Morgunblaðið - 29.08.1981, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981
43
• Páll Pálmason verður elsti • ómar Jóhannsson, lykilmaður-
leikmaður vailarins. inn í spili ÍBV.
„Stytti nafn
mitt verulega“
- sagði Ásgeir sem þurfti að
skrifa á 10 þúsund fótbolta
„l>að cr ýmisleBt sem við þurí-
um að jfera annað en að æfa og
leika knattspyrnu fyrir Bayern
Munchen. Félagið gerir ýmsa
samninga við fyrirtæki og græðir
á því mikla peninga. Nú nýverið
þurftum við leikmenn liðsins tii
dæmis að skrifa nöfn okkar á
tíuþúsund fótbolta sem síðan eru
seldir. Ég get alveg sagt þér eins
og er. Ég stytti nafn mitt veru-
lega og þetta tók langan tíma.“
sagði Ásgeir Sigurvinsson. leik-
maður hjá Bayern.
- ÞR.
Badminton:
Grænlendingar
koma í heimsókn
Dagana 26.-27. sept. nk.
munu 7 grænlenskir badminton-
leikmenn dveljast hér í boði TBR.
Þetta er fyrsta heimsókn þeirra
hingað, en sl. haust hélt hópur
TBR-inga til Grænlands og
dvaldi þar í góðu yfirlæti nokkra
daga.
Ljósm. I»R.
• Ásgeir hafði nóg að gera við
skriftir.
I BMBswnn I
Norðurlandamót
í Reykjavík
Aðalviðburðurinn á badmin-
tonvertíðinni að þessu sinni verð-
ur Norðurlandamótið í Laugar-
dalshöllinni 21.—22. nóvember
nk. Þangað munu vonandi mæta
margir bestu leikmenn Norður-
landa, einkum er vænst sterkra
manna frá Sviþjóð og Danmörku.
Núverandi Norðurlandameist-
arar eru Morten Frost og Lene
Koppen frá Danmörku. Ekki er þó
alveg Ijóst á þessu stigi hvort þau
gera tilraun til að verja titla sína,
því Norðurlandamótið er fyrst og
fremst áhugamannamót.
En kanski fáum við að sjá
eitthvað af þessum andlitum hér í
haust.
Kínverskur þjálfari
til BSI
Badmintonsamband íslands á von á góðum gesti frá Kina i
september. Hann heitir You Zourong, 31 árs gamall og mun starfa við
þjálfun á vegum BSÍ næstu sex mánuði.
You er mjög góður leikmaður og varð m.a. Kinameistari í
tvíliðaleik 1978. Nú sem stendur er hann þjálfari fyrir fylkislið
Fujian, en þetta lið er margfaldur Kinameistari i landsmótum.
Sennilega er þetta einn besti hadmintongestur sem hingað hefur
komið og er stórkostlegt að slikt samstarf hafi tekist milli
badmintonsambanda Kina og íslands.
„Náum við góðum leik
þá vinnum við Fram“
— segir Kjartan Másson þjálfari ÍBV
„VIÐ ætlum okkur ekkert annað
en sigur í leiknum. en lið Fram er
crfiður mótherji. Og sér í lagi cru
þeir erfiðir mótherjar í bikarleik.
Þeir eru tvimælalaust lið sem
leggur mikið upp úr varnarleik
og sem slíkir eru þeir sterkir,”
sagði þjálfari ÍBV, Kjartan Más-
son i spjalli við Mbl.
Kjartan sagði að lið IBV myndi
ekki spila varlega í leiknum gegn
Fram. Það yrði leikinn sóknarleik-
ur og reynt að skora mörk. Það
gæti allt eins farið svo að leikur
liðanna yrði opinn og mörg mörk
yrðu skoruð.
„Við eigum von á því að margir
stuðningsmanna okkar mæti á
Laugardalsvellinum á sunnudag-
inn. Og vonandi bregðumst við
þeim ekki. Ég er sannfærður um
að ef við náum góðum leik sigrum
við Fram. Það verður fyrst og
fremst leikur miðvailarleikmann-
anna sem ræður úrslitum í leikn-
um. Og ég mun stilla mínu liði upp
í samræmi við það,“ sagði Kjart-
an.
Þórður Hallgrímsson, fyrirliði
ÍBV, vildi engu spá um úrslit
leiksins, en sagði að leikurinn
legðist vel í sig. „Svona leikir geta
farið allavega og ógerlegt er að
spá um úrslit," sagði Þórður.
Eins og skýrt hefur verið frá
Á MORGUN sunnudag fer fram
úrslitaleikurinn i bikarkeppni
KSÍ. Leikurinn hefst kl. 15.30.
