Morgunblaðið - 29.08.1981, Page 31

Morgunblaðið - 29.08.1981, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 31 Jón Þ. Árnason: — Lífríki og lífshættir LXVII Spurningin er: Hvers vegna tregðast mennirnir með „ismana“ og „hyggjurn- ar“ við að leiða líkur að, hvernig 6.300.000.000 manna geti satt hungur sitt við stórrýrð ræktunarskilyrði, þeg- ar hundruð milljóna svelta við núríkj- andi aðstæður? Niðurstöðum sérfræðinga virtustu rannsóknastofnana ber býsna vel saman um sennilegast- an mannfjöida á jörðinni árið 2000, um næstu aldamót, eftir rösk 18 ár. Hann er talinn muni nema nálægt 6.300.000.000. Af þessari mergð álítur The Center for Integrative Studies (skv. „World Facts and Trends", University of Houston 1979) að um 80%, eða rúmlega 5.000.000. 000, muni freista lífsbaráttunn- ar í svonefndum þriðja heimi, þar sem meira en helmingur íbúanna hefir þjáðst af vannær- ingu og hungri um áratugi, en einkum þó síðan honum var sleppt lausum út í „frelsi og sjálfstæði". Risaborgir í tugatali Og 8 lönd — Kína, Indland, Indónesía, Brasilía, Bangladesh, Pakistan, Nígería og Mexikó — munu þá njóta þeirra mjög svo hæpnu hlunninda að geta státað af að hafa næstum 60%, eða um 3.780.000.000, allra jarðarbúa innan landamæra sinna. Um- hugsunarvert hlýtur ennfremur að sýnast, að þótt nú þegar sé óumdeilanlegt, að fjöldi borga hefir brotið af sér nær öll bönd laga og réttar, aga og velsæmis, fræða skýrslur, sem lagðar voru fram við undirbúning alþjóða- ráðstefnu um „íbúa og framtíð borga“, er sat á rökstólum í Róm dagana 1.—4. september 1980, okkur um, að samþjöppun fólks muni óðfluga miða í risaborgir, makropolis. sem fyrirsjáanlega muni hýsa, ef hýsingu er vogandi að kalla, manngrúa á við hálfa núverandi íbúatölu Frakklands (53.415.000) — og jafnvel meira. Vanþroskaheimurinn mun að sjálfsögðu einnig þar skara fram úr. Nefndar heimildir telja víst, að af 25 þessara risaborga með yfir 10.000.000 íbúa hver, muni 20 prýða hann; allt frá Bagdad með 11.100.000 til Mexico-City með 31.000.000, en þar hrærast nú yfir 14.000.000 að því er næst verður komizt, og er hún því fjölmennasta borg heims. Væntanlega er ekkert ofsagt með að fullyrða, að nálega sér- hver skynigædd manneskja hafi heyrt mannfjölgunarsprengj- unnar getið oftar en einu sinni. Hátt eða í hljóði munu og flestir geta fallizt á, að bandarísku vísindamennirnir, Paul R. Ehrlich og eiginkona hans, Anne H. Erlich, skjóti ekki yfir mark (í bók sinni „Population, Re- sources, Environment: Issues in Human Ecology", San Francisco 1970), þegar þau staðhæfa, að „mannleg kjarnorkusprengja ógnar reikistjörnu okkar". Aðvaranir lífverndarfólks við ógnarlegum afleiðingum þessar- ar sprengju hafa átt verulegan þátt í að vekja samvizku hugs- andi manna til meðvitundar um ábyrgð sína á eigin tilveru- grundvelli. Enn hafa þær þó ekki mátt sín mikils gegn hrópum hagvaxtartrúaðra og annarra þeirra, sem leggja mikla áherzlu á, að einmitt sökum vaxandi fólksfjölda eigi kröfur þeirra um sífellt aukinn náttúruránskap og lífríkisspjöll meiri og betri rétt á sér, og styðjist því við styrkari rökstoðir. Hvar slíkri vegferð hlyti að ljúka, ef farin yrði, láta þeir hins vegar ógetið, en er þó ekki ýkjaerfitt að gera sér í hugarlund. Hungurdauðinn bíður milljarða Til nánari skýringar verður að teljast ómaksins vert að athuga, að ef áfram heldur sem hingað til, mun fjöldi jarðarbúa tvöfald- ast á tæpum 35 árum í fyrsta sinn á kunnum ferli sínum. Eins 60% jarð- arbúa í 8 löndum og hér að framan er getið, mun mannkyninu óhjákvæmilega hafa fjölgað í 6.300.000.000 árið 2000 að áliti flestra mannfjölda- fræðinga. Ef fjölgunin heldur áfram með sama ákafa og und- anfarið, en