Morgunblaðið - 29.08.1981, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981
37
félk í
fréttum
Sumarfrí
+ Karl Gústaí SvíakonunKur
ok Silvía íóru nýloKa i ferða-
lajj út á land með bornin,
Viktoríu og Karl Fiiippus.
Konungurinn veiddi fisk í
nála'Ku vatni ok aflinn var
svo steiktur yfir eldi ok
snæddur í grasinu. Mikiar
annir hafa verið hjá Karli
Gústafi að undanfórnu og
þótti honum tilvaiið að taka
nokkra daga frí með fjöi-
skyldunni.
Viktoría prinsessa veit
ekki enn að hún verður næsti
þjóðhöfðinKÍ Svíþjóðar, enda
skiptir það litlu máli þegar
maður er bara fjögurra ára i
sandkassaleik.
Karl Filippus, tveggja ára,
situr hér alsæll og rólar sér, í
peysu sem hann fékk lánaða
hjá systur sinni.
Skömmu eftir þetta fór öll
fjölskyldan í siglinKU á
snekkju meðfram strönd Svi-
þjéklar og kom við hjá vinum
ok kunninKjum á leiðinni.
Myndirnar tók Karl Gústaf.
Lord David
+ Hinn nítján ára gamli sonur
Margrétar prinsessu, Lord Dav-
id, er orðinn að umtalsefni vegna
ástarmála, líkt og móðir hans
hefur verið síðastliðin 30 ár.
Hann er hrifinn af bekkjarsyst-
ur sinni, Sally Fellows, sem er
átján ára, og nýlega fóru þau í
leikhús saman. Sally þessi út-
skrifaðist með hæstu einkunn á
stúdentsprófi og ætlar að leggja
stund á rússnesku í haust.
Þegar högg er hátt
of reitt, hættir
því við að geiga
Eftir Ásgerði Jónsdóttur
Þegar ég, fyrir skömmu síðan,
kom heim úr sumarleyfi, lá fjallhá
hrúga af Mogganum mínum fyrir
dyrum inni. Eg pældi samvisku-
samlega gegnum beðjuna, las allt
sem máli skipti meðal annars um
súrálsmálið, sem mér hefur þótt
mjög athyglisvert frá upphafi.
Það varð langur lestur og ógeð-
felldur, því fátt eða ekkert veldur
mér jafn mikilli ógleði og að sjá
réttlætinu misboðið og það jafn
heiftarlega eins og í þessum súr-
álsskrifum Morgunblaðsins í síð-
astliðnum júlímánuði.
Maður er nefndur Hjörleifur
Guttormsson og er iðnaðarráð-
herra á Islandi þessa stundina.
Hann hefur gerst svo djarfur að
sýna árvekni og skyldurækni í
starfi. Hann hefur gerst svo djarf-
ur að rasa ekki um ráð fram í
orkumálum, heldur kveða menn til
ráðuneytis, umræðu og undirbún-
ings um sem flesta hugsanlega
þætti mála áður en ráðist er í
framkvæmdir og firra þær þannig
alkunnum eftirmálum eftir föng-
um.
Hann hefur gerst svo djarfur að
amast við því að útlent auðfélag
hlunnfari Islendinga og gangi á
gerða samninga við þá. Hann
hefur gerst svo djarfur að geipa
ekki um það mál í tíma og ótíma,
þrátt fyrir hóflausan ágang
fréttamanna, heldur leita kunn-
áttu um allt er varðar þetta
tiltekna málefni nálega um allan
heim og aldrei látið af hendi
rakna aðrar upplýsingar en þær,
sem fengnar eru af staðreyndum.
Hann hefur gerst svo djarfur að
sýna hinu erlenda auðfélagi til-
litssemi í hvívetna. Hann til
dæmis sakfelldi það ekki að
órannsökuðu máli heldur talaði
um „meinta" sök („meinta hækkun
í hafi“) að minnsta kosti þangað
til skýrsla Lybrands & Co. leiddi
staðreyndir í ljós og taldi sjálfsagt
að taka tillit til leyndarmála þess
hvernig sem íslenskir fréttamenn
hömuðust af því tilefni. Hann
hefur gerst svo djarfur að ræða
súrálsmálið hlutdrægnislaust og
ópersónulega og af þeirri kurteisi
og háttvísi, að enginn einstakling-
ur hefur hlotið svo mikið sem
skeinu af hans völdum.
Fyrir þessar „sakir“ hafa súr-
álsskriffinnar Morgunblaðsins,
nafngreindir og ónafngreindir,
keppst við að reita æruna af
Hjörleifi Guttormssyni. Fyrir þær
skal hann vera óalandi og óferj-
andi og því hvergi hafandi nærri,
þar sem rætt er við erlenda
súrálsherra.
Mér virðast þeir vera gengnir
svo mjög úr vitrænum ham að þeir
séu farnir að vega að sjálfum sér.
Það hefur ekki hingað til þótt
Ijóður á ráði manns að gera skyldu
sína við ríki og þjóð, — að mæla
ekki fleira en hann veit með vissu,
— að sýna öðrum, án undirlægju-
háttar, sömu háttsemi í orði og
verki, sem hann æskir sjálfum sér
til handa.
hin ef þessi atriði teljast nú
mannorðslýti þá veit ég ékki
lengur hvað gott mannorð er og
lýsi eftir merkingu þess hjá
pennaglöðum skriffinnum Morg-
unblaðsins.
15. ág. 1981
ÁsKcrður Jónsdóttir.
ÞU AUGLYSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
H m hi [catI mm H
H [PLUSj H
H H Notaðar H H
H H H H H H H H H jaróýtur D7 F ps. U-tönn Ripper árg. 74 180 hö. D6 C ps. A-tönn Ripper árg. ’67 120 hö. D6 B dd. A-tönn Ripper árg. ’63 93 hö. D4 D dd. A-tönn árg. ’65 65 hö meö 16 diska 20” Rome herfi. Upplýsingar veitir véladeild. rnj CATERPILLAR L □ ÖALA G. t=UÓNUSTA Caterpillar, Cat ogŒeru skrásett vörumerki H H H H H H H H H
HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240
H Ih1Ih1[h1[h1íh1Ih1Ih1 H