Morgunblaðið - 12.06.1981, Síða 30

Morgunblaðið - 12.06.1981, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ1981 Einar stendur sig vel með Skövde MeðfylKjandi mynd rakst Mbl. á í KópavoK'Stíðindum. en þar er hún eÍKnuð sænsku dagblaði. f Kreininni sem íyljfir þessari mynd er sajft frá afrekum Einars Þórhallssonar á knattspyrnuvell- inum, en Einar stundar fram- haldsnám i læknisfræði i smá- bænum Skðvde i Sviþjóð. Einar, sem lék áður með UBK, leikur með 3. deildar liði Skövde. Einar kom liði sínu til bjargar eigi alls fyrir löngu, Skövde mætti þá Heimer, liði sem talið er mun sterkara en Skövde, en Skövde tókst engu að síður að krækja í annað stigið. Mest megnis þó vegna einstaklingsframtaks Ein- ars Þórhallssonar, sem skoraði jöfnunarmark liösins eftir að hafa brunað upp allan völlinn og spyrnt föstu skoti á mark Heimer. Á meðfylgjandi mynd má sjá mark- vöcð Heimer freista þess að bjarga með miklum tilþrifum, en á innfelldu myndinni hampar Einar einhverra hluta vegna skó sínum. Markaregn í bikarkeppni KSI Stórskotahríð í Keflavík ÍBK gersigraði Skallagrím í bikarkeppni KSÍ í fyrrakvöld, lokatölur urðu 7—0 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 3—0. Það var einkum í síðari hálfleik, sem ÍBK hafði gífurlega yfirburði og þá hefðu mörkin allt eins getað orðið 10 en ekki fjögur. Ómar Ingvarsson skoraði fyrsta markið strax á fimmtu mínútu og á 37. mínútu bætti hann öðru við, sérlega glæsilegu. í millitíðinni hafði Sigurður Björgvinsson klúðrað víti eftir að Óli Þór hafði verið felldur innan teigs. En tveimur mínútum fyrir leikhlé bætti Einar Ásbjörn Ólafsson við þriðja markinu með skalla eftir hornspyrnu. Síðari hálfleikur var varla byrj- aður er Gísli Eyjólfsson komst á blað með góðum skalla og við það mark má segja að Borgnesingarn- ir hafi fyrst brotnað. Steinar Jóhannsson skoraði fimmta mark- ið með skalla eftir fyrirgjöf Skúla Rósantssonar á 61. mínútu og fimm mínútum síðar skoraði Óli Þór fallega eftir mikinn einleik. Fimmtán mínútum fyrir leikslok skoraði síðan Sigurður Björg- vinsson sjöunda markið úr víti eftir að Óli Þór hafði verið felldur. Bestu menn ÍBk voru ómar Ingvarsson, Sigurður Björgvins- son og Óskar Færset, einnig óli Þór, en hann þótti þó heldur eigingjarn. ÖrugRt hjá Þrótti Reykjavíkur-Þróttur sigraði Reyni frá Sandgerði nokkuð ör- ugglega í slökum leik. Lokatölur urðu 3—0 og gerðu tvö mörk á jafn mörgum mínútum undir lok fyrri hálfleiks útslagið. Þau skoruðu Jóhann Hreiðarsson og Baldur Hannesson. ómar Björnsson átti besta færi Reynis á 50. mínútu, en skot hans var vel varið og tíu mínútum síðar innsiglaði Ásgeir Elíasson sigur Þróttar, er hann skoraði með skalla eftir horn- spyrnu. Fylkir áfram... Fylkir sló Snæfell frá Stykkis- hólmi út úr keppninni er liðið skoraði tvö mörk gegn engu. Yfirburðir Fylkis voru miklir, en markaskorunin hin strembnasta þraut eins og fyrri daginn hjá liðinu. Anton Jakobsson og Helgi Indriðason skoruðu þó fyrir liðið og það dugði til sigurs. ... einnig Víðir Víðir sigraði ÍK mjög örugglega 3—0 í Garðinum og þar var Guðmundur Knútsson hetja liðs- ins, skoraði tvívegis, en Björgvin Björgvinsson bætti þriðja mark- inu við. Aðalsteinn í formi Aðalsteinn Valgeirsson var í essinu sínu, er Huginn frá Seyðis- firði sigraði Austra örugglega 3—0. Aðalsteinn skoraði tvívegis í leiknum, en Sveinbjörn Jóhann- esson skoraði þriðja markið. óvænt i Hafnarfirði Lið Grindavikur sigraði Hauka í Hafnarfirði 3—2. Grindavíkurlið- ið sýndi góðan leik og barðist allan leikinn mjög vel. Mörk liðsins skoruðu Kristinn Jóhannsson 2, og Jón Sveinsson 1. Mörk Hauka skoruðu Einar Ein- arsson og Björn Svavarsson. Stjörnuhátíð í Laugardal 17. júní: Margir fraegir atvinnumenn í knattspyrnu mæta íslandsmeisturum Vals • Þeir félagar Atli Eðvaldsson og Magnús Bergs sem leika með Borussia Dortmund munu mæta og leika i stjörnuliði Ásgeirs Sigurvinssonar. Það verður sannkölluð stjörnu- hátið hjá knattspyrnudeild Vals á Laugardalsvellinum á 17. júni. Þetta er framlag deildarinnar á 70 ára afmæli Vals. Hátiðin hefst kl. 17.30. Þá mun hljómsveitin