tvöföldunartíminn, sem þó til þessa hefir stöðugt stytzt — úr 1.500 árum í kring- um árið 8000 f. kr„ í 200 ár frá árinu 1650 e. Kr„ í 80 ár frá árinu 1850, í 45 ár frá árinu 1930 og í 35 ár frá árinu 1975, samkvæmt útreiknun Ehrlich- hjónanna — til hægri verka talinn óbreyttur, ætti eftirfar- andi hryllingur máski að geta vakið einhverja úr vímu hag- vaxtarlyfja: ÁriA 2000 yrftu jarflarbúar fi.300.000.000 Árifl 2070 yrOu jarðarbúar 25.200.000.000 Árið 2175 yrðu jarðarbúar 201.fi00.000.000 Árið 2595 yrðu jarðarhúar 825.753.fi00.000.000 Fáránlegt væri að reikna dæmið lengra fram í tímann; skömmu eftir árið 2600 myndi sérhver manneskja standa upp við aðrar, enginn gæti lagzt niður, og fyrir því hefði ég eiginlega getað látið mér nægja það, sem áður segir um afar sennilegan mannfjölda árið 2000. Eða jafnvel árið 1981 því að þegar er orðið ljóst öllum, sem á heilafrumur og skiln- ingarvit reyna, að framfærslu- byrðin er orðin náttúruríkinu langt um megn eins og dagleg hungurdauðatíðindi bera með sér. Hungurdauðinn er orðinn hlutskipti milljóna manna — og einber óskhyggja væri að ímynda sér annað en að hann muni leggja milljarða að velli á næstu áratugum. Samlíking svissneska heim- spekingsins, Denis de Rouge- mont (sbr. bók hans „L’avenir est notre affaire", þ. útg. Stutt- gart 1980), sem ég hefi áður vitnað í, á vafalítið rétt á sér: „Krabbamein getur ekki orðið mikið stærra en líkaminn, sem það dafnar í og drepur (og sjálft sig um leið), löngu áður en það hefir læst sig um hann allan." Svar við athugasemd sinni, í Fáránleg fram- reiknun betra lagi kaldhranalegt, segist de Rougemont hafa hlotið af vörum ónafngreinds sérfræðings á sviði matvælaframleiðslu: „Það verður hægt að fæða alla, en þeir munu verða að borða standandi." Ef þessi fíflska hefði ekki gengið fram af de Rougemont, myndi hann ugglaust hafa frætt tölvubjálfann um, að þótt ný- ræktarland hafi nokkurn veginn haldizt í hendur við fólksfjölg- unina allt til ársins 1950, en orðið aftur úr árin 1950—1975, telji framreiknanir yfir síðasta fjórðung 20. aldar frekari rýrn- un vísa. Engar lausnir í sjónmáli Vissulega er rétt, að enn eru fyrir hendi allvíðfeðm svæði, sem unnt er að nýta til akur- yrkju, samtímis að önnur eyðast eða eru tekin til annarra nota. Þrátt fyrir það stefnir þróunin í allt annað en hagstæða átt. Fáeinar tölur varðandi það, sem við megum vænta (sjá Lester R. Brown: „The World- wide Loss of Cropland", Wash- ington 1978) hefðu og getað komið sér vel. Árið 1950 nam kornræktar- land 0,241 ha að meðaltali á mann, en ekki meira en 0,184 ha árið 1975 — hafði því dregizt saman um 0,057 ha. Framreikn- anir, sem taldar eru traustar, bera ennfremur með sér, að árið 2000 muni það ekki nema yfir 0,128 ha, því að mjög vafasamt er talið, að gjörræktunarráðstaf- anir fái bætt nokkuð um. Af þessu og ýmsu fleiru verður þess vegna ekki hjá komizt að horfast í augu við, að hinn sorglegi matvælaskortur mann- kynsins muni versna um allan helming. (I þessu samhengi get ég ekki stillt mig um að gera þá óvinsælu athugasemd, að verk- smiðjudraumar (aðrir en þeir, sem snúast um matvælafram- leiðslu) íslenzkra „stjórnmála- Mas og þras fellir skóga manna" og fyrirhugsuða þeirra í efnahagsmálum, taka sig fyrst og fremst af þessum sökum afar skringilega út. Beinlínis hræmu- legir verða órarnir, þegar þeir ímynda sér, að erlendir atvinnu- rekendur, með milljónir at- vinnuleysingja hímandi við hálf- nýttar verksmiðjur í hlaðvarpa yfirfylltra markaða, muni standa í biðröðum eftir að kaupa rándýra orku af reikandi stjórn- völdum, sem hverju sinni sitja af náð ASI. Að sinni leiði ég hjá mér þann óhræsisskap, sem birt- ist í slíkum