Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 32

Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 32
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA? 32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981 LJÓÐLIST Ljóðadagskrá í Norrœna húsinu GESTUR Norræna hússins um þessar mundir er sænska ljóðskáld- ið og rithöfundurinn Jan Márten- son ok laugardaginn 29. ágúst kl. 17.00 les hann upp eigin ljóð í Norræna húsinu. Einar Bragi og Þorsteinn frá Hamri koma einnig fram og lesa úr Ijóðabókum sínum. Jan Mártenson er fæddur 1944 í Tidaholm í Svíþjóð. Hann er þekkt- astur sem Ijóðskáld og kom fyrsta ljóðabók hans Dikter nu út 1968. Síðan komu tvær ljóðabækur en segja má að hann yrði fyrst þekktur er Ijóðabókin Jag erövrar várlden tillsammans med Karl och bröd- erna Marx kom út árið 1973. Úrval úr þessum fyrstu ljóðabókum kom út 1975 undir heitinu Mellan Tida- holm och várlden. Nýjasta ljóðabók Jan Mártensons Genvágar till gal- enskapen kom út 1979. Auk Ijóðagerðar hefur hann feng- ist við skáldsagnagerð og nú er væntanleg 10. bók hans, Skilda, og fjallar hún um uppvaxtarárin á 6. áratugnum. Er hún fyrsti hluti af þrileik (trilogi). I bókum sínum og ljóðum lýsir Jan Mártenson oft þeim heimi smábæjarins, sem hann óx upp í. Hann skrifar um utan- garðsmenn þjóðfélagsins, en þeim hefur hann kynnst og hefur samúð með. Jan Mártenson hefur starfað sem blaðamaður frá 1%1 og skrifar nú fyrir dagblaðið Arbetet í Malmö. Einnig skrifar hann greinar um menningarmál í ýmis tímarit. Jan Mártenson hefur tvívegis gist Norræna húsið, 1973 er hann las upp úr Ijóðum sínum og 1977, en þá talaði hann um sænskar bókmennt- ir. MYNDLIST Sýnir d A Mokk a KAREN Cross sýnir 27 myndir á Mokka og er það önnur sýning hennar hér á landi og á sama stað og sú fyrri, en á þeirri sýningu keypti Sólarfilm fjórar vatnslita- myndir Karenar og gaf þær út á jólakortum. Á þessari sýningu eru bæði acryl- og vatnslitamyndir. Karen Cross fæddist 1950 í Jackson í Bandaríkj- unum. Hún útskrifaðist frá Jackson Community Collage, með vísindi sem valgrein, hún stundaði síðan í eitt ár nám í arkitektur við The Lawrence Institute of Technology, samhliða náminu vann hún á arki- tektaskrifstofu. Að því námi loknu stundaði hún nám við Wayne State University um tveggja ára skeið og útskrifaðist með BA-próf í listum. Karen settist að á Islandi 1978 og stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík í eitt ár. AKUREYRI Sýning og upplestur Rauða húsinu Kristín Jónsdóttir við eitt verka sinna. Jón óskar SÝNINGU Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá í Rauða húsinu á Akur- eyri lýkur á sunnudag og á sunnu- dagskvöld les Jón Óskar skáld upp úr verkum sínum i Rauða húsinu. Á sýningu Kristínar eru 30 verk, gerð úr ýmiskonar efni, svo sem ull, hör, hrosshári, pappír o.fl. Þéfta er'fýrsta einkasýnirig Krist- ínar, en hún hefur áður tekið þátt í samsýningum heima og erlendis. Kristín stundaði nám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík og Kunsthándværkerskolen í Kaup- mannahöfn. Auk þess var