Morgunblaðið - 12.06.1981, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981
„ÞFIR FARA ALLTAP l' JNDfAWA-
LEIK \ MATARTÍMMiUM!"
... aö lofa þreytt-
um aö sofa
TM R«g U.S. Pal Off.-aN hghu reservw
» 1W1 Loa Angates Timts Syndicalt
Hvort er það læknir. eitthvað Eggin eru soðin!
sem ég verð að læra að lifa með,
eða læra að lifa án?
HÖGNI HREKKVÍSI
/, HVAA ÉR KLUKKAN ?■ ■ . Þú F€Rf> Firam
MlNÚTUR TlL A0 KOMA HfNNI l/PP A VBbO/’
.KÚKÚ.KÓKl)/"
Fljúgandi furðuhlutir:
Trúin og
veruleikirm
Guðmundur Magnússon B.A.
skrifar:
„A hvítasunnudag birti Morg-
unblaðið viðtal við menntaskóla-
pilt, Ólaf St. Pálsson að nafni, sem
nýkominn var af ráðstefnu um
„fljúgandi furðuhluti" í Lundún-
um og virtist sannfærður um að
vitsmunaverur frá öðrum hnött-
um heimsæktu jörðina með leynd
öðru hverju. Olafi er auðvitað
frjálst að taka trú á hvaða vit-
leysu sem er, en þegar virt og
víðlesið blað, eins og Mbl. á
frumkvæði að því að birta frásögn
hans athugasemdalaust og gefur
þannig til kynna að mark sé á
henni takandi er það skylda
þeirra, sem telja sig vita betur að
mótmæla. Ég held að hér hljóti að
hafa verið um mistök að ræða og
ritstjórar Mbl. sjái ástæðu til að
eftirfarandi athugasemdir fái
áberandi rúm í blaðinu við fyrsta
tækifæri.
Hvernig hirtast „FFH“?
í upphafi er rétt að spyrja hvað
það er sem fólk þykist sjá og
kallar „fljúgandi furðuhlut“ eða
„FFH“. (Á ensku er talað um
„UFO“ eða unidentified flying
object“.) Flestir segjast sjá
ókennileg ljósfyrirbrigði á himin-
hvolfinu. Margir tala um hluti á
flugi sem ekki geti verið venju-
legar flugvélar. I þeim hópi er m.a.
fólk sem kveðst hafa séð loftför
sem örugglega séu frá öðrum
hnöttum. Nokkrir staðhæfa að
þeir hafi orðið vitni að því að
geimskip lentu á jörðinni og sumir
segjast hafa farið um borð í slík
skip þar sem einkennilegar verur
hafi grannskoðað þá áður en þeir
voru iátnir lausir.
Þeir sem sækja ráðstefnur af
því tagi sem viðmælandi Mbl. sat í
Lundúnum á dögunum (en slíkar
ráðstefnur eru ekki óalgengar) eru
yfirleitt sammála um að hin
óskýrðu ljósfyrirbrigði á himnin-
um stafi frá farartækjum vits-
munavera frá öðrum hnöttum.
Reynslusögur fólks sem segist
hafa komist í náin kynni við slíkar
verur styrkja þá sannfæringu.
Vísvitandi biekkingar
En sannleikurinn er sá að sög-
urnar um fljúgandi furðuhluti
virðast ekki hafa við minnstu rök
að styðjast. Aðrar skýringar — og
betri — á loftsýnum manna og
reynslu eru fyrir hendi. Blekk-
ingar koma fyrst í hugann. Marg-
víslegar ástæður geta legið til þess
að fólk kýs að hafa blekkingar í
frammi: til að skemmta sér, til að
beina athygli að sér, til að komast
í fjölmiðla eða græða peninga.
Vísindarithöfundurinn Philip J.
Klass hefur rakið fjöldamörg
dæmi um slík svik í bók sinni
UFOs Explained (New' York
1976). Hann hefur m.a. afhjúpað
sem vísvitandi svik atvik sem
formælendur FFH-safnaða hafa
talið markverðustu sannanir fyrir
heimsókn vitsmunavera frá öðrum
hnöttum til jarðarinnar.
Skynjunarvillur
ok sálsýki
Loftsýnir fólks geta líka verið
skynjunarvillur, en alkunna er að
ofskynjanir einkennast oft af því
að menn telja sig sjá sterk ljós.
Skynjunarvillur þurfa ekki að
vera bundnar við einn einstakling,
t.a.m. er oft um sameiginlegar
skynvillur að ræða við múgsefjun.
Öll höfum við lesið um galdrafár
fyrri alda þegar hópar fólks töldu
sig sjá nornir og púka. Frægt er
einnig dæmið frá New York árið
1938 þegar útvarpsleikrit H.G.
Wells í búningi Örsons Welles
leiddi til ringulreiðar í borginni og
fjöldamargir voru sannfærðir um
að þeir hefðu séð Marsbúa spíg-
spora um götur.
Þá ber að hafa í huga að
hörmulega fjölmennur hópur fólks
á við ýmis konar sálsýki að stríða
og sumu þessu fólki er ekki
sjálfrátt. Það verður fyrir marg-
víslegri reynslu í hugarheimi sín-
um og ruglar henni óafvitandi
saman við veruleikann. Alltaf eru
þeir einhverjir sem taka mark á
uppspuna slíks fólks, oftast vegna
þess að ekki er vitað um veikindi
þess.
Skýrsla bandaríska
flughersins
Athuganir leiða enn fremur í
ljós að „óskýrð ljósfyrirbrigði á
himninum" eru oft hversdagsleg
náttúrufyrirbrigði, eða á ferðinni
eru loftför sem menn hafa smíðað
og eru sérkennileg í útliti, s.s.
belgir og veðurtungl. Edward U.
Condon, sem stjórnaði rannsókn
bandaríska flughersins á fljúg-
andi furðuhlutum á árunum
1966—1969, greinir frá mörgum
slíkum dæmum í Final Report of
the Scientific Study of Unidenti-
fied Flying Objects (New York
1969). Sérfræðingar flughersins
komust að þeirri niðurstöðu að
ekkert benti til heimsókna frá
öðrum hnöttum eða að einhvers
konar yfirnáttúrulegra skýringa
væri þörf á sýnum manna. Að
sömu niðurstöðu hníga rannsóknir
sem frá er greint í bók Thorton
Pages og Carl Sagans: UFOs: A
Hverjir eiga Val-
höll á Þingvöllum?
8759-4475 skrifar:
„Mig langar til að beina þeirri
spurningu til réttra aðila
(Ferðamálaráðs?), hverjir eigi
Valhöll á Þingvöllum? Er það
ríkið, viðkomandi sveitarfélag,
einkaaðilar eða allir þessir aðil-
ar í sameiningu? Maður hefur
alltaf haft það á tilfinningunni
að Valhöll væri svo sjálfsagður
viðkomustaður allra á leið um
þjóðgarðinn og væri hluti af
honum. Þannig finnst mér stað-
urinn hafa verið auglýstur upp
og ég hugsa að það finnist
fleirum; sem sé að greiðasölu-
staðurinn Valhöll hafi notið
þjóðgarðsins í þessum efnum
eins og um bein tengsl væri að
ræða þar á milli.
100% hærra verðlag
en í Hveragerði
En verðlagið á þessum greiða-
sölustað gefur manni ekki til-
efni til þjóðlegra umþenkinga og
tekur raunar út yfir allan þjófa-
bálk. Þar kostar molakaffið 17
nýkr. eða 1.700 gkr. Ég kynnti
mér verðlag á hótelum hér í
borginni og þar var það dýrast