hugrenningum, í garð hins litla og viðkvæma lands.) Að fróðustu manna yfirsýn ríkir enginn ágreiningur um, að vandamál Adamsættar hafa náð þeim vexti, sem ekki getur talizt minna en hrikalegur. Engan málsmetandi lærdómsmann veit ég treysta sér til að benda á iausnir betri en að vera í bezta lagi annaðhvort ákaflega stað- bundnar eða þröngt tímabundn- ar. Ymsir ganga m.a.s. svo langt, t.d. Edward Goldsmith, Robert Allen og samstarfsmenn þeirra (í bók sinni „A Blueprint for Survival", London 1972) að stað- hæfa: „Hrun heimsmenningar- innar er þess vegna fyrirsjáan- legt; og það einhvern tíma á næsta mannsaldri." Þessi hópur vísindamanna treystir sér ekki fremur en aðrir til annars en að ympra á leiðurn og úrbótum; naumast að neinu, sem hefði varanlegt gildi. Næst munu þeir komast með fyrirvara sínum um að vera kunni, að óskilgreindir og hrausthuga úr- valsgarpar gætu kannski slegið hruni á frest, en að því tilskildu þó, að úrræði þeirra yllu meiri- hluta mannkyns þungum þján- ingum og harðýðgi. En ef þannig mætti forða heimsmenningunni frá hruni, skýzt spurning Schillers, „Hvað er meirihlutinn?", ósjálfrátt fyrir hugskotssjónir mínar, og svar hans við henni síðar: „Meirihlutinn er endileysan“ Fyrir löngu er augljóst orðið, að Samtök sameinuðu þjóðanna er eitthvert ömurlegasta og jafn- framt ógeðfelldasta dæmi sög- unnar um miðmögnun vanhæfni og hugsunarleysis. I samanburði við þau finnst mér eins og Barrabasar-meirihlutinn, sem hinn tigni Rómverji, Pontius Pílatus, komst ekki hjá á sínum tíma, stöðu sinnar vegna, að virða viðlits, hafi hlotið að vera tiltölulega hemjanlegt alþýðu- bandalag. Alveg sérstaklega hef- ir þessi staðreynd berháttað sig eftir að Þórarinn Þórarinsson og önnur vanþroskaríki, títtnefnd- ur þriðji heimur, gerðist þar ótvíræður domus maximus; og má því augljóst vera, að allar svörtustu spár hljóta að rætast í óþekktum veldisvísi. Hinar fjölmörgu ráðstefnur, alþjóðlegar jafnt sem svæða- og sérsviðabundnar, allt frá um- hverfismálaráðstefnunni í Stokkhólmi árið 1972, ársþing- um Evrópuráðsins til orkumála- ráðstefnunnar í Nairobi 10.—21. þ.m„ sem hóað hefir' verið upp á svið, hafa sannarlega verið mat- aðar á ógrynnum gagnlegra upp- lýsinga. Útkoman hefir sjaldn- ast orðið önnur en froðusnakk og pappírseyðsla, kannski sökum þess að fróðleikurinn hefir ekki verið við hæfi barna. Ekki er þó fyrir það að synja, að stöku sinnum fái þingarar skynsemissnert. Þannig reyndi Richie Ryan, írskur fulltrúi á síðasta þingi Evrópuráðsins í Strassbourg, um miðjan maí þ.á. (líklega undir framsöguræðu Ólafs R. Grímssonar, sem nú dvelst í flokki íslenzkra sovét- vine og bíður tilboða, fyrir úrræðum sínum á lausn heims- vandans, er þingið samþykkti og nefndi „Þróun heimsbyggðar: Þarfir mannkynsins og auðlindir jarðarinnar") að gera upp, hvað kjaftæði kostar: Miðlungilöng greinargerð upp á 50 síður verður 350 síður í þýðingum á hin 7 opinberu tungumál samkundunnar, upp- lag afurðarinnar 500—2.250 ein- tök. Úr henni verða því örsjald- an minna en 400.000 síður. Breytingartillögur, sem auðvitað einnig þarfnast prentmeðferðar, eru engin einsdæmi, og af því leiðir að frá fæðingu til full- burða bólgnar hugverkið upp í 1.000.000 síður. En af því að snillin felst ekki aðeins í einni tillögu með grein- argerð og skýrslum, heldur haugum, sem settir eru í umslög, jórtrar sérhvert þing Evrópu- ráðsins árlega í sig 570 t af pappír, en til framleiðslu þeirra verður að fella a.m.k. 700 full- vaxin tré. Þannig meltir sérhver hinna 434 háttvirtra 1,6 tré á ári. Sérhvert ársþing Evrópuráðsins torgar yfir 700 fullvöxnum trjám. ÓBÆRILEGUR FRAMFÆRSLUÞUNGI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.