Start leika. og hinn landsfrægi Laddi skemmta og kynna lög af nýju plötunni sinni. Rúsinan i pylsuendanum er stjörnuleikur i knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 18.15. Þá mun fallhlifarstökkvari svifa niður á aðalleikvanginn með boltann sem spila á með. Það verða íslandsmeistarar Vals sem munu mæta stjörnuliði Ásgeirs Sigurvinssonar. Eins og kunnugt er meiddist Ásgeir illa i siðasta leik sinum á keppnistimabilinu og getur þvi ekki leikið með. Þess i stað hefur hann tekið að sér að stjórna stjörnuliðinu. Það verða margar stórstjörnur sem mæta til leiks í liði Ásgeirs. íslensku leikmennirnir sem hafa staðið sig mjög vel með hinum erlendu liðum sínum munu mæta í leikinn og bjóða með sér einum til tveimur leikmönnum. Frá liði Ás- geirs, Standard, koma þrír frægir kappar. Þeir Tahamata, Dard- enne, og Edström. Hollendinginn Simon Tahamata er óþarft að kynna. Hann er án efa einn allra besti knattspyrnumaður í Evrópu í dag. Hann lék með stórliðinu Ajax áður en hann var keyptur til Standard. Janus Guðlaugsson mætir með tvo leikmenn frá For- tuna Köln. Þá Jupp Pauli sem leikur í markinu, og danska lands- liðsmanninn Flemming Nielsen. Þeir félagar Atli Eðvaldsson og Magnús Bergs munu mæta frá Borussia Dortmund ásamt einum miðvallarleikmanni, Wagner. Arnór Guðjohnsen kemur frá Lok- eren, ásamt belgíska unglinga- landsliðsmanninum Marc Ver- bruggen. En hann þykir einn efnilegasti leikmaðurinn i belg- ísku knattspyrnunni í dag. Þá mun Teitur Þórðarson, sem hefur staðið sig svo frábærlega vel í Svíþjóð að undanförnu, mæta til leiks. Albert Guðmundsson kemur gagngert frá Kanada og spilar. Og jafnframt Karl Þórðarson sem nýverið gerði samning við 1. deild- ar lið í Frakklandi. Pétur Péturs- son mun reyna að mæta til leiksins, en það var óvíst hvort það tækist vegna félagaskiptanna sem hann hefur staðið í, svo og flutn- inga á milli staða. Hinn kunni markvörður hér á árum áður Sigurður Dagsson mun verða varamarkvörður stjörnuliðsins. Eins og sjá má á þessari upptaln- ingu hér að ofan eru stórstjörnur á ferðinni. Og ekki á hverjum degi sem knattspyrnuunnendur fá tækifæri til að sjá slíka leiki. Það er því rétt að tryggja sér miða á leikinn tímanlega. Forsala að- göngumiða hefst í dag kl. 12.00 fyrir framan verslunina Karnabæ í Austurstræti. Fyrstu tvo klukku- tímanna verða þeim er miða kaupa veitt ókeypis Coke hressing. Það kom fram á blaðamanna- fundi hjá Val í gærdag, að sölu- verð þeirra leikmanna sem mæta í leikinn er á milli þrír til fjórir milljarðar gkróna. Jafnframt vildi stjórnin koma á framfæri þakk- læti til íslensku atvinnumannanna sem voru boðnir og búnir til að gera allt sem í þeirra valdi stæði til þess að leikurinn gæti farið fram. —ÞR. • Coe hljóp ótrúlega vel og setti nýtt heimsmet. Glæsilegt heimsmet í 800 m hlaupi • Sebastian Coe setti nýtt og glæsilegt heimsmet í 800 metra hlaupi i Feneyjum f fyrrakvöld. Sló hann þar met sem hann átti sjálfur. Illaupið fór fram við bestu hugsanlegar aðstæður og sigraði Coe með gifurlegum yfirburðum. Tími hans, nýja heimsmetið, var 1:41,72 minútur, en gamla metið var 1:42,40. Vetrar-OI í Svíþjóö 1988? SVÍAR hafa sótt um að halda Vetrarólympiuleikana 1988, en skoðanir i landinu eru skiptar, þvi slíkt fyrirtæki kostar offjár og koma peningarnir að sjálf- sögðu úr vösum skattgreiðenda. En rikisstjórn Svfþjóðar hefur ákveðið að styðja við bakið á ólympiunefnd sinni hvað sem tautar og raular. Hugmyndir Svía varðandi leikjahaldið eru nokkuð frá- brugðnar því sem áður hefur tíðkast, þ.e.a.s. þeir hafa hug á að tvískipta leikunum. Megnið af þeim mun þó fara fram í Falun í Dölum, svo fremi sem Svíþjóð verður fyrir valinu. Fleiri borgir bítast um bitann, Calgari í Kan- ada og Cortina á Ítalíu. Alþjóða ólympíunefndin mun koma saman til fundar í Baden-Baden í Vest- ur-Þýskalandi í september næst- komandi og úthluta þá umrædd- um vetrarleikum. RM í dag Reykjavikurmeistaramótið i frjálsiþróttum verður háð á Laugardalsvelli i dag og á morg- un. Keppni hefst kl. 19 i kvöld.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.