Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 17

Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 17 Ævi og störf ... Kristján Valdimar Björnsson, sonur Gunnars Björnssonar ritstjóra ok Ingibjargar Ágústinu Ilördal. konu hans, fæddur i Minneota, Minnesota, 29. ágúst, 1906. Lærði að setja stil i prentsmiðju föður síns við vikublaðið Minneota Mascot, byrjaði rúmlega 11 ára. Útskrifaðist úr gagnfræðaskóla — Minneota High School — 1924. Hann, Iljálmar og Björn, eldri bræðurnir, gengu á University of Minnesota eftir röðinni, úr því að einhver þurfti að vera við að gefa út hlaðið i Minneota, sérstaklega eftir að faðir þeifra var settur i Skattanefnd rikisins að hausti 1925, er fjölskyldan flutti að mestu ieyti til Saint Paul og Minneapolis. Valdimar útskrifaðist úr Minnesota-háskólanum 1930 mcð Bachelor of Arts-gráðu. summa cum laude, í Political Science — eða stjórnfræði. Hvarf aftur til Minneota til starfa við blaðið, en fluttist til „tvibura-borganna“, St. Paul ok Minneapolis, að vori 1935 þegar honum bauðst staða við útvarpsstöðina KSTP sem „editorial commentator“ og var hann líka látinn flytja þingfrétt- ir af Minnesota-þingi. Um leið var hann ráðinn við Minneapolis Journal að semja leiðara og vann þar 1935 og 1936, ok þá tók hann við af Hjálmari bróður sinum að semja ritstjórnarKreinar hjá Minnrapolis Tribune, 1937 til 1941, er Hjálmar fór tii höfuðborKarinnar, WashinKton. Hann gekk i herþjónustu i ameriska flotann sem offiséri haustið 1942, ok var strax sendur til íslands vegna þess að hervöldin þar vildu fá blaðamann sem kynni islenzku til starfa sem Press Liaison Officer — blaðafulltrúi. Hann var á íslandi nærri fjögur ár, fékk lausn úr herþjónustunni seint á árinu 1946 og byrjaði þá um áramótin að scmja ritstjórnarKreinar við St. Paul Pioneer Press og Dispatch og var um leið i fréttaflutningum og öðrum þáttum við útvarpsstöðina KSTP. Valdimar hneigðist snemma að stjórnmálum, þar sem faðir hans var snemma meðlimur ríkisþingsins i Minnesota og flokksformaður repúblikana um allt Minnesota-riki 1914. Var Valdimar formaður í þeim flokki í heimahéraðinu, Lyon County, 1932 til 1934. Hann hætti við blaðamennsku og útvarp 1950 er hann var kosinn State Treasurer — fjármálaráðherra hefur það heitið á islenzku. Hann var endurkosinn i tveggja ára kjörtimabil 1952 en gekk inn á það að verða i framboði repúblikana flokksins á móti Hubert Humphrey, U.S. Senator frá Minnesota, þá að sækja um endurkosningu í fyrsta skipti. Hann var fyrir ósigri og tók aftur við ritstjórnarstarfi hjá St. Paul-blöðunum. Hann sótti um gömlu stöðuna aftur 1956, sigraði keppinautinn, og var endurkosinn aftur og aftur, fyrst til tveggja ára kjörtimahils og seinna fjögurra ára, 1958,1960,1962,1966 og 1970. Hann kaus að draga sig þá i hlé, sótti ekki um endurkosningu 1974, og hefur verið á eftirlaunum siðan snemma á árinu 1975, upptekinn oftast nær við skriftir og ræðuhöld. Saga Skandinava og sérstaklega íslands hefur oft verið ræðuefni hans. Honum var veittur Stórriddarakross Fálka-orðunnar af íslandi 1947 og Riddara- kross Sankt Olavs-orðunnar norsku 1949. Hann hefur i nokkur ár verið i stjórnarnefnd American Scandinavian Foundation. með miðstöð i New York. Hann hefur haldið áfram útvarpsstarfi öll árin og flytur fréttir frá Norðurlondum einu sinni i viku i útvarpsstöð St. Olaf Coliege í Northfield, Minnesota. Valdimar giftist Guðrúnu Jónsdóttur Hróbjartssonar frá ísafirði, er séra Sigurgeir Sigurðsson biskup gaf þau saman 1946; hann fermdi Guðrúnu þegar hann var prestur á ísafirði. Eiga þau þrjár dætur og tvo syni. Myndin tekin i ágúst 1946, og þar sést hringur föðursins rétt upp við olboga Helgu, þegar hún var rúmlega tveggja mánaða. Valdimar Björnsson með fjölskyldu sinni sem Dóri Hjálmarsson, hátt sett- ur í hernum, efndi til þegar hann var að segja blaðamönnum hvern- ig ætti að gegna öryggisreglum hersins. ívar var mættur