum Norður- löndunum á þessu sviði. Þá hefur félagið mikinn áhuga á að hér á landi verði tiltækir táknmálstúlkar, þannig að heyrn- arlaust fólk geti tekið þátt í fundum og ráðstefnum á jafnrétt- isgrundvelli á við heyrandi fólk. Núverandi formaður Félags heyrn- arlausra er Hervör Guðjónsdóttir. Flakið dreift um ís, snjó og auða jörðina - því ekki að undra þótt leitarflokkar og leitarvélar fyndu ekki flugvélina, segir í yfirlýsingu Rannsóknarnefndar flugslysa „SVO SEM fram hefur komið i fréttum. þá fannst flak TF-ROM við Þverárvötn á TvidæKru. Rannsóknarnefndin vill leggja áherzlu á, að ekki er að undra þótt leitarflokkar og leitarflug- vélar finndu ekki flugvélina, þvi flakið var sundurtætt, dreift um is, snjó og auða jörð,“ segir m.a. i yfirlýsingu frá Rannsóknar- nefnd fluKslysa. sem Mbl. barst i Kær. Þá segir: „Öruggt, er að menn- irnir fjórir hafa látizt samstundis. Neyðarsendir flugvélarinnar fór ekki í gang og er hann þess vegna til rannsóknar á radíóverkstæði flugmálastjórnar. Rannsókn slyssins er á byrjun- arstigi og gagnasöfnun er ekki lokið. Er því of snemmt að slá nokkru föstu um orsakir slyssins Endanleg niðurstaða, ef hún finnst, er ekki væntanleg fyrr en eftir nokkrar vikur." Rannsóknarnefnd flugslysa er nefnd, sem samgönguráðherra skipar til að rannsaka dauðaslys í flugi, en hún vinnur að rannsókn þessa máls í samstarfi við Loft- ferðaeftirlitið. Þverárvötn, þar sem flugvélin lenti eru um það bil 10 km suðaustur frá Fornahvammi, sem er efst í Norðurárdal. Vélin lenti samkvæmt upplýsingum Mbl., á einu smærri vatnanna á vatna- svæðinu, en Þverárvötn eru fjöl- mörg vötn dreifð um nokkurt svæði. Flugvélin mun síðan hafa henzt upp á land, en vatnið var ísilagt þegar slysið gerðist. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins er talið að flugvélin hafi verið á norðausturleið, þ.e. á leið til Akureyrar. Eins og fram hefur komið var að þyrla Landhelgisgæzlunnar, TF-RAN, sem fann flakið í fyrra- kvöld, en hún var þá á leið frá Akureyri til Reykjavíkur, eftir leitarflug á Tröllaskaga. Einn úr áhöfninni var skilinn eftir við flakið meðan þyrla fór í bæinn og sótti Rannsóknarnefnd flugslysa, fulltrúa Loftferðaeftirlitsins og kafara til a kafa í vatninu. Þyrlan flutti síðan lík mann- anna í Fornahvamm, þar sem þau voru sett í bíla Flugbjörgunar- sveitarinnar í Reykjavík, sem flutti þau til Reykjavíkur. Með þessu er lokið einhverri umfangsmestu leit sem fram hef- ur farið hér á landi að flugvél. Gífurlegur fjöldi leitarflugvéla tók þátt í leitinni, auk leitar- manna á landi, sem skiptu hundr- uðum. Flak fluKvélarinnar TF-ROM fannst við Þverárvötn, sem á kortinu eru merkt með ör og stjörnu. Til glöggvunar eru dökkir hringir merktir við Fornahvamm, efst i Norðurárdal ok við Stað i Hrútafirði. FRÁ ORKUÞINGI: Orkusparnaður: Ódýrasti kosturinn Orkusparnaður. bætt nýtinK orkunnar, samhliða uppbygK- ingu i orkuiðnaði, er mikið hag- kvæmnisatriði í þjóðarbúskapn- um, sagði Björn Friðfinnsson á Orkuþingi á miðvikudaginn. Orkusparnaður kemur þjóðinni að gagni i minni gjaldeyrisnotk- un ok með hjálp hans veröur meira fjármagn og vinnuafli til ráðstöfunar i arðbær verkefni. t stærra samhcngi hefur orku- sparnaður áhrif á alþjóðlegan orkumarkað og hann stuðlar að betri meðferð jarðarbúa á tak- mörkuðum auðlindum plánetunn- ar. Björn gerð grein fyrir störfum Orkusparnaðarnefndar, notkun innflutts eldsneytis, orkusparnaði í hitun húsa, í iðnaði, í heimilis- notkun o.fl. „Að sjálfsögðu „er nauðsynlegt að halda áfram að efla lífskjaragrundvöll þjóðarinn- ar með aukinni nýtingu orkulinda okkar“, sagði hann, „en fjármuna- lindir okkar mannauður eru tak- mörkum háðar og því verður nýting orkunnar að batna samfara auknu orkuframboði." Bragi Árnason: Æ- Islenzkt eldsneyti Tæknilega