Liðin sem leika til úrslita eru
núverandi bikarmeistarar Fram
og ÍBV.
í þetta sinn leika Framarar til
úrslita í áttunda sinn, þar af í
fjórða sinn á sl. 5 árum.
hefst leikur liðanna kl. 15.30.
Heiðursgestur á leiknum verður
Þorsteinn Einarsson, fyrrum
íþróttafulltrúi ríkisins.
- ÞR.
Vestmannaeyingar leika til úr-
slita í fimmta sinn.
Þessi sömu lið léku til úrslita
einnig 1980 og þá sigraði Fram
2—1. Það lið sem oftast hefur
leikið til úrslita í bikarkeppni KSÍ
er lið íþróttabandalags Akraness,
en Akurnesingar hafa ieikið alls
níu sinnum og aðeins sigrað einu
sinni, árið 1978, er þeir sigruðu
Valsmenn 1—0.
Bikarúrslitin á morgun:
TekstÍBV að
leggja Fram?
Harðri keppni spáð í Bikarkeppni FRI:
Veita KR-ingar
ÍR-ingum keppni?
Bikarkeppni Frjálsíþróttasam-
bands fslands verður háð á Laug-
ardalsvelli í dag og á morgun, og
þykir víst að baráttan um sigur í
keppninni verði bæði harðari og
meira spennandi en undanfarin
níu ár. ÍR-ingar hafa sigrað
undanfarin niu ár, venjulega með
talsverðum yfirburðum. En þar
sem óvænt fjölgun varð i herbúð-
um KR-inga í vetur, er margir
landsliðsmenn gengu úr öðrum
félögum. er því spáð. að KR-ingar
veiti ÍR-ingum harða keppni um
hikarinn að þessu sinni. ÍR-ingar
munu ákveðnir í að vinna tiunda
árið í röð, svo að ekkert verður
gefið eftir og hart harizt um
hvert einasta stig. Bikarkeppnin
fer nú fram i 16. sinn. KR hefur
unnið fimm sinnum, Ungmenna-
samhand Kjalarnesþings einu
sinni og ÍR níu sinnum.
Að þessu sinni keppa IR, KR, Á,
UMSB, KA og FH í 1. deild.
Borgfirðingar eru nýliðar í 1.
deild, og trúlegir þykja þeir til að
halda sæti í deildinni, en að
baráttan um fallið muni standa
milli Ármanns, KA og FH. Helzt
er að því hallazt, að róðurinn verði
hvað erfiðastur hjá KA, þar sem
félagið missti tæpan tug landsliðs-
manna yfir í önnur félög í vetur.
Félagið á þó enn harðsnúnu
kvennaliði á að skipa sem vinnur
mörg stig. KA varð í öðru sæti í
keppninni í fyrra.
Flestir beztu frjálsíþróttamenn
landsins verða meðal keppenda, og
má m.a. nefna Hrein Halldórsson,
Erlend Valdimarsson, Óskar Jak-
obsson, Odd Sigurðsson, Jón Dið-
riksson, Sigurð T. Sigurðsson,
Gunnar Pál Jóakimsson, Þorvald
Þórsson, Friðrik Þór Óskarsson,
Jón Oddsson og Einar Vilhjálms-
son. Af kvenfólkinu sem keppir
má nefna Þórdísi Gisladóttur,
Oddnýju Árnadóttur, Helgu Hall-
dórsdóttur, Guðrúnu Ingólfsdótt-
ur, íris Grönfeldt, Dýrfinnu
Torfadóttur, Bryndísi Hólm, Geir-
laugu Geirlaugsdóttur, Sigríði
Kjartansdóttur og Ragnheiði
Ólafsdóttur.
Bikarkeppnin hefst í dag kl. 14
en verður fram haldið kl. 10 í
fyrramálið. Keppnin í annarri og
þriðju deild fer fram á Blönduósi
og á Selfossi á sama tíma.
Frá úrslitum I 1500 metra hlaupi kvenna á Evrópumeistaramóti
unglinga i frjálsum iþróttum í Hollandi. Nr. 693 er Nina Gorbatjuk
frá Rússlandi, en hún varð fjórða. Ragnheiður Ólafsdóttir FH er nr.
475, en Ragnheiður vann það frábæra afrek að verða i fimmta sæti i
úrslitahlaupinu. Á eftir henni kemur Charlotte Kaag frá Danmörku
sem varð i sjöunda sæti. Ragnheiður keppir i bikarkeppni FRÍ um
helgina. B. Jprusalom.
W,