Morgunblaðið - 29.08.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981
3
Farþcgar fara upp i þotuna á Reykjavikurflugvelli.
Varð að lenda á Reykjavíkurflugvelli
BOEING 737-þota, sem var í
leiguflugi fyrir Iscargo hf., «at
ekki lent á Keflavíkurflugvelli
vegna þoku í gær og varð að
lenda á Reykjavíkurílugvelli.
Voru farþegar, sem fara áttu
með henni úr landi mættir á
Flugstöðina á Keflavíkurflug-
velli og urðu þeir að aka til
Reykjavíkur aftur. Farþegarnir
sem komu með vélinni misstu
hins vegar af verzlun í Fríhöfn-
inni og þótti það mörgum súrt í
broti.
Boeing 737-þotan lcndir á Keflavikurflugvelli í gær.
Magnús Torfi
deilir á Cargolux
„ÞAÐ IIEFUR sýnt sig að islenskir
aðilar áttu tvimælalaust hlut að
máli, þegar hergagnaflutningar
hófust með leynd frá ísrael til
íran,“ segir Magnús Torfi ólafsson
hlaðafulltrúi rikisstjórnarinnar i
grein í Ilelgarpóstinum í gær, sem
hann nefnir: Hergagnaflutningur
Cargolux kemur vopnasöluorði á
tsland.
Magnús Torfi fjallar um við-
skiptabann Bandaríkjanna á íran
meðan gísladeilan stóð yfir og leiðir
írana til þess að ná í hergögn og
varahluti í þau. Magnús Torfi segir
m.a. í grein sinni:
„Auk hjólbarðanna á bandarísku
herflugyélarnar, sem upprunnir
voru í ísrael, átti íranska stjórnin
von á hergagnavarahlutum víðar að.
Þar var sérstaklega um að ræða
hreyfla í Scorpion-skriðdreka frá
Bretlandi, sem keyptir voru af
breskum vopnamiðlara. Niðurstaða
varð að hjólbörðunum frá ísrael og
skriðdrekahreyflunum bresku var
safnað saman í frönsku borginni
Nimes. Þar voru farmskjöl fölsuð
með aðstoð franskra embætt-
ismanna og hergögnin siðan send til
írans með vöruflutningaflugvél frá
Cargolux.
Cargolux er sem kunnugt er að
hluta í íslenskri eigu, en úti í heimi
er gjarnan litið á það sem íslenskt
fyrirbæri, bæði vegna þess að ís-
lenski eignaraðilinn ber þekkt nafn í
flugheiminum og af því að íslenskir
menn sjá að miklu leyti um rekstur-
inn. Þarf því ekki lengur að leita
skýringar á því, hvers vegna Raf-
sanjani þingforseti greip til þess að
nefna ísland, þegar hann taldi sig
þurfa að benda á annað uppruna-
land hergagnasendinga en ísrael.
Eftir að nafn Cargolux bar á
góma, hafa íslenskir fréttamenn
leitað umsagnar Einars Ólafssonar,
framkvæmdastjóra Cargolux. Hann
staðfestir flugferðina frá Nimes til
Teheran í október í fyrra, en heldur
sig við það sem sagði í fölsuðu,
frönsku farmskjölunum, að um hafi
verið að ræða allt aðra hluti en
hergögn, sem sé hreyfla í Jaguar-
bíla og hjólbarða á loftpressur,“
segir m.a. í grein blaðafulltrúans.
Gerir Iðunn
samning
við Tékka?
Skóverksmiðjan Iðunn á Ak-
ureyri hefur nú til athugunar
að gera samning við tékkneskt
skógerðarfyrirtæki um að full-
vinna hér á landi ákveðna
skótegund frá Tékkunum. sem
síðan verður flutt út til Banda-
ríkjanna. Ef af þessum samn-
ingum verður mun þetta vera
mikið verk og gæti numið
tugþúsundum para.
Að sögn Hjartar Eiríkssonar,
framkvæmdastjóra iðnaðar-
deildar Sambandsins eru samn-
ingar aðeins á byrjunarstigi og
ef að af þessu verður, verður
tæplega gengið frá samningum
fyrr en á næsta ári. Tækjakost-
ur yrði nægur fyrir hendi til að
vinna þetta verk og nú eru að
koma eitt til tvö þúsund pör af
skóm til skoðunar og athugunar
og verður málið þá kannað
nánar þegar skórnir verða
komnir.
Um 13 þúsund böm
og unglingar hef ja
nám 4. september
Nýja hótelið á ísafirði. Unnið var að frágangi á lóðinni fyrir framan um sl. helgi, þegar þessi mynd var
tekin. Ljósm. E.Pá.
Hótel ísaf jörður tekur í notk-
un nýtt og glæsilegt húsnæði
ALLIR grunnskólar og flestir
framhaldsskólar landsins hefja
starfsemi sina núna 1. septem-
ber að venju eftir sumarið. Að
sögn Ragnars Georgssonar.
skólafulltrúa, eru það 23
grunnskólar sem hefja störf nú
í Reykjavík og munu hátt í
13000 börn og unglingar sækja
Jóhann og
Short gerðu
jafntefli
JÓIIANN Iljartarson gerði
jafntefli við Englendinginn
Nigel Short í 9. umfcrð á
heimsmeistaramóti unglinga i
Mexikó. „Jóhann fékk nokkuð
erfiða stöðu í byrjuninni en
náði síðan undirtökunum. Þeg-
ar þcir sömdu um jafntefli átti
Jóhann þokkalega vinnings-
mögulcika en kom ekki auga á
vinningsleið,“ sagði Ingi R.
Jóhannsson, aðstoðarmaður Jó-
hanns, i samtali við Mbl.
Sovétmaðurinn Ehlvert vann
landa sinn Shalov í langri skák.
Júgóslavinn Cvitan vann Mot-
wani, Skotlandi, eftir að sá
síðarnefndi hafði yfirspilað
Júgóslavann en lék slysalega af
sér og tapaði.
Ehlvert er efstur með 7,5
vinninga, Cvitan er í öð ru sæti
með 7 vinninga, síðan kemur
Short með 6,5 vinninga og þá
þeir Shalov og Jóhann með 6
vinninga. Að sögn Inga R. er
staðan nokkuð óljós vegna
fjölda biðskáka. í 10. umferð
teflir Jóhann við Ehlvert.
þá ef með er talinn forskóli sex
ára barna.
Það kom fram hjá Ragnari að
síðustu árin hefur nemendum
farið fækkandi í grunnskólum
borgarinnar en þessi fækkun
hefur nú minnkað að mun og
telur Ragnar það vera fyrst og
fremst vegna þess að árgang-
arnir hafa jafnast. Áður fóru
mun fleiri úr skóla en komu í
hann. Elsti bekkurinn var alltaf
sá stærsti og nú er þetta að
jafnast.
Skólastarfið í grunnskólunum
hefst á kennarafundi í hverjum
skóla kl. 9 árdegis. Þá eru
skólarnir settir en fyrstu þrír
dagarnir fara í starfsfundi og
undirbúning á skólastarfinu en
4. september eiga nemendur að
koma í skólann í fyrsta sinn.
Mun það verða auglýst nánar.
NÚ UM helgina tekur Hótel
ísafjörður i notkun gistiálmu í
hinu nýja glæsilega hóteli, sem
verið hefur í byggingu, og
munu þátttakendur á SUS-
þingi verða fyrstu gestirnir,
sem þar gista.
í sumar hefur Hótel ísafjörð-
ur verið rekið í heimavist
Menntaskólans rétt hjá og verð-
ur áfram til mánaðarloka og
væntanlega á sumrin í sam-
bandi við hótelið í framtíðinni.
Hótelstjóri er Sigurður Stef-
ánsson en nýja hótelið er hluta-
félag.
í nýja hótelinu eru 33 tveggja
manna herbergi, matsalur,
NIÐURGREIÐSLUR á ull til
verksmiðjanna hafa verið
fundarsalur o.fl. Nú um helgina
eru tekin í notkun 11 herbergi á
2 neðri hæðum, en bráðlega
verður opnaður veitingastaður á
jarðhæð.
ra-ddar í ríkisstjórninni. sem
hugsanlegur þáttur í þvi að
bæta hag ullarverksmiðja i
landinu. En ullariðnaðurinn er
nú rckinn með miklu tapi.
Iðnaðarráðherra, Hjörleifur
Guttormsson, sagði að ríkis-
stjórnin hefði á undanförnum
dögum oftar en einu sinni rætt
þann vanda sem steðjaði að
ullariðnaðinum og efnahagsmál
almennt og hefðu þar ýmis
atriði verið rædd. Menn hefðu
verið að átta sig á stöðunni og
hugsanlegum aðgerðum til úr-
bóta. Fram hefðu komið hug-
myndir um að greiða ullina
meira niður en nú er gert til
verksmiðjanna, en engar
ákvarðanir verið teknar enn.
Hjörleifur sagði ennfremur að
auknar niðurgreiðslur myndu
vissulega laga stöðu ullariðnað-
arins, en fleiri atriði væru til
athugunar, en spurning væri um
það hve fljótvirk þau eru.
Nýtt sjónvarpsleikrit Davíðs Oddssonar:
Sýningar ákveðnar í Danmörku,
Finnlandi, Noregi og Svíþjóð
ÁKVEÐIÐ hefur verið að sýna
nýtt sjónvarpsleikrit eftir Davíð
Oddsson í Sjónvarpinu í desem-
her næstkomandi, og er ekki
ósennilcgt að það verði á
dagskrá sjónvarps um jólin. Það
verður þó ekki cndanlega ákveð-
ið fyrr en útvarpsráð hefur
endanlega gengið frá og sam-
þykkt vetrardagskrána. Ilið
nýja leikrit Davíðs nefnist
„Kusk á hvitflibhann“, og er
frumsýning Sjónvarpsins jafn-
framt frumsýningu verksins.
Á fundi leiklistarstjóra nor-
rænu sjónvarpsstöðvanna, sem
haldinn var í Reykjavík dagana
25. til 27. ágúst síðastliðinn, var
leikrit Davíðs sýnt af hálfu Lista-
og skemmtideildar Sjónvarpsins.
Leikritið líkaði það vel að óskað
hefur verið eftir að fá það til
sýningar á öllum hinum Norður-
löndunum, í Noregi, Danmörku,
Svíþjóð og Finnlandi.
Að sögn Hinriks Bjarnasonar
forstöðumanns Lista- og
skemmtideildar Sjónvarpsins,
tekur sýning leikritsins tæpa
klukkustund. Um efni þess sagð-
ist hann ekki vilja fjölyrða, það
talaði fyllilega fyrir sig sjálft
þegar þar að kæmi. Hann sagðist
þó geta sagt að verkið gerðist í
nútímanum, og sögusviðið væri
íslenskt þjóðfélag. „Þetta er nú-
tímaverk úr okkar samfélagi,"
sagði Hinrik. Aðalhlutverkið í
leikritinu er í höndum Árna
Ibsen, en stjórn upptökunnar var
í höndum Andrésar Indriðasonar.
Leikritið var tekið upp í júní nú í
sumar.
Verða niðurgreiðsl-
ur á ull auknar?