er ekkert því til fyrirstöðu að framleiða allt það eldsneyti sem landsmenn þarfnast hérlendis — úr vatni, raforku. innfluttum kolum eða olíum, sagði Bragi Arnason, próíessor, á Orku- þingi á miðvikudaginn. Jafn- framt virðast fyrir hendi ýmsir möguleikar á að taka upp eldsneytisgerð, sem eingöngu byggir á innlendum afgöngum. Ljóst er hinsvegar, sagði hann, að framleiðslukostnaður er í ölium tilfellum hærri en núver- andi innflutningsverð benzins og olíu, og í sumum tilfellum miklu hærri. En ef marka má spár sérfræðinga um hækkun olíuverðs og lækkun á fram- leiðslukostnaði vetnis með rafgreiningu er liklegt að þessi munur eigi eftir að minnka verulega á þeim tíma sem það tæki íslendinga að byggja upp eigin eldsneytisiðnað. Bragi Árnason ræddi einkum um methanol, sem framleiða má úr innfluttu kolefni en vel hugsanlega einnig úr íslenzk- um mó. Stærstu mómýrar landsins eru við norðanverðan Faxaflóa og á Suðurlandsund- irlendi, sagði hann. Þá fja.lla.0i hann og um ammoníakfram- leiðslu, en til hennar þarf einungis vatna og raforku. Bragi taldi ammoníak gott eldsneyti á aflvélar, en einnig megi brjóta það niður í vetni og köfnunarefni. Sjálfsagðasta leið til uppbyggingar: Efling prkuiðn- aðar á Islandi Með vélbátum og botnvörpung- um i upphafi þessarar aldar hófst iðnbylting á Islandi, hálfri ann- arri öld síöar en annarsstaðar í V-Evrópu, segir i erindi Gylfa Þ. Gíslasonar á OrkuþinKÍ á mið- vikudaginn. Þetta var upphafið á ferð þj<>ðarinnar frá frumstæðu, einhæfu ok fátæku samfélaKÍ inn í tæknivætt velferðarþjóðfélaK. Auðvitað hefur islenzkt þjóðfélaK Kjörbreytzt frá aldamótum. Þá bjuKKU 80% þjóðarinnar i sveit- um en nú búa 85% þeirra i bæjum ok þorpum. En islenzk tunKa og menninK beið ekki skipbrot við umrótið. hcldur hefur hún eflzt ok styrkzt ok orðið f jölbreyttari. í sambandi við eflingu orku- freks iðnaðar á íslandi, sem ég tel sjálfsögðustu leiðina til áfram- haldandi uppbyggingar íslenzkra atvinnuvega, ber ég ekki kvíðboga fyrir því, að íslenzkri menningu verði hætta búin né að ekki verði hægt að standa nægilega traustan vörð um íslenzkt sjálfstæði, þótt samstarf verði haft við erlenda aðila. Um það getur varla verið ágreiningur, að uppbygging orkuiðnaðar á íslandi getur ekki orðið án samvinnu við erlenda aðila. Spurningin er sú, hversu mikil sú samvinna þurfi að vera, ef orkuiðnaðurinn á að vera arð- bær og afkoma hans örugg. Ef horft er til baka til upphafs þróunar í sjávarútvegi, sem varð þjóðinni heilladrjúg, verður að minnast þess, að forsenda hennar var sú, að fyrsti stóri bankinn á íslandi, íslandsbanki, flutti mikið erlent fjármagn til landsins. En hinn nýi sjávarútvegur varð ís- lenzkur, þótt óttaraddir heyrðust um annað. Og uppbygging orku- iðnaðar krefst miklu meiri sam- vinnu við erlenda aðila en fyrr- greind uppbygging sjávarútvegs gerði nauðsynlega. Á hinn bóginn munu miklu minni breytingar á búsetu og störfum sigla í kjölfar aukinnar hlutdeildar orkuiðnaðar í þjóðarframleiðslunni en sigldu í kjölfar þeirrar byltingar sem varð í sjávarútvegi á fyrstu áratugum aldarinnar. Oíuhitun húsa: 18% húsnæðis - 50% kostnaðar Árið 1979 var húshitun á íslandi að 71,1% með jarðvarma, 10,7% með rafmagni en 18,2% með olíu. Þessi hlutföll verða þó allt önnur ef kostnaðarleg skipting húshitun- ar milli þessara varmagjafa er tekin til athugunar. Þau rúmlega 18% húsakosts þjóðarinnar, sem hituð eru með olíu, taka til sín 50,7% heiidarkostnaðar við hús- hitun, þau tæplega 11% sem hituð eru með rafmagni 15,4% kostnað- ar, en 71% húsakostsins á jarð- varmasvæðum aðeins tæplega 40% kostnaðarins. Þetta kom fram í ræðu Jónasar Elíassonar á Orkuþingi á miðvikudaginn, en hann flutti erindi um þróun og horfur í húshitun hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.