hún um skeið við nám í Frakklandi og á ítaliu. Siðasta helgi Flugminjasýningarinnar, sem staðið hefur yfir i Árbæjarsafni i sumar, er nú um helgina, en þar hefur verið komið fyrir flugvélum og munum úr islenzkri flugsögu, m.a. gamalli flugvél og svifflugu. Safnið er opið kl. 13.30—18.00 og strætisvagnaleið 10 gengur þangað. Hér á myndinni er likan af fyrstu flugvélinni, sem hér hafði viðkomu. Fleiri sýningar eru i Arbæjarsafni. Tískusýn- ing í mið- bœnum Ef veður leyfir munu sýn- ingarsamtökin Karon efna til tískusýningar við útitaflið klukkan 18.30, laugardaginn 29. ágúst. Sýnd verða föt frá versl- uninni Sonju á Laugavegi. Kynnt verður ný ullarfatalína frá Danmörku og verður hér um að ræða komandi haust- og vetrartísku. Sumargleð- in skemmtir Sumargleðin mun koma til með að haida uppi fjörinu á unglinga- hátíð sem haldin verður í Tónabæ á sunnudagskvöldið. Hefst hátíðin á slaginu kl. 21. Sumargleðin verður svo á Hótel Sögu á iaugardagskvöldið en á sunnudaginn, klukkan 15.30 held- ur hún fjölskyldúskemmtun í íþróttahúsinu í Keflavík. Góða skemmtun. TÓNLIST Síðustu síðdegistón- leikamir í Dómkirkjunni SÍÐUSTU síðdegistónleikar sumarsins í Dómkirkjunni að þessu sinni verða næstkomandi sunnudag kl. 18. Á þessum tónleikum verður eingöngu flutt tónlist eftir Gunnar Reyni Sveinsson. Á efnisskránni verða eftirtalin verk: Hugleiðing um sálmalagið Jesú mín morgunstjarna, Miserere og Toccata. Þessi verk eru samin fyrir orgel. Einnig verða fluttar 4 Postludiur fyrir baritonrödd og orgel við ljóð eftir Bólu-Hjálmar, Matthías Jochumsson og Stefán frá Hvítadal. Þessar Postludiur til- einkar höfundurinn biskupnum yf- ir íslandi, Hr. Sigurbirni Einars- syni. Flytjendur á þessum tónleikum verða Gústaf Jóhannesson og Hall- dór Vilhelmsson. Gunnar Reynir stundaði nám í tónsmíðum hjá Jóni Þórarinssyni tónskáldi við Tónlistarskólann í Reykjavík 1955—61. Burtfarar- prófsverkefni hans var Messa fyrir blandaðan kór og einsöngvara. Framhaldsnám stundaði Gunnar við Tónlistarháskólann í Amster- dam 1964—67 og síðar í boði hollenskra stjórnvalda í eitt ár við LEIKLIST Nemendaleikhúsið sýnir í Lindarbœ FJÓRÐI bekkur Leiklistarskóla íslands, Nemendaleikhús, hefur nú starfsemi sína með því að hafa nokkrar sýningar fyrir almenning á lokaverkefni síðasta árs, barnaleikritinu „Sorglaus konungsson" eftir Suzanne Osten og Per Lysander, byggt á sögu eftir Evu Wigström. Leikstjóri er Þórunn Sigurðardóttir. Sýningar verða á sunnudögum og fyrsta sýning verður á sunnudaginn kem- ur kl. 15.00 í Lindar- bæ. Æfingar eru nú að hefjast á fyrsta verk- efni Nemendaleik- hússins, leikriti um Jóhönnu af örk, eftir önnu Seghers. Leik- stjóri verður María Kristjánsdóttir, en um leikmynd og bún- inga sér Guðrún Svava Svavarsdóttir. Gunnar Reynir Sveinsson Ríkisháskólann í Utrecht. Gunnar Reynir hefur samið fjölda tón- smíða af ýmsum gerðum þ.á m. fyrir leikhús og kvikmyndatónlist. Á sunnudagstónleikum Dómkirkj- unnar verða flest tónverkin frum- flutt. Öllum er heimill ókeypis aðgangur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.