fyrir hönd Morgunblaðsins en Jón Kjartansson, síðar sýslumaður í Vík, var oft viðstaddur. Ég man þegar mér var sagt að nú ætti ég að fara frá íslandi, víst alfarinn, sumarið 1945, og yfirboð- arar mínir í Washington voru að planleggja það að senda mig til Noregs þar sem ég átti ekki eftir nema nokkra mánuði í herþjón- ustu að starfa eitthvað þar, úr því ég skyldi og talaði norsku. Ég sat í hálfgerðu iðjuleysi í Washington og þá kom hann Francis Spalding einn daginn — aðstoðarmaður Louis Dreyfus sendiherra í Reykjavík, og sagði mér að nú ætti að senda mig aftur til íslands, að binda mig við ameriska sendiráðið — ennþá í herbúningnum, að vera þeim til aðstoðar þar. Bandaríkin höfðu farið fram á að fá víst 99 ára leigu á þrem herstöðvum — við Fossvog, í Hvalfirði og í Keflavík á vellinum sem Banda- ríkin byggðu á stríðsárunum. Það var ekki lengi áður en neikvætt svar kom upp á slíka beiðni, og þá var hugmyndin að bíða á meðan tvennar kosningar færu fram — bæjarstjórnarkosningar og al- þingiskosningar. Það sem áttu að verða fimm mánuðir hjá mér urðu sextán í staðinn, og ekki var ég erindislaus í þeirri dvöl. Ég var harðnaður piparsveinn, en giftist loksins á Islandi. Það var í febrúar, 1946, sem það heillaspor var stigið er ég gekk að eiga Guðrúnu Jónsdóttur, dóttur Jóns Hróbjartssonar kennara á ísafirði — sem fór frá Flensborg- arskólanum, fæddur á Eyvindar- stöðum á Álftanesi, til Isafjarðar sem búðarmaður með Skúla Thor- oddsen. Jón varð kennari á ísa- firði, teiknaði kortin sem notuð voru í skólum á íslandi, málaði margar landslagsmyndir, spilaði í lúðraflokknum, söng sinn djúpa bassa, og var virtur af öllum. Ég kynntist aldrei Rannveigu Samúelsdóttur frá Naustum, tengdamóður minni; hún dó í júní, 1944, en systur Rannveigar kynnt- ist ég vel, Bjarneyju Samúelsdótt- ur, í svo mörg ár hjúkrunarkona hjá Líkn, með Sigríði Eiríks, móður Vigdísar forseta íslands. Katrín Thoroddsen læknir sem sinnti Helgu dóttur okkar, ný- fæddri, var vön að stríða Bjarn- eyju að hún væri hálfgerð „tengdamamma Valdimars". Helga Bjarney fæddist löngu fyrir tíma í bragga okkar hjóna út í Camp Knox; var farið með hana í Pósthússtræti 17 til Bjarneyjar, og það var snilld hennar og Herdísar Jónsdóttur, mágkonu minnar — kona Gunnars Bierings læknis nú — og ástúð móðurinnar sjálfrar, sem bjargaði Helgu. Hún var svo ótrúlega lítil þegar hún fæddist — innan við tvö pund. Ég man að Iðunn Eylands, dóttir Árna og Margitar, sagði við okkur að hún hafði heyrt um eitt barn svo lítið að hringurinn af fingur föðurins hafi komist barninu upp á handlegg. Við reyndum það. Hringur minn komst upp á hand- legg rétt við olnbogann og eigum við myndir sem sanna það, hún þá rúmlega tveggja mánaða. Þegar við fórum frá Islandi í desember 1946, var Helga Bjarney sex mán- aða, og þyngd hennar þá rétt níu pund. Gulla hefur kona mín oftast verið kölluð og það vegna þess að þegar hún bættist í hópinn á Isafirði, voru tvær aðrar Guðrún- ar, uppi og niðri í húsinu. Hún á auk Herdísar, systur sem heitir Sigríður, sem á heima á Grettis- götu 73, ekkja Ingvars Jónssonar, sem Torfi Hjartarson lét koma frá ísafirði að starfa við tollinn. Og svo er einn bróðir, Páll, sem vann í fjöldamörg ár hjá Flugfélaginu, mikið við það að mála og punta vélarnar. Því miður veit maður ekki hvar á að hætta þessari endaleysu, en lengdin gerir upp við Morgunblað- ið „greinaleysið" hjá mér upp á síðkastið. Þess er varla þörf að lýsa góðvinum fyrir þó nokkrum árum núna — Ólafi Thors og Ingbjörgu, konu hans, sem ég varð sérstaklega vel kunnugur. Ég átti að vera nokkurs konar „sendi- sveinn" milli Hugh Cummings og Ólafs og annarra pólitíkusa þegar hann, sem yfirmaður Norður- Evrópudeildar utanríkisráðuneyt- isins, var á sendiráðinu hjá Dreyf- us, að semja um Keflavíkurflug- völlinn eftir stríð. Sumir voru mikið að ýkja það sem ég á að hafa gert í sambandi við Keflavíkur- samninginn 1946, en ég var bara milligöngumaður; Cumming, flinkur í utanríkisþjónustunni, gerði samninginn. Að maður minnist á fjölskyldu okkar hjóna, eins og hún hefur aukist í Minneapolis — og hafa þau öll komið til íslands, sum oftar en einu sinni, þá er Helga Bjarney, sú elsta. Hún giftist manni sem hún þekkti hér í Minneapolis í gagnfræðaskóla, Pieter Visscher, son Maurice Visscher, læknis, sem verður átt- ræður eftir nokkra daga og Ger- trude Pieters, konu hans, af hol- lenskum uppruna bæði. Maurice kenndi Physiology við læknadeild Minnesota-háskólans í rúm 30 ár. Helga og Pieter eru nú í Tusca- loosa, Alabama, þar sem Pieter er kennari i efnafræði og mikið við rannsóknir líka. Þau hafa gefið okkur tvö barnabörn — Kristínu Maríu, hátt upp í það að verða fimm ára, og Paul Jón, rúmlega tveggja. Svo er Kristín Rannveig, sem er gift manni, sem er norskur að faðerni, sonur Sigurd Ode, kenn- ara, sem var rétt fyrir lát hans fyrir fáeinum árum aðstoðar- fræðslumálastjóri Minnesota-rík- is — Deputy Commissioner of Education. Kristín er hjúkrunar- kona. Jón Gunnar, er næstur, sem lærði að ganga á íslandi, tók fyrstu sporin við Leifsstyttuna sumarið 1950 í fjölskylduheim- sókn til íslands. Ég hef stritt honum um það að hann eigi að skreppa heim árið 2000, að flytja ræðu á þúsund ára afmæli Amer- íkufundar Leifs heppna, við stytt- una. Valdimar Halldór er næstur. Jón útskrifaðist frá háskólanum með gráðu í sögu; Valdi kaus hið praktíska, lærði að vera logsuðu- maður, og er við vel launuð störf í þeim bransa. Hvorugur drengj- anna er giftur og búa í heimahús- um. Maria Ingibjörg, kölluð Maja, er yngst og ógift, verður 26 ára í september, og hefur stundað ýmis störf síðan hún var við háskólann, komið fram í leikritum og jafnvel í ballettdönsum. Ég var heimagangur í Freyju- götu 43 lengi, þar sem „Siggi í Geysi" bjó. Sigurður Jóhannsson og Ingibjörg Eyjólfsdóttir, kona hans, sem dó úr krabba eftir langa legu, indælis kona. Mér fannst hún, fárveik, styrkja aðra sem komu að votta henni samúð þegar Halldór, sonur þeirra, fórst með Goðafossi, þegar Þjóðverjar sökktu skipinu tveggja tíma sigl- ingu frá Reykjavík 11. nóvember 1944. Ingibjörg var náfrænka Ellu Kristjánsdóttur Jónassonar, sem giftist Hjálmari, bróður mínum og þannig var ég oft innan um hennar skyldfólk. Hún býr í gamla heimabænum sínum í Edmonton í Alberta-fylki í Kanada, og ein- birni þeirra, Hjálmar Kristján, á heima í Cincinnati, Ohio, bundinn við verzlunarkerfi sem á búðir víða um Bandaríkin; giftur norskri stúlku frá Albany, Minne- sota, Gloriu Kittelson, og eru þau barnlaus. Foreldrar Ellu voru Kristján Jónasson og Halladóra Bergþórsdóttir, frá Straumfirði, Mýrum. Ella missti alveg nýlega eina bróðurinn, Jónas, og tóku þau sem ættarnafn Jónasson, sem var seint á stríðsárunum með kanadiska flughernum á íslandi, og kynntist þá náið mörgu skyldfólki. Jónas var 81 árs, blindur síðari árin, lengi kennari og um tímabil fræðslumálastjóri í stórum hluta Alberta-fylkis. Um skyldfólk Ellu las maður nýlega með ánægju um Reyni Ármannsson og 40 ár hans í póstþjónustunni í Reykjavík — byrjaði 1941 þegar „Siggi Bald“ var póstmeistari. Ármann Eyj- ólfsson, faðir hans, var bróðir Ingibjargar í Freyjugötunni. Svo ganga ættliðirnir — Halldór Reynisson, prestlærður, ágætis blaðamaður við Vísi, nýlega í Bandaríkjunum í Indiana að læra meira um notkun útvarps í kirkju- störfum. Störf hans verða önnur — við fréttastofu útvarpsins eftir komuna til íslands aftur, en nú nýlega skipaður ritari forsetans, svo að Vigdís Finnbogadóttir fær sérstaklega fjölhæfan og marg- reyndan ungan mann í embættið hjá sér. Best er að hætta hverjum leik þegar hæst fram fer, sagði Hall- grímur — og skárra væri að gegna því máltæki núna. Hver veit nema maður semji stutta grein í Morg- unblaðið einhvern tíma á næst- unni? Sjá ennfremur afmælisgreinar á bls. 28 og 29.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.