Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981
5
Alþjóðlega flutningaverkamaimasambandið þingar á Islandi:
„Yfirmenn á fiskiskipum
kunna ekki á atvinnutækin66
Rætt við Áke Selander aðstoðarframkvæmdastjóra sambandsins
ÁRLEGA heldur IFT eða Alþjóð-
lega flutningaverkamannasam-
bandið ráðstefnu þar sem f jallað
er um hagsmunamál aðildarfé-
laga, en innan sambandsins eru
ótal starfsgreinar, þar á meðal
sjómenn á far- og fiskiskipum.
Að þessu sinni var ráðstefnan
haldin á íslandi dagana 26.-28.
ágúst og f jallaði hún um sjómenn
á fiskiskipum.
þyrfti sömu kröfur til þeirra og
yfirmanna á farskipum, hvaö varðar
þekkingu á þeim tækjum, sem eru
um borð í skipunum. Sagði Selander
að það brynni oft við að yfirmenn á
fiskiskipum þekktu alls ekki nógu
vel sín eigin atvinnutæki.
Þá var rætt um þjálfun sjómanna
á öryggistækjum um borð. í því
sambandi var nefnt, að nauðsynlegt
væri að um borð í hverju fiskiskipi
væru bæði björgunarvesti og björg-
Til hægri er Áke Selander aðstoðarframkvæmdastjóri Alþjóða flutninga-
verkamannasambandsins, honum á vinstri hönd er Ole Jakobsen fulltrúi
Færeyinga á ráðstefnunni.
I viðtali við Morgunblaðið sagði
Áke Selander, sem er aðstoðar-
framkvæmdastjóri Alþjóða flutn-
ingaverkamannasambandsins, með-
al annars að rætt hefði verið rætt
um það, hvernig ætti að framfylgja
ályktunum ILO, eða Alþjóða verka-
mannasambandsins, hvað varðar í
fyrsta lagi lengd vinnutíma, manna-
ráðningar og hvernig hægt sé að
tryggja örugga atvinnu og tekjur.
í öðru lagi var rætt hvernig hægt
sé að haga heilbrigðisþjónustu á hafi
úti.
í þriðja lagi var rætt um þjálfun
sjómanna, þ^ einokun yfirmanna á
fiskiskipum t>g ályktað, að gera
WNKflSTWK--------
unarbátur, og á skipum á alþjóðleg-
um siglingaleiðum þyrfti að vera
neyðarsendir.
Sagði Áke Selander að ennfremur
hefði verið rætt um hvalveiðar, og
sagt að miðað við að nýjustu vísinda-
athuganir á hvalastofninum sýndu
að honum væri að fjölga, teldi
Alþjóða flutningaverkamannasam-
bandið að halda ætti áfram að leyfa
hvalveiðar, svo hvalveiðisjómenn
misstu ekki atvinnu sína, auk þess
sem afurðir af hvalnum væru í
mörgum löndum mikilvægt lífsvið-
urværi.
Sagði Selander að flutninga-
verkamannasambandið áliti, að
hvalavernd ætti að vera rekin á
vísindalegum grundvelli og teldi að
Alþjóðlega hvalveiðiráðið ætti að
ákveða veiðikvóta fyrir næstu hval-
vertíð, til þess að viðhalda og
tryggja hvalveiðistofninn.
Rætt var ura kjör og réttindi
farmanna á skipum, sem sigla undir
fánum frá löndum eins og Panama,
Singapore og Liberíu þar eð skattar
og skyldur af slíkum skipum eru
hagstæðari þar en í öðrum löndum
og kjör sjómanna þaðan léleg og
ótrygg. Sagði Selander, að það væri
nauðsynlegt að tryggja þessum sjó-
mönnum sömu eða svipuð réttindi og
sjómönnum á skipum frá öðrum
löndum og væri flutningaverka-
mannasambandið að leggja drög að
því máli.
Aðspurður, hvar íslendingar
stæðu hvað varðar kjör og réttindi
sjómanna, sagðist Selander ekkert
geta sagt að svo komnu. Verið væri
að kanna kjör sjómanna innan
sambandsins og þegar þeirri könnun
væri lokið og niðurstöður ljósar væri
hægt að gera sér grein fyrir hvar
íslenskir sjómenn stæðu í saman-
burði við starfsbræður sína annars
staðar.
Sagði Selander að ráðstefnan Hót-
el Loftleiðum hefði heppnast prýði-
lega en hana sóttu um 15 manns frá
aðildarfélögum í Japan, Færeyjum,
Spáni, Bretlandi auk íslendinga.
Framkvæmdastjóra-
skipti hjá Arnarflugi
í DAG, 28. ágúst, lætur Magnús
Gunnarsson. framkvæmd-
astjóri, af störfum hjá Arnar-
flugi og við tekur Gunnar
Þorvaldsson, flugstjóri.
Magnús hefur verið fram-
kvæmdastjóri félagsins frá
stofnun þess fyrir rúmum 5
árum, en lætur nú af störfum að
eigin ósk.
Á stjórnarfundi nýlega voru
Magnúsi færðar þákkir fyrir
frábært starf í þágu félagsins og
árnað heilla á nýjum vettvangi.
Gunnar Þorvaldsson er einn af
stofnendum Arnarflugs og hóf
störf þar sem flugmaður, en varð
síðan flugstjóri, flugrekstrar-
stjóri og nú siðast aðstoðar-
framkvæmdastjóri, áður en
hann tók við starfi fram-
kvæmdastjóra.
éíÍÍIMSb1
u..:
WKI5T vrm HVRP þ»J
EFTT HP HUGSB